Morgunblaðið - 25.02.1933, Qupperneq 4
MQRGUNBLAÐIÐ
4
Glæný ýsa; reyktur fiskur. —-
Fiskbúðin í Kolasundi. Sími 4610.
Sunnudag og mánudag. Rjóma-,
.Orem- og Rúsínubollur, allan dag-
inn. Sími 2475. Heimabakarí Ástu
Zebitz, Öldugötu 40, þriðju hæð.
Ráðskona óskast, þarf að vera
vel að sjer í matartilbúningi. —
Ingimar Sigurðsson, Fagrahvammi
Ölfusi. Upplýsingar í Flóru —
eími 2039.
Sænskt
Nýtt böglasmjör
Silkiklæði, besta teg. nýkomið
í versl. „Dyngja“. Sími 1846.
Kniplingar á upphlutsbak,
nýjar tegundir, ódýrari og betri
en áður hafa þekst, nýkomnir i
iVersl. „Dyngja", Bankastræti 3.
gulrófur, nýteknar upp úr jörðu,
jafngóðar og á haustdegi. Hvítkál.
Gleymið ekki blessuðu silfurtæra
þorskalýsinu, sem allir lofa.
Björninn.
Slifsisborðamir nýju, eru nú
komnir aftur í stærra úrvali en
áður var. Slifsi og Svuntuefni í
góðu úrvali. Versl. „Dyngja“.
Standlampar, fallegir og ódýrir.
Mikið úrval. Skermabúðin, Lauga-
veg 15,
Mahogni standgrammófónn til
söiu á Laugaveg 76, uppi. A.
Borgen.
Vasa-áttaviti fundinn á Nönnu-
götu. Eigandi vitji á A. 8, í.
Fiskbúðin Frakkastíg 13. Dag-
lega nýr fiskur. Reyktur og næt-
ursaltaður. Lægst verð. Áreiðan-
leg viðskifti. Skrifið í símaskrána
2651.________________________
Morgunkjólaefni frá 3.75 í
kjólinn. Sömuleiðis stórröndótt
Tvisttau. Skotskt bómullartau í
ódýru úrvali. Versl. „Dyngja".
Ný ýsa og þorskur. — Einnig
reyktur, þurkaður og útvatnaður
fiskur. Fisksalan; Vesturgötu 12.
Sími 4939.
Nýr bátafiskur daglega. Fisk-
salan á Bergstaðastræti 2. Sími
435L Pantið í tíma.
FLÓRA, Vesturgötu 17, sími
2039. — Höfum úrval af blóma-
og matjurtafræi. Biðjið um verð-
listann.
Mislitar Blúndur á Eldhús-
gardínur, Hörblúndur, breiðar
og mjóar. Handgjörðar blúndur.
Koddaveishorn. Versl. ,Dyngja‘.
Slifsiskögur í mörgum litum.
Flöjelisteygja í 3 breiddum.
Flöjelisbönd, svört og mislit.
Hlírabönd, margir litir. Blúsu-
teygja, nýkomið. Versl. Dyngja.
Svört og hvít og munstruð efni
í upphlutsskyrtur og svuntur.
Svört efni í kjóla. Fermingar-
kjólaefni, nýkomið. Versl
„Dyngja“.
Eldhúsgardínuefni, falleg og
ódýr. Glugga- og Dyratjalda-
efni. Storesefni frá 1.95 meter.
Nýkomið. Versl. „Dyngja“.
Ráðvandur maður óskast til að
safna áskrifendum að nýrri bók.
Upplýsingar í síma 4235.
Holasalan s.f.
