Morgunblaðið - 01.10.1932, Page 6
/
IfORGnttRT A f) T 0
Hiðursuðudósir,
með smeltu loki, lang ódýrastar í
Hviu blikksmiiiunnl,
Frú Ouðrfður S. Líndal
Holtastöðnm.
F. 5. desember 1878. D. 11. júní 1932.
Norðurstíg 3 B.
Sími 1672.
~zhe3
Eru tennur yðar gular?
Hafið þjer gular eða dökkar
teunur, notið þá Rósól-tannkrem,
sem gerir tennurnar hvítar og eyð-
ir hinni gulu himnu, sem leggst á
þær. Rennið tungimni yfir tenn-
urnar eftir að þjer hafið burstað
þær og finnið hversu fágaðar þær
eru. — Rósól tannkrem hefir ljúf-
fengan og frískan keim og kostar
að eins 1 krónu túban.
Tannlæknar mæla með því.
H.f. Efnagerð Reykjavfkur.
kemisk verksmiðja.
ÚdVrasta
klðtverslun bæiarins er
Bergstaðastræti 35.
Spikfeitt dilkakjöt, sviðin svið, lif-
ur og hjörtu, íslenskar gulrófur og
kartöfínr, þurkaðir ávextir.
Sendið eða símið.
Sími 1091.
Lifnr, hjörln,
altaf nýtt. Fljót afgreiðsla.
Klein,
Baldursgötu 14.
Sími 73
bestu gengu fyrir, er ekki ósann-
gjarnt, allra hluta vegna, enda nauð-
synlegt að útiloka alla pólitík í starfs-
mannavali, því hún er óhæfur mæli-
kvarði á afkastamöguleikum manna, í
alla staði.
Togaraskipstjóri.
Sauðnaut á Svalbarða.
Sauðnautarækt Norðmenna á Sval-
barða hefir gengið betur heldur en
sauðnautaræktin hjer á Islandi, enda
ciga Norðmenn engan Hannes dýra-
lækni til þess að ákveða það, hvað
sauðnautunum sje fyrir bestu. Þeir
fóru þannig að ráði sínu, að þeir
fluttu 17 sauðnautakálfa til Svalbarða
1929 og sleptu þeim þar. Hafa þeir
ekkert skift sjer af þeim síðan, en
lofað þeim að hafa fult frelsi. Allir
lcálfarnir lifðu og eru nú fullvaxin
sauðanut. Og í sumar sáust þar tveir
kálfar. Eru sauðnautin því farin að
tímgast þar og líglegt að á nokkurum
árum komist þar upp álitlegur kyn-
stofn, án þess að til þess hafi öðru
erið kostað en að flytja dýrin milli
ndanna.
Hún var fædd og uppalin á hinu
fornfræga höfuðbóli, Lækjamóti í Víði-
dal. Voru foreldrar hennar kunn merk-
ishjón, Sigurður Jónsson og Margrjet
Eiríksdóttir. Sigurður var sonur Jóns
bónda frá Valdarási og Steinvarar
dóttur Skúla stúdents á Stóru-Borg,
sem mikil ætt er frá komin. En
Margrjet var Eiríksdóttir Jakobssonar
Snorrasonar prests á Húsafelli og er
sú ætt alkunn í Borgarfirði syðra.
ióðir Margrjetar var Guðríður dóttir
sjera Jóns Jónssonar á Auðkúlu dótt-
ursonar Finns biskups.
Þannig var frú Guðrún vel kynjuð í
báðar ættir, enda virtist henni meiri
göfgi í blóð borin en flestum konum
öðrum.
I uppvexti naut hún mikið meiri
nientunar en alment gerðist um ungar
stúlkur til sveita. Hlaut hún bestu
kenslu í flestum kvenlegum listum
bæði heima og erlendis, en mestrar
kunnáttu aflaði hún sjer þó í þeirri
grein, er fyr og síðar var henni hjart-
fólgnust, hljómlistinni.
Er það mála sannast að á öll-
um sviðum var hún einhver mentað-
asta kona sýslunnar, en þeirra fremst
í söngfræði og organleik.
Nýkomin úr utanför varð hún for-
stöðukona Kvennaskólans á Blönduósi
og gegndi þeirri stöðu um 10 ára
skeið, elskuð af nemendum og virt af
öllum, er til þektu.
21. júní 1911 giftist hún eftirlifandi
manni sínum, Jónatan J. Líndal óðals-
bónda á Holtastöðum. Eignuðust þau
tvö börn, sem bæði eru á lífi og í föð-
urhúsum, Jósafat gagnfræðing og
Margrjeti.Auk þess ólu þau upp stúlku
að nafni Sigríði Stefánsdóttur og
hafa verið henni jafngóð sínum eig-
in börnum.
