Morgunblaðið - 01.10.1932, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
)) ManæiM i Olsem ((
Stormvaxið
•r komlð aftnr.
Hý kenslubók.
ftölsk málfræði eftir Þórhall Þorgilsson
er komin i bókaverslanir.
ísafolöarprentsmiðja h.f.
Kolaverslnn
Oigeirs Friðgeirssonar
við Geirsgötu á Austuruppfyllingunni,
selur ágæt kastkol og smámulið koks.
Fljót og ábyggileg afgreiðsla.
Reynið, og þjer munuð verða ánægður
með viðskiftin. Sími 2255.
Porvaldur Biarnason
kaupmaður í Hafnarfirði,
andaðist 29. þessa mánaðar eftir upp-
skurð í Hafnarfjarðarspítala.
Hann var mjög vel látinn ruaður,
enda prýðilega vel gefinn, vandaður
■og dagfars góður. Hann var giftnr
Maríu Víðis Jónsdóttur Þveræings.
Frá Akureyri.
Akureyri FB. 30. sept.
Kjötverð
nú í sláturtíðtnni er 40 til 70 aura
á kgr. Hefir verð á kjöti ekki verið
jafn lágt í 16 ár. Mjólkurverð er nú
25 aura lítrinn og hefir lækkað um
10 aura frá því í fyrra.
Skip er nýlega komið til Kanpfje-
lags Eyfirðinga, hlaðið vörum frá
Rússlandi, aðallega trjávið og rúg-
mjöli.
Prestskosning
til Grundarþinga fer fram sunnudag-
inn 9. október. Umsækjendur eru tveir,
sr Benjamín Kristjánsson og Gunnar
Jóhannesson eand. theol. frá Fagra-
<lal á Fjöllum.
Dagbók.
□ 59321047—1. Framh.-fjárhagsst.
Lóðarn. gefur skýrslu.
Veðrið í gær: Veður er bjart um
.alt land og víðast hæg N-átt. Þó er
allhvast í Vestmannaeyjum og sums
staðar á Austfjörðum. Hiti er 2—5
stig. Fyrir norðan landið er V-átt
-og má búast við að hún breiðist
suður yfir landið á morgun.
Veðurútlit í dag: N og síðan SV-
gola. Þykknar upp og rignir senni-
lega með kvöldinu.
Kenslu.bók í ítölsku. Ahugi á róm-
iinskum málum er allmjög að aukast
hjer á landi, og er það vel farið,
þar sem Islendingar eiga svo mikil
viðskifti við þær þjóðir. f fyrra kom
rit kenslubók í spönsku eftir Þórhall
Þorgilsson kennara, og nú er ný-
komin kensluliók í ítölsku, eftir sama
höfnnd. Þórhallur er góður kennari
«g manna best mentaður í rómönskum
málum.
Messnr á morgun: f Fríkirkjunni
kl. 11, síra Bjarni Jónsson; kl. 2
síra Friðrik Hallgrímsson; kl. 5 síra
Arni Sígurðsson. Vegna aðgerðar á
Dómkirkjunni eru guðsþjónustu safn-
aðarins haldnar í Fríkirkjunni.
Hjónabönd. í dag verða gefin sam-
an í hjónaband ungfrú Margrjet Jóns-
dóttir, Hverfisgötu 68 A, og Þór-
bergur Þórðarson, rithöfundur.
1 dag verða gefin saman í hjóna-
band, ungfrú Ásta Lára Jónsdóttir
Olafssonar bankastjóra, og Othar
Ellingsen, verslunarmaður.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band af síra Árna Sigurðssyni ungfrú
Sigþrúður Guðjónsdóttir og Tryggvi
Andreasen, vjelstjóri. Heimili þeirra
verður á Sólvallagötu 5 A.
í kvöld verða gefin saman í hjóna-
band Andrea - Soffía Wedholm hár-
greiðslukona og Marínó Jónsson loft-
skeytamaðuf. Faðir brúðgumans, síra
Jón Árnason frá Bíldudal gefur brúð-
hjónin saman. Heimili þeirra verður
á Uppsölum.
Iðnskólinn verður settur í Varðar-
húsinu í kvöld kl. 7%. Kennarar
skólans eru beðnir að koma á fund
í skólanum kl. 8% síðdegis.
Kvöldskóli K. F. U. M. verður
settur á mánudagskvöld (3. okt.)
k' 8y2 síðd.
Mentaskólinn verður settur kl. 1
í dag.
• Kennaraskólinn verður settur í dag
kl. 2 síðd.
