Morgunblaðið - 23.11.1932, Page 3
SlORGUNBLA'iHÐ
«
5enöinefnöin til Bretlanös
fór í goerkuölöi.
mikilsuarðanöi senðiför.
Brottferð (fullfoss var hraðað
svo hann fór hjeðan nm miðnætti
í nótt. Burtfarardag'ur lians er í
dag. Með lionum fóru sendimenn
þeir, sem fengið hafa það hlutverk
að vinna að samningagerðinni fyr-
ir liönd íslands, um viðskifta-
samninga liiilli Breta og íslend-
inga.
Þessir menn voru ltvaddir til
fararinnar:
Magnós #Sigurðsson bankastjóri.
Richard Thors framkvæmdastj
og Jón Árnason framkvstj.
Sveinn Björnsson sendiherra
verður og sefidinefndinni til að-
stoðar. Hann hefir sem kunnugt
,er, verið um tíma í London, til
þess að kynna sjer sem best, alla
málavöxtu.
Samninganefndin er kvödd til
fyrsta fundar í London þ. 28.
nóvember. Það var því hver síð-
,astur fyrir sendimenmna að
ieggja af stað hjeðan.
Eins og öllum landslýð er kunn-
ugt, veltur það á ákaflega miklu
fyrir atvinnuvegi vora, hvernig
þessi samningagerð tekst. Fyrir
sjávarútveg vorn og enn þá
fremur fvrir landbúnaðinn, eru
það hinar stórkostlegustu búsifj-
ar, ef markaður sá teppist, sem
við liöfum liaft fyrir afurðir okkar
í Engiandi.
Bór ætti það að vera mikil má)
stað okkar, að við höfum á und-
anförnum árum keypt framt að
því fjórfalt meira af Bnglending-
um, en þeir hafa kevpt af okkur.
En enginn veit fyr en á reynir,
að hve miklu leyti þessi hagstæði
verslunarjöfnuður getur greitt
götu okkar.
Samkvæmt Ottawasamningnum
á sem kunnugt er að takmarka
innflutninginn á frosnu kjöti frá
hverri erlendri þjóð, er selur Bret-
um, og færa innflutninginn niður
í 65% af því, sem hann áður var.
Á ísfislcinn hafa Bretar sett 10%
toll. — Og breskir útgerðarmenn
krefjast þess, að sá tollur verði
hækkaður upp í 33%%, m. ö. o.
að ísfisksala okkar til Englands
verði útilokuð.
Sami tollur hefir verið settur á
saltfisk tii Englands, og það enda
i |)ótt fiskurinn væri þangað keypt-
ur til þess að hann yrði aftur
| fluttur út þaðan. Tollur þessi hef-
ir því tekið fyrir sölu á saltfiski
til Englands.
I LTm þetta, og ýmislegt fleira
eiga hinir íslensku sendimenn að
ræða við Breta. Má segja að þeir
, fari hjer að nokkru leyti með
^ f jöregg íslenskra atvinnuvega. —
! Enda mun samhugur allrar þjóð-
arinnar fylgja þeim með ósk um,
að för þeirra verði hin besta, fyr-
ir þá sjálfa, og fyrir þjóðina alla.
\ fjarveru þeirra Magnúsar Sig-
urðssonar og Rich. Thors taka
þeir sæti í stjórn sölusambands
íslenskra fiskiframleiðenda, Georg
Ólafsson bankastjóri og Thor
Thors framkvstj.
Enn um „ðóminn‘\
JftorgntiWaMft
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Rltstjórar: Jón Kjartansson.
Valtyr Stefánsson.
Ritstjórn og: afgreiósla:
Austurstræti 8. — Slmi 600.
Auglýsingastjóri: B. Hafberg.
Auglýsíngaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Slmi 700.
Helmaslmar:
Jón Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
' E. Hafberg nr. 770.
Áskrif tagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuCl.
Utanlands kr. 2.60 á mánuOi.
t lausasölu 10 aura eintaklO.
20 aura metS Lesbók.
Togari stranöar.
I gær barst skeyti um að ensk-
ur togari hefði strandað
.á Skaga, utarlega í Dýrafirði. —
Bftir því sem best hefir frjest,
heitir hann ,Fiat‘, en hvaðan liann
er, er blaðinu ekki kunnugt. —
Sti andstaðurinn er talinn slæm-
ur, fyrir opnu hafi.