Holtastaðir eru stórbýli og hafa þau
hjón setið þá með mikilli prýði. Hafa
farið saman miklar umbætur á öllum
sviðum og annálsvert heimilislíf. Get
jeg vottað það með sanni, því hin
fyrstu ár mín hjer var jeg þar heim-
iiismaður.
Frú Guðríður var ætíð mikið riðin
við kvenfjelagsmál bæði í sveit og í
hjeraði, og hvatti þar mjög til fram-
fara og framsóknar.
Frú Guðríður var kona vel gefin,
mentuð, siðprúð, stilt vel, skemtin 'jg
ljúfmannleg, en framar öllu eins og
segir um fornkonur, drengur góður.
Engin vandalaus manneskja hefir ver-
ið mjer betri en hún, og ekkert vissi
jeg nema gott um hana, og mun jeg
samt hafa þekt hana manna best. Hún
var göfug kona í fylstu merking þess
orðs.
Hún var jarðsett 22. júní að við-
stöddu miklu fjölmenni, og hvílir lík-
ami hennar í gamla kirkjugarðimim á
Holtastöðum, sem hún sjálf hefir
breytt í unaðslegan blóma- og trjágarð.
Það er trú mín að andi hennar gleðj-
ist í ljósheimum. Og það er bæn mín
að þar fái hún reynt, og það í enn
ríkara mæli, hve vel hún var mjer
og öðrum, sem hún gaf svo miklu
meira en orð fá lýst.
Guð fylgi henni!
Gnnnar Árnason.
Stjórnarmyndun í Ungam.
Budapest 29. sept.
United Press. FB.
Horthy ríkisstjórnandi hefir falið
Goemhoes hermálaráðherra að mynda
nýja stjórn.
>.Jeg hefi reynt um da-
gana óteljandi tegundir
af frönskum Jiandsápum,
en aldrei á æfi minni hefí
jeg fvrir iútt neitt sem
jafnast á við Lux hand-
sápuna ; vilji maður hal-
da hörundinu unglegu og
yödislega mjúku “
Jinani!!!!!!
Allar fagrar konur nota hvítu
Lux handsápuna vegna þess, hún
heldur hörundi þeirra jafnvel enn
þá mýkra heldur en kostnaðar-
samar fegringar á snyrtistofum.
LUX HANDSÁPAN
vo/5o aura
M>Í.TS 209-50 iC LEV£K BROTHERS LIMITED, PORT SUNLIGHT, ENGLAND
Friettaburður frU Islandi.
I norska blaðinu Aftenposten birt-
ast við og við „brjef frá Reykjavík“.
Brjef þessi munu líklega skrifuð af
hinum álappalega blaðamanni Per
Björnson-Soot, sem nú á heima í
Kaupmannahöfn. Flytja þau meira og
minna rangar og villandi fregnir hjeð-
an og er leitt til þess að vita, að
hvaða snápum sem er, skuli líðast óá-
talið að flytja erlendum blöðum æ
ofan í æ hreint og beint bull frá ís-
landi. Hjer skal aðeins minst á tvær
■einustu greinirnar.
Önnur er um það hvort íslenska
rjúpan muni fljúga til Grænlands og
klykkir fregnritarinn út með þessum
orðum: „Islenskir veiðimenn þykjast
hafa sjeð á Grænlandi rjúpur sömu
tegundar og þær, sem á Islandi eru".
Eins og allir vita eru íslenskir veiði-
menn ekki í Grænlandi, en þetta kem-
ur saintímis og frásögn dr. Lauge
Kochs um það að hann hafi sjerstak-
lega tekið eftir því í sumar, að rjúp-
an í Grænlandi sje annarar tegundar
heldur en íslenska rjúpan.
Hin greinin er um hvalaveiðar Norð-
manna hjer við land. í henni segir að
Norðmenn hafi nú eftir 17 ára hlje
hafið hvalaveiðar við ísland aftur;
veiðin gangi vel, og hafi Norðmenn
selt Islendingum mikið af hvalkjöti, t.
ö. 6I/2 smálest einu sinni til Reykja-
víkur, og nú sje „norskt“ hvalkjöt
selt í mörgum búðum í Reykjavík!
Ekki er gott að vita hvaðan höf-
undinum kemur þessi viska, en líkleg-
ast að hann hafi tekið hana upp hjá
sjálfum sjer, eins og sva margar aðrar
fregnir frá Islandi áður.
Dánarbú Harald Plums.