80 ára verður í dag merkiskonan
Sigríður Sveinbjarnardóttir Magnús-
sonar óðalsbónda í Skáleyjum á
Breiðafirði. — — Hún flutt-
ist þegar á æskuskeiði til Flateyrar
í Önundarfirði og giftist þar Sveini
Rósinkranssyni skipstjóra, alþektum
dugnaðar og framkvæmdamanni. Frá
Flateyri fluttust þau að Hvylft og
hafa alið aldur sinn þar síðan. Þeim
j varð 10 barna auðið, og eru 7 þeirraá
jlífi; þar á meðal Ólafur Th. Sveins-
■ son, skipaskoðunarstjóri og Guðmund-
j ur iSveinsson skipstjóri hjer' í bæ. —
j Mann sinn- misti hún 1907. Hún
dvélur nú hjá Guðlaugu dóttur sinni
: og tengdasyni sínum, Finni Finns-
svni á Hvylft. Frú Sigríður hefir
verið mikil og góð húsmóðir og móð-
ir, og kveikti ljós og yl hjá öllum
6r kyntust henni. Það munu margir
senda henni hlýjar kveðjur á þessu
80 ára aldursskeiði, og óska henni sól-
ríkra æfístunda með þökk fyrir
liðnu árin. J.
Dánarfregn. Frú Nellv og Skúli
Skúlason ritstjóri hafa orðið fyrir
þcirri sorg, að missa son sinn, Skúla
að nafni. ITann andaðist í fvrrinótt.
Ásgeir Bjarnþórsson málari opnar
sýningij í dag í Goodtemplarahúsinu.
Sjá auglýsin^u.
Útvarpið í dag: 10.00 Veðurfregnir.
12.15 Hádegisútvarp. 16.00 Veður-
fregnir. 19.30 Veðurfregnir. 19.40 Tón-
leikar (útvarpstríóið). 20.00 Klukku-
sláttur. Grammófóntónleikar: Kór-
söngur: Landkending eftir Grieg,
sungið af Handelstandens Sangforen-
ing; Der Tanz og Die Nacht, eftir
Schubert, Sungin af Wiener Schu-
bertbund. Piano-sólo: Ballade í As-
dúr, eftir Chopin, leikin af Alfred
Cortot. 20.30 Frjettir. Danslög til kl.
24. —
Sauðnautið í Gunnarsholti, það sein-
asta sem eftir var, drapst í
gær. Hafði það lengi verið lasburða,
var því beitt á töðuvöll og það hýst
í fjósi, en var samt grindhorað, aug-
un' bólgin og öll skepnan sýnilega
þjáð. — Skrokkurinn verður fluttur
hingað til Reykjavíkur til rannsóknar.
Sunnudagaskóli K.F.U.M. byrjar í
fvrramálið kl. 10 árd.'Öll börn vel-
komin.
Kennarastöður. Sigurvin Einarsson
og Jóhannes Jónsson úr Kötlum, hafa
verið settir kennarar við barnaskól-
ann í Revkjavík.
Til Strandarkirkju frá sjúkling 10
kr. V. S. 5 kr. Óla 2 kr. 3./9. 10
krónur.
Gnðbrandur ísberg hefir verið sett-
ur sýslumaður í Húnavatnssýslu frá
1. október að telja.
Kappskákir hefjast innan Taflfje-
lags Reykjavíkur næstu daga í Hafn-
arstræti 8. Þátttakendur eru beðnir að
skrifa sig á lista, sem lagður verður
fram kl. 2 á morgun.
Innanfjelagskappleikir fyrir 4. fl.
K. R. fer fram á morgun kl. 1 e.h.
Hlutaveltunefnd K. R. biður alla þá
sem eru að safna á hlutaveltuna, að
koma með drættina eftir kl. 1 í dag
í K. R. húsið.
Flensborgarar, sem ætla að vera við
skólasetninguna í dag, eru mintir á, að
farið verður frá Steindóri kl. 1. Þeir
sem ætla að taka þátt í samsætinu
á morgun, geta enn skrifað sig á lista
í bókaverslun Snæbjarnar Jónssonar
Á söngskrá Eggerts Stefánssonar
í Gamla Bíó á morgun verða m. a.
lög eftir tvö tónskáld á Akureyri,
Áskel Snorrason og Karl Runólfsson.
Áskell var söngkennari við Menta-
skóla Norðurlands og naut þar mikils
álits. Karl er stjórnandi hljómsveitar-
innar á Akureyri, og talinn mjög
efnilegur. Vafalaust munu Reykvík-
ingar hafa gaman að kynnast þessum
nýju tónskáldum. Eggert syngur einn-
ig ný lög eftir Jón Leifs og Sigvalda
Kaldalóns. Eggert er nú á förum til
Italíu og getur því orðið bið á, að
hann syngi hjer aftur.
