Morgunblaðið - 13.11.1932, Blaðsíða 3
MORGUNBLADIÐ
s
Tuttugu ítalskar flugujelar
koma til Íslanös í uetur.
Rómaborg, 11. nóv. XJnited Press. PB.
Tuttug'u ítalskir flugbátar undir stjórn Balbo hershöfðingja,
fljúga í marsmánaðarlok frá Rómaborg til Chicago, um England,
ísland, Suður-Grænland, Labrador og Michigan-vatn.
—----------
Ofviðri í fvrrinótt.
Þrumur 09 elðingar.
Norskt skip missir út fjóra
menn fyrir sunnan land.
Skemdir á landsíma og loftskeytastöð.
S •
^lorgmtbla^tö
'm
% »t*»f.: H-f. Arrnkor, JUjrUtTtt,
* .Etltatjðrar: JOn JCJaxtazuHua.
Valtyr StatAnMKA.
.*• a!t«tj£rj' Of atffralO*!*.:
Jj ▲uetur*traeti t. — ðimt
'« ▲aifiy*inKaatJOri: B. H&tbarf.
® ▲utlí'.)n*:a*krtf*tof*:
•* ▲usturatraati 17, — Hlaai f*».
aEs!»«fia»r:
.* Jön iCJartanacon nr. 1*1.
* Va.Hfr Stafánaaon a>>. 1*1(.
K. Hafberar nr. VTO.
« ,t*krlf't*.K]ttld:
<• Innanland* kr. 1.00 A **As*>t.
| 'Jtanlanðe kr. II.»0 A aiAnnSt.
'* ' l».awt.eOlu Ið aura •miiill.
L 10 aur* meit Luifbenc,
Úlafur Thors
tekur við dómsmálaráðherra-
embættinu.
Ólafur Thors.
Fundur þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins óskaði þess á
fimtudagskvöld, að Ólafur
Thors tæki við dómsmálaráð-
herraembættinu, þar sem Magn
ús Guðmundsson hafði sagt að
sjer.
Ólafur Thors fjellst á það í
gær, að verða við ósk flokksins
og símaði forsætisráðherra sam-
stundis konungi og bað um út-
nefningu Ól. Th. í dómsmála-
ráðherraembættið.
íslenska sýningin.
í Ósló.
Oslo, 11. nóv. NRP. — PB.
Islenska málverkasýningin var
opnuð í „Kunstforeningen“ í gær
að viðstöddu fjölmenni. Sendi-
herra Danmerkur og Islands,
Kaufmann, opnaði sýninguna og
hjelt snjalla ræðu. Viðstöddum
þótti mikið til sýningarinnar koma
Stórkostleg flóðbylgja.
Havana 11. nóv.
United Press. PB.
Pregn hefir borist um það,
hingað, að flóðbylgja hafi alger-
lega lagt í eyði hæinn Santa-Cruz-
del-Sur. Þúsund menn drukknuðu
og menn meiddust í hundraðatali.
Þrjú hundruð lík hafa náðst. —
Hjálparlestir frá Havana eru lagð
ar af stað með lækna, hjúkrunar-
fólk, matvæli o. s. frv.
Hernaðarjafnrjetti Þjóð-
vjerja.
London, 10. nóvember.
United Press. FB.
Sir John Simon hefir, fyrir hönd
Bretastjórnar, fært þýsku ríkis-
stjórninni tilboð um hernaðarlegt
jafnrjetti Þjóðverja, gegn því, að
Þýskaland fallist á það sameigin-
lega með öðrum Evrópuríkjum, að
heita aldrei valdi í framtíðinni til
lausnar deilum, sem upp kunna
að koma.
Veðrið (vikuna S.—12. nóvem-
ber) heiir verið umhleypinga-
samt og rysjótt. Fyrstu tvo dag-
ana var V-átt og gerði dálítinn
snjó nyrðra. Síðan hefijr hver
llægðin af annari farið norður
eftir Grænlandshafi fyrir vestan
ísland og valdið SA og SV-hvass-
viðrum á víxl. Hafa fylgt þeim
hlýindi all-mikil og stór-rigning-
ar sunnan lands og vestan. Norð-
austan lands hefir hins vegar
mjög lítil úrkoma orðið, en hiti
oftast 8—12 stig.
