Morgunblaðið - 11.09.1932, Blaðsíða 3
M O R G UNBll A Ð I Ð
^Rorgttnblatoð
Útfí.: B.f. Ái'Takui, ItrkJtTlk.
ttltatjðrar: Jön KJartanaaoa.
Valtýr Staf&nsaoa.
Kltatjörn og afgrelBsla:
▲uaturatrietl I. — Slael (II,
▲ualýalnKaatJörl: H. Baíberf.
▲nalfaing-aekrlf stof a:
▲usturstratl 17. — Maal tll.
Melaeaalaar:
Jön KJartansson nr. T4I.
Valtýr Stefánaaon nr. 1110,
B. Hafber* nr. 770.
AakrlftaaJald:
Innanlanda kr. 1.00 á aaánaVl.
Dtanlands kr. 1.10 á aaánnOt,
I lansaaölu 10 aura elmtaklB.
10 aura meV Besbðk.
Katalonía
fær sjerstöðu innan ríkisins.
Madrid 9. sept.
United Press. PB.
Þjóðþingið hefir með 314:24 atkv.
samþykt frumvarp um stöðu Kata-
lóníu innan lýðveldisins og frum-
varpið til umbóta á sviði landbúnað-
arins með 318:19 atkv.
Afvopnunarráðstefnan.
Fer hún út um þúfur vegna
jafnrjettiskröfu Þjóðverja?
Grenf 9. sept.
United Press. PB.
Aðalnef nd afvopnun arráðstef nunn-
&r kemur saman á fund þ. 21. sept.
samkvæmt áætlun, en menn óttast,
að fundum verði frestað samdæg-
urs, vegna ótta við að Þjóðverjar
neiti að taka þátt í störfum ráð-
sstefnunnar.
málamiðlun
í bresku launadeilunni.
Manchester 10. sept.
United Press. PB.
Báðir aðilar í launadeilunni hafa
fallist á að gera frekari tilraunir
til þess að ná samkomulagi. Er þetta
árangurinn af brjefum verkamálaráðu
neytisins til deiluaðila. Verkamálaráð
herrann, Sir Henry Betterton, hefir
ákveðið fund í Manchester á þriðju-
■dag, og verður E. G. Leggett forseti
fund'arins, en hann er skrifstofustjóri
í verkamálaráðuneytinu.
Barnalömun í Grænlandi.
í hjeruðunum umhverfis Sykurtopp
•og Holsteinsborg í Grænlanidi hefir
barnalömunarveiki geisað í sumar. —
Segir svo frá í „Tingakrossur“ að út
af þessu hafi færeysku sjómennimir,
.sem eru að veiðum hjá Grænlandi,
forðast það eins og heitan eldinn að
hafa neitt samband við þessi hjer-
uð. — Eina viku dó 21 barn úr þess-
ari veiki.
Skólaskipið ,Niobe‘.
Það var 26. júlí að þýska skóla-
•skipið „Niobe“ sökk í Eystrasalti
og fórust þar 69 menn. Nú nýlega
hefir Þjóðverjum tekist að hefja
það frá botni og draga það marandi
í kafi inn til Kiel. Þar tóku björg-
unarskipin „Kraft“ og „Wille“ við
og komu því á flot. Þegar farið var
að leita í skipinu, fundust þar 31
lík. Voru þau öll jörðuð samtímis í
Kiel með mikilli viðhöfn.
Lýsisverkun
og lýsisverslun.
Verðgildi lýsis mið-
að við fjörefnagildi
þess.
Ásgeir Þorsteinsson verkfr. er ný-
kominn heim frá Noregi og Dan-
mörku. Erindi hans þangað var að
athuga vjelar til svonefndrar kald-
hreinsunar á lýsi. Hann er í stjórn
Lýsissamlags ísl. botnvörpunga, og fór
á vegum fjelagsins, sem hefir sett
sjer það mark, að gera íslenskt meðala
lýsi að fullverkaðri vöru, sem hægt sje
að selja beint til neytendanna.
Um lýsisverkunina og lýsisverslun-
ina hefir Ásgeir Þorsteinsson sagt
blaðinu:
Til þess að lýsið sje fullverkuð
vara við hæfi neytendanna, þarf það
að vera kaldhreinsað, sem kallað er.
Hingað til höfum við orðið að láta
okkur nægja að hreinsa úr lýsinu sora
og vatn og jafna gæði lýsisins. En
þær kröfur eru gerðar til meðalalýsis,
að í því sjeu engin „föst“ fituefni,
sem storkna, þegar hitastig lýsisins
kemur niður að frostmarki.