Leikhúsið. Á morgun byrjar Leik-
f jelagið sýningar sínar á þessu leikári.
Verður „Karlinn í kassanum“ sýndur
fyrir lækkað verð aðgöngumiða. Sýn-
ingar á leiknum verða fáar, svo þeir
sem ætla sjer að sjá leikinn ættu að
hraða sjer að ná í aðgöngumiða.
Fjöltefli. Ásmundur Ásgeirsson
tefldi í gær fjöltefli í Siglufirði á
móti 22 mönnum og voru flestir úr
Taflfjelagi Sigluf jarðar. Ásmundur
vann 14 skúkirnar, tapaði 7 en ein
varð jafntefli.
Strandferðaskipin. Esja var á Rauf-
arhöfn í gær, en Súðin á Breið-
dalsvík.
Sundflokkur Ármanns og K. R. hafa
ákveðið að halda námskeið í björgun-
arsundi og lífgunum á sunnudögum
kl. 11V2 síðd. í Sundlaugunum. Eru
sundmonn beggja fjelaganna beðnir að
mætp stundvíslega. Allar nánari upp-
lýsingar gefur Þ. Magnússon, Lauga-
veg 30.
Kauþlækkun í Englandi.
London 30. sept.
United Press. FB.
Á sameiginlegum fundi járnbraut-
armanna og járnbrautarfjelaganna
hefir verið rætt um tillögu fulltrúa
jérnbrautarfjelaganna um 10% launa-
lækkun. Járnbrautarmenn hafa fallist
á að fresta svari sínu við tillögunni,
á meðan málið er athugað nánara.
Samkvæmt tillögunni er lækkun ráð-
gerð á kaupi 600.000 járnbrautarverka
manna.
Reykvikiigarl
Nú stendur sláturtíðin sem hæst og er því sjerstakt
tækifæri til að birgja sig upp með kjöt til vetrarins. Til
þess að gera viðskiftavinum vorum hægara fyrir, seljum
við kjöt í heilum kroppum með sömu flokkun og sama
verði og það er selt í sláturhúsinu sjálfu.
Einnig viljum við minna yður á, að daglega höfum
við nýsviðin svið. Einnig lifur og hjörtu. Tryggið yður
góða vöru með því að versla við okkur.
Matarbnðin,
Laugavegi 42. — Sími: 812.
i
Matardeildin,
Hafnarstræti 5. — Sími: 211.
Kjðtbnðin,
Týsgötu 1. — Sími: 1685.
Musik-
nemendur
Skólar og
Æfingar
fyrir öll hljóðfæri.
Hlióðfærahúsið
Austurstræti 10.
Laugaveg 38.
Skðio-
tðskur
8 mismunandi tegundir,
verð frá kr. 2.50.
Leðnrvörndeild
Hljððfærahnssins
Tilkynning.
Hjer með tilkynnist háttvirtum við-
skiftavinum mínuin, að í dag (1. okt)
flyt jeg köku gerð mína í
TJARNARGÖTU 3
(neðstu hæð).
Fæ jeg þar að mun hentugri húsa-
kynni og mun kappkosta að vera á-
valt vel birg af allskonar heimabök-
uðum kökum.
Kökusalan verður opin alla daga,
jafnt helga sem rúméhlga, frá kl. 10
á morgnana til kl. 11 á kvöldin.
Virðingarfylst.
GUÐMUNDA NIELSEN.
Eggerl
Stefánsson
syngur
Ný íslensk lög
á morgnn kl. 3 í
Gamla Bfð
Aðgm. 2.00, í
Bókaverslun Sigf. Eymundssonar
Sínu 135. Hljóðfærahúsinu. Sími
656. Hljóðfærahúsi Austurbæjar,'
Laugav. 38. Sími 15. Bókaversl.
E. P. Briem. Sími 26, og við
innganginn.
Bfirn bai,
er eiga að sækja skóla hjá okkur
í vetnr, komi til viðtals í Vonarstræti
12 ,laugardaginn 1. október kl. 1
síðdegis.
Vigdis Blöndal.
Sigrlður Magnúsdðttir.
ESTU
ÚSÁHÖLD
ÆJARINS
Allskonar
Pottar,
Katlar,
Pönnur og
Skaftpottar
5 m/m
Dykku Mominium.
Kornið skoðið og sannfærist
um gæðin.
H.f. Isaga.
Lækjargötu 8. Sími 1905.