Síml 4514.
með svo vægu gjaldi, sem frekast
er unt, hel^st endur g j aldsíaust
fyrsta árið; þar innu svo börnin að
heyöflun undir stjórn einhvers
kennarans, sem til þess yrði val-
inn. Hey þetta ætti svo að selja
úr bólstrum þar á staðnum, en
andvirði þess að leggjast í sjóð
er heiti: „Mjólkursjóður skóla-
barna£‘, mætti auka hann með
mörgu móti t. d. skólaskemtunum,
mundu þær vel sóttar verða því
að mikið er hjer um sanna barna-
vini, einnig mætti auka hann með
matjurtarækt er börnin innu sjálf
að og seldu. Hefir „Sumargjöf“,
þegar komið auga lá þá leið og
lialdið inn á hana, eins og vænta
mátti, ekki síst af forstjóra henn-
ar. —
Áheit og frjálsar gjafir gætu
einnig komið sjer vel.
Borgarsjóður Reykjavíkur mun
hafa tekið á sig ábyrgð fyrir kr.
9000.00 til mjólkurneytslu í barna
skólunum. Mjer er nær að halda
að börnin sjálf gætu innunnið
sjer þessa upphæð á lári ef vel
væri stjórnað, ef nefnd kennara
með skólastjóra sem oddamann við
hvorn skóla, en jeg vona að ýmsir
vitrir og góðir menn verði mjer
sammála um það, að fjárupphæðin
sje þó ekki þýðingarmesta atriðið
í þessu máli heldur hitt, að þroska
^n ekki deyfa, strax í barnssálinni
þá hollu Guðsgjöf: Heilbrigða
sjálfsbjargarhvöt. Jeg þekki þá
ekki heilbrigða barnslund rjett ef
að þetta mundi ekki skapa börn-
unum ósvikna ánægju og hollustu
að vinna að þessu í góða veðrinu
undir stjórn kennara síns sem til
þess væri hæfur og þeim þætti
vænt um. Það er leið til að standa
á frjálsum fótum, með samstarfi,
og ættu postular Austurbæjarskól-
ans síst á móti því að mæla.
Sem betur fer man jeg svo oft
eftir því, meðan jeg dvaldi í sveit-
inni, að jeg sá arfinn frá höfundi
lífsins speglast á unglings andlit-
unum að loknu vel unnu starfi, en
á þessu er nú mikil breyting, eink-
um í kaupstöðum „aftur og fram
um hundamó". Vjer mælum orðið
alt of margt á mælikvarða mynt
annarinnar eða annara fjármuna.
Það eru ekki ætíð bestu launin.
Magmús Lárusson.
40 ára verður í dag Kristinn
Magnússon málari í Hafnarfirði.
Dagbók.
□ Edda 59332287 — I.
Veðrið í gær: Kyrt veður um
alt land. Lítilsháttar snjókoma
sums staðar á A-landi, og einnig
dálítil úrkoma úti fyrir V-landi.
En á N og S-landi er veður
bjart. Frost víðast 2—4 stig, mest
7—-9 st. sums staðar nyrðra. Há-
þrýstisvæðið mun haldast yfir
landinu næsta sólarhring og litlar
breytingar verða á veðurlagi.
Veðurútlit í Rvík í dag: Kyrt
og þurt veður.
Messur á morgun: í Dómkirkj-
unni kl. 11; síra Friðrik Hall-
grímsson; kl. 5 síra Bjarni Jóns-
son (altarisgan ga)
í Fríkirkjunni í Reykjavík kl.
2; síra Hálfdán Hjelgason, Mos-
felli.
í Fríkirkjunni í Hafnarfirði kl.
2- síra Jón Auðuns.
f Aðventkirkjunni kl. 8 síðd.
Dagskrár Alþingis í dag:
Efri deild: Um leiðsögu skipa.
Eftirlit með sparisjóðum. Neðri
deild: Ljósmæðralög. Læknishjer-
aðasjóðir.
Eitt mál var á dagskrá í hvorri
þingdeild í gær og fóru bæði mál-
in til nefnda.
Inflúensan á Norðfirði. Þann
2f. þ. m. var veikin komin í 14
hús. en 35 höfðu tekið veikina.
Ekki veit landlæknir til, að veik-
in hafi breiðist neitt út frá Norð-
firði.
