Morgunblaðið - 28.10.1932, Page 4
4
4
MORGUNBLAÐIÐ
S$*r BKT^BKT^
flugltslngatfagiiák
Blóm og ávextir Hafnarstræti 5.
Úrvals blómlaukar: Tulipanar. Hya-
chintur. Páskaliljur. Hvítasunnuliljur.
Krokus. Scilla.
1456 og 2098 hafa verið, eru og
verða bestu fisksímar bæjarins.
Hafliði Baldvinsson.
Dívan með skúff'u og fótafjöl og
bókaihilla, ódýrt. Aðajstræti 9 B.
Grisft-nýtt fiskfars er altaf til, marg-
ar tegundir. Fiskmetisgerðin, Hverf-
isgötu 57, sími 2212.
Herbergi án húsgagna óskast fyrir
einhleypan mann á góðum stað í vest-
urbænum, helst með, eða með að-
gangi að síma, ræstingu og jafnvel
f:*ði. Tilboð merkt „Herbergi‘% send-
isl A. R. I. fyrir mánudagskvöld.
Reiðhjól tekin til geymsiu. „Örn-
inn“, sími 1161, Laugaveg 8 og
Laugaveg 20.
Fiskfars, heimatilbúið, 60 aura
y<> kg., fæst daglega á Fríkirkju-
veg 3. Sími 227. Kristín Thorodd-
sen. —
Café Höfn selnr: Miðdegisverð með
kaffi c. kr. 1.25 og einstakar máltíðir
á 75 aura. Fljót afgreiðsla, og góður
matur.
Besta þorskalvsið
í bænnm
i
fáið þið í undirritaðri verslnn. S£-
vaxandi sala sannar gæðin.
B jðrninn,
Bergstaðastræti 35. Sfmi 1091.
Hýtt svínakjöt.
H. Frederiksen,
Ingólfshvoll. Sími 147.
Nýkamlð
Grænmetl.
Farsóttir og manndauði í Reykjavík
I Vikan 16.—22. okt. (I svigum tölur
næstu viku á undan). Hálsbólga 17
(46). Kvefsótt 20 (69). Kvefluugna-
bólga 2 (1). Gigtsótt 0 (2). Iðrakvef
2 (21). Heimakoma 0 (1). Munnang-
ur 0 (2). Hiaupabóla 1 (0). Sting-
sótt 2 (1). Mannslát 6 (7). Land-
læknisskrifstofan.
Höfnin. Kolaskipið „Ingerfire' ‘
kom í gær með farm til Þórðar Ól-
afssonar og Guðmundar Kristjánsson-
ar. — Þýska kolskipið „Eva‘ ‘, sem
kom með farm til Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur, fór hjeðan í gær, áleiðis
til útlanda.
er ekki sá sem fæst fyrir lítið verð, ^heldur sá,
í notkun, en það er: ber mes£a birtu með minstri
þolir mestan hristing.
Osram dvergar standa öllum lömpum fremra.
DverglaiDDínn
sem er ódýrastur
straumnotkun, og
Herferð gegn rottunum á að hefja
hjer í bænum upp úr mánaðamótun-
um. Allir, sem hafa orðið varir við
rottugang í húsum sínum að undan-
förnu, mega til að tilkynna það skrif-
stofu heilbrigðisfulltrúans fyrir þ. 3.
nóvember, svo að herferðin geti tekist
sem best.
Gylfi seldi afla sinn í Englandi í
fyrradag, 2200 körfur, fyrir 1550
sterlpd.
Hjúskapur. Síðastliðinn laugardag
voru gefin saman í hjónaband ungfrú
Guðrún Helgadóttir Guðmundssonar
málarameistara og Pjetur Bergsson
verslunarmaðnr. Heimili ungu hjón-
anna er Sjafnargata 8.
Dagdraumar heitir ljóðabók eftir
Kjartan Ólafsson brunavörð, og er
hún nýlega komin á markaðinn. Hún
er 8 arkir að stærð og frágangur
hennar allur hinn snotrasti. Höfund-
inn þekkja flestir Reykvíkingar. —
Hafa kvæði eftir hann birst af og
til í blöðum bæjarins.
Gangleri, II. hefti VI. árgangs, er
nýlega komið. I þessu hefti er meðal
annars: Ljóðaljóðið, eftir Sigurjón
Friðjónsson, H. P. Blavatsky, kvæði
eftir Magnús Gíslason. Er guð til ?
eftir Grjetar Ó. Fells, Einsetumaður-
inn, kvæði eftir Jakob J Smára,
Guðspeki og nútímavísindi, eftir Krist-
ínu Matthíasson, Ahrif hljómlistar,
eftir sömu, Lögmál athafna, eftir
sömu, Morgunlönd, kvæði eftir G. Ó.
Fells, Stólræða, eftir síra Friðrik
J. Rafnar o. m. fl.
Tímarit iðnaðarmanna, 3. hefti
þessa árgangs er komið út. Efni:
Sitt af hverju um húsbyggingar ís-
lendinga nú á dögum I., eftir Þorlák
Ófeigsson byggingameistara. Sveins-
brjefin (sýnishorn fylgir), Hjálp í
viðlögum, (niðurlag) eftir D. Sch.
