Morgunblaðið - 28.10.1932, Side 3
íaritawn
r ,3 A .1. vr • 'í • X * > *
MORGUNBLAÐIÐ
3Hor£nnHato$
w»-
*
c
•*
*
*
<
*
♦
9
«
<ft
4
4
*
«
9
•
t
a
«
frtarof.: H.í. Árrakar, KiykðtTlk.
aiutjórar: Jön KJartan«»on.
Valtyr Stof&nMom.
IKltstjör*' og afcrolöala:
Anstnrotrntl t. — Blatl 999«
Aufflýalncaatjórl: 3. Hafbars.
Aunlýain r&sk rlf otof a:
▲uaturatrseti 17. — Hnl V9I<
Hoimaolaaar:
Jön KJartamaon ar. T4I.
Valtýr StofánMon ar. 1419.
9. Hafbern nr. 770.
AakrlftavJald:
Innanlanda lcr. 1.00 á atáauBL
Utanlands kr. 1.50 á máauBL
fl lauoaoölu 10 aura elntaklV.
10 aura mob IaosbölL
Kornstulöir
f Kússlanöi.
Stjórnin ætiar að leffgja
líflátshegningu við því
ef hungraðir öreigar
stela korni til bjarp-ar
sjer.
Moekva í okt.
Línited Press. FB.
Ráðstjórnin hefir í huga að láta
Mflátshegningu liggja við korhstuldi
í ráðstjórnarríkjunum. Vekur það
anikla eftirtekt, að rætt er um að
:grípa til slíkra ráðstafana til að
aippræta kornþjófnaðinn á sameignar
'búgörðunum, en það kemur mönnum
þó enn meira á óvart, að hótanir
®m líflátshegningar fyrir slík brot
'■m kornþjófnað, hafa ekki haft til-
;ætluð áhrif. Oánægjan éða þrvæntT
ii.gin, sem hefir knúð hópa af bæud-
iim, til þess að ræna korrii af ökr-
<um og úr birgðaskemmum sameign-
íirbúgarðanna, er bersýnilega svo öfl-
ugy að hún er sterkari on óttinn
við aftöku. Hvarvetna eru embætt-
ispienn ráðstjórnarinnar og stjói’n-
hýllir verkamenn á sameignarbúgörð-
unum að skipuleggja næturvarðlið, til
"þess að koma í veg fyrir að stolið
verði af afurðunum. Kommviiiistísku
æskufjelögiu í Ukraine hafa fengið
það hlutverk, að vernda sykurrófu-
!ii;.])skeruna.
Yfirvöldin eiga sem stendur við
annað vandamál að stríða. Menn
ílytja. í stórhópum frá búgörðunum
í þeim hjeruðum, þar sem matvæla-
skorturinn er mestur. A fyrstu stjórn
Æirárum byltingarmanna, þegar mat-
va>laskortur var, leituðu menn úr borg
vinum til sveitaþorpanna, þar sem
nóg var af korni, en nú fer straum-
urinn í þveröfnga átt, þótt sveita-
fólkið sje betur sett en borgafólkið,
að því leyti, að það þarf ekki að
halda eins spart á^ brauðmat.
Öeirðir í Lonöon.
United Press. FB.
'Opinberlega tilkynt, að sextíu menn
'hafi meiðst í óeirðnm, sem urðu, er
kröfufundurinn var haldinn í Hyde
IPark í dag, þar af vai’ð að fara með
átta á sjúkrahús. Kröfugöngumenn-
irnir voru 2500 taisins og bættúst í
’þann hóp margir atvinnuleysingjar
úr London. Lenti atvinnuleysingjum
og , lögreglunni saman í lok fund-
arins, Er giskað á að um 50,000
manns hafi verið í garðinum kl. 3.
Sumir kröfugöngumanna rifu upp
girðingarstaura til þess að nota í
bardaganum við lögreglnna, sem livað
eftir annað beitti kylfunum við upp-
þotsmennina. f nánd við Marble Arch
og götunum þar í nánd grýttu upp-
þotsmennirnir lögregluna og hand-
tók hún marga. þeirra. Klukkan um
'hálf sex var alt með kyrrum kjör-
a.im aftnr.
Togaraútgerðin
og rógur Tímans.
Hinn 15. þ. m. birtist í Tímanum
lör.g grein, sem nefnd er „Togaraút-
gerðin í Reykjavík."
„Nú eru flestir sótraftar á sjó
dregnir", datt mjer í hug. þegar’jeg
sá að Tíminn var farinn að skrifa
um tpgaraútgerð. Ymislegt er í grein
þessari sem gefur tilefni til andsvara,
því svo sein vænta mátti úr þeirri
átt er greinin skrifuð af stakri fá-
visku og dæmafárri illgirni í garð
þeirra manna, sem undanfarm ár
hafa verið að stritast við að halda
uppi þessum aðalatvinnuvegi höfuð-
staðarins og landsins í heild — tog-
araútgerðinni.
