Morgunblaðið - 26.01.1933, Síða 3
MOKG UNRL AÐ t>
Jfflorgtttt WaM$
Útffef.: H.f. A rvakur, Reykjerlk.
Bitatjörar: Jön KJartanaeon.
Valtýr Stef&naaoo.
Rltetjörn og afgreiBela:
Austurstræti 8. — Slœl 1800.
Auglýsingastjörl: B. Hafber*.
AuKlýslnKaskrlfstofa:
Austurstræti 17. — Slmi S700
Heisaaslmar:
Jón Kjartansson nr. 8742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
E. Hafberg nr. 3770.
Áskriftagjaid:
Innanlands kr. 2.00 & mánuOl.
Utanlands kr. 2.50 á anánuOi.
í lausasölu 10 aura elntaklB.
20 aura meB Lesbök.
öasstöðin.
Samkvæmt tillögu frá borgar-
■stjóra var það samþykt á síðasta
'bæjarstjórnarfundi að setja á fjár-
hagsáætlun gasstöðvarinnar 73
þús. krónur til aukninga og end-
urbóta á gasstöðinni og götuæða-
kerfinu.
Jafnframt hefir það verið á-
kveðið, að gasstöðin hætti að
leggja gasleiðslur ókeypis inn að
mæli í húsum, til þess að íjetta
útgjöldum af stöðinni, svo rýmist
um f járliaginn til endurbótanna. ‘
Mjög hefir það verið bæjarhú-
tim bagalegt, hversu lítill þrýst-
Íngur hefir oft verið á gasinu í
■gasæðakerfinu, svo gassuðan hef-
ir gengið óhæfilega treglega. Jafn
vel eru dæmi þess að gaseldar
hafa slokknað í miðju kafi. Ein
af megin gasæðunum, sem flytja
á gas í Miðbæinn og Vesturbæinn
er ekki lögð lengra en að Laufás-
vegi. En úr því á að bæta í ár.
En það stoðar lítt þó bætt sje
um gasæðar, ef gasstöðin sjálf
*er orðin of lítil. En um afköst
■stöðvarinnar í samanburði við gas-
notkun og gasþörf bæjarbúa, segir
■gasstöðvarstjóri í brjefi, er hann
nýlega hefir fitað bæjarráði:
Gasgeyniirinn er orðinn of lít-
111, þareð notkun er svo mikil, að
hann tæmist tvisvar á sólarhring.
„Kegulator41, gassuga og hreinsi-
tæki eru einnig of lítil. Með ann-
ari eins gasnotkun og hefir verið
undanfarin þrjúár, fullnægja ekki
ofnarnir gasþörfinni um næstu ára
mót, nema, þeir verði allir í notk-
un. Er þá komið í öngþveiti, því
þá verður engan ofn hægt að taka
út úr rekstri til viðgerðar.
Eldsvoði í Bombay.
Berlin, 25. janúar.
Eldur braust út í gær í útborg
■einni við Bombay og brunnu um
'300 hús og kofar innfæddrá
manna áður en eldurinn yrði stöðv
aður. Mörg hundruð manns urðu
’húsnæðislausir. (PU).
Fornleifafnndur.
Berlin, 25. janúar.
Amerískir leiðangursmenn, und-
ir forustu prófessors Herzfeldt,
hafa nýlega grafið ofan af
höllum og stórhýsum miklum 4
stöðvum þeim, er talið er að pers-
neska borgin Persepolis hafi leg-
ið. Alexander mikli lagði borg
þessa í rústir á síniun tíma. Aðrir
merkilegir fundir voru gerðir
"þarna, þar 4 meðal 330 metra löng
festi úr svörtum fægðum steinum.
(FÚ).
Iðrnsmiðaverkfaliii.
Þáttur kommúnista.
Það eru kommúnistar er stað-
ið hafa fyrir járnsmiðaverkfall-
inu við vjelsmiðjurnar hjer í bæn-
um. Verkfallið hófst um áramót.
Deila þessi er risin af því, að
Fjelag járniðnaðarmanna krafðist
þess, að breytt yrði samningum,
sem gerðir hafa verið við járn-
iðnaðarnema.Þessir samningar eru
meðal þeirra fáu vinnusamninga,
sem eru lögbundnir. Lög um iðn-
aðarnáan frá 1927 mæla svo fyrir
að gera skuli skriflegan samning
við sjerhvern iðnnema eða forráða
mann hans, sje iðnnemi eigi mynd-
ugur. Og til tryggingar því, að
samningur sje lögum samkvæmur,
ei þess krafist, að lögreglustjóri
staðfesti hann.
