Morgunblaðið - 30.11.1932, Page 3
M O R G U N B L A'3 I Ð
5jálfuirka símastöðin
tekur til starfa í nótt.
jnorgtmMaMí
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Ritstjórar: Jón Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Rltstjórn og afgreiSsla:
Austurstrœti 8. — Slml 600.
Auglýsingastjóri: E. Hafberff.
Auglýsingaskrlfstofa:
Austurstrœti 17. — Slml 700.
Heimasfmar:
Jón Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuQl.
Utanlands kr. 2.60 & mánuBl.
í lausasölu lO aura eintaklO.
20 aura metS Lesbók.
fulluelði fslanðs
og alþjóðadómstóll-
inn í Haag.
Grænlandsmálið er nú rætt af
Lappi fyrir alþjóðadómstólnum í
Haag. Málaflutningsmenn Dana
liafa þar haft orðið til þessa.
Á mánudaginn hóf þar um-
væður af hálfu Dana belgiskur
maður, Charles de Visscher að
nafni og er hann prófessor í þjóð-
arrjettarfræði. — Eftir því, sem
einkaskeyti frá Noregi, sem hing
að barst í gær hermir, hefir pró-
fessor þessi komist m. a. þannig
að orði:
„Norðmenn eru svo afvega-
leiddir í rökfærslu sinni, að þeir
jafnvel geta, dregið í efa lögleg-
an fullveldisrjett Dana, ekki að-
eins yfir-Austnr-Grænlandi, held-
ur og jafnvel yfir íslandi og Fær-
eyjum“.
Samkvæmt skeyti þessu, ef
rjett er hermt, hefir þessi tals-
rrj,aður Dana fyrjr alþjóðadóm-
stólnum í Haag sett fsland á bekk
:með Grænlandi og Færeyjum, að
því er afstöðuna gagnvart Dan-
mörku snertir.
í 19. gr. sambandslaganna frá
1918 segir svo:
„Danmörk tilkynnir erlendum
ríkjum, að hún samkvæmt efni
þessara sambandslaga hafi viður-
kent ísland fullvalda ríki, og til-
kynnir jafnframt, að ísland lýsi
yfir ævarandi hlutleysi sínu og
að það hafi engan gunnfána“.
Hjer skal ekkert um það sagt,
hvort málaflutningsmaður Dana
hefir sagt þau orð, sem norska
skeytið hermir. En hafi hann sagt
þau, þá er bersýnilegt, að hann,
þótt þjóðrjettarfræðingur sje, hef
ir ekki haft vitneskj u um sáttmála
þann, sem gerður var 1918 milli
íslands og Danmerkur, og kæmi
það óneitanlega úr hörðustu átt.
Að sjálfsögðu telur forsætisráð
herra fslands sjer skylt að kom-
•ast fyrir h-ið sanna í þessu máli.
'Og komi það í Ijós, að talsmaður
Dana fyrir alþjóðadómstólnum í
Haag hafi talað þau orð, sem
morska skeytið hermir, er þess að
vænta, að utanríkisstjórn Dana
leiðrjetti þetta fyrir dómstólnum
■og afsaki tafarlaust misskilning
þenna.
Heimdallur. Skemtikvöld með
kaffidrykkju og dansi heldur
Heimdallur í kvöld kl. 9% að
■Café Vífli. Aðgöngumiðar eru seld
Ír í skrifstofu Heimdallar í Varð-
arhúsinu í dag frá kl. ð—9 og
kosta kr. 2.50. Þar í innifalið kaffi.
Pantaðir aðgöngumiðar sækist fyr-
ar kl. 7, annars seldir öðrum.
í nótt kl. 12, eða kl. 24 á síma-
máli verður símasambandið rofið
við hina gömlu miðs'töð í Póst-
hússtræti. Kl. 23.59 eða rjett í
þeirri andránni geta símanotend-
ur í síðasta sinn heyrt símastiilk-
urnar segja þetta tungutama orð
,,miðstöð“.
