Morgunblaðið - 17.09.1932, Page 2

Morgunblaðið - 17.09.1932, Page 2
2 M0R6U NBLAÐIÐ 1 ÖlÍehIÍÍ Höfam aftnr fengiö HoloiDiadi spilin. Þan ern viö taæli allra góðra spiiamanna. Nýtt dtlkakfet með lægsta verði. Nýreykt hangikjöt, lifur, hjörtu og svið. Á kvöldborðið höfum við nýsoðið slátur og ofanálegg alls konar. Athugið, að versla þar, sem varan er best, úrvalið mest og afgreiðslan best. MATARDEILDIN, Hafnarstræti 5. Sími 211. MATARBÚÐIN, Laugaveg 42. Sími 812. KJÖTBÚÐIN, Týsgötu 1. Sími 1685. III sfilu aeð tækifærisvirði húseignin Lindargata 43 B, með eignarlóð. — Upplýsing- ar gefur JÓN ÓLAFSSON, málaflutningsmaður, Lækjar- torgi 1, sími 1250. — Heima 2167. Skrifleg tilboð má og gefa í eignina. Hestamannafielagið Fákur. Þeir hestaeigendur, sem eiga hesta sína í hagagöngu hjá fjelaginu, eru hjer með látnir vita, að allir hes|ar verða reknir í rjettina hjá Tungu, til nfhendingar, sunnudaginn 18. þéssa mánaðar. Þeir, sern óska eftir að láta hesta sína vera lengur, tilkynni það Sigurlásí Nikulássyni. A. V. Hestar sem ógreidd hagagjöld hvíla á verða ekki afhentir nema greiðsla fylgi. STJÓRNIN. Tfminn og Eimskip. Rjettleysi hluthafanna. Það kemur einstöku sinnum fyrir að jeg lít í blaðið „Tíminn“. Þetta blað blekkinganna, sem flestu snýr öfugt, eða ætlar sjer að „umhverfa landslagi öllu“ eins og Ljót gamla er hún gekk öfug með hausinn milli fóta sjer. Enda er ekki við öðru að búast þar sem óhappa Hrolleifur 20. aldar- innar hef'ir tekið sjer bólfestu. 1 39. tbl. þess blaðs, er grein sem heitir: Skipaútgerð ríkisins, og hún lofuð nijög eins og vænta mátti í því málgagni, hvað þar sje alt betra, ó- dýrara og fullkomnara heldur en hjá Eimskipafjelagi íslands, sem sje orðið fullkominn ómagi á ríkissjóði, enda er því fyllilega haldið fram, að það sem beri að gera sje að alt það hlutafje, sem reitt var saman í upp- hafi, og mörg fátæk manneskjan, l>æði ung og gömul lagði fram, meira af vilja en mætti, verði gert að engu, með því að afhenda ríkinu forgangshluta- brjef fyrir því tillagi sem það veitir fjelaginu. Þetta er ein eignaránsað- ferðin hjá þeim sem ekkert vilja sjá nema ríkisrekstur á öllum sviðum. Jeg get sagt greinarhöfundi það þó hann virðist ekki vilja sjá aðra hluthafa en Eggert Claessen og Jón Þorláksson, að það er til fjöldi af fátæku fólki sem á sitt lítið hver af þessum brjefum, en það er nú ekki verið að flíka því -á bænum þeim, þegar það passar ekki í kramið í það sinn. Yfirleitt hefir sá hugsunarháttur verið altof ríkjandi hjer á landi að hirða lítið um hagsmuni hluthafa, þeg- ar einu sinni er búið að ginna fólk til að leggja fram fje til einhvers fyr- irtækis með fögrum loforðum, sem sjaldan vantar, en rjetturinn virðist oft ekki mikill í reyndinni þegar búið er að leggja það fram, eða skyldurnar hjá hlutaf jelögúnum við hluthafana. Þetta er skaðlegur hugs- unarháttur, eins og allir ættu að geta s.ieð og síst til þess fallinn að efla sam tök manna, því mörgu góðu og nyt- sömu fyrirtæki má koma á fót með samtökum fjöldans sem einstaklingi er um megn, eins og sýndi sig við stofnun Eimskipafjelagsins, og ættu beir síst að vera til þess að auka tor- tryggni manna að leggja fje í annara hendur, seiri þykjast telja sig fylgj- andi samvinnu. Qreinarhöfundur segir að menn muni hafa lagt hlutafjeð fvam meira til almenningsheilla, held- ur en til þess að hirða arð af því per- sónulega. Þetta getur verið að ein- hverju leyti satt, en það er jafnvíst að menn bjuggust fastlega við því að fje þessu væri ekki á glæ kastað og það mundi að minsta kosti bera sparisjóðs- vexti, því margur lagði þar fram af fátækt sinni, og síst var búist við því að menn yrðu þar fvrir eignaráni af hinu opinbera eða fyrir aðgerðir óhlutvandra stjórnmálabraskara. Eins og mönnum er kunnugt hafa ekki verið borgaðir neinir vextir af hlutum manna í fjelaginu á síðustu árum, og er ekki hægt annað