Vitanlega var þetta hreint
ankaatriði í augum kommúnista.
Þeir hirða ekkert um, þótt brot-
in sjeu gildandi lög og gerðir
samningar.
Hitt er og sjálfsagt aukaatriði
hjá þessum herrum, þótt þeir með
framferði sínu bökuðu iðnnemum
t.jón, með því að ógilda allan þann
tíma, sem iðnnemar hafa unnið í
v j elsmið junum.
Aðalatriðið fyrir kommúnistum
var að koma af stað deilu, sem
gæti orðið upphaf óeirða og skemd
arverka.
Togarinn Otur.
Fyrir nál. 3 vikum kom hingað
togarinn Otur og þurfti að fá smá
vægilega viðgerð. Fyrra manudag
var togarinn dreginn upp í hinn
nýja Slipp. Viðgerðin var ekki
önnur en sú, að sla þurfti upp
nokkrum .mótum1 og síðan steypa
í þau. Hefði það tekið 5—6 tímá
að gera við togarann, og gat hann
svo farið 4 veiðar aftur.
En kommúnistar, er stóðu fyrir
verkfalli járniðnaðarmanna, voru
eklci alveg á því, að leyfa þessa
smávægilegu viðgerð á togaranum
og það enda þótt þarna væri alls
ekki um neina járnsmíðavinnu að
ræða. Fjölmennur liópur kommún
ista stóð vörð um togarann nótt
og dag. Og þegar vinna skyldi
liefjast stöðvuðu þeir hana með
ofbeldishótunum. Togarinn liggur
enn í Slippnum og hafa sjómenn-
irnir þannig mist atvinnu um
þriggja vikna tíma.
Togarinn Ólafur.
Eins og skýrt hefir verið frá
hjer í blaðinn, misti togarinn
Ólafur skrúfuna á dögunum fyrir
sunnan Reykjanes, og var hann
dreginn hingað í höfn.
Þegar búið var að taka fiskinn
úr togaranum, var ný skrúfa tekin
um borð í skipið. Var skipinu síð-
an lagt upp í fjöru hjer við stein-
bryggjuna og vjelstjórarnir, með
aðstoð háseta fóru að undirbúa, að
koma skrúfunni á öxulinn. Þeir
byrjuðu á þessu verki með lág-
flæði í fyrra morgun.
En þeir voru ekki fyr byrjaðir
á þessu verki, en kommúnistar
gerðu þeim þau boð, að þeir
bönnuðu þessa vinnu. Hótuðu þeir
verkbanni á skipið, ef boði þessu
yrði eigi hlýtt.
Vjelstjórarnir hirtu ekkert um
hótanir kommúnista, þar sem þessi
vinna snerti á engan hátt deilu
járniðnaðarmanna og aðeins skips
menn af togaranum unnu verkið.
Með lágflæði næsta kvöld (í
fjnrra kvöld) ætluðu vjelstjórar af
Ólafi að ljúka við að koma skrúf-
unni fyrir. En þegar þeir ætluðu
að fara að byrja verkið, koma
tveir stórir vjelbátar út að skipi
og á þeim fjöldi manns (60—70).
Þarna voru þá kommúnistar komn
ir á vettvang. Þeir ruddust upp
á flekana, sem bundnir voru við
togarann og bönnuðu að setjai
skrúfuna á öxulinn. Þeir hótuðu
að beita valdi, ef ekki yrði tafar-
laust hlýtt. Vifanlega gátu'vjel-
stjórarnir ekkert aðhafst móti
lýð þessum; þeir voru varnarlaus-
ir. Sknifan var því óhreyfð.
Alþýðusambandið tekur
deiluna í sínar hendur.
Fjelag járniðnaðarmanna hefir
ekki verið í Alþýðusambandi ís-
lands. Á fundi í fjelaginu á dög-
unum var það felt, að ganga í
Alþýðusambandið. En 4 fundi, er
haldinn var í fyrrakvöld, var sam
þykt með 36 atkv. gegn 9 að
ganga í sambandið.