Aflaverðlaun skipstjóranna.
Tíróinn segir meðal annars: „Ekk-
ert virðist hafa verið gert af hálfu
útgerðarmanna til þess að vekja á-
huga, þeirra, sem að útgerðinni starfa,
fyrir því, að hún fái borið sig.“ —
Skipstjórarnir hafa a'ltaf verið og
eru enn launaðir af brúttóafla."
Hjer er ekki sagður nema hálfur
sannleikur. Því hefir alla tíð síðan
togaraútgerð hófst hjer á landi verið
þannig háttað, að skipstjórum hefir
verið launað með 3% af brúttóafla
skipa sinna. Yitamlega urðu laun
þeirra með þessu fyrirkomulagi mjög
há á þeim tímum, sem afurðirnar
voru í stríðsverðinu og skippund
fiskjar seldist alt að 300 krónur.
Koiö þá í þeirra hlut, 9 krónur af
skippundi. En í fyrra þegar skip-
pundið var selt fyrir 50 krónur, urðu
laun þeirra ekki nema kr. 1.50 af
skipp. eða l/<, hluti af launum þeim
sem þeim f jellu í hlut, á hæstu verð-
lagsárunum. Engir menn sem við út-
gerðina vinna hafa því lækkað eins í
launum, hin síðari árin, eins og skip-
stjórarnir og aðrir þeir, sem ráðnir
eru fyrir hundraðshluta af afla.
Hitt er annað mál, að útgerðarmenn
telja æskilegt, að breyta launafyrir-
komulagi þessu og hafa þess vegna
oft undanfarin ár starfað nefndir frá
báðum þessum aðiljum til þess að
vinna að samkomulagi um breytt
launakjör. Því má ekki gleyma, að
hjer eíga tveir aðiljar hlut að máli,
og þess vegna hefir enn ekki tekist
að finna þann grundvöll um breytt
kjör, sem báðir aðiljar vilja við una.
Samvinna útgerðarmanna.
Þá segir Tíminn ennfremur: „Eigi
hefir verið komið við neinum sparn-
aði í sameiginlegum kostnaði togar-
anna undanfarið. Svo að segja hverj-
um togara hefir fylgt framkvæmda-
stjóri, skrifstofa og annar kostnaður
í landi, óskiftur".
Það sætir furðu, að slíkur fáviti sem
þannig skrifar, skuli taka sjer fyrir
hendur, að skrifa um útgerðina hjer.
Skal hjer nú stuttlega minst á stærstu
aðalþættina í sameiginlegri starfsemi
útgerðarmanna síðustu árin, og munu
þau nægja til þess að reka þessi um-
mæli niður í flónið.
í fyrsta lagi hafa útgerðarmenn
myndað sameiginlegt vátryggingarfje-
lag fyrir nokkuð mörgum árum, er
þar vátryggður flotinn til stórra
hagsmuna fyrir alla hlutaðeigendur.
f öðru lagi hefir verið rekin og
keypt lýsishreinsunarstöð sem annast
hreinsun og sölu alls lýsis; standa
nú fyrir dyrum miklar og nýtísku
breytingar á henni.
í þriðja lagi ber að telja stærstu
sameiginlegu stofnun sem togaraeig-
i endur hafa komið á fót síðustu árin,
og þnð er Fisksölusamlögin, þar sem
■'kki einuugjs er s^ldur fiskur ■ togar-
anna, heldur Jiafa snmlögin með hönd-
um sölu á mestum hluta nf fiski út-
vegsmanna um alt land.
I fjórða lagi má nefna að samlög
hafa verið mörg ár um innkaup á
kolum og salti í heilum förmum til
togaraflotans.
í fimta lagi og ekki síst ber að
telja skipulagsbundinn fjelagsskap
um sameiginlega samninga við alla
sem við útgerðina vinna, sem. út-
gerðarmenn nú hafa haft í nær 20 ár.
Að síðustu má minnast á sameigin-
lega fiskverkun, netavinnustofur o. fl.
Þetta sem hjer hefir Verið drepið á,
ásamt mörgu fleiru kalla jeg „sam-
eiginlega framkvæmdastjórn" sem
Tímirin er að fjasa um að ekki sje
til meðal togara útgerðarmanna.
Yæri broslegt að heyra hvað Tím-
inn, eftir að hafa fengið þessar upp-
lýsingar, telur á skorta samvinuu og
sameiginlegar framkvæmdir hjá tog-
arafjelögunum.
Framkvæmdastjórarnir, laun þeirra og
rógur Tímans.
