Morgunblaðið - 10.11.1932, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.11.1932, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Bælarsiifirnarfflim hieyot npp. Samfylkingin, sÓ5Íalí5tar og kommúnistar, gerðu í gcer út árds gegn bcejarstjórn og Iögreglu. Lögreglumenn ryðja Gooð-templara- húsið, en hljóta aluarleg meiðsli. Samkvæmt tilmælum sósíal- ista í bæjarstjóm var bæjar- ráðsfundur haldinn í fyrradag út af tillögu þeirri er samþykt var á síðasta bæjarstjómar- fundi um breyting á fyrirkomu lagi atvinnubótastyrksins. Bar Stefán Jóh. Stefánsson fram tillögu um það, að bæjar- stjórn fjelli frá fyrri, ályktun sinni. En Jakob Möller bar fram tillögu fyrir hönd Sjá'lf- stæðismanna í bæjarstjóm þess efnis, að bæjarstjórain haldi fyrri ákvörðun sinni. í gær var síðan settur bæj- arstjórnarfundur kl. 10 f. h. Þar eð sósíalistar og kommún- istar höfðu hvatt til þess, að fjölment yrði um þenna bæjar- stjórnarfund, var við því bú- ist, að fleiri myndu vilja hlýða þar á lmál manna, en komast fyrir á áheyrendasvæði í Good- templarahúsinu, og því var komið fyrir tveim gjallarhorn- um utan á húsinu. Þeir sem stóðu í Templarasundi, á Kirkjutorgi og í Vonarstræti heyrðu því prýðilega til ræðu- manna. Fundurinn stóð til kl. 12.20. Höfðu áheyrendur inni í saln- um nokkrum sinnum haft í frammi háreysti, en ekki svo, að störf fundarins trufluðust verulega, eða ræður manna. En er þessi tími var kominn, til- kynti forseti, Pétur Halldórs- son, að matarhlé yrði haft til kl. 1.45 e. h. Er áheyrendur heyrðu þetta hófu þeir upp óp og sögðu, að bæjarstjórn skyldi afgreiða málið, því annars fengi bæjar- fulltrúamir ekki að fara út. Kommúnistaforingjar, sem stóðu utan við húsið, báðu fylgismenn sína að þoka sér nær innganginum. Stóð í þessu háreysti drykklanga stund. En, síðan tilkynti einn kommún- isti, að lögreglustjóri hefði lof- að því, að aðgangur skyldi verða frjáls að fundinum eftir matarhlje, og sneri þá hóp- ur sá, sem safnast hafði við húshomið frá húsinu. Ekki er blaðinu kunnugt um, hvort þessi boð hafa verið flutt rjett frá lögreglustjóra. En þau urðu fil þess, að eigi urðu veruleg- ar stympingar í það sinn. Það eina sem gerðist af því tagi var, að nokkrir náungar söfnuðust utan um Jakob Möller, er hann kom út á göt- una og sýndu tilburði til að þjarma að honum. En lögregla kom brátt þar að og fylgdi Jakob út úr þvögunni. Af ræðum manna á fundi þessum verður ekki sagt í þetta sinn, þó margt kæmi þar fram, sem vert er að haldið sje til haga. Því áður en lauk gerð ust alvarlegri tíðindi, sem-fyrst skal frá greina. Árás sósíalista og kommúnista á lögreglu bæjarins. Margir lögregluþjónar meiðast alvar- lega. Kl. 1' e. h. fór fólk að safn- ast aftur að Goodtemplarahús- inu. Áður en bæjarfulltrúamir komu á tilsettum tíma hafði lögreglan hleypt svo mörguin áheyrendum inn í salinn, að sæti voru skipuð á áheyrenda- bekkjunum. En forstofu húss- ins var haldið auðri. Þegar bæjarfulltrúarnir voru komnir inn í salinn, fóru ýmsir að ókyrrast, af þeim sem úti fyrir voru, og létu allófriðlega. Fyrstur var á mælendaskrá Jakob Möller. En er hann hafði