Morgunblaðið - 13.11.1932, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.11.1932, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Leikhúsið. „Rjettvísin gegn Mary Dugan“, heitir sjónleikur sá, sem Leikfjelag Reykjavíkur er að sýna núna. Hjer á myndinni sjást nokkrir leikendurnir: Valur Gíslason, sem verjandi Mary Dugan, Alfred Andrjesson sem klæðskerinn, frú Marta Kal- man, sem vinnukonan og ungfrú Emilía Borg, sem ekkja hins myrta manns. Sparimerki. Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis hefir nú látið búa til 10 aura og 25 aura sparimerki, og bækur til þess að líma þau í. — Eru bækur þessar þannig gerðar, að framan á þær er ætlast til að skrifað verði nafn eiganda, en innan í bókina — sem er aðeins ein opna — eru reitir til þess að líma sparimerkin í. Þegar opnan er orðin full af sparimerkjum, má fara með bókina í sparisjóð- inn (á Hverfisgötu 21 við hlið- ina á nýja þjóðleikhúsinu) og leggja hana þar inn, og er inn- stæðan þá færð inn í sparisjóðs- bók eigandans, eða hann látinn! fá nýja sparisjóðsbók, ef hann; hefir ekki eignast hana áður, og stendur upphæðin þar á vöxtum. Sparimerki þessi eru einkum ætluð bömum og unglinginn, og tilgangurinn er sá, að reyna að venja þau á að eyða ekki öllum þeim aurum, sem þau fá til um- ráða, heldur safna nokkru sam- an og leggja fyrir til ávöxtunar. Fyrir 20 til 30 árum gerði Landsbankinn samskonar tilraun, Voru sparimerki hans til sölu í Barnaskólanum í nokkur ár, og gafst þetta vel, því að bömun- lum safnaðist álitleg fjárhæð.. — Mun það einkum hafa verið þá- verandi kennari við skólann, frú Laufey Vilhjálmsdóttir, sem beitti sjer fyrir þessu. Hafði hún kynst þessu erlendis og sjeð, hve holl áhrif þetta hafði á hugsun- arhátt barnanna. En upp frá því, er heimsstyrjÖldin skall á, og öll verðmæti komust á ringul- reið, hætti Landsbankinn þessu, enda hafði hann þá og ávalt síð- an mjög erfiðar kringumstæður til þess að sinna þessum smáu viðskiftum barna og unglinga. Erlendis eru það líka sparisjóð- ir en ekki bankar, sem hafa tek- ið þetta verkefni upp. Hjer er nú ástandið þannig, að fjárhagur hins opinbera og einstaklinga er í sárum efltir um- rót það, sem heimsstyrjöldin kom af stað, og verðsveiflurnar í kjölfari hennar hafa verið að auka og árjetta fram til þessa. Skuldimar við útlönd eru orðn- ar ægilegar, en fjársöfnun inn- an lands á erfitt uppdráttar. Og kynslóðin, sem alist hefir upp í þessu umróti verðmætanna, virð- ist vera ístöðulítil í fjármálum, sem von er til. Efnaleg framtíð þjóðarinnar veltur nú mjög á því, að nýr hugsunarháttur skapist með nýrri kynslóð. Að sparsemi og samhaldssemi komist aftur til vegs og virðingar. En bömin, sem nú eru að vaxa upp, em einmitt nýja kynslóðin. — Þess vegna er nú svo áríðandi, að inn- ræta þeim hina borgaralegu dygð, sparsemina, fjársöfnunina. Ræktun hugsunarháttarins verð- ur að byrja á börnunum, á þessu sviði eins og öðrum. Sparimerkin fást keypt á af- greiðslu sparisjóðsins, sem er op- inn 10—12 og 5—7^4 daglega. Bækurnar, til að líma þau í, eru einnig látnar af hendi þar ókeyp- is. Foreldrar, sem vilja hafa sparimerkin við hendina handa börnum sínum, ættu að kaupa eina eða fleiri arkir af spari- merkjunum í einu. I hverri örk eru 20 merki, og kostar örkin af 10 aura merkjunum þannig 2 kr., en af 25 aura merkjunum 5 krónur. I hverri bók eru 40 reitir, og má líma í þá jöfnum höndum 10 aura og 25 aura merki. Telur sparisjóðurinn sam an upphæð merkjanna um leið og merkjabókin er lögð inn, og færir hina rjettu upphæð inn í sparisjóðsbók. Fnglingar og börn, sem eiga sparimerkjabækur, eða vilja eign ast þær, geta