Enn heldur Tíminn áfrarn og segir
að svo að segja hverjum togara hafi
fylgt framkvæmdastjóri og skrifstofa.
Þessu er nú þannig háttað, að alls eru
nú skrásettir 21 togari í Reykjavík,
þar af er 10 skipuin stjórnað af
einkaeigendum, og koma því engir
framkvæmdastjórar til greina þar,
eftir eru þá 11 skip sem nú er stjórn-
að af 5 eða 6 mönnum sem talist geta
framkvæmdastjórar, eða annara þjón-
ar. Þetta er þá allur „glæpamanna-
hópurinn" sem Tíminn er að tala um
í oftnefndri grein.
Enginn svokallaður togarafram-
kvæmdastjóri hefir nokkru sinni,
mjer vitanlega getað lifað á því ein-
göngu að stjórna einum togara, af
þeirri einföldu ástæðu, að þóknun sú,
sem venjulega er fyrir það greidd, er
svo lítil, ÞesS vegna hefir verið og er
framkvæmdastjórn þeirra manna, sem
eitt skip annast, aðeins aukastarf
sem þeir vinna með aðalstarfi sínu
og á sínum eigin skrifstofum. Svona
Jiefir það verið, og er enn, hvað sem
Tíminn og samherji hans Alþbl. segja
um þá tugi þúsunda sem þessir menn
fái bæði frjálst og stolið.
Því næst kemur Tíminn að því sem
hann kallar „leyndardómsfylsta atrið-
ið í öllum þessum málum“ og segir
að dæmi sjeu til þess að þessir menn
(þ .e,,, framkv.stj.) safni auði í und-
arlegu hlutfalli við hina hrörnandi
afkomu útvegsins, og enn segir, að
það sje vitanlegt að sumir þeirra sjeu
orðnir vel fjáðir fyrir það að hafa
haft með höndum fjárreiður togara
hlutafjelaga, og eins fyrir það, þótt
þeir hafi á pappírnum reiknað sjer
skapleg laun.
Enn stendur í Tímagreininni, að
„hjer geti ekki verið um annað að
ræða en hina illræmdu „bakprovision“
þannig að trúnaðarmennirnir taki til
sín afslátt frá bókfærðu kaupverði
þeirra hluta sem til útgerðar sjeu
keyptar, og þá muni hitt tíðkast jafn
hliða. að framkvæmdastjórar hirði
hluta a,f verði afurðanna þegar þær
sjeu seldar' ‘.
Því næst þykist Tíminn koma með
sannanir fyrir allri óráðvendni fram
kvæmdastjóranna og segir, að frægt
sjp í Reykjavík dæmið af framkvæmda
stjóranum sem eyði árslaunum sínum
í lán og ábyrgðartöp, bafi stórt heim-
ili sem kosti bann á að giska tvöföld
árslaunin, hlutafjáreign hans í fje-
lögum svari sjaldan arði, en samt hafi
þessi maður á tiltölulega fáum árum
afnað eignum sem skifti hundruðum
)úsunda‘ ‘.
Hvernig ætli Tímanum tækist nú
að sanna nokkuð af þessum ummælum
sínum? Líklega yrði það nokkuð
erfitt!
Bak við þetta níð liggur svo svíns-
legt innræti, að nærri stappar að það
vfirgangi róginn í Alþbl. til þessai’a
sömu manna, og er þá langt jafnað.
Og allur glæpamannahópurinn er 5
eða 6 menn! A óstjórn þeirra og ó-
áðvendni á togaraútgerðin í Reykja-
vík að vera að falla í rústir. Miklir
menn mega þetta vera!!
Áður en lengra er farið, er rjett
að athuga dálítið aðstöðu þessara
,glæpamanna“ til þess að stela af
fvrirtækjum þeim, er þeir vinna fyrir.
Þeir eru fyrst og fremst undir stöð-
úgu eftirliti allra hluthafa fjelaganna,
sem árlega fá alla reikninga fyrir-
tækjanna til athugunar og gagnrýn-
ingar.
Þeir eru jafnframt undir daglegu
eftirliti stjórna fjelaganna, sem vinna
með þeim að öllum stærri kaupum og
sölum, og fylgjast í stóru og smáu
með rekstrinum.
Þeir eru ennfremur undir krítiskri
rannsókn kosinna endurskoðenda, sem
venjulega endurskoða að meira eðá
minna leyti mánaðarlega.
Þá starfa þeir auk þessa undir hin-
um afarströngu lögum um bókhald
hlutafjelaga, og eftirliti skattstofunn-
ar, sem ekki hefir hingað til fengið
orð fyrir að vera vinveitt útgerðar-
fjelögnnum.
