Morgunblaðið - 30.10.1932, Side 4
4
4
MORGUNBLAÐJÐ
fslensk málverk, fjölbreytt úrv«3,
b»ði í olíu og vatnslitum, sporöskju-
rainmar af mörgum stærðum, vegg-
my*dir í stóru úrvali. Mynda- og
rammaverslunin, Freyjugötu 1. Sig.
Þarsteinsson. Sími 2105.
„Freia“, Laugaveg 22 B, sími 1059.
Nýtt fiskmeti daglega.
BeiChjól tekin til geymslu. „Örn-
ínn“, sími 1161, Laugaveg 8 og
Laugaveg 20.
í’iskfars, heimatilbúið, 60 aura
VÉ kg., fæst daglega á Fríkirkju-
veg 3. Sími 227. Kristín Thorodd-
«en. —
TIL LEIGU 1. nóvember á Lauga
VQg 59, loftherbergi með eldhúsi og
geymslu.
Þýskur stúdent kennir þýsku
og sænsku. Cand. phil. Bruno
Kress, Fríkirkjuveg 3, sími 227.
Blómlaukar seljast frá kl.
1Q—12 og 2 til 4 á Suðurgötu
12.
Maður óskar eftir ljettri
vijtnu, t. d. innheimtustörfum
e6a verslunar. Lágt kaup. Til-
boð merkt ,,ljett vinna“ send
ist A. S. í. fyrir 3. nóvember.
HMiglkiAtli
í
óTiðiafoaulega,
er oó^komið aftnr.
Eaafraamr!
Qranar
bannir
Miðursoðnar oe; burkaðar.
BiiihOldln
eru best
og ódýrust í
JÁRNVÖRUDEILD
Jas Zimsen.
Notifl
innlendan
IfiflNH ,BBUÍa °«
mnnlfl afl það á afl vera
HBIENS-FÆBILÖGUR,
mjög í sínum fræðigreinum og af-
kastamaður, heldur líka einkar lag
inn að semja kenslubækur sínar ljóst
og skýrt og leggja sjálfur nýtt af
mörkum í stað þess að binda sig
einvörðungu við fyrirmyndir úr eldri
kenslubókum.
Hjer eftir þurfa Islendingar, þeir
er ítölsku vilja læra, ekki að leita
til útlendrar kenslubókar og munu
þeir án efa kunna að meta hvert
liagræði það er að eiga slíka kenslu-
bók á móðnrmáli sínu.
Guðni Jónsson.
Fr* Neregi.
Hvallýsissala Norðmanna.
Oslo, 28. október. NRP. FB.
Samkvæmt fregnum, sem birtar eru
í blöðum í Tönsberg, hefir farið fram
ný sala á hvallýsi, sem sýnir að verð
fer hækkandi. Hvallýsis-sölusamlagið
hefir selt af framleiðslu vertíðarinnar
1930—1931 5.300 smál. af hvallýsi til
Þýskalands fyrir 13 stpd. smiálestina.
Sölusamlagið hefir enn 140.000 föt
af hvallýsi fyrirliggjandi af fram-
leiðslunni 1030—1931.
Kviknar í skipi.
Fyrir nokkru kviknaði í norska
ejmskipinu Larviksfjorden og skemd-
ist það mikið. A,/B Götaverken hefir
nú keypt skipið.
Stórbruni enn í Noregi.
Eldsfossen-rafveitan brann til
kaldra kola í gærkvöldi. Tjónið er
áætlað 200.000 kr. — Ýms fyrirtæki
,-erða að hætta framleiðslú sinni um
stundarsakir.
Dagbók.
□ Edda 59321117 — Fyrirl. Atkvgr.
Veðrið í gær. Lægðin er var suðvest-
nr af Reykjanesi á föstudagskvöld er
nú komin suðaustur um Suðureyjar
(The Hebrides) og veldur hvassviðri
og regni á Skotlandi og Norðursjón-
um. Hjer á landi er vindur norðlægur
og hríðarveður í útsveitum nyrðra.
Norðan lands er 4—7 st. frost en
syðra 0—4 st. frost.
Ný lægð er austan við Nýfundna-
land á hreyfingu austur eftir.
Veðurútlit í dag: Stinningskaldi á
N. Ljettskýjað. Lygnir með kvöldinu.
Messað í dag í dómkirkjunni í
Reykjavík kl. 11, síra Bjarni Jóns-
son (fermmg). Engin síðdegismessa.
Hlutdrægni í frjettaflutningi kem-
ur fram með tvennu móti, sumpart
með því, að frásögn er hlutdræg,
sumpart á þann hátt, að frjettavalið
er hlutdrægt, ekki greint frá öllum
atburðnm er máli skifta. Þesskonar
hlutdrægni sýndi útvarpið í gær, með
því að ekki var með einu orði í frjett-
um útvarpsins minst á fnndinn í fje-
lagi útvarpsnotenda, er haldinn var
í fyrrakvöld.