Vjelabáknið, hin sjálfvirka mið-
stöð í nýju símastöðinni við Thor-
valdsensstræti tekur við, og leysir
um 40 símastitlkur frá störfum.
Því er spáð, að margir bæjar-
búár, sem annars eru kvöldsvæfir
og ganga snemma til rekkju vaki
fram á nóttina til þess að reyna
hinn nýja síma, þetta töfraverk
nýtísku tækni.
En þá er nauðsynlegt, eins og
bæjarsímastjórinn auglýsir, að
símanotendur kynni sjer fyrst
rækilega þann leiðarvísi, er út
hefir verið gefinn, um notkun
hinna nýju sjálfvirku tækja. Leið-
arvísi þessum hefir verið útbýtt
sjerprentuðum. En jafnframt er
hann prentaður í hinni nýju síma-
skrá fyrir árið 1933. Símaskrá á
nú að vera komin til allra símanot-
enda í bænum. Óþarft mun því
vera að endurprenta leiðarvísirinn
hjer.
í gær hafði Mbl. tal af land-
símastjóra til að fá hjá honum
ýmislegt að vita um hina nýju til-
högun.
Tvenn vandkvæði.
Tvent er það, sagði hann, sem
jeg vil sjerstaklega taka fram.
Pyrst er það, að allmargir þeirra
sem beðið hafa um nýja síma til
'n, eru ekki enn komnir í sam-
band við nýju stöðina. Alls hafa
275 nýir notendur gefið sig fram
hjer.í bænum. 1 des. eða í byrjun
janúar ættu símar þeirra allra að
vera komnir í lag.
Annað er það, að allmargir
þeirra símanotenda, sem þurfa
skiftiborð hjá sjer, hafa ekki get-
að fengið hin nýju áhöld enn. —
Verða þeir að komast af með
gömlu áhöldin fyrst í stað, enda-
þótt það valdi nokkrum óþægind-
um. En vonandi dregst það ekki
lengi, uns hægt er að afgreiða hin
nýju áhöld til þeirra.
Símanúmerin.
Eins og mönnum er kunnugt,
breytast símanúmerin um leið og
nýja stöðin tekur til starfa. Fyrst
og fremst þurfa númerin að vera
með fjórum tölustöfum, svo þau
eru engin innan við 1000 — að
einu mtmeri undanskildu. En svo
hafa allir þeir, sem hafa skiftiborð
og fleiri en eina línu, fengið núm-
er á bilinu frá 1000—1800.
Gömlu númerin frá 1800—2400
halda sjer óbreytt flest. En núm-
erin frá 1—1800, sem ekki tilheyra
skiftiborðasímum, hafa hækkað um
3000, svo t. d. númer sem voru
neðanvið 1000 breytast þannig, að
t. d. nr. 244 er nú 3244 og nr. sem
var 1133 er nú 4133. Þessi regla er
þó ekki undantekningarlaus.
Nú duga númerin eih.
Nú verður ekki lengur hægt að
biðja í síma um samband við
Slökkvistöðina og Lögregluvarð-
stofuna, nú duga númerin ein. Hef-
ir ritstj. símaskrárinnar því verið
svo hugulsamur, að setja framan
á skrána 4 númer, sem áríðandi er
að mönnum verði minnisstæð, þ.
e. númer Slökkvistöðvarinnar, Lög
regluvarðstofunnar — og svo hefir
rit.stj. ekki gleymt að minna á Rit-
símann, og Langlínumiðstöðina, þ.
e sambandssímann við afgreiðslu
utanbæjarsímtala, en sími sá hefir
það hlálega númer 02.
Þarna liefði og gjarnan mátt
vera eitt númer til, sem sje varð-
stjóra númerið, sem menn eiga að
hringja til þegar kvarta þarf um
bilanir o. þessh. En það er nefnt
í leiðarvísinum. Kvartanir verða
afgreiddar í síma 1000 til kl. 4
siðd., en eftir þann tíma í síma
nr. 1010.
