Morgunblaðið - 10.11.1932, Blaðsíða 3
MORGUNBLA^IÐ
8
JfRorgutiWaMfc
H.f. ÁTT«knr, lirUkTllíi
SUtstJðrar: Jön KJartansaoB.
ValtjT Stafánaaotf,
JUtatJör" o( afcralQala:
Anaturatrntl I. — Slaai Mlf
AUBlýalncaatJörl: B. Hafbarc,
Anriyalnraakrifatofa:
Auaturatraetl 17. •— Slaal fM<
Holaaaalaaar:
Jön KJartanaaon nr. 741.
Valtjr Stafánaaon nr. 1111,
M. Hafbarn nr. 771,
Askrlf tanJald:
Innanlanda kr. 1.00 á aaánaVL
Htanlanda kr. 1.10 á aaánnBi,
fi lauaaaðlu 10 aura olntakK.
10 aura aasS Hasbák.
Yfirlýsing.
Þó að jeg telji dóm þann rang-
an, sem lögreglustjórinn í Reykja-
vík liefir ltveðið upp yfir mjer,
þá hefi jeg þó tekið þá ákvörð-
un að beiðast þegar lausnar, því
- að 'jeg lít svo á, að í ráðherrasæti
«igi enginn að sitja, sem hefir
hlotið áfellisdóm hjá löglegum
dómstóli, meðan dóminum er ekki
hrundið með æðri dómi.
Jeg nota þetta tækifæri til þess
-að lýsa vfir því, að jeg mundi
alls ekki á síðastliðnu vori hafa
■tekið sæti í landsstjórninni, hefði
jeg verið mjer þess meðvitandi,
að jeg væri selíur um það, sem
jeg nú er dæmdur fyrir.
Má.lið hefi jeg borið undir ýmsa
merka og glöggskygna lögfræð-
inga og allir hafa þeir verið sam-
mála mjer um málstaðinn. Jeg bíð
því rólegur úrslitanna í Hæsta-
rjetti, en þangað hefi jeg þegar
skotið málinu.
Magnús Guðmundsson.
StórkosM rán.
Tveir bófar ráðast á Svein-
björn Egilson, á skrifstofu
Fiskifjelaffsins í Landsbank-
anum, berja hann og binda
ræna bví fje, er bar var,
á briðja búsund krónur.
1 gærkvöldi, rjett áður en blað-
ið fór í prentun barst sú fregn
um bæinn. að tveir menn hefði
í gærkvöldi um kl. 9, komið inn
í skrifstofu Fiskifjelagsins í
Landsbankaliúsinu, til Sveinbj.
Egilson. Gerðu þeir sjer það til
erindis, að spyrja Sveinbjörn um
skip. Er Sveinbjörn opnaði skúffu
til að ná í einhver gögn, og- laut
niður; rjeðust þeir á hann, börðu
hann, svo hann tapaði meðvitund
og bundu hann. Síðan liafa þeir
látið þarna greipar sópa og stolið
á 3. þúsund krónum. Komið var
að Sveinbirni þarna tveim klst.
síðar, þar sem hann lá bjargar-
laus.
Klæðnaður Gretu Garbo. Síðan kvik
myndadrotningin Greta Garbo kom
til Svíþjóðar í sumar hefir hún
jafnan, er hún hefir sýnt sig á manna
inótum á leikhusum og víðar, verið svo
afkáralega klædd að furðu gegnir.
Hefir hún verið í jússulegum yfir-
höfnum, duggarapeysu og með húfu-
pottlok, svo klæðnaðurinn hefir blátt
áfram afskræmt hana. — Samt hafa
margar konur ekki staðist mátið, og
stæla nú hina óviðjafnanlegu Gretu
3 klæðaburði á almannafæri.
í
m
?
i
I
i
*
I
Leifar
Hriflu-„riettuí5innar“.
Lögreglustjórinn í Reykjauík öœm-
ir (Tlagnús öuðmunösson, öóms-
málarúðherra í 15 öaga fangelsi.
Kl. 5 síðdegis í gær kvað Her-
mann Jónasson lögreglustjóri upp
dóm í máli því, sem .Jónas frá
Hriflu fyrirskipaði gegn eftir-
manni sínum i dómsmálaráðherra-
sætinu, Magnúsi Gnðmnndssyni.
Þetta mál er, sem kunnugt er, í
sambandi við gjaldþrot G. Behr-
ens fyrv. heildsala hjer í bænum.