Þegar Fjelag járniðnaðarmanna
hafði gengið í Alþýðusambandið.
o-af það út í gær svohljóðandi til-
kvnningu:
„Fjelag járniðnaðarmanna í Rvík
hefir gengið í Alþýðnsamband Is-
lands og nýtur stuðnings þess
sem önnur sambandsfjelög. Skip,
sem unnið verður við af verkfalls-
brjótum meðan á vinnudeilunni
stendur, má ekki afgreiða af sam-
bandsfjelögum.
Alþýðusamband íslands.c<
Nú er eftir að vita, hvort Al-
þýðusambandið heldur áfram
skrípaleik kommúnista, eða þá að
það leýsir þessa deilu sem frá
upphafi var tilefnislaus og vit-
leysa.
Frumhlaup
Cltuarpsins
i máli Lárusar
Jónssonar læknis.
Út af hinni ramhlutdrægu af-
stöðu Útvarpsins til Kleppsmáls-
ins, þar sem það birti fyrir Lárus
Jónsson lækni ýms vottorð, meðan
á rannsókn málsins stóð, hefir
dómsmálaráðuneytið nú sett ofan
í við Útvarpið og ljet það birta
í gærkvöldi tilkynningu þess efnis
aJð rannsóknardómarinn hafi
skýrt svo frá að vottorð þessi
hafi þá ekki verið framlögð í
rjettinum, því að Lárus Jonsson
hafi neitað að afhenda þau, og
að rannsóknardómarinn skýri
svo frá, að vottorð þessi geti ekki
að öllu leyti staðist.
Síðan segir dómsmálaráðuneytið
að það sje ekki rjett að birta
neitt viðvíkjandi málum, sem sje
í rannsókn, og ekki sje rjett að
segja neitt um þau fyr en rann-
sókn sje lokið.
Gengi Sterlingspundsins.
London 25. jan.
Gengishækkun sterlingspundsins
hefir verið stöðvuð um stundar-
sakir. Það komst upp í $ 3.40 3/8
á kauphöllinni í London í dag, en
var $3.3914 er viðskiftum lauk.
(F. Ú.)
5trönöin á Sljettu.
,Ægir‘ kominn ,Óðni‘
til aðstoðar.
Skipverjar á St. Hon-
orius flytja inflúens-
una í land.
Raufarhöfn, 25. jan.
United Press. FB.
Varðskipið Ægir ev nú komið
hingað Óðni til aðstöðar við að ná
út bresku botnvörpungunum. Bú-
ið er að ljetta Sicyion, en farið að
moka snjónum úr St. Honorius.
Vonir eru um, að takast megi að
ná báðum botnvörpungunum út.
Skipshöfnin á Sicyion fór á. Lag-
arfossi hjeðan, en skipsmenn af
St. Honoriusi eru á Ásmundar-
stöðum og munu margir þeirra
enn lasnir af inflúensu. — Frjest
hefir hingað, að fólkið á Ásmund-
arstöðum sje farið að leggjast í
inflúensu.
Sknldamálin.
Chamberlain tekur af skarið.
Berlin, 25. janúar.
—■ Breski fjármálaráðlierrann
Chamberlain hjelt í gær ræðu á
opinberum mannfundi um stríðs-
skuldamálið. Kvað hann enga von
vera til þess, að sambúð þjóðanna
myndi batna, fvrri en martröð
stríðsslculdabagganna væri Ijett af.
Hann rakti það, hvernig þjóðirn-
ar, sem skulduðu, hefðu greitt á
árunum 1922—1931. og sagði, að
ekki yrði úr neinu bætt í þessu
efni með útflutningi á gulli eða
með lánum, heldur yrði Ameríka
annað hvort að kaupa meiri vörur
í Evrópu, eða Evrópa að kaupa
minna í Ameríku, en ef Evrópu-
þjóðirnar ættu að geta selt meiri
vaming þangað, heldur en nú er,
yrðu Bandaríkin að gera miklar
ívilnanir um innflutningstolla. Það
gæti og nokkuð ljett, ef Evrópu-
þjóðirnar gætu bætt gengi á gjald-
eyri sínum. Sagði ráðherrann enn
fremur, að eina leiðin, sem dygði
væri að fella nú niður allar stríðs
skuldirnar eins og þær legðu sig,
en hvort sem það yrði gert eða
ekki, yrði sú lausn, sem nú yrði
fundin 4 málinu að vera til fram-
búðar. Ræða þessi hefir vakið
mikla eftirtekt á Englandi, vegna
þess að þetta munu vera síðustu
bresk, opinber stjórnarummæli,
sem um málið falla. áður en samn-.
ingar um stríðsskuldirnar hefjast
við Bandaríkin. (FÚ.).