Jeg sje nú ekki betur, en það sje
talsverðum örðugleiknm hnndið fyrir
)essa framkvæmdastjóra að stela af
öllu sem þeir koma nærri, og það án
)ess það nokkurn tíma komist upp.
I>á væri það og dálítið merkilegt, ef
allar þær fjelagsstjórnir og hluthafar
sem fela þessum umræddu mönnum
meðferð fjárs síns, væru þeir aukvisar
velja til þess ár eftir ár eintóma
stórglæpamenn. —
Fróðlegt væri að vita ástæðurnar
fyrir því að sífelt er verið að ráðast
að þessnm mönnum með ósæmilegum
aðdróttunum og rógi. Alþbl. hefir
lengi klappað þann stein, og hefir nú
Tíminn gengið í lið með því, er það
enn ný sönnun fyrir hinum andlega
skyldleika þessara málgagna.
Ekki verðnr fram hjá því gengið
a£ hinir margumtöluðu framkv.stj.
eru starfsmenn næstum því alveg op-
inherra fyrirtækja, og undir svo
ströngu eftirliti að betur væri að ekki
lakara eftirlit hefði undanfarin ár
verið nm meðferð ríkisfjárins og með
ýmsum þeim mönnum er opinberum
stöðum hafa gegnt, því þar er lýðum
ljóst, að óhæfileg og saknæm ráðs-
menska hefir átt sjer stað. Þar er
vissulega þörf frekari rannsóknar.
Tíminn veit vel að hann ekki getnr
bent á nje sannað eitt einasta dæmi
um óráðvendni umboðsmanna togara-
fjelaganna, enda hefir mjer vitanlega
a.ldrei komið fram svo mikið sem
kæra á nokkurn þeirra manna. Þess
vegna stendnr greinarhöfnndur Tím-
ans nú uppi sem vísvitandi rógberi
með danða og ómerka níðstafi í hendi.
Þá vil jeg hjer með skora á Tím-
ann að birta nafn þess manns sem
hann fullýrðir að hafi á tiltölulega
fáum árum grætt auk þarfa sinna
hundruð þúsunda króna á því að vera
framkvæmdastjóri fvrir togarafjelag.
Nefni hann ekki manninn skoða jeg
það sönnun þess, að hann viljandi
hafi logið upp hinu tilvitnaða dæmi.
Meira.
Hlnthafi.
Pelikan
Blekforði Pelikan lind-
arpennans er altaf sjá-
anlegur, þvi að blek-
geymir hans er ár
gegnsæju Bákelite.
FyHitækið er fábrotin
bulla (stimpill), sem
^krúfuð er upp og nið-
ur. Engin gúmmíblaðra
Blekdreyfirennurnar,
sem eru undir sjálfum
pennanum eru af nýrri
gerð, sem tryggir það
að penninn gefur jafna
skrift og klessir ekki.
Pelikan- lindarpenn-
ar kosta aðeins 22 kr.
Lœkjargötu 2.
— Simi 736 —
Sakkiáiat%
Piltur
um fermingaraldur, getur fengið stöðu
sem seridisveinn nú þégar við heild-
verslun hjer í bænum. Umsóknir for-
eldra eður yenlsamanija sendist A.
S. I. í dag eða á morgun, merktar:
„Piltur.“ „
Avenol.
Síðan Þjóðahandalagið var stofnað
hefir Sir Erje Drummond verið slpif-
stpfustjóri þess. En nú hefir hann
látið af því starfi en við tekur Joseph
Avenol, sem verið hefir aðstoðarskrif-
stofustjóri bandalagsins.
Veðrið í gær: Brevtileg átt og hæg-
viðri um alt land. Við Vesturströnd-
ina er smálægð, sem veldur hægyi S-
átt og úrkomu á Breiðafirði, , Ve>jt-
fjörðum og vestan til á Norðurlandi.
Hiti ev 3—5 stig suðvestan lauds, en
0—rl stig víðast fýrir norðan.
Veðmútlit í Reykjavík, í dag: —
Hægviðri. Skýjað. Litils háttar
úrkoma.
Nýi Slippurinn. Vinnan við nýju
dráttarhrantina hefir frarn að þessu
gengið miklu betur heldur en menn
höfðu gert sjer bestu vonir um. —
Veldur það livað tíðarfarið hefir ver-
ið einstaklega hagstætt að undan-
fötnu. Þarna vinna að staðaldri um
30 verkamenn.
■ Doon, enska eftirlitsskipið, fór
hjeðan í gær.
Til Strandarkirkju frá G. J. 2 kr.
Gamalli konu 2 kr. Onefndri 2 hr.
V. G. (tvö áheit) 10 kr.
,Esja‘ fór hjeðan í liringferð apst-
uhi um land í gærkvöldi.