Þáttur
Magnúsar Guðmundssonar.
Afskifti Magnúsár Guðmunds-
sonar af máli þessu eru í stórum
dráttum þau, er nú skal greina:
í októbermá.nuði 1929 kom til
M. G., sem málaflutningsmanns, C.
Behrens kaupmaður og tjáði hon-
um, að hann hefði notað í eigin
þarfir mikið af fje, sem bann liefði
innheimt. fvrir erlent firma. Kaup-
maðnrinn tjáði M. G., að umboðs-
maður liins erlenda firma mundi
bráðlega koma bingað til lands
og heimta greiðslu, en liann hefði
ekki handbæra peninga til þess
að greiða nema lítið af skuldinni.
M. G. tjáði kaupmanninum, að
bann gæti ekkert um það sagt
bvað gera skyldi fyr en hann hefði
sjeð efnahagssþýslu lians, en hún
yrði að vera samin af löggiltum
endurskoðenda.
Efnahp,gsskýrslan var svo gerð
og var bún samin af N. Mancher
endurskoðanda. Samkvæmt skýrsl
unni voru skuldir alls tæplega
123.000 kr., þar af nimlega 68
þúsund við hið erlenda firma.
sem átti hið innheimta fje, rúm).
27 þús. kr. við aðra skuldlieimtu-
menn, flesta erlenda, umboðsvörur
fyrir rúml. 4 þús. kr. og um 23.500
kr. við ýms skyldmenni kaup-
mannsins erlendis. Kaupmaðurinn
gaf þær upplýsingar,- sem stað-
festar voru síðar, að eigi þyrfti
I að taka tillit til skuldanna við
skyldmenni lians, því að þær yrðu
ekki af honum heimtar. Nálnu því
skuldirnar alls tæpl. 100 þús. kr.
En eignir samkv. efnahagsskýrsl-
jjnni voru um 98 þús. kr. og voru
þá ekki meðtaldar 6000 kr., sem
var óumsamin innieign hjá er-
lendu firma. Ennfr. upplýstist síð-
ar. að 5000 kr., sem talið var að
hefði verið eytt, voru greiddar
upp í skuld, sem þannig var talin
5000 kr. of hátt.
Á efnahagsskýrslunni var því
ekki annað sjáanlegt, en að C.
Behrens hafi átt 8—9 þús. kr.
umfram skuldir, þegar frá eru
taldar skuldir venslamanna hans.
Hið erlenda firma gekk hart
eftir sinni skuld, en C. Behrens
iiafði litla peninga til þess að
greiða skuldina með. Var þá það
ráð tekið, að framselja firmanu
útistandandi skuldir og vörur fyr-
ir samtals um 47 þús. kr. og sá
M. G. um samningagerðin'a og tók
að sjer innheimtu skuldanna. ■—
Þetta gerðist í októher 1929. Sex
mánuðum síðar, eða í júnímánuði
1930 reyndi C. Behrens að fá
nauð asamnin ga við skuldheimtu-
emnn sína, en þeir strönduðu.Loks
í febrúar 1931 var svo komið fjár-
hag C. Behrens, að bú hans var
tekið til gjaldþrotaskifta og fór
rannsókn þá fram lögum sam-
kvæmt.
Þáttur
Jónasar frá Hriflu.
Rannsókn út af gjaldþroti C.
Behrens byrjaði í fehrúar 1931.
Að rannsókn lokinni voru máls-
skjölin send í dómsmálaráðuneyt-
ið, en þá var Jónas Jónsson frá
Hriflu, æðsti vörður laga og
rjettar í landinu. Málið lá lengi
í stjórnarráðinu án þess ákvörð-
un yrði tekin um það hvað gera
skyldi.
En þegar leið á þingið 1932
fór Jónas frá Hriflu að verða
valtur í ráðherrasessi. Og 25. maí
í vor var sú ákörðun tekin á
flokksfundi í Framsóknarflokkn-
um, að þáverandi forsætisráðherra
Tryggvi Þórhallsson skyldi beið-
a.st lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt.
Næsta dag fekk vikapiltur Jón-
asar, Hermann Jónasson lögreglu-
stjóri svohljóðandi brjef frá hús-
bónda sínum, hinum fráfarandi
dómsmálaráðherra:
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
Reykjavík, 23. maí 1932.