talað nokkra stund, varð svo mikil ókyrð í salnum, að sýnilegt var, að fundinum yrði ekki haldið áfram fyrir ýmsu því skrílæði, er nokkrir áheyr- endur höfðu í frammi. Mátti eigi heyra mannsins mál í saln- um fyrir ópum og óhljóðum frá áheyrendum. Sagði forseti því fundi ^litið. En í þeim svif- um var árás hafin að utan á lögregluþjóna þá, er voru í gangi hússins. En samtímis tóku margir sig til af þeim, er inni í liúsinu voru og rjeðust að kigreglunni innan að. Urðu þar brátt harðar sviftingar. Lögreglumenn voru þarna einir 12. En brátt komu þang- að fleiri, svo alls urðu þeir um 20. Sneru þeir nú bökum sam- an og ruddu ganginn. Munu ýmsir bæjarfulltrúar nú hafa reynt að sefa óróa- seggina, með því að tala við þá um, að engin heppi- leg úrlausn væri fáanleg með þeim aðförum, ofbeldi, bölvi og ragni því, sem þarna var haft í frammi. En þessar tilraunir mistókust algerlega og varð brátt alt í báli ryskingum og ólátum þar inni, en kommúnistar létu það ósleiti lega í ljós, að bæjarfulltrúam- ir og lögregla skyldi nú fá að kenna á því. Er bæjarfulltrúarnir höfðu fyllilega gengið úr skugga um, að engu tauti varð komið við þann æsingalýð, sem þama var, var ekki annað fyrir þá að gera en að hafa sig á burt. Fóru nú nokkrir þeirra út um austurdyr hússins. Var þeirra á meðal Jakob Möller. Er hann kon/út á götuna gerði hópur manna aðsúg að honum, elti hann með ópum og óhljóð- um og reyndi að berja hann niður. Féll hann snöggvast í götuna, en reis brátt við aftur, enda kom honum brátt liðsinni. Hruflaðist hann lítið eitt á and- liti, en sakaði annars ekki. Er ólátalýðurinn, sem inni var, sá að nokkrir bæjarfull- trúar voru komnir út á götuna. þustu ýmsir úr þeirra hóp út úr húsinu, en meiri hluti þeirra varð þó eftir inn. Nokkru síðar, er Maggi Magnús bæjarfulltrúi ætlaði að gar.ga frá húsinu, gerðu bolsar .þröng um hann, og hröktu hann að húsinu aftur. Urðu lög reglumenn að vernda hann og komst hann inn um norður- dyrnar. Fjekk hann síðan. það verkefni að annast um tvo lög- regluþjóna, er fengið höfðu á- verka, og voru þar uppi á lofti. Síðar komst hann óhindrað leið ar sinnar. En slagurinn hélt áfram í fordyri hússins, milli lögregl- unnar og bolsa og eins inni í salnum. Fengu bolsar barefli allmikil úr stólum, borðum og bekkjum, er þeir brytjuðu nið- ur eftir því sem þeim þótti henta. Ljet nú lögreglustjóri svo um mælt við lögregluliðið, að ryðja skyldi öllu fólki út úr húsinu. Tók það nokkra stund, en gekk greiðlegar, en menn. höfðu get- að búist við. Er lögreglan hafði rutt húsið, rak hún og alt árás arliðið af lóð hússins. Nokkrir lögreglumanna höfðu fengið áverka er hingað var komið, m. a. Margrímur Gíslason. Hann feklt steinkast í höfuðið, er hann var í fordyri fordyri liússins, svo og Björn Vig- fússson. Hann fekk alvarlegt högg í kviðinn. Er lögreglan hafði rutt út úr húsinu og af lóðinni kom lög- .reglustjóri að innan og gekk út að mannþyrpingunni. Fór hann fram á það við þá, sem þama stóðu í hnapp, að þeir fæm í brott. En þeim orðum hans var ekki sint. Sagði hann þá við lögreglumennina, að nú færi hann gegnum mannþyrping- una, og