Slysavarnafjeiag íslands sendi
þegar skeyti til Þingeyrar og bað
uð senda þaðan vjelbáta,, skip-
verjum til , hjálpar. Seinni liluta
dagsins í gær kom þaðan skeyti
um að búið væri að útvega tvo
vjelbáta til fara<rinnar, en alveg
•óvíst hve langt þeir gæti komist,
því að blindhríðarveður væri á.
Loftskeytastöðinni hjerna tókst
að ná sambandi við tvo enska
togara. Var annar við Látrabjarg,
> en hinn inni í Dýrafirði og lögðu
báðir á stað til lijalpár. — Enn
fremur náðist samband við Óðinn,
sem lá inni í Patreksfirði, og
iagði hann þegar á stað til Dýra-
fjarðar.
Frá Þingeyri barst Morgunblað-
')!U seint í gærkvöldi skeyti um,
að bátar væri farnir þaðan áleiðis
til strandstaðarins, en mjög væri
erfitt aðstöðu vegna veðurs. —
Þýskur togari, sem lá þar í höfn-
Inni, trejrstist ekki til þess að fara
út íjt en með morgni.
Mennirnir ekki í hættu.
•Það var milli kl. 3 og 4 í gær,
uð Stjórnarráðið sendi skeyti. til
Óðins og bað hanft reyna að koma
togaranum til hjálpar. Klukkan
’9 í gærkvöldi kom eftirfarandi
•skeyti frá skipherranum:
— Höfum nú með radiomiðun-
um fundið togarann, sem hefir
•strandað hjá Kópnum. Mannslíf-
um engin hætta búin með sömu
vindstöðu.
Kópur er fjall miili Tálkna-
f jarðar og Arnarfjarðar. Hefir
iogarinn því verið miklu sunnar
'heldur en talið var í fyrstu og
mundi ekki hafa fundist í öðru
-eins myrkviðri nema með radio-
miðunum.
----*-----------
Frá sjómönnunum. Frá skip-
verjum á Gulltoppi hefir F. B.
fengið eftirfarandi skeyt-i dags.
22. nóvember. sent j7fir loftskeyta-
stöðina í Þórshöfn í Færeyjum.
,.Erum á útleið. Vellíðan. —
Kveðjur."
Súðin fór hjeðan í gær, áleiðis
t.il. Ónundarfjarðar.
Línuveiðarinn Ölver á að fara
hjeðan til Hornafjarðar í dag,
•ef veður leyfir.
Otur kom frá Englandi í fjrrra
xlag.
,,Tíminn“ hefir ærið annríki um
þessar mundir, við að halda uppi
vörn fyrir Hermann lögreglu-
stjóra. Hann sjálfur og Gísli rit-
stjóri leggja höfuð sín í bleyti til
þess að verja hinn örðuga mál-
stað. Hermanni fer ekki hermann-
Jega í vörn sinni. Hann vælir og
skrækir undan höggunum. Karl-
mannlegra væri að bera sig sæmi-
lega, því að vita má hann það,
að hann hefir verðskuldað alt
þetta og miklu meira. En margt er
enn í myrkrum liulið, sem sjálf-
sagt á eftir að koma fram.
Einhver Z, og er sagt að það
sje Þórður Eyjólfsson, hefir tekið
sjer fjTÍr hendur að gagnrýna
grein Garðars Þorsteinssonar
hæstarjettarlögmanns, sem birt
var hjer í blaðinu fjrrir nokkru.
En þessi höfundur hefir algerlega
misskilið það hlutverk, sem G. Þ.
hefir valið sjer í grein sinni. G. Þ.
setur sig í þá aðstöðu að ganga
inn á allar firrur Hermanns, og
tekur sjer fyrir hendur að sýea
fram á, að dómarirn hefir drcg-
ið vitlausar ályktanir af hinum
vitlausu forsendum sínum. G. Þ.
sj'nir fram á, að með samniugnum
frá 7. nóv. 1929 er engum skuld-
licimtumanni ívilnað, en það er
einmitt þetta. sem Hermann er að
stritast við að sýna fram á í hin-
um langa dómi sínum. Vörn Garð-
ars er því ákaflega sterk. Hann
tekur andstæðinginn í hans eigin
vígi án þess að sundra því og
fer með hann þaðan halakliptan
og spjeskorinn.
