Morgunblaðið - 30.11.1932, Síða 2
2
M0RGUNBLAÐ7Ð
3888^ ^^MÍSgBMC'3ÉHHK’^!KBiB8C' 3BBBS£
wmmm rnSBBm
Hjer með tilkynnist að hjartkær dóttir okkar og uppeldis-
systir, Helga J. S. Sigurjónsdóttir, andaðist á Landakotsspítala
þriðjudaginn 29. þ. m. kl. 10 árdegis.
Vonarstræti 8.
Elín M. Jónatansdóttir. Sigurjón Sigurðsson.
Anna Guðmundsdóttir.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum að minn ástkæri
bróðir, Finnbogi Ingimundarson, andaðist á Vífilsstaðahælinu 29.
þ. m. Líkið verður flutt vestur til Patreksfjarðar miðvikudaginn
30. þ. m. með Goðafossi.
Anna Kristinsdóttir.
t
lón Fjelösteö.
Jón Fjeldsted klæðskerameist-
ari Ijest snögglega fyrra þriðju-
dag. — Með honum er fallinn frá
maður er í sinni stjett var einn
liinn merkasti og best mentaði,
enda naut liann þar óskiftrar
virðingar og vinsælda. — Hann
rak sem kunnugt er iðn sína í
fjelagi við Guðmund Bjarnason
klæðskerameistara í Aðalstræti.
Jón var af merkisfólki kominn.
Hann var sonur Þorbergs Fjeld-
sted, bróður Andrjesar Fjeldsted
á Hvítárvöllum og Helgu Guð-
roundsdóttur frá Hamrendum í
Stafholtötungum, þess er úti varð
með Jóhannesi sýslumanni í Hjarð
arholti. Fór Þorbergur til Ameríku
árið 1885 með alla fjölskyldu sína,
nema Jón er varð einn eftir í fóstri
Uxu þau upp þar vestra börn
Þorbergs og urðu hin mannvæn-
legustu. Einn bróðirinn, Runólfur
Fjeldsted, gekk skólaveginn og
varð sjerfræðingur í grísku og
latínu, og var lians oft getið hjer
heima. Hann Ijest fyrir nokkrum
árum, Svo líkir voru þeir í sjón
Ttúnólfur Og Jón, að aðgæslu
þurfti til að greina Ijósmyndir af
þeim. Systir þeirra er gift Sigurði
Júl. Jóhannessyni lækni vestra.
Þótt .Jón gengi ekki skólaveg-
inn, þá sýndist hann þó bera þess j
merki, svo lesinn sem hann var- og
óvenju glöggskygn á marga lund.
Það voru einkum hinar betri skáld
sögur og leikrit sem drógu að sjer
hugá hans, og virtist hann best
una sjer í.hóp manna er þau fræði
iðkuðu. Hversu fær hann varð í
iðn sinni, átti hann að þakka hin-
um meðfædda listasmekk. — Um
daglega framgöngu Jóns Fjeld-
steds og látprýði nægir að segja
það, að hún var höfð að orðtaki
meðal allra er þéktu hann. Svo
óvénju hógvær sem hann var,
greiðugur og liðlátlegur, þá vissu
þó allir er þektu hann, hvað. fast-
ur hann varð fyrir er hann taldi
hættu á að velsæmi væri haggað.
— Það þarf ekki að fjölyrða um
þá eftirsjón, sem öllum vinum
Jóns Fjeldsteds er að því, að sam-
yistum við hann er nú slitið. —
Þess varð vart, að -síðustu árin
var Jón þó ekki samur og áður
vegna áfalls sem hann fekk á höf-
uðið á ferðalagi. Þótt hann jafnan
bæri sig karlmannlega, var auð-
sætt að lífsfjör hans hafði biðið
hiiekki, enda fekk hann stundum
aðsvif lík þessu síðasta, sem olli
hinu snögga fráfalli hans.
H. J.
Frá Siglnfirði.
Siglufirði, FB. 29. óv.
Stórhríð á norðvestan og norðan
í nótt og í dag. Brim og stórflæði.
j E.s. Hekla lauk við að ferma
hjer 5—6000 pk. af fiski í gær-
kvöldi, en liggur hjer enn.