Jafnframt þvi að endursenda yð-
ur, herra lögreglustjóri útskrift af
rjettarrannsókn, sem þjer hafið
haldið í tilefni af gjaldþroti C.
Behrens kaupmanns, ásamt 7 fylgi
skjölum, er hjermeð lagt fyrir
yður að halda áfram rannsókn
máls þessa og koma síðan fram
á.byrgð lögum samkvæmt gegn
nefndum gjaldþrota C. Behrens,
og ennfremur gegn lögfræðingi
þeim, og endurskoðanda, sem að-
stoðuðu hann við eignayfirfærsl-
una fyrir gjaldþrotið.
Jónas Jónsson.
G. Sveinhjörnsson
Til lögreglustjórans
í Reykjavík.
Þetta var ekki eina kveðjan. er
hinn fráfarandi dómsmálaráðherra
ljet frá sjer fara úm leið og hann
hröklaðist úr ráðherrasæti. Hann
fyrirskipaði einnig sakamálshöfð-
un gegn fyrv. bankastjórum ís-
landsljanka og borgarstjóranum í
Reykjavík.
Sósíalistar reka erindi
Jónasar frá Hriflu á Alþingi
Laugardaginn 5. júní s.li var
fundur haldinn í sameinuðu þingi
og þar tilkynt myndun samsteypu
stjórnar Ásgeirs Ásgeirssonar. —
Sósíalistár, samherjar Jónasar frá
Hriflu not.uðu að sjálfsögðu þetta
tækifæri til þess að reka þar er-
indi samherja síns.
Jón Baldvinsson spurði forsæt-
isráðherra Ásg. Ásg. um saka-
málshöfun þá, sem Jónas frá
Hriflu hafði fvrirskipað gegn M.
Guðmundssyni. Þessu svaraði for-
sætisráðherra þannig, að J. Bald.
vissi vel, að M. G. væri ekki
fremur sakamaður en hann (J. B.)
sjálfur. Þetta svar þótti þingheimi
vel við eigandi, en Jónas frá
Hriflu þrútnaði af reiði.
Sósíalistar 'báru nú fram van-
traust á stjórnina, en hún var feld
með 30 atkv. gegn 4. Á þenna hátt
svaraði Alþingi hinni svivirðilegn
herferð Jónasar frá Hriflu á hend-
ur Magnúsi Guðmundssyni.
Leifar Hriflu-„rjett-
vísinnar.“
Jónas frá Hriflu sá nú fram á,
að ekki þýddi fyrir hann að halda
ofsóknarherferðinni áfram í söl-
um Alþingis. Þar var hann orðinn
áhrifa- og valdalaus og fyrirlit-
inn. Hann hafði aðeins fylgi 2—3
manna i sínum flokki og svo só-
síalistanna.
En nú kom sjer vel fyrir Jónas
frá Hriflu, að eiga mann í ábyrgð-
armesta dómaraembætti landsins,
lögreglustjórann í Reykjavík. —
Þessi maður átti að kveða upp
dóm í máli M. Guðmundssonar.
Jónas treysti honum til, að kveða
upp pólitískan dóm og nú er sá
dómur kominn í dagsins ljós. ,
Hermann lögreglustjóri kvað upp
sinn dóm kl. 5 síðd. í gær. Hann
)as aðeins upp niðurstöðu dómsins
og var hún ,á þessa leið: C. Behr-
ens kaupmaður var dæmdur í 45
daga fangelsi og auk þess sviftur
leyfi til að reka .verslun hjer eða
atvinnu í 6 ár, Magnús Guðmnnds
son var dæmdur í 15 daga fang-
elsi, en N. Mancher var sýknaður.
Hinir dómfeldu, C. Behrens, og
Magnús Guðmundsson, sem báðir
voru viðstaddir í rjettinum, lýstu
yfir því, að þeir óskuðu að mál-
inu yrði áfrýjað til Hæstarjettar.
M. Guðm. tók það sjerstaklega
fram og hað bókað, að hann ósk-
aði eftir, að áfrýjun yrði flýtt
sem unt væri. Því lofaði dómarinn.
Það eru síðustu drefjar Hriflu-
„rjettvísinnar“ gömlu, sem end-
urspeglast í þessum dómi lög-
reglustjórans. Þjóðfjelagið býr
enn að spillingu Hriflu-valdsins.