Símastúlkurnar.
Alls er það 41 Símastúlka er
missir atvinnu við bæjarsímann
hjer og } Hsafnarfirði, er sjálf-
virku stöðvarnar hjer og þar taka
til starfa. Af þeim hafa 15 verið
svo lengi við símann, að þær hafá
fengið skipunarbrjef fyrir starf-.
inu, og verið teknar í þjónustu
símans áður en til orða kom að
reisa hjer sjálfvirka stöð. Þær
hafa fengið 175 kr. á mán. í kaup,
að frádregnu lífeyrissjóðsgjaldi.
Nú er þær msisa starfið fá þær
endurgreidda þá upphæð er þær
hafa greitt í lífeyrissjóðinn, en án
vaxta. Er svo fyrir mælt í lögum.
Til Hafnfirðinga.
Eftirfarandi orðsendingu liefir
símastjórnin beðið blaðið fyrir til
símanotenda í Hafnarfirði:
Talsimaafgreiðslan í Hafnarfirði
verður að því leyti frábrugðin því
sem nú er, að símanotendur fá
beint samband við símanotendur í
Reykjavík með því að velja númer
það í Reykjavík, sem símtals er
óskað við. Sje um langKnusamtöl
að ræða, önnur en til Reykjavíkur,
skal velja nr. 02 og fæst þá sam-
band við langlínumiðstöðina í
Reykjavík, sem annast um lang-
línusímtalaafgreiðsluna frá Hafn-
arfirði. Símtöl frá stöðinni í Hafn-
árfirði (úr talklefunum) verða af
greidd á sama hátt og áður. Sím-
skeyti skal eins og áður afhenda
á símastöðina í Hafnarfirði eðá
síma til stöðvjirinnar (sími 9021).
Útvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00
Veðurfregnir. 19.05 Grammófón-
tónleikar. '19.30 Veðurfregnir.
19.40 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Klukkusláttur. Frjettir. 20.30
Háskólafyrirlestur. (Arni Páls-
son). 21.15 Tónleikar: Fiðlu-sóló
(Þór. Guðmundsson). Grammófón-
söngur: Dusolina Giovannini syng-
ur: Mattinata nr. 2, eftir Tosti;
Cadiz-stúlkurnar, eftir Delibes;
Tenna Fridriksen syngur: 2 lög
úr „Leonora Christine“, eftir Aage
Barfod og Sigfried Salomon: Der
er tre Hjörnestene og Med Sorig
jeg mig lagde. Elisabeth Sehu-
mann syngur: Sei nieht böse, úr
„Der Obersteiger“, eftir Zeller og
Næturgalasöngur eftir Zeller.
ferðnr sfmanðntr okkar eftlr að nýja
símasttðin teknr til staifa.
nol & Salt
Bankarnlr
verða lokaðir 1. desember allan daginn.
Landsbanki fslands. Útvegsbanki íslands h.f.
Búnaðarbanki fslands.
Sfmi 3700
Bifreiðæistöð s í m i:
Steindórs 1 5 8 0 ■
Eftir daginn i dag.
Eldur!
Munið að brunatryggja nú þegar hjá Vátryggingar-
hlutafjelaginu „Nye Danske af 1864“.
Aðalumboðsmaður:
Slofús Slohvstsson.
Amtmannsstíg 2.
Hrshátíð sjálfsfæðisfielaganna
Fram og Sfefnls
í Hafnarfirði, verður haldin í G. T.-húsinu, fimtudaginn
JL. desember og hefst með sameiginlegri kaffidrykkju kl.
9 síðd. stundvíslega.
Til skemtunar: Ræðuhöld, Söngur og Dans.
Aðgöngumiðar fyrir fjelaga og gesti verða afhentir
hjá Jóni Matthiesen kaupmanni og óskast þeir sóttir í síf-
asta lagi fyrir hádegi á fimtudag.
Stjórnir f jelaganna.