að segja en hluthafar hafi tekið því með miklu jafnaðargeði, aðallega vegna þess að fjelagið er mönnum hjartafólgið og hafa álitið það ekki þess megnugt að greiða neina vexti. En eftir að það er orðið upplýst að hin slæma afkoma hjá fjelaginu er af því komin að það hefir int skyldur af hendi sem því bar alls ekki að gera sem lilutaf jelagi, en sem ríkið er skyldugt að kosta, sem nemur eftir því sem hin stjórnskipaða nefnd hefir upplýst 650.000 kr. árlega, að frá- dregnum öllum fjárstyrkjum til fje- lagsins, þá er það alls ekki líðandi lengur að það borgi ekki hluthöfum neinn arð af hlutum sínum, eða rjett- ara sagt, að ríkissjóður annist um greiðslu þess, því hans er skyldan. Það hefði verið ólíkt eðlilegri og sjálf- sagðari útgjaldaliður í ríkisreikning- um fyrirfarandi ára, heldur en sumir þeirra sem þar nú skarta. Þegar það nú er vitað að í raun og veru hefir ríkissjóður stórgrætt á fjelaginu, og fjelagið ' verið hin mesta lyftistöng þjóðarinnar frá hvaða hlið sem það e.r tekið og eitthvert mesta sjálfstæðis- spor hennar. Jeg fæ ekki sjeð hvaða sanngirni eða rjettlæti er í því, að þeir menn sem svo voru þjóðræknir og fórnfúsir á sínum tíma að leggja fram peninga til stofnunar fjelagsins, eigi að fá það til endurgjalds að eign þeirra sje fyrst haldið arðlausri í fleiri ár og síðan rændir henni með öllu. Eða er það nokkur sanngirni að það litla brot af þjóðinni bæði hjer og erlendis, sem lagði fjeð fram í upphafi, sje skyldugt til að fórna þessu fyrir þann mikla inei rihluta, þjóðariVmar, sem aldrei hef- ir lagt neitt til stofnunar þess, en fje- lagið hefir verið illa stætt mörg fyrir- farandi ár vegna þess að það hefir tekið að sjer skyldur fyrir alþjóð, sem það hefir stórtapað lá. Úr því að fjelagið var stofnað sem hlutafjelag, og framlagsmönnum talin trú um að þetta fillag þeirra væri oign þeirra sjálfra áfram, en ekki gjöf, þá er það skylda bæði fjelagsins að haga sjer eftir því og ekki síst skylda þings og stjórnar að hlaða ekki svo miklum kvöðum á fjelagið, langt fram yfir það tillag sem því er veitt, að fjelagið fái ekki undir risið. Að ætla sjer með lymsku að eyðileggja eign hluthafa í fjelaginu, með því að gera hluti þeirra að annars eða þriðja flokks vöru —eins og fyllilega er gef- ið í skyn í „Tímanum“ og það máske mest vegna þess, að þjóna illu inn- eti gagnvart fáum mönnum — er í mesta máta óheiðarlegt. Komi það fyrir — sem er vonandi að ekki verði — að leysa þurfi Eim- skipafjelagið upp, sem hlutafjelag, og ríkið taki að sjer rekstur þess á ein- hvern hátt, þá getur það því aðeins orðið að ríkið jafnframt borgi að fullu alt blutafjeð og sparisjóðsvexti vrir öll þau ár að auki, sem fjelagið hefir ekki greitt þá. Með því eina móti mætti segja að þing og stjórn skildi nokkurnveginn sómasamlega við þá sem lögðu einn aðalhornsteininn undir gæfu þjóðarinnar og framfarir hennar á síðari tímum. Þ. J. Oánægja innan bresku stjórnarinnar. London 16. sept. United Press. PB. Fullyrt er, að frjálslyndu ráðherr- arnir í þjóðstjórn Bretlands, ætli að segja af sjer. Munu þeir bræða þetta rneð sjer nú og taka fullnaðarákvörð- un inn^n fárra daga. Astæðan til þess, að þeir eru sund- urþykkir hinum ráðherrunum í þjóð- stjórninni, er megn óánægja frjáls- lynda flokksins yfir samningum þeim, sem gerðir voru í lok Ottawaráðstefn- unnar. Telur fjöldi frjálslyndra manna, samninga þá, sem gerðir voru : Ottawa, algert brot á grundvallar- atriðum fljálslynda flokksins. M.s. Dronning Alexandrine fer f kvild kl. 8. Skrlfstofa G. Zimsen. t Divan-hillur H O R N -- ÚTYARPS ---- „AMAGE R“ -- Mjög fallegar — en Odýrar Hdsgaguaversl. við Dúmkirkjuua. Nýreyki Saufio- banglklðL og spikfeitt, nýtt dilkakjöt. Verðið lækkað. Lifur — Svið og Pylsur. M u n i ð: Hjöt & nskmetisgerðin, G-rettisgötu 64. Sími 1467. Útibú: Fálkagötu, 2. Sími 924.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.