Bifreiðaskatturinn. — Fjárhags-
nefnd Nd. hefir skilað nefndar-
áliti um frv. stjórnarinnar, um
bifreiðaskatt. Mælir nefndin með
því að frv. verði samþykt, en ein-
stakir nefndarmenn áskilja sjer
rjett til að bera fram breytingar-
tillögur.
Meðal farþega á Brúarfossi til
lítlanda í gær voru: Guðrún Þor-
kelsdóttir. Signý Tulinius, Guð-
rún Þorsteinsdóttir. Guðrún Guð-
mundsdóttir. Þóra Jóhannesdóttir.
Skíðafæri hið besta er nú upp
við Kolviðarhól og upp við Svana
staði. Bílfært var í gær upp á
Sandskeið, og búist yið að hægt
yrði að moka veginn upp að Kol-
viðarhól í dag. En upp að Svana-
stöðum var bílfært alla leið. —
Skíðafjelagið fer á morgun annað
hvort til Kolviðarhóls eða Svana-
staða, ef veður og færi leyfa. •—
En nánar um það fá fjelagsmenn
að vita hjá L. H. Muller.
Nemendamót Verslunarskólans
hefst í kvöld kl. 8 1 Iðnó. Verður
þar mikil þátttaka. Nemendur
skólans sem alls eru rúmlega 180
verða þar allir, eða því sem næst,
auk fjölda eldri nemenda og ann-
ara velunnara skólans. Skólablað
Verslunarskólanemenda kemur iit
í dag, 32 bls. með ýmsum greinum
um áhugamál verslunarmanna, þar
á meðal um skólann, starf hans
og framtíð.
Iðnskólinn hefir dansskemtun í
kvöld í K. R. húsinu og hefst hún
kl. 9.
Papeyjarslysið. Rannsókn sjó-
rjettarins er lokið í bili. En hún
heldur áfram er Guðmundur
Magnússon skipstjóri er orðinn
það heill heilsu, að hann geti
mætt til yfirheyrslu. Lítið mark-
vert kom fram í prófunum hina
síðustu daga umfram það sem
áður hefir verið sagt hjer frá. —
Þess hefir ekki verið getið hjer
áður að í þýska skipinu Brigitte
Sturm var íslenskur maður, Gísli
Eyland fyrv. skipstjóri, er yfir-
heyrður hefir verið. Bar honum
sainan við Arp skipstjóra um það
að siglingaljós hefðu ekki sjest
á Papey fyrri en rjett áður en
áreksturinn varð. Þeir sem kynnu
að hafa sjeð til ferða Papeyjar á
mánudagskvöld hjeðan út úr höfn
inni, ættu að gefa sig fram og
segja um það, hvort þeir hafi
sjeð siglingaljós línuveiðarans.
Brigltte Sturm er nú um það
bil að fara hjeðan. Skemdir skips-
ins við áreksturinn urðu litlar.
Voru metnar í gær.
Togarar allmargir eru nú að búa
sig á saltfiskveiðar, að því er hafn
arskrifstofan sagði Morgunbl. í
gs?f. Júpíter og Maí í Hjafnarfirði
farnir á veiðar.
Afli hefir verið góður undan-
farna daga á Akraness og Vest-
manna.eyjabáta.
Gullfoss lá í sóttkví á ytri höfn-
inni % gær; en kom að landi í
gærkvöldi.
Inflúensan í Englandi. Dauðs-
föll af völdum inflúensu í Eng-
landi og Wales síðastliðna viku
voru 630 talsins. (UP—FB)
Farsóttir og manndauði í Rvík
vikuna 12.—18. febr. (í svigum
tölur næstu viku á undan): Háls-
bólga 37 (48). Kvefsótt 122 (152)
Kveflungnabólga 4 (7). Barna-
veiki 0 (1). Blóðsótt 5 (9). Gigt-
sutt 1 (1). Iðrakvef 30 (39). In-
flúensa 20 (0). Taksótt '2 (3).
Hlaupabóla 7 (2). Munnangur 0
(2). Stingsótt 1 (1). Kossageit 1
(4). Þrimlasótt 1 (1). Mannslát 8
(7). Ljindlæknisskifstofan. FB.
