Morgunblaðið - 21.06.1933, Blaðsíða 4
r % HOIGUNILAi IK
-----====^.^.^-r-r-;r^------------------—----------
| Smá-auglýsingarl
Blómastöðin ,,Blágresi‘ ‘. Alls-
boriar íslenskar skrautjurtir til
útolöntunar, svo sem: Blágresi,
jarcSarber, fjallafífill, mjaðarjurt,
gleymmjerei og fjóla. Víðir og
fjalldrapi. Selt frá 1—4, •
Iðnrekstur. Ágætt pláss til iðn-
reksturs til leigu eða sölu, alveg
við miðbæinn. A. S. í. vísar á.
Trjesmíðavjelar til sölu, gjaf-
verð, gegn greiðslu út í hönd. Til-
boð sendist A. S. í. merkt ,Strax“.
Ágætt píanó til sölu með tæki-
færisverði. — Hiisnæðisskrifstofa
Reykjaviknr (sími 2845) vísar á.
Bifreiðastöðin Bifröst hefir síma
1508."
Unglingur óskast til að gæta
lítils drengs. A. S. í. vísar á.
Tapast hefir poki með tjaldi,
svefnpoka og fl. í, austan við Val-
höll eða til Reykjavíkur. Finn-
andi er vinsamlega beðinn að gera
aðvart í síma 1827. Hverfisgötu
106, —
Litla Blómabúðin, Laugaveg 8.
Nýkomnir Pálmar og mjög mikið
árvál af Kaktusum.
Morgunblaðið fæst á Laugaveg
12.
Nýjustu aðferðir við andlitsböð
og andlitsfegrun, hárliðun og
klipþingu. Einnig handsnyrting
fyrir dömur og herra. Hárgreiðslu-
stofg.n, Kirkjustræti 10.______
Morgunblaðið fæst keypt í (Jafó
Svanur við Barónsstíg.
Blómkáls- og hvítkálsplöntur,
stjúpmæður og bellisplöntur og
fleiri plöntur til útplöntunar, til
sölu í Suðurgötu 18. Sími 3520.
„Freia“, Laugaveg 22 B. Sími
4059. „Freiu“ heimabökuðn kök-
ur eru viðurbendar þær bestu og
spara húsmæðrum ómak.
„Freia“ fiskmeti og kjötmeti
mælir með sjer sjálft. Hafið þjer
reynt það? Sími 4059.
„Freia“ „Delieious" síld er ó-
missandi á kvöldborðið. Sími 4059.
Miðdagsmatur (2 heitir rjettir)
fæst daglega heimsendur. Kristín
Thqroddsen, Fríkirkjuveg 3. —
Sími 3227.
BagnfraðasMlinn
1 Flensborg s f
í Hafnarfirði, starfar n.k. vetur,
frá 1. okt. til 30. apríl, eins og
að undanfömu.
Eldri nemendur og nýir, er hafa
í hyggjiT að sækja skólann, verða
að hafa sent undirrituðum skrif-
lega umsókn fyrir 1. sept. Nýir
nenjendur láti umsókn sinni fylgja
siðferðisvottorð, skírnarvottorð,
bólúsetningarvottorð, læknisvott-
oTð og fullnaðarprófsskírteini frá
barnaskóla. Ef þeir vilja setjast
í 2’. eða 3. bekk, verða þeir að
gapga undir próf við byrjun skóla
ársins. Elri nemendur, er eigi tóku
vorþróf, verða og að ganga undir
próf í haust, ef þeir ætla sjer
að verða í skólanum.
Hafnarfirði 20. júní 1933.
Lárus Bjamason, skólastjóri.
Ik
»1
? w
SIRIUS Konsum súkkulaði
er fyrsta flokks vara, sem
enginn sjer eftir að kaupa.
Laxveiðl.
í