Kauphallarmenn hefja
mótmæli.
nefndar þingsins í gær, og ikvaðst
óttast að tillögur hennar % njýndu
verða til þess að koma óreiðu á
kauphallarviðskifti, draga úr Kaup
um og sölum, og auka atviiínu-
leysi.
1 loftskeytafregnum er þvf bætt
við, að veggir kauphallarinðar í
París sjeu þaktir stórum augfýs-
ingaspjöldum, þar sem þv'U' er
haldið fram að löggjafar frönsku
þjóðarinnar sjeu að leiða iBma í
glöt.un. (FÚ).
Enskur togari ferst í NorÓ-
ursjó.
Berlin, 25. janúar.
Eftir storminn, sem varð um
daginn, var saknað ensks togara,
sem verið hafði að veiðum í Norð-
ursjónum. Þykir nú fullvíst, að
hann muni hafa farist með allri
áhöfn, en á honum voru 15 jnahns.
(FÚ.).
Póstrán.
Berlin, 25. janúar.
Á járnbrautarstöðinni i Olden-
burg r,jeðust ræningjar á tvo póst-
)jóna, drápu annan og særðu
liinn; raéndu þeir síðan af þeim
kassa með 8.200 mörkum og kom-
ust undan. Kom lögreglan fljótt á
vettvang, en tókst þó ekki að hafa
uppi á ræningjunum. (FÚ).
Eldur í dönsku skipi.
Berlin, 25. janúar.
f höfninni í HSamborg kviknaði
í gær í dönsku dieselvjelarskipi,
og þurfti til þess að slökkva eld-
inn að dæla svo miklu vatni í skíp
ið, að það lagðist á hliðina, og lá
við að það syklri, sem þó ekki
varð. Tjónið varð mikið, því að
öæði skemdist skipið sjálft og
farmurinn að kalla með öllu. Far-
þegarnir fluttust ýfir í annað skip
danskt, sem í höfninni lá. (FÚ)
Tekist hefir að slökkva eldinn
í danska mótirskipinu Aldia, sem
kviknaði í í Hamborgarhöfn. —
Vegna kuldans voru m.jög miklir
erfiðleikar á slökkvistarfinu og
var skipið algerlega þakið ís að
utan. Fötin frusu á slökkviliðs-
mönnunum og þeir urðu að nóta
lóðunarlampa. til þess að bræða
ísinn af vatnsslönguniim. (FÚ).
Harðindi í Póllandi.
Berlin, 25. janúar.
A Póllandi er frostliarkan nú
með afbrigðum mikil, og hefir
orðið að loka skólum í liöfuðborg-
inni Warschau vegna kulda.V—
Margt manna hefir orðið úti. Til
dæmis urðu tvær bændakonur uti
skamt frá Warschau, þegar þler
voru á leið þaðan heim til sín.
(FÚ.).
London 25. jan.
Á kauphöllinni í París hafa
kaupsýslumenn lagt niður öll við-
skifti, til þess að mótmæla fyrir-
ætlunum stjórnarinnar um það,
hvernig jafna skuli fjárlagahall-
ann. og einkanlega fyrirhuguðum
skattaálagningum á hlutabrjefa-
og verðbrjefasölu. Chéron fjár-
málaráðh. hefir lýst yfir því, að
þetta atferli kaupsýslumanna
vantaði allan rjettmætis grund-
völl, og að hann mundi gera ráð-
stafanir til þess að hafa upp 4
frumlcvöðlunum og láta refsa
þeim. Sendinefnd víxlara og kaup-
sýslumanna kom á fund fjárhags-
írskii kosningarnar.
Dublin, 25. jan.
LTnited Press. FB.
Á miðnætti síðastliðnu var faS-
ið víst, að Cosgrave og hans möftn-
um hefði gengið heldur vel í ba$j-
unum, í fríríkiskosningunum, en
að De Valera liefði unnið á í
sveitak j ör d æmunum.
Ný stjórn í Katalóníu.
Bercelona. 25. jan.
United Press. FB.
Ný stjórn hefir verið mj’ndtfð í
Katalóníu og er Carlos P. I.^y.
Suner forsætisráðherra til bráBa-
birgðá og fjármálaraðherra. _ ,
«