Lýsi það, sem hjeðan flyst, og ekki
er kald'hreinsað, er því selt til milli-
liða; lýsiskaupmanna í Noregi og
Bandaríkjum og víðar, sem síðan
kaldhreinsa það og selja neytendum.
Nú hefir Lýsissamlag ísl. botnvörp-
unga ákveðið að koma upp stöð fyrir
kaldhreiiisun á lýsi. Verður væntan-
lega fest kaup á áhöldum í stöð þessa
svo tímanlega, að hún geti tekið til
starfa á næstu vertíð.
Erá stöð þessari verður svo hægt
að selja hið fullverkaða íslenska lýsi
beint til neytenda hvar sem er í heim-
Fjörefnagildið.
Fjörefnarannsóknirnar eru nú
komnar á svo fastan grundvöll, að hægt
er að tilgreina fjörefnagildi fæðuteg-
undanna með sama mælikvarða um
allan heim. Hefir þá jafnframt komið
fram sú krafa, að fullverkuðu lýsi,
sem selt er, fylgi skilgreining á f jör-
efnagildi þess, sem bygð væri á ó-
hrekjandi athugun á lýsinu.
Má því búast við, að á lyfja-
skrám verði það gert að skilyrði, að
lyfjabúðir selji ekki meðalalýsi, nema
því fylgi vottorð um fjörefnagildi
þess.
Af þeim rannsóknum, sem þegar
eru gerðar á íslensku lýsi, hafa menn
ástæðu til að gera sjer vonir um, að
það sje sjerlega auðugt af fjörefnum,
í samanburði við lýsi það, sem aðr-
ar þjóðir framleiða.
Því meiri ástæða er til þess fyrir
okkur, að fullverka lýsi okkar, svo
við getum selt það beint til erlendra
lyfjabúða. En þá verðum við að sjá
okkur fyrir fjörefnarannsóknum á
lýsinu.
Jeg býst við því, segir Ásg. Þorst.
að við getum notið þar leiðbeininga
dr. Skúla Guðjónssonar, fyrsta sprett-
inn. Hann er manna fróðastur í fjör-
efnarannsóknum. Frá stofnun þeirri,
sem hann starfar við, getum við
fengið óyggjandi vottorð um fjörefna-
gildi hins fullverkaða útflutningslýsif
fyrst í stað. En fljótlega ættum við
að koma upp áhöldúm og tækjum
til fjörefnarannsókna hjer heirna, svo
við getum sjálfir rannsakað lýsið, og
gefið um það nauðsvnleg vottorð, svo
það verði trygg verslunarvara.
VLsbendingar um, að íslenska lýsið
sje sjeriega fjörefnaríkt, æjtu að ýta
undir okkur um að koma lýsisverkun
og -verslun okkar þannig fyrir, að við
njótum sjálfir þeirra gæða, sem ís-
lenska lýsið hefir, með því að koma
því sem fyrsta flokks vöru í hendur
neytendanna sjálfra.
Má óefað vænta þess, að Níels
Dungal geti hjer, með rannsóknastarfi
sínu orðið íslenskri útgerð að miklu
gagni. Fái hann tæki í hendur til f jör-
efnarannsókna, getur hann rannsakað
lýsið jafnóðum og það er framleitt,
og sagt til um fjörefnagildi þess.
□agbóh.
□ Edda 59329133þí> (þriðjudag.
Jarðarför frá dómkirkjunni.
Veðrið (laugardagskvöld kl. 5):
Lægðarmiðjan er enn við SV-strönd Is
lands, og er vindur því A—SA-læg-
ur nema um NV-hluta landsins þar er
N-átt. Um alt lánd er nokkur rigning,
liiti víðast 8—10 stig. N-átt er ríkj-
anidi á Grænlandshafi og úti fyrir V-
landi. Lítur út fyrir, að hún nái sjer
vestan lands á morgun.
Veðurútlit í Rvík í dag: N-kaldi.
Ljettir sennilega til.
Trúlofun. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína ungfrú Aðalheiður E.
Ólafsdóttir, Vitastíg 8 A og Runólfur
Ejarnáson járnsmíðanemi, Framnesveg
60. —
Bethanía. Samkoma í kvöld kl. sy2.