Ruddasfcap nefnir Tíminn það, er
útvarpsnotendur skýra frá því, opin-
berlega, að þeir sjeu því mótfallnir,
að útvarpsst jórinn J mas Þorbergs-
son hnupli fje þeirra, og noti það
bílaskatt, og sælgæti handa sjálfu.
sjer og sínum.
Nýtísku hattahreinsun auglýsir
Karlmannahattabúðin í dag. For-
stöðukona búðarinnar er nýkomin frá
útlöndum og hefir kynt sjer þar allar
nýjustu aðferðir við það að gera
gamla hatta sem nýja.
Náttúrufræðifjelagið hefir sam-
komu í náttúrusögubekk Mentaskól-
ans, mánudag 31. okt. kl. 8% síðd.
i
Sundbjörgunarnámskeið Armanns og
KR heldur áfram í dag í sundlaug-
unum kl. iy2 e. h.
Sjómannakveðja. Farnir áleiðis til
útlanda. Vellíðan. Kærar kveðjur. —
Skipverjar á Agli. 28. okt. Mótt. 29.
okt. FB
Skráning atvinnulausra fer fram í
G T. húsinu hjer í bænum á þriðju-
dag og miðvikudag. Þeir, sem láta
skrásetja sig, verða að vera við því
búnir að gefa nákvæmar upplýsingar
um heimilisástæður sínar, atvinnu-
daga og tekjur á árinu, hvenær þeir
hafi haft vinnu seinast og hjá hverj-
um, hvers vegna þeir hafi mist vinn-
una o. s. frv. Til þess var ætlast
fyrst að skráningin færi fram kl.
19—10 báða dagana, en á því hefir
sú breyting orðið, að hún stendur
yfir kl. 9—8 báða daga.
Barnaguðsþjónusta. Eftirtekt bama
skal vakin á því, að í dag byrja
aftur bamaguðsþjónustur í dómkirkj-
unni. Þær gátu ekki byrjað fyr á
þessu hausti végna þess, að verið
var að mála sætin í kirkjunni. í dag j
bvrjar guðsþjónusta kl. 3 — vegna
fermingarinnar, —• en framvegis kl.
’2, eins og verið hefir undanfarin ár.
Skipafrjettir. Gullfoss er á útleið.
Goðafoss kom til Rvíkur í gærkvöldi
frá útlöndum. Brúarfoss fer frá Rvík
á morgun vestur til ísafjarðar og til
baka. Dettifoss er á útleið. Lagarfoss
fór frá Ósló í gær, áleiðis til Hafnar.
Selfoss fór frá Álasundi í gær, á-
Ieiðis til Antwierpen.
Á bíl frá Homafirði til Reykja-
víkur. Nýlega lagði bíll af stað frá
Hornafirði og var ferðinni heitið
alla leið til Reykjavíkur. Á föstu-
dag var hann kominn að Svínafelli í
Oræfum og hafði ferðin gengið vel.
Vötn eru nú svo lítil á þessari leið,
að bílar komast hindrunarlaust þeirra
vegna.
I ■■■>!.
Fríkirkjan í Reykjavík, gjafir og
áheit. Mótt. af dagbl. „Vísir“ frá K.
G. kr. 5.00. Mótt. af sr. Árna Sig-
urðssyni frá 2-|~9 kr. 10.00, frá Sínu
kr 2.00, frá konu kr. 10.00, frá Alla
kr. 5.00. Samt. kr. 32.00. Með þökkum
meðtekið. Ásm. Gestsson.
Mötuneyti Safnaðanna hafa borist
eftirtaldar gjafir: 2 sk. hrísgrjón frá
Nathan og Olsen, 14 brauð frá G.
Ólafsson & Sandholt, 70 kr. frá L„
saft frá Ölgerðin Egill Skallagríms-
son, 50 kg. salt frá Kol & Salt, 1
poki jarðepli frá Þórði Jónssyni,
Æsustöðum. — Einnig hafa borist
góðar gjafir af notuðum fötuín frá
tveimur stöðum. — Bestu þakkir. 28.
okt. 1932. — Gísli Sigurbjörnsson.
Útvarpið í dag. 10.40 Veðurfregnir.
12.00 Messa í Fríkirkjunni. (Ferming.
Síra Árni Sigurðsson). 15.30 Mið-
degisútvarp: Erindi: Klanstrin á ís-
Iandi, V. (Síra Ól. Ólafsson). Tón-
leikar. 18.45 Barnatími (síra Friðrik
Hallgrímsson og ungfrú Ásta Jósefs-
dóttir). 19.30 Veðurfregnir. 19.40
Grammófóntónleikar: Dönsk lög. 20.00
Klukkusláttur. Frjettir. 20.30 Danskt
kvöld. Danslög til kl. 24.