Trúlofun sína hafa opinberað
ungfrú Edel Einarsson hjúkrun-
arkona og Ágúst Einarsson kaup-
fjelagsstjóri frá Hallgeirsey.
Útvarpið í dag: 10,00 Veður-
fregnir. 12,15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir. 18,15 Háskóla-
fyrirlestur (Ág. H. Bjarnason
próf.) 19.05 Þingfrjettir. 19,30
Veðurfregnir. 19.40 Tilkynningar.
Tónleikar. 20,00 Klukkusláttur.
Frjettir. 20,30 LaugarvatnskvÖld.
Útvarp frá Laugarvatnsskóla.
21.00 Tónleikar (útvarpskvartett-
inn). Grammófónkórsöngur: (Or-
fei drángar) : Alfvén: Sveriges
flagga. Wennerberg: Hör os, Svea.
Josephson: Stjárnorna tindra.
Prins Gustav: Sjung om student-
ens lyckliga da ’r: Glad- sásom
fágeln. Kuhlau: O hur hárligt
majsol ler. — Danslög til kl. 24.
Síðasta samkoman af hinum
vikulegu samkomum í K. F. U. M.
í Hafnarfirði, verður í kvöld; sjá
augl. í blaðinu í dag.
Næsti háskólafyrirlestur próf.
Ágústs .H. Bjarnasonar um nýj-
ungar í sájarfræði er í kvöld í
Háskólanum. Öllum heimill að-
gangur.
Manndauði úr áfengiseitrun í U.S.
Bannið komst lá í Bandaríkjun-
um 1920. Síðan hafa þar dáið úr
áfengiseitrun á 100.000 íbúa:
1920 1.0, 1921 1.8, 1922 2.6, 1923
3.2, 1924 3.2, 1925 3.6, 1926 3.9,
1927 4.0, 1928 4.0, 1929 3.7, 1930
3.5. —
Á þessu tímabili hefir þá mann-
dauði úr áfengiseitrun ágerst stór-
um, meira en þrefaldast. Síðasta
árið hafa þá dáið úr áfengiseitrun
í Bandaríkjunum um 5000 menn.
KAFFI er yfirleitt
drúkkið til sælgætis og
hressingar.
Það er því afar áríð-
andi að kaffið sem
þjer kaupið sje VERU-
LEGA GOTT.
Suana katfl
(Mokka og Java blandað) er
bragðgott,
Ijúffengt og
djrúgt
og þar að auki er verð-
launamiði í hverjum.
pakka.
Reynið það í dag og
þjer munuð framvegis.
verða fasíur kaupandi.
Skrá
yfir gjaldendur til ellistyrktar-
sjóðs í Reykjavík árið 1933 ligg-
ur frammi almenningi til sýnis á
skrifstofum bæjarins, Austurstr.
16, frá 1.—7. mars næstkomandi,
að báðum dögum meðtöldum, kl.
10—12 árd. og 1—5 síðd.
Kærur yfir skránni sendast
borgarstjóra eigi síðar en 14. mars
Borgarstjórinn í Reykjavík,
24. febrúar 1933.
Jón Þorláksson.
^mmmmari
KJörskrá
til alþingiskosninga í Reykjavík,.
er gildir fvrir tímabilð 1. júlt
1933 — 30. júní 1934. liggur
frammi almenningi til sýnis á
skrifstofum bæjarins, Austurstr.
16, frá 1.—14. mars næstkemandi,
að báðum dögum meðtöldum, kl.
10—12 árd. og 1—5 síðd.
Kærur yfir . kjörskránni sjeir
lcomnar til borgarstjóra eigi síð-
ar en 21. mars.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
24. febrúar 1933.
Jón Þorláksson.
Nýkomið:
Hinir marg-
eftirspurðu
mislitu silki
Kaffidúkar
komnir aftur.
•Stó
Vöruhúsið.
JÓOOOOOOOOtKKK