Hermann misskilur algerlega af-
stöðu þessa blaðs, ef hann heldur
að því sje illa við að dómurinn
yfir M. G rar birtur. Það er ekki
þetta, sem skiftir máli, heldur
aðferðin að lauma strax afriti
dómsins í prentsmiðju þá, sem
Tímann prentar. Það er þetta, sem
varpar ljósi yfir tilgang dómsins.
Og svo þessi fyrirhygggja að hafa
ti) nægilega mörg afrit af dóm-
inum, 20 blaðsíðna ritverki, sam-
tímis og hann er kveðinn upp,
en þá aðeins handa áslrrifendum,
sem fyr'ir fram höfðu gefið sig
fram. Ritstj. þessa blaðs hlustaði
á M. G. biðja um útskrift af dóm-
inum og heyrði lögreglustjóra
svara því, að útskriftina gæti
M. G. ekki fengið strax, og þetta
var einmitt um sama leyti og Tím-
anum.var send útskriftin. Þet.ta
svar lögreglustjóra hlýtur margt
manna. sem var þarna við. að hafa
heyrt, en vel má vera, að lög-
reglustjóri hafi sjeð ,sig um hönd
og sent M. G. dóminn innan skams.
Dómurinn sjálfur ber það með
sjer, að húseignin Lindargata 14
er alls ekki talin meðal eigna
Behrens 28. okt. 1929 og það er
viðurkent, að á þeim tíma átti
Behrens alls ekki þessa eign. —
Allar bollaleggingar dómsins um
tap á þessari eign þegar hún var
séld löngu siðar, koma því þessu
máli ekkert við.
Hermann Jónasson segir, að það
sje M. G. að kenna hversu seint
Behrens varð gjaldþrota, vegna
þess, að hann hafi leitað sanminga
yið skuldheimtumennina. En lög-
g'jöfin heimilar að leita samninga
og vitaskuld gat hver skuldheimtu
maður sem vildi krafist gjaldþrots
Enginn rjettur hefir því verið tek-
inn af nokkrum manni.
Það er hlægilegt að sjá einn
af dómurum landsins halda því
fram, að skylt sje að birta samn-
ing eins og samninginn frá 7. nóv.
1929. Hvert fermingarbarn veit að
svo er ekki, en sakamáladómar-
inn í Reyltjavík veltir vöngum yf-
ir hvort hann eigi að sakfella fyrir
þetta og hælir sjer um leið yfir
sínu góða lögfræðisprófi.
Um skyldmennaskuldirnar hefir
Herm. J. gefið upp alla vörn.
Hermann viðurkennir það rjett,
að skuldir Behrens hafi verið oft-
taldar um 5000 danskar krónur.
En af hverju er þess ekki getið
í dóminum að. þetta sjeu danskar
krónur? Af hverju er látið líta
svo út, að þetta sjeu íslenskar kr. ?
Þetta. munar þó jrfir 1000 kr. Af
hverju er þetta, Hermann Jón-
asson? Af hv'erju?
Það er ný upplýsing, að Be-
hrens hafi skuldað meira en efna-
hagsreikningur sýndi, en hvernig
átti M. G. að vita um það? —
Hvernig stendur á, að M. G. er
þá dæmdur fyrir að nota efnahags
reikninginn, en sá, sem bjó hann
til — eftir þessu rangan — er
sýknaður?
Vill ekki lögreglustjórinn svara
því, hyernig á því stendur, að
álit N. Manchers á samningnum
frá 7. nóv. 1929 er rangt tilfært
í dóminum ?
Vill ekki lögreglustjórinn jrfir-
leitt skýra frá hvernig stendur á
rangfærslum í dóminum, einhliða
frásÖguum og beinum ósannind-
um ?
Honum verður að vera það ljóst,
að hann á að bera ábvrgð á dómi
sínum. Honum verður að skiljast,
að verkefni hans nú er ekki að
þjóta um stræti og prjedika hálf-
kjökrandi á gatnamótum um
hversu mikill kjarkmaður hann
hafi verið að þora að dæma M.
Guðmundsson. Verkefni hans er
að sýna fram á, að dómur hans
sje bjrgður á landslögum. Þetta
getur hann ekki og því velur
hann þá aðferð að reyna að gera
sig að píslarvotti.