'íð í dag. 10 '0 Veðurfregnir.
Hádegisútvarp. 16.00
' °5 Grammófóntón-
-’ir. 19.40 Til-
Klukku-
slá 'di: Frá
útlöndun. son). 21.00
Tónleikar: - ,g (Útvarps-
kvartettinn). Eins.,. '. Grammófón:
Sjö-slöradansinn, eftir Riehard
Strauss.
TónJistarskóIiun. Nemendur eru þar
fleiri nú en nokkru sinni áður, eða
alls um 60. Kennarar skólans eru
Páll ísólfsson, skólasjóri, kennir tón-
Fánm með Qoðaiossi
á morgnn, édýrt:
Glóalrtin (stærflir, 150-216-252)
Epli (Jouathans Ez. Fancy).
Lauk (i kðssum og poknm).
Heilðverslnn Gnrðars Gíslasonar,
slmar: 2S1, 421. 621.
Hárgreiðslustofa
Af sjerstökum ástæðum er hárgreiðslustofa á besta.
stað í bænum til sölu, ásamt vörubirgðum og áhöldum.
Tilboð merkist „100“, sendist A. S. 1.
Fengum með Ls. Brúarfoss:
Epli í kössum, Delicious, Jonathan, Machintos.
Appelsínur 126, 176, 216 og 252 stk.
Lauk. Ódýrast hjá okkur.
Eggert Kristjánssen 4c Ce-
Símar 1317 og 1400
Takið eftir.
Stoppuð húsgögu irá vinnustofuani {
Tjarnargðtu 3 verða til sýnis í glugg.
unum á Laugaveg 3 * dag.
fræði, Pranz Mixa kennir á piano og
stjórnar hljómsveit skólans; Hans
Stepanek, kennir á fiðln; Helmut
Fidicke, kennir á blásturshljóðfæri
(er það ný námsgrein í skólahum)
Glímufjel. Ármann auglsýir hjer í
blaðinu í dag vetrarstarfsemi sína og
er hún sem að vanda lætur afar f jöl-
breytt. Það hefir sömu kennurum á
að skipa sem undanfarin ár. Kennir
Jón Þorsteinsson fimleika í öllum
flokkum karla og kvenna, fullorðinna,
einnig glímu hjá fullorðnum. Vignir
Andrjesson kennir drengjum fimleika
og einnm telpnaflokki. Ingibjörg Ste-
fánsdóttir kennir telpum. Ásgeir og
Bjarni Einarssynir kenna drengjnm
glímu og Ólafur Pálsson snnd.
MorgnnblaSið er 8 síður í dag
og Lesbók.
Sjómannastofan. Samkoma í dag kl.
6 í Varðarhúsinu. Allir velkomnir.
K F. U M. Hafnarfirði, Almenn
samkoma í kvöld kl 8%. Síra Garðar
Þorsteinsson talar. Allir velkomnir.
Læknisembætti veitt. Sefán Gnðna-
son, settur læknir í Dalahjeraði, hefir
verið skipaður hjeraðslæknir þar.
Einkaleyfi. Hinn 5. okt. var ,Société
einkaleyfi á frystitækjum, sem sjer-
elle Du Poisson' í París veitt hjer
einkalyefi á frystitíékjum, sem sjer-
staklega eru ætluð fiskiskipum.
Frú Ingibjörg Magnúsdóttir, Grett-
isgötu 33 B verður 50 ára á morgun.
Barnaguðsþjónusta verður í Elli-
heimilinu kl. 2 í dag.
Þingdeilan í Danmörku. Mjög heitar
umræður urðu í þjóðþingi Dana á
föstudaginn, að því er segir í sendi-
herrafrjett. Að lokum var samþykt
að framlengja gjaldeyrislögin til
bráðabirgða fram til 1. jan. Þjóð-
þingið var rofið í gær, og fara nýjar
kosningar fram 16. nóvember.
Sveinn Þórarinsson málari er ný-
kominn til bæjarins að norðan. Ætlar
hann að halda hjer málverkasýningu
NfltíB isiázkir rtm\
og ískazk úif. ©
Þ e i r,
sem kaupa trúlofunarhrinfí*
hjá Sigurjiór verða altaf
ánægðir.
og verður hún opnuð seinni hluta
vikunnar. Sveinn er að hugsa um.
p.ð sigla í vetur til þess að full—
komna sig enn meir í list sinni, og r
kynnast nýjustu stefnum í málara!ist_
;A1 Jolson,
liinn alkunni ameríski kvikmynda-
leikari, sem frægur varð fyrir leik:
sinn í tal- og söngvamyndinni ,Sonny
Boy‘, hefir ekki leikið um hríð, en
nú1 hefir hann nýskeð gert samning
við kvikmyndafjelag um að fara að
leika aftur, og má, því búast við að-
honum skjóti bráðlega upp á tjöld-
um kvikmyndahúsanna hjer.