Thorsteinsson lækni. Gjöf til Iðnskól-
ans. Sveinapróf í Reykjavík vorið
1932. Ritinu fylgir: Skýrsla Iðn-
skólans í Reykjavík 1931—32 og
skýrsla um Iðnskólann í Hafnarfirði
1931—32.
Fiskmarkaður í Portúgal. í norsk-
um blöðum segir, að Islendingar sje
að leggja undir sig saltfiskmarkað-
inn í Portúgal og megi Norðmenn
ekki horfa aðgerðalausir upp á það.
Astæðan til þess hvað íslenskur salt-
fiskur ryður sjer þar til rúms, segja
blöðin að sje sú, að íslenskur salt-
fiskur sje betur verkaður og betur
matinn íheldur en norskur fiskur. —
Ætti þetta að vera bending til ís-
lendinga að vanda sem mest mat á
útfluttum afurðum sínum.
Barnavarnarnefnd. Samkvæmt lög-
um frá síðasta Alþingi, 'hefir bæjar-
stjóm Hafnarfjarðar kosið fimm
manna barnavarnamefnd og tvo
menn til vara. Nefndin hefir nú
haldið fyrsta fund sinn og valið sjer
stjórn. Er hún þannig skipuð: Sjera
Garðar Þorsteinsson formaður, sjera
Jón Anðuns varaform. og Guðmundur
Gissurarson fátækrafnlltrúi. — Auk
þeirra eiga fast sæti í nefndinni
Ragnheiður Jónsdóttir kenslukona og
Halldóra Eiríksdóttir saumakona. —
Hlutverki barnaverndarnefndanna hef-
■ir áður verið lýst hjer í blaðinu í
sambandi við kosningu í nefndina í
Reykjavík. Yæntir nefndin í Hafn-
arfirði þess, að Hafnfirðingar hafi
veitt því athygli, og láti nefndinni í
tje allar þær upplýsingar, sem henni
gæti að gagni komið í starfi sínu.
Lestrarfjelag kvenna heldur aðal-
fund sinn í K. R. húsinu í kvöld
og byrjar hann kl. 8y2. Á fundinum
segir forsætisráðherrafrú, Dóra Þór-
hallsdóttir, frá íslensku vikunni í í
Stokkhólmi. Að fundinum loknum |
verða skoðuð hin nýju húsakynni f je- )
lagsins í Yonarstræti 12.
Guðspekifjelagið. Reykjavíkurstúk-
an, fundur í kvöld kl. 8% síðd.
stundvíslega. Efni: Erindi flutt um
Njólu Björns Gunnlögssonar.
„Þorgeir skorargeir" seldur. Út-
vegsbankinn hefir selt togarann Þor-
geir skorargeir frá Viðey, og eru
kaupendurnir Páll Ólafsson frá Hjarð-
arholti og Guðmundur Guðmundsson
skipstjóri. Hafa þeir stofnað með sjer
fjelag, sem nefnist ,Sameignarfjelagið
KópurL Skipið hefir verið skírt að
nýju og heitir hjer eftir „Kópur“.
Verður það nú þegar leyst úr læð-
ingi og byrjar útgerðina. Skipstjóri
verður Guðmundur Guðmundsson, en
Páll Ólafsson er útgerðarstjóri og er
skrifstofan í húsi Helga Magnússonar
og Co. í Hafnarstræti.
Skipafrjettir. Gullfoss fór frá Vest-
mannaeyjum í gærmorgun, áleiðis út.
— Goðafoss fór frá Hull 25. okt.
áleiðis til Reykjavíkur. — Brúarfoss
kom til Reykjavíkur í gærkvöldi frá
útlöndum. — Dettifoss fór frá Vest-
mannaeyjum í gærmorgun, áleiðis út.
— Selfoss er á útleið.
Eimreiðin, júlí-des. hefti er ný-
komið út, fjölbreytt að efni. Ritstjór-
inn á þar sjálfur nokkrar ritgerðir
þ. á. m. „Við þjóðveginn", yfirlits-
grein. Eftirtektarverð er ritgerðin,
„Kreppan og lögmál viðskiftanna“,
eftir ungan hagfræðing,, dr. Björn
Björnsson. Þessa ritgerð ættu sem
flestir að lesa. Margt fleira er í þessu
hefti svo sem „Hatur og öfund' ‘,
eftir dr. Guðm. Finnbogason; „Björn-
stjerne Björnson 1832—1932“, eftir
Nulle Finsen; „Sjónleikar og þjóð-
leikhús“ eftir Indriða Einarsson;
„Frá Rio de Janeiro“, „Fagnaðar-
erindi humanismans og gildi þess“,
eftir Benjamín Kristjánsson; „Mæl-
ingar skólabarna í Reykjavfk“, eftir
Sigurð Jónsson; ,Skáldsögur og ástir'
eftir Ragnar Kvaran. Tvö kvæði, eft-
ir Jakob Jóh. Smára o. m. fl. —
Eimréiðin er meðal vinsælustu tíma-
rita, sem hjer eru út gefiu
Útvarpið í dag: 10.00 Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp. 16,00 Veður-
fregnir. 19,05 Grammófóntónleikar. —
19,30 Veðnrfregnir. 19,40 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 20,00 Klukkusláttur.