líka snúið sjer beint til sparisjóðsins og keypt þar einstök merki. Reynt verður að koma á þeirri tiihögun, að merkin fáist keypt í barna- og unglingaskólum bæj- arins, og verður leitað til þess aðstoðar skólastjóra og kennara. Mjög væri æskilegt, að merkin gætu verið til sölu á nokkrum stöðum í bænum á opinberum sölustöðum, sem börn hvort sem er eiga erindi á. Virðast t. d. brauðsölubúðir vera hentugar til þess. Er þess beiðst, að þeir for- stöðumenn verslunarbúða, sem vilja leggja það á sig fyrir gott málefni, að hafa útsölu á spari- merkjunum og taka við auglýs- ingaspjöldum um það, gefi sig fram við einhvern af stjórnend- um sparisjóðsins, eða við af- greiðslu hans á Hverfisgötu 21, sími 1315 (verður 4315 eftir að sjálfvirka stöðin er tekin til starfa). Er auðvitað ekki til þess ætlast, að slíkir útsölumenn leggi út fje fyrir merkjum fyrir fram, heldur skili vikulega, eða eftir því sem um semst, andvirði þeirra merkja, sem seljast hjá þeim. Sparimerkin eru áskorun til unglinga og barna um að leggja fram góðan vilja til þess að byggja upp efnalega framtíð þjóð ar sinnar og sjálfs sín. Þó að getan sje smá í byrjun, gjörir ekki svo mikið til, ef viljinn er góður. Því að „sigursæll er góð- ur vilji“. Jón Þorláksson. MflvíkRrtifjef. 12. nóvember. Fjöregg Jónasar Þorbergssonar. Um fyrri helgi skrifaði Jónas Þorbergsson enn í Tímann nm hlutleysi útvarpsins. Hann tók sto djúpt í árinni, að algert hlutleysi væri fjöregg hins íslenska útrarps. Aldrei þessu vant hafði útvarps- stjórinn þarna satt að mæla. En langt er bil milli þessa orða mannsins og athafna hans, svo langt, að eigi verður eygt þar á milli. Fám dögum eftir að hann kveð- ur svo fast að orði um nauðsyn hlutleysis í deilumálum þjóðarinn- ar gerir hann hið íslenska útvarp að málpípu fyrir æsingastarf rúss- neskra kommúnista á hátíðisdegi þeirra, byltingarafmælinu. Þann dag hefir útbreiðslustöð hinna rússnesku blóðhunda náð í skottið á Halldóri Kiljan Laxness, starfs- manni hins íslenska ríkisútvarps, ,og hann er fenginn til þess að prjedika þar eystra um „hina rússnesku alsælu“, er lýsir sjer í myndum hungurs og kúgunar. Og íslenska útvarpið, gleymdi hlutleysinu, gleymdi fjöregginu, en opnaði í auðmýkt fyrir anda- gift Kiljans þar sem hann stóð austur í Moskva, til þess að færa hugi íslenskra útvarpshlustenda sem næst hjartastað hins rúss- neska kommúnisma. Mun engin Vestur-Evrópuþjóð önnur en íslendingar geta leyft slíka stigamensku í meðferð út- varpsmála. Hversu lengi :á að misbjóða þol- inmæði íslenskra útvarpsnotenda ? Rás viðburðanna. Á öðrum degi, frá því að Kiljan hjelt sína hjartnæmu ræðu á há- tíðisdegi Rússa til íslenskra verka- manna um blessun hinnar blóðugu byltingar, gerðust hjer í Reykja- vík þau tíðindi, sem mörgum munu verða miímisstæð. Miðvikudaginn 9. nóvember sannfærðust þeir hjer, sem ekki höfðu komið auga á þá staðreynd áður, að Hfsskilyrði, eða fjöregg hins íslenska ríkis er það, að vald sje til í landinu, er hafi þann styrkleika, að haldiþ sje hjer uppi lögum og reglu. Menn þeir, sem hingað til hafa verið andvígir ríkislögreglu, hafa fært fram þær ástæður fyrir skoð- un sinni, að þegar slíkur liðsstyrk- m* kæmi upp, myndi hann eða jafn vel tilvera hans ein æsa uppvöðslu menn til hermdarverka, sem ann- ars kæmu ekki til. En nú hefir reynslan sýnt, að einmitt vanmáttur lögregluvalds- ins laðar sora þjóðfjelagsins upp á vfirborðið, til ofbeldis- og hryðjuverka. Miðvikudaginn 9. nóvember var ekki barist á götum bæjarins um verkalaun, atvinnubætur eða önn- ur hagsmunamál manna. Það var barist um vfirráðin í Reykjavíkur- bæ. Og það var frábærri hugprýði