Mest kvað að lægð þeirri, sem
fór hjer fram hjá aðfaranótt
laugardagsins. Var hún komin
langt sunnan úr hafi, frá Azor-
eyjum, og hreyfðist beint norður
eftir, og var í gærkvöldi komin
norður með Vestfjörðum. í Rvík
var veðurhæðin frá 9—12 vind-
stig kl. III/2 á föstudagskvöld til
kl. 5 um nóttina. Mestur varð
vindhraðinn rúinir 80 m. á sek-
Á laugardagsmorguninn gekk á
með þrumum og eldingum á tíma
bili. Loftþrýsting var mjög mikil
um Bretlandseyjar og því rakin
S-átt og hlýindi um austanvert
Atlantshafið, alt norður fyrir ís-
land, —
Slys á hafskipi.
í þessu ofviðri var norska
flutningaskipið „Ingerto“ á leið
til Reykjavíkur. Var það með
kolafarm frá Englandi til „H.f.
Kol og Salt“. Þegar það var
komið svo sem miðja vega milli
Vestmannaeyja og Reykjaness,
um 35 sjómílur suðaustur af
Reykjanesi, fékk skipið áfall.
Kom á það brotsjór og braut af
því skipstjórnarpall og skolaði
honum fyrir borð ásamt stýri,
áttavita og fjórum mönnum
sem í brúnni voru. Mennirmr
drukknuðu allir. Var það skip-
stjóri, stýrimaður og tveir há-
setar.
Loftskeytatæki skipsins voru
ekki í brúnni og gat það sent út
neyðarmerki og bárust þau um
miðja nótt til Slysavarnafjelags
íslands. Var skipið þá í nauðum
statt, hrakti fyrir stórsjó og of-
viðri. Skipverjum þeim, sem eft-
ir voru lifandi í skipinu, tókst þó
að koma í lag stýrisútbúnaði,
sem er aftur í skut. Vjelin var í
lagi, en skipið, sem er um 4000
smálestir, fullhlaðið af kolum og
afar þungt í sjó, gat ekki annað
en reynt að verjast áföllum. Um
kl. 21/2 í gærdag var það statt um
20 sjómílur suðaustur af Reykja
nesi, eða út af Selvog.
Þegar, er neyðarmerki bárust
frá því í fyrrinótt til Slysavarna
fjelags Islands, rey^di Jón Berg-
sveinsson að fá danska skipið
„Dronning Alexandrine“ sem
hjer lá, að fara út til björgun-
ar. En svo var veðrið þá vont
að talin voru öll tormerki á því
að „Dronning Alexandrine“ gæti
komist slysalaust út úr höfninni,
og fór því hvergi.
Um hádegi í gær var enskur
togari kominn „Ingerto“ til að-
stoðar og rjett á eftir var von á
togaranum „Venus“ þangað.
Ennfremur bar þar að togarann
„Max Pemberton“ og varðskip-
ið „Óðinn“, sem mun um kvöldið
hafa verið hjer í flóanum, en
flýtti sjer þegar suðureftir til
aðstoðar. „Dettifoss“ fór frá
Vestmannaeyjum í fyrrakvöld á
leið hingað. Hafði hann sam-
band við loftskeytastöðina hjer
fram eftir kvöldinu, en alt í
einu tók fyrir það og heyrðist
ekkert til skipsins langa lengi.
Mun loftskeytastöð þess hafa
bilað, en margir voru orðnir
hræddir um, að honum hefði
hlekst á. Svo var þó eigi, sem
betur fór, og um hádegi í gær
kom skeyti frá skipinu. Var það
þá statt út af Selvogi og hafði
ekkert orðið að hjá því. Mun
það hafa ætlað sjer að vera
„Ingerto“ til aðstoðar.
Símabilanir.
Miklar símabilanir urðu í of-
viðri þessu, bæði á Suðurlandi
og Vesturlandi.
I gærmorgun náði símasam-
band frá Reykjavík ekki lengra
austur á bóginn en að Seljalandi
undir Eyjafjöllum. Er óvíst
hvað símabilanir eru miklar þar
fyrir austan, en þegar voru
menn gerðir út af örkinni til
þess að gera við þær.
I Mosfellssveit brotnuðu sjö
símastaurar skamt frá Korpúlfs-
stöðum, og 5 símastaurar brotn-
uðu hjá Hamri í Borgarfirði
(skamt fyrir ofan Borgarnes).