Frjettir. 20,30 Kvöldvaka.
Glímumenn K. R. eru beðnir að
mæta á æfingu í kvöld kl. 9% í húsi
fjelagsins.
Maður varð fyrir hil í gærkvöldi
á vegamótum Bergstaðastrætis og
Skólavörðustígs, og fjell við. Það er
aldraður maður, Hreinn Kristjánsson
frá Stokkseyri. Lögreglan var þarna
rjett hjá og fór þegar með hann
suður í Landspítala. Kom þá í ljós
að hann var lítið meiddur, hafði
hruflaðist ofurlítið í andliti og kendi
til í öklalið. Að skoðun lokinni ók
lögreglan með hann þangað sem hann
er til húsa meðan hann dvelur í
bænum.
Landlækni hefir boðist ferðastyrkur
frá Heilbrigðismáladeild þjóðabanda-
lagsins, til þess að ferðast í alt að
sex mánuði um þau lönd, er hann
óskar, í því skyni að kynnast heil-
brigðismálefnum þeirra. Styrkurinn
nemur öllum fargjöldum, auk ríflegra
dagpeninga, til að standast annan
kostnað. Helst er óskað, að byrjað
verði að nota' styrkinn þegar á þessu
ári, en ef það er ekki unt, þá ein-
hvern tíma á næsta ári. Ef land-
læknir getur ekki notað styrkinn sjálf-
ur, er honum heimilt að senda mann
í sinn stað. Fvrverandi landlæknir
hafði unnið að því, að Island gæti
orðið aðnjótandi slíkra ferðastyrkja,
er Heilbrigðismáladeild Þjóðabanda-
lagsins á yfir að ráða. Forstöðumað-
ur Serumstofunnar dönsku, Thorvald
Madsen, er einn af ráðunautum Heil-
brigðismálanefndarinnar, og er styrk-
urinn veittur fyrir hans milligöngu.
(F. B.)
Ahrenberg flugkappi, sem er kunn-
ingi Reykvíkinga frá flugferðum hans,
starfar að farþegaflugi heima í Sví-
þjóð. Hefir hann annast um eihs
konar „útbreiðsluflug“, er flugfjelag
hans hefir gert út, til þess að fá
sem flest fólk upp í loftið, svo flug-
ferðir verði almennari en nú er. Á
einu ári hefir hann flogið með 10,000
farþega. Ætlar hann að halda þessu
auglýsingaflugi áfram, uns hann hefir
alls flogið n?eð 50,000 manns.
Georg Eastman, með Kodaks-mynda-
vjelarnar, sem stytti sjer aldur í fyrra
um sama leyti og Ivar Kreuger, var
ekki jafn illa stæður og Kreuger.
Hann Ijet eftir sig 25 miljónir dollara.
Du.glegur sölumaður. Er Petersen
duglegur sölumaður?, spurði forstjóri
að stórri verslun skrifara sinn. Hann
Petersen; sagði skrifarinn. Ekki er
ofsögum sagt að dugnaði hans. Alt
fram á þenna dag hefir hann getað
selt dagatöl fyrir árið 1931.
Öhapp? Maður nokkur ætlaði að
strjúka frá heimili sínu með vinnu-
konu sinni. Höfðu þau talað svo um,
að hún skyldi bera blæju fyrir and-
litinu, er þau legðu af stað, og í
bílnum á flóttanum, og ekki mæla orð
af vörum uns þau tækju sjer gistingu
á gistihúsi. Alt fór, sem ætlað var,
þangað til að gistihúsinu kom. Þá
fjell blæjan, og maðurinn komst að
raun um, að það var eiginkona hans,
er hann hafði numið á brott
n
0.8. Islanfl
fer annað kvöld klukkan 8
til Leith og; Kaupmannahafn-
ar (um Vestmannaey.iar og
Thorshavn).
Far]ie.e:ar sæki farseðla
í dae:.
Tilkynningar um vörmr
komi sem fyrst.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen.
Tryffgvagötu Sími 25.
KðPUtaD
nýkomin.
Manchester.
Lau.gaveg 40. Sími 894.
C3
cö
s
Þ
W
tn
bc JD
&
.9
’S
u
o
!z;
<5
o
02
ffi
w
o
<!
íz;
Þi
Þ3
Ki <5
CS ^
A *■>
• • M
»
ffi
P4
K
e
<!
ízj
H
w
11)
A
cð
>
'CS
a
a
g II
s
bú
tn
tn
O
P
rG
JjO
CÖ
islensk
^ ssssss
kaupi jeg
ávalt
hæsta
verði.
Gísli Sigurbjörnsson.
Lækjargötu 2. Sími: 1292.
4111 með tslenskum tkipum! í
T>