ætlaðist hann til þess, að þeir fylgdu honum. Komst hann síðan í gegnum þvöguna, en við það, að lögreglu- mennirnir hurfu frá liúsinu opn- aðist ofbeldismönnunum leið til þess að ráðast að lögreglunni aft- an frá og gerðu þeir það, þegar í stað. Og þá hófst hinn alvarleg- asti bardagi. Tókst árásarliði bolsanna að umkringja lögreglumennina hvern af öðrum og koma aftan að þeim. — Var liðið, sem þeir nú áttu í höggi við með lengri barefli og þyngri, en hinar ljettu kylfur lögreglunn- ar. Fengu nú margir lögreglu- menn áverka, mismunandi mikla. Gat blaðið ekki í gær- )) Ktoim i Olseini Spaðkjöt. Hokkrar heil- og hðlf-tunnur öseldar. kvöldi fengið fyllilegt yfirlit yfir meiðsl þeima og líðan. Um áverka þessara lögreglu- manna hefir blaðið frjett: Magnús Eggertsson var bar- inn niður svo hann var borinn meðvitundarlaus inn til Ólafs Þorsteinssonar á Skólabrú. Hann hafði fengið sár- á höfði. Sömuleiðis Sigtryggur Eiríks- son. Hann var í gærkvöldi tal- inn allmikið veikur. Þeir Geir Sigurðsson og Matthías Guðmundsson voru handleggsbrotnir. Matthías kom við þriðjai mann til hjálpar Magnúsi Hjaltesteð, þar sem nokkrir bolsar höfðu umkringt Magnús, barið hann niður í götuna og spörkuðu síðan í hann þar sem hann lá. í þeirri viðureign hand leggsbroítnaði Matthías. Björn Vigfússon er fekk högg í kviðinn, sem þjáði hann mik- ið er blaðið vissi síðast. Um fleiri meiðsl og áverka á lögreglumönnum hafði blað-' ið ekki frjett í gærkvöldi,; nema hve ýmsir aðrir hefðu I fengið skrámur og hnjask. Eitthvað um tólf bolsar leit- uðu læknisaðgerðar hjá Ólafi Þorsteinssyni lækni. En enginn þeirra hafði meiðst alvarlega, svo vitað sje. Um aðra er blað- inu ekki kunnugt. Frá Aknreyri. Vinsæ! iðn með vinsælu verðl. Velkomið að hlnsta á hanstnýjnngantar. Hllððfærahásifl Anstnrstrali 10. Hllðflfærahás Anstnrbæjar, Langav.38 Húsfreviur! í dag og á morgun er síðasta tækifæri á auglýsingasölu okkar. Kjötfars aðeins 0.50 Vz kg. Wienerpylsur aðéins 1 kr. y2 kg Medisterpylsur aðeins 0.75 aura Vá kg. Miðdagspylsur aðeins 0.75 aura Vz kg. Alt eigin framleiðsla, sem af þeim er reynt liafa er við- u kend fyrir gæði. Kjötverslnn Ben. B.: Gnðmnndsson & Co. Sími 1769. Vesturgata 16. Akureyri FB 8. nóv. Saltsíld sú, sem legið hefir hjer frá því sumarvertíðinni lauk, um 8000 tunnur, hefir nú mestöll ver- ið seld til Danzig. Kaupverð 22 shillings 6 pence cif. Danzig. ■— Síldina, sem söltuð var með sænska markaðinn fyrir augum verður að afvatna og umpakka áður en hún er send hjeðan, en það verður um næstu mánaðamót. Millisíldarafli er hjer nokkur iá innfirðinum. Strokkurinn keypt- ur á 30 kr. Látin er hjer í bænum frú Þur- íður Johnsen, ekkja Jóns Johxisen sýslumanns í Suður-Múlasýslu, 88 ára gömul. Hvtt crem, sem gerir húðina hvíta, hreinsar og eyðir blettum og freknuín, komið. Hárgreiðslustofa Reykjavíkur, J. A. Hobbs. Áðalstræti 10. Sími 1045. fþróttaæfingar K. R. verða í kvöld kl. 4—5 telpur 6—10 ára, kl. -5-—6 telpur 10—14 ára, 6—7 3. fl. kvenna iy2—8V2, 1. fl. kvenna, 8y2—9% 2. fl. karla, kl. 91/2—10y2 1. fl. karla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.