En því meir sem þjónar Hriflu-
.rjettvísinnar' koma fram í dags-
ius ljós, þvi auðveldara verður
að hreínsa til á sínum tíma. Þess
vegna skal það ekki harmað, að
lögreglustjórinn kvað upp þenna
dóm.
Magnús Guðmundsson
beiðist lausnar.
Magnús Guðmundsson tók þá
álivörðun í gær, eftir að lögreglu-
stjórinn liafði kveðið upp hinn
merkilega dóm, að beiðast lausnar.
Ákvörðun þessi er þó vitanlega
ekki tekinn vegna þess, að M. G.
fallist á dóminn, heldur vegna
hins, að liann virðir dómsvaldið
x landinu, þó að það hjer hafi lent
í höndum pólitískra ofstækis-
manna.
Lögreglustjórinn er ekki öf-
undsverður af dagsverki sími í
gær. Fyrri hluta dagsins urðu
hjer í bænum þær alvarlegustu
óeirðir/ sem hjer hafa borið að
höndum um langan tíma. Lög-
reglustjórinn hlaut, að sjá óeirðir
fyrir, en samt var hann óviðbúinn.
Og það, að lögreglan hjelt hinum
stjórnlausa skríl furðanlega í
skefjum var ekki lögreglustjór-
anum að þakka, heldur einstöku
lögregluþjónum, sem sigað var út
Happrn
lieitir ný tegund af sjálf-
blekungum, þeir eru fram-
leiddir af sömu verksm. og
Pelikan-sjálfblekungarnir og
hinar vinsælu Pelikan- vör-
ur. Rappen er með gull-
penna og gegnsæum þlek-
geymi og er mjög sterkxír
og fallegur.
RAPPEN kosta aðeins 11.50
Við hiifum fengið mikið úr-
val af þessum pennum svo
allir geta fengið penna við
við sitt hæfi.
BdkUiaicnt’
Lækjargötn 2---Sími 736.
af fyrirhyggjulansum lögreglu-
stjóra gegn margföldu ofurefli.
En meðan segja má, að bærinn
hafi logað í uppreisnarástandi sá
lögreglustjóri ekki anrrað starf
jarfara, en að snúa sjer að því
máli, sem hann nú hefir haft und-
ir liöndnm um nær tveggja ára
skeið, og kveða upp í því þann
dóm, sem hlaut að verða ríkis-
yaldinu til stórhnekkis og koma
sem olía í eld æsingamannanna.
Hæstirjettur mun innan skams
dæma um dómsathöfn HJermanns
Jónassonar í gær. Er bæjarbúar
hafa nú þegar kveðið upp úrslita-
dóm um frammistöðu lögregln-
stjórans, sem handhafa ríkis-
valdsins. Krafa almennings var, að
lögregluvaldið yrði þegar í stað
tekið af Hermanni Jónassyni.
Dómurinn.
Eftiv langar og eflaust strangar
fæðingarhríðir er nú loks komiirn
dómurinn í máli því, sem Jónas
Jónsson frá Hriflu fyrirskipa|Si
gegn eftirmanni sínuin í dómp-
málaráðherrasætinu, Magnúsi Guð-
mundssvni.
Dómurinn var uppkveðinn kl. 5
í gær og urðu úrslitin þau, að
Magnús Guðmuiidsson var dæmd-
ur í 15 daga fangelsi. O. Behrens
kaupmaður í 45 daga, fangelsi, en
N. Maneher endurskoðandi var
sýknaður.
Það er hinn reglulegi dómari,
Hermann Jónasson lögreglustjóri,
sem hefir kveðið upp þenna ein-
kennilega dóm, sem án efa verð-
ur að teljast pólitískt hermdar-
verk. Það er kunnugt, að lög-
reglustjórinn er einhver þægasti
vikapiltur Jónasar frá Hriflu. er
fyrirskipaði þessa málssókn. Það
er og kunnugt, að lögreglustjórinn
er aðalsprauta Hjriflnliðsins hjer
3 bæmim og innsti koppur í húri
þeirrar fámennu klíku hjer í höf-
uðstaðnum. sem enn hangir utan
á Jónasi frá Hriflu.
Engnm mun detta í hug að
telja slíkan dómara óhlutdrægan
í máli gegn M. G., sem sjálfur
húsbóndi dómarans hefir til stofn
að. Það gegnir furðu, að lögreglu-
stjórinn skyldi ekki ótilkvaddur
hafa vit á, að víkja úr sæti í
þessu máli.