Sambandslaust var við Stykkis-
hólm, en við Akureyri var sam-
band á einni línu, og dugði það
í gærdag.
Margar smærri bilanir urðu á
landsímanum.
Loftskeytastöðín bilar.
Ofviðrið sleit niður loftnet
loftskeytastöðvarinnar á Melun-
um .Tókst í gær að gera við það
tii bráðabirgða.
Sæsímasiitin.
Fyrir nokkrum dögum slitn-
aði sæsíminn milli Færeyja og
íslands. Viðgerðarskip er kom-
ið á Seyðisfjörð og var búist við
að sæsíminn kæmist í lag í gær
En svo varð ekki, því að skip-
ið liggur veðurtept í Seyðis-
firði.
Síðan sæsímaslitin urðu, hafa
skeyti héðan verið send loftleið-
ina. Hefir útvarpsstöðin komið
þeim til Thorshavn í Færeyjum,
og hefir stöðin þar sent þau
lengra áleiðis.
Bátur hverfur.
Engin slys urðu hjer í höfn-
inni í fyrrinótt, en vjelbáturinn
„Vega“, sem lá inni á Kleppsvík,
hvarf. Bátur þessi var 25 smál.
og mun hafa verið eign Útvegs-
bankans. Enginn maður var þar
um borð, og er haldið að bátur-
inn hafi sokkið.
Togara hrekur.
Togarann Kára Sölmundar-
son, sem lá mannlaus fyrir fest-
um inni á Eiðisvík hrakti norð-
ur sundið milli Viðeyjar og
Geldinganess, þangað til hann
var kominn á móts við hina svo-
kölluðu „olíubryggju“ í Viðey,
og staðnæmdist þar í miðju
sundinu. I gærkvöldi var hafnar-
bátur Reykjavíkur sendur þang-
að inn eftir til þess að færa skip-
ið í lægi aftur.
Togarann „Ver“, sem lá und-
an Kleppi, hrakti þaðan norður
sundið og alt upp undir Kríu-
sand í Viðey. Þar staðnæmdist
hann og mun vera alveg óskemd
ur.
Mörg fleiri skip, sem lágu
inni í sundum, hrakti talsvert,
en ekki varð neitt slys að.
FlóSbylgja.
Frá Grindavík var símað í
gær að aldrei í manna minnum
hefði verið þar eins mikið brim
eins og þá um nóttina. Gekk flóð
bylgja á land og sópaðist lengst
upp á túnin í miðju þorpinu.
Hjá Viðey var afskaplegt haf-
rót. Gekk sjórinn þar upp á há-
ey, en olli þó ekki neinum
skemdum. En veðrið braut þar
gjörsamlega niður fiskiskúr, sem
stóð niður við ströndina, og var
ekkert eftir af honum annað en
sundurmalin timburhrúga.
„Ingerto“ á leið til Reykjavíkur.
Um klukkan 5 í gærkvöldi
barst hingað skeyti frá „Inger-
to“. Var skipið þá statt um 5
sjómílur undan Reykjanesi á
leið hingað.
Við áfallið, sem skipið fekk,
hafði það mist alla áttavita sína,
og stýrið í skut var eitthvað í
ólagi fram eftir deginum. Vjel
skipsins var í lagi, og þegar
tókst að koma stýrinu í lag, var
lagt á stað til Reykjavíkur.
Þurfti skipið ekki á því að
halda að annað skip tæki það í
eftirdrag, en fekk „Max Pem-
berton“ til að sigla á undan sjer
til Reykjavíkur, og stýrði í kjöl-
far hans og sigldi eftir ljósum
hans.
Klukkan 8 í gærkvöldi voru
skipin fram undan Sandgerði og
var búist við því að þau myndi
koma hingað laust eftir miðnætti.
COLGATES
TALCUM PÖÐUR
fyrir karhnenn.
Heildsölubirgðir
H. Ólafsson & Bernhöft.
nýr tll sðln.
Hristiðn Siflgeirsson,
Öldngiti 4.
COLGATES
CHARMES
er mjúk, ilmandi
og drjúg sápa.
Heildsölubirgðir
H. Ólafsson & Bemhöft.
80 ára er í dag ekkjan Guðrún
Þórðarson, Laugaveg 53.
Skírnir. Próf. Árni Pálsson hef-
ir sagt af sjer ritstjórn Skírnis
og dr. Guðm. Finnbogason tekið
hana að sjer tvö næstu ár.