En hvað er það, sem Iíermann
Jónasson hefir oi’ðið að þola? —
Það er ekki annað en gagnrýni
á röngum dómi og gagnrj'ni á
aumlegri stjórn hans á lögregl-
unni hjer í bænum. Og þó að hon-
um yrði vikið úr stöðunni, þá er
það ekkert, annað en það, sem
vofir yfir hverjum embættismanni.
Enginn mundi telja hann píslar-
vott fvrir það. Hann á að góðu
að hverfa. Tekjurnar af Garða-
landinu, sem Jónas skenkti hon-
um, geta orðið eins miklar og
af 1 ögr e glust j ór aemb ættinu.
Lögreglustjórinn kvartar vfir
hótunum. sem sjer hafi borist
bæði frá Rjálfstæðismönnum og
Framsóknarmönnum. Af liverju
notar hann ekki vald sitt til þess
að koma fram ábyrgð á hendur
þeim mönnum ? Og hverjir eru
þessir menn? Fram með nöfnin,
herra lögreglustjóri. Verði þau
ekki dregin fram mun almenning-
ur líta svo á, að þetta sjeu ósann-
indi eins og ýms mikilsverð atriði
í dóminum.
Hermann Jónasson verður elrki
í almennings augum talinn óhlut-
drægur dómari i máli gegn M. G.
Um það getur hami verið alveg
viss. Menn muna, að það er stutt
síðan hann var formaður Fram-
sóknarfjel. hjer í bænum. Menn
vita hver veitti honum lögreglu-
stjóraembættið. Menn skjmja
livers virði 80 dagsláttur eru í
ííand við Reykjavík.
Hitler vill myitda
Nazistastjórn.
Berlín, 22. nóv.
United Press. FB.
Hindenburg forseti hefir svarað
fj’rirspurnum þeim sem Hitler
sendi honum skriflega, mjög sátt-
fúslega. Hinsvegar hefir U. P.
frjett í kvöld, að Hitler muni
hafna því að taka að sjer að
mynda þingræðislega stjórn, þareð
það sje ógerlegt fjrir Hitlerssinna
að taka þátt í slíkri stjórn, eins
og ástatt sje og með því fengist
ekki lieppileg lausn á núverandi
öngþveitisástandi. Hinsvegar mun
Hitler áforma að bjóðast til þess
að taka að sjer mvndun ríkis-
stjórnar, er Hindenburg forseti
geti fallisý á, þ. e. mj’ndun ríkis-
stjórnar, sem fái svipuð völd, og
Papenstjórnin hafi nú.
Dagbók.
Veðrið í gær: Stormsveipur er
nú við A-strönd Islands, enda er
illviðri á öllu svæðinu frá Norð-
ursjónum og norðvestur í Græn-
landshaf.
Hjer á landi er N-stormur um
allan Vesturhluta landsins og mun
brátt skella á austan lands. Norð-
anlands er stórhríð.
Frost er um 3 stig á Vestfjörð-
um en í öðrum landshlutum er
hiti um frostmark.
Veðurútlit í dag: N-hvassviðri,
fiam eftir deginum. Urkomulaust.
Nokkurt frost.
Gullfoss fór hjeðan í gærkvöldi
ti) útlanda. Meðal farþega voru
sr. Fr. Friðriksson. Hjalti Jónsson
framkvstj., Sig. Arnalds verslun-
armaður, ungfrú Jólianna Knud-
sen. ungfrú Erla Benediktsson,
ungfrú Þuríður Þorsteinsdóttir,
ungfrú Margrjet Þórarinsdóttir,
Sig. Schram, Halldór Kr. Júlíus-
son sýslumaður.
Símabilanir miklar urðu í of-
viðrinu sem geisaði yfir landið í
fjrrinótt. Ekkert talsimasamband
var við ísafjörð í gær og slæmt
samband til Akureyrar. Á suður-
línunni náðist ekki samband
lengra en til Hóla í Hornafirði.
Verslunarmannafjelagið Merkúr
heldur skemtifund á Vífli í kvöld.
Þar syngur Kristján Kristjánsson
einsöngya, svo eru gamanvísur,
upplestur og dans.
Iðnaðarmannafjelagið heldur
fund í Baðstofunni í kvöld. Þ.ar
verða ræddar tillögur Tímarits-
nefndar. Guðm. Jónsson flytur er-
indi um brúna jrfir Litlabelfci og
sýnir sknggamyndir þaðan.