Allir velkomnir. NB. Þeir meðlimir
kristniboðsf jelaganna, sem vildu taka
látt í kaffisamsæti kl. 3 síðd. í húsi
K. F. U. M. í tilefni af 70 'ára afmæli
mæts fjelagsbróður, eru beðnir að gefa
sig fram þar. Fjelagi.
fslensk handavinna getur fyllilega
staðið erlendri handavinnu á sporði,
iví að íslendingar eru í eðli sínu
mörgum listhagari, þegar þeir taka sig
tii. Þetta má sjá á mörgu og nú sein
ast í gær á Lækjartorgi. Þar var til
sýnis „Buick“-bíll, sem Stefán Ein-
arsson, Lindargötu 4 hafði smíðað hús
á, en Sigurjón Guðbergsson, Klappar-
stíg 18 hafði málað. Dáðust menn
iví hve vel bílhúsið var smíðað og
málað. Og á þessu er sýnilegt, að hjer
eru til kunnáttumenn, sem geta leyst
roörg þau verk af hendi sem nii eru
keypt dýrum dómum frá útlöndum.
Hrossamarkaður rýrnar. Fram til
1. september í ár hafa ekki verið
flutt út nema 395 hross, en 563 á sama
tíma í fyrra. Hrossaútflutningurinn
m'inkar með hverju ári, svo að til
vandræða horfir. Eina ráðið til þess
að bæta úr þessu, er að leggja rækt
við hrossakynbætur og ná í markað
erlendis fyrir íslenska reiðhesta, því
að það er vel hægt, ef vilji er með.
Málverkasýning frú Gretu Björns-
son í Pósthússtræti verður opin í
dag en ekki lengur. Eru því seinustu
forvöð fyrir menn til þess að sjá
hana. Á sýningunni hafa þegar selst
5 vatnslitamyndir.
Ný verslunarvara. Það má kalla, að
fiskbein og fiskhausar sje orðin ný
verslunarvara hjá oss, síðan byrjað
var að mala hausana og beinin og
flytja út mjölið. Fer útflutningur á
því stórum vaxandi, og bendir það
oss á hvílík rányrkja hefir verið
framin í fiskveiðum hjer við land að
undanförnu, þegar ekkert var hirt af
aflanum nema búkar fiskanna og lifr-
in — öllu öðru fleygt. í ár hafa fram
að þessum tíma verið flutt lit 906.780
kg. af fiskbeinum og hausum og hafa
fengist fyrir þau 69.180 kr. Það verð
er að vísu mikið lægra heldur en í
fyrra. Þá voru útflutt 657y2 þús. kg.
og veráið, sem fyrir það fekkst var
107.900 krónur.
Morgunblaðið er 8 síður í dag og
Lesbók.
Súðin var á Kálfsþamatsvík í gær-
dag.
10. seplember
var dregið um ÁGIJST VERÐLAUNIN á skrif-
stofu lögmanns og hlutu þessi númer verðlaun:
Kr. 300.00 nr. 8545
Kr. 100.00 nr. 13682
Kr. 50.00 nr. 11658
Kr. 25.00 nr. 12897
Kr. 25.00 nr. 19488
Kr. 10.00 hlutu þessi númer:
2129 23523 22786 18716 18537 14973 1333 22456
19001 12283 8486 1328 11013 22097 18552 5501
12048 15682 17446 6220 8677 212 23465 7478 2157
3727 23997 8850 13885 11357 1218 21293 6571
6232 6128 15686 22455 2732 11931 6080 4878 891
14919 18636 14040 11570 560 617 18774 13393.
Kr. 5.00 hlutu þessi númer:
17280 4308 21970 11128 12242 2004 12007 9132
9805 11757 2750 17500 9585 14818 199 13367 1447
20990 16005 16777 18833 21870 1330 17186 7179
4228 6570 999 211 8307 22141 21044 2541 231 17952
15855 22485 22165 15005 11677 24771 14164 14041
12629 19590 226 12478 18657 11536 7311.
Handhafar gulu verðlaunamiðanna, með ofan-
greindum númerum, vitji verðlaunanna, á skrif-
stofu okkar, í Hafnarstræti, kl. 1—3 síðd. alla
virka daga nema ekki á laugardögum.
10. október verður dregið um SEPTEMBER
VERÐLAUNIN, — GRÆNU VERÐLAUNA-
MIÐANA.
KaffiMa
0. lohnson & Haaber.
Hatta- og Skermabáðin
Austurstræti 8.
HT Hanst- og Vetrarhattarnir komnlr.
Nýjasta tíska. Hvergi smekklegri. Hvergi ódýrari.
Ingibiörg Blarnadóttir.
Vetrarkíparnar og kfílarnlr
eru komnir. Aðeins fegurstu móðar. Lágt verð.
Verslun Hristínar Sigurðardnttur.
Sími 571.
rrtTWfitfu -
Laugaveg 20 A.