og karlmensku hinna 20 lögreglu- manna að þakka, að þeirri viður- elgn ekki lauk með sigri þeirra er aðhyllast hinn rússneska kommún- isma. Sigur þeirra hefði að vísu aldrei orðið nema skammvinnur. En hann gat orðið dýr fyrir þjóð- ina. — Hermann. Líkara er það reifara en sönn- um viðburðum úr íslensku þjóð- lífi, þegar farið er yfir starfsferil Hermanns Jónassonar miðvikudag- inn 9. nóvember. Fjölmennir götufundir höfðu hjer verið haldnir, til þess að undirbúa mannssöfnuð að fundi bæjarstjórnar þann dag. Með til- liti til þess undirbúnings hafði fundur, aldrei þessu vant verið settur fyrri hluta dags, beint til þess, að óeirðir þær, sem stofnað var til, gætu farið fram í fullu dagsljósi. En lögreglustjórinn, Hermann Jónashson þvertekur fyrir, að lög- reglumenn bæjarins fái varalið. Og þegar fundarhlje verður um hádegið, stillir hann svo til, að 4- heyrendapláss fundarhússins fyll- ist af því æstasta og hamslaus- asta liði bolsanna. Þegar svo lýður þessi, er hann hefir hleypt inn á bæjarfulltrúana heimtar að fá að ráða því hvað bæjarstjórn samþykki, heimt- ar ráðin í sínar hendur, og bendir bæjarfulltrúunum á, að ef þeir gefi sig ekki bolsum á vald, verði andstæðingar bolsa í bæjarstjórn drepnir þar á staðnum, þá hleypur Hermann Jónasson lögreglustjóri milli bæjarfulltrúa Sjálfstæðis- manna Jemur hnefanum í borðið og spyr hvort þeir skilji það ekki að fyrir þá sje tvent að gera, gefa samþykki sitt til þess alls er bolsar heimta, eða þeir geti búist við að týna lífi. Hann heldur því leyndu fyrir bæjarfulltrúunum, að frjáls sje ! aðgangur að aukadyrum hússins. i Þegar bæjarfulltrúar þeir, sem hótað var fjörtjóni, komast á snoð- um þær útgöngudyr, hrópar lýðurinn, að hann heimti svar á augnabliki við kröfum sín- um, að öðrum kosti .... En þá hrópar lögreglustjórinn. Hermann á móti og segir: Ykkar augnablik er liðið. Á fundi. Þetta framferði, sem hjer hefir verið skýrt frá, vakti þegar þann grun hjá bæjarbúum, að Hermann Jónasson hafi af ásettu ráði h.aft lögregluna varaliðslausa þenna dag, af ásettu ráði haft fundarhús- ið opið handa bolsum, af ásettu ráði haft örfáa lögreglumenn inni á fundarsvæði hússins, til þess að geta bent bæjarfulltrúunum með meiri alvöru á, að lífi þeirra pg limum væri hætta búin, svo hann gæti frekar hrætt þá til þess að láta að vilja bolsanna. Þessi sendisveinn og vikapiltur Jónasar Jónssonar frá Hriflu, hafði blátt áfram þenna dag aug- lýst sig sem bandamann hinna æstu kommúnista. Að honum hafi orðið mismæli, er hann hrópaði til bolsanna, þeg- ai' fulltrúar Sjálfstæðismanna voru í þann veginn að ganga úr greip- um þeirra, og hann hafi í raun og veru átt að segja: Okkar augna- blik er liðið •— okkar tækifæri til þess að kúga bæjarfulltrúa Sjálf- st.æðisflokksins með gaddakylfum þeim, sem bolsar gerðu úr bekkj- um og borðum Goodtemplarahúss- áns. — En sönnun fyrir rjettmæti þess- arar skoðunar birtist í Tímanum í gær. — Fyrirspurn. f grein í Tímanum, sem nefnd er „Fyrirspurn til ritstjóra Morgun- blaðsins" og er hinn kjánalegasti kattarþvottur á framkomu lög- reglustjórans, er þannig komist að orði: „Mbl. veit, að það voru fyrst og fremst flokksbræður þess, sem kommúnistarnir ætluðu að ná sjer niðri á. og að það var skylda lögreglustjóra að láta verja þessa bæjarfulltrúa, og það þó að árásin væri gerð á þá í tilefni af ráðstöf- un sem Hermann Jónasson, sem bæjarfulltrúi hafði sjálfur verið mótfallinn.* ‘ Lesendur Tímans staðnæmast við lestur þessarar málsgreinar, áð ur en þeir eygja hið mikla djúp siðleysis og spillingar er lýsir sjer í þessum fáu orðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.