E.s. Tsland kom hingað kl. 4 í
dag. Ljetu skipsmenn illa af veðr-
inu. Var dimmviðri mikið og var
skipið grunt fyrir Haganesvík, er
þeir sáu land.
Danska Pingið sett,
Kalundborg, 29. nóv. F.TT.
Xýkosna danska þjóðþingið helt
1 fund sinn í dag og setti Staun-
ing forsætisráðherra þingið með
ræðu. Forseti þingsins var kosinn
Parkow ofursti. — Kommvinistar
hafa nú í ‘fyrsta skifti fulltrúa í
þinginu og fóru fram hátíðahöld á
GrönttorVet hjá Kommúnista-
flokknum.
Ófriðarskuldirnar og láns-
traust Breta.
London, 29. nóv.
XJnited Press. FB.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum ræddu fjármálasjerfræðing-
ar ríkisstjórnarinnar í gær við
stjórn Énglandsbanka, Mun banka
stjórnin hafa lagt áherslu á það,
að ef ekki væri staðið í skilum.
með greiðslur af ófriðarskuldun-
um mýndi það gerspilla lánstrausti
Bretlands.
London, 29. nóv.
TJnited Press. FB.
Konungur veitti MacDonald for-
sætisráðherra áhevrn í kvöld. —
Fullyrt er, samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum, að ákveðið hafi
verið að senda nýja orðsendíngu
■ ■ . BB—g
Opnun sjáifvirku
miöstöðvarinnar. —
Símanotendnr ern beðnir að klippa i snndnr með
skærnm vfrinn milli [gamla og nýja ákaldsins
miðTikndagskTðldið 30. náremlter, ekki siðar
en kl. 24 (kl. 12 á miðnælti). Viriun er merkt-
nr með hvítn merkispjaldi. Nýji síminn er inot-
hæfnr nema vfrinn sje klipptnr i snndnr og kl.
24 hæltir gamla miðstððin að svara,
Simanotendnr ern beðnir að kynna
sjer rel leiðarvisinn nm notknn sím-
ans á bls. 120 i nýjn símaskránni.
Bæjarsimastjðrinn.
til Bandaríkjastjórnar. Verður því
lýst yfir í orðsendingunni, að það
sje fjarri því, að Bretland áformi
að standa ekki við skuldbindingar
sínar.
Erlendar frjettir.
Chelmsford 29. nóv. F. Ú.
Merkilegur fundur.
í Louisiana ríkinu í Bandaríkj-
unum hefir fundist hauskúpa af
fornu spendýri, og fanst hún 800
metra djúpt í jörðu. Fundur þessi
ér talinn mjög merkilegur, og er
hinn fyrsti af sinni tegund. Alitið
er, að dýr þetta muni hafa verið
uppi fyrir 50 miljónum ára .
Berlín, 29. nóv. F. Ú.
Stjórnarmyndunin í Þýskalandi.
Ráðagerðum Hindenburgs út af
stjórnarmyndun er ekki lokið enn
og mun tæplega verða lokið í dag.
Alment álíta menn, að aðeins tvent
komi til greina, að Papen-ráðu-
nejdið verði áfram við völd, eða
að Schleicher liermálaráðherra
verði kanslari. -— Nazistar vilja
ekki hlít.a Séhleicher. Hitler hefir
neitað með öllu að styðja ráðu-
neyti, sem hann stjórni og Gregör
Strásser, sem var boðið á fund til
Schleichers í dag, hefir neitað
boðinu.
Athygli hefir verið beðið að
vekja á auglýsingu frá Rakara-
fjelagi Reykjavíkur, um frestun
á drætti happdrættis iðnnemasjóðs
fjelagsins.
Göngin undir Ermarsund. For-
sætisráðherra Breta var um það
spurður í gær, hvort stjórnin ætl-
aði eklti að taka til endurnýjaðr-
ar yfirvegunar uppástungur um,
að byggja göng undir Ermarsund;
svaríð var neitandi. (F. Ú.).
,Blái horðintt* brtgðbeslur
5% smjðr.