Nú nýlega er lokið skiftum í dán-
arbúi danska f járglæframannsins Har-
ald Plums, þremur árum eftir að hann
stytti sjer aldur. Skuldheimtumenn-
irnir fá ekki mikið. Sá, sem t. d. átti
10.000 króna kröfu í búið, fekk aðeins
kr. 57.12. .
Legubekklr,
lækkað verð.
Til þess að kynna okkar nýju
framleiðslu á legubekkjum —
seljum við þá í dag og á
g' mánudaginn, með niðursettu
verði.
•ffi.
Bankastræti 10.
«fi Allt með Islenskum Skipum! »fi
Verslunarskólinn
Dagskólinn og Kvöldskólinn
verður settur í Kaupþings-
salnum í Eimskipafjelags-
húsinu kl. 4 í dag.
Fáið þjer hjá
okkur:
CD
i
m
09
I
E G G
á 13, 16, 18 og
20 aura.
T Ó M A T A
á 75 og 85 aura
pr. % kgr.
* K J Ö T- og
Nýlenduvörur
0. Halldórsson & Kalstad.
Garðastræti 17.
íbúð, 3—4 herbergi og eldhús, fást
leigð í Mjóstræti 6.
Fæði og húsnæði með ljósi og hita
geta 2 stúlkur fengið í vetur. Upplýs-
ingar í Kaffi Svanur, við Barónsstíg
og Grettisgötu.
Mjólk í flöskum og brauðvörur alls-
konar selt í Svaniimm (við Baróns-
stíg og Grettisgötu).
Kvenbolir frá 1.50, Kvenbuxur 1.75,
Corselet 3.75, Undirkjólar 4.50, Sokk-
ar 1.75 og margt fleira ódýrt. Versl.
„Dyngja“.
Morgunkjólaefni frá 3.13 í kjólinn,
Kragar, Kragaefni, Silkiljereft í mörg-
um litum, afar ódýrt. Versl. ,Ðyngja‘.
Orfá stykki af draggardínum (stor-
es) nýkomin. Versl. „Dyngja“.
Silkiklæði af 3 teg., Silki sjerlega
fallegt í peysnföt, Ullarklæði, afar
falleg, Peysuföt, Silki í upphluti frá
5.40 í upphlutinn. Mikið af ódýr-
nm, munstruðum efnum í Svuntur og
Upphlu ts skyrtur. Versl. „Dyngja“,
Bankastræti 3.
Hvítt efni í fermingarkjóla frá 2.25
meterinn. Versl. „Dyngja“.
Fiskfars, heimatilbúið, 60 aura
L kg., fæst daglega á Fríkirkju-
eg 3. Sími 227. Kristín Thorodd-
>en. —
Vjer seljum ágætar gulrófur, kart-
flur, blómlauka, jurtastafi, bast og
>úum til blómvendi og kransa eftir
nýjustu tísku. Ennfremur fyrirliggj-
andi f jölbreytt úrval af blómsturpotta-
pappír. Flóra, Vestufgötu 17. Sími
2039.
Góðar, heimabakaðar kökur fást á
Lokastíg 7, niðri. •
Blóm og Ávextir, Hafnarstræti 5.
Sími 2017. — Kransar, ódýrir og
.mekklegir, bundnir með stuttum fyr-
uvara. Sömuleiðis altaf á boðstólum
njög ódýrir blómvendir.
IteiSlxjól tekin til geymslu. „Örn-
mn“, sími 1161, Laugaveg 8 og
Laugaveg 20;
Kaffi Drífandi er flutt í Strandgötu
30 (Bergmannshús). Veitingar, góðar
og ódýrar og rúmgóð herbergi.
Ensku og dönsku kenni jeg að tala
og skrifa. Einnig verslunarbrjefa-
.kriftir á þessum málum. 2 kr. klukku-
stund. Ódýrara ef fleiri eru saman.
Sími 166.
Miðdegismatur, tveir heitir rjettir
daglega sendir heim. Kristín Thor-
oddsen, Fríkirkjuveg 3; Sími 227.
Dömur, sem vilja fá hárgreiðslu-
konu heim, geri svo vel og hringi
í síma 2182. Einnig litaðar augabrún-
i1', með egta lit.
Píanókensla fyrir byrjendur. Júlíus
Steindórsson, Óðinsgötu 4.
Nýslátrað dilkakjöt á 45 aura V2
kg. og gulrófur 10 aura kg- Rjóma-
bússmjör og íslensk egg. Guðm. Guð-
jónsson, Skólavörðustíð 21.
Notuð stigin saumavjel óskast tii
kaups. A. S. í. vísar á.
Stúlka óskast í vist hálfan daginn
til nýárs og lengur ef um semur. —
Þarf að geta sofið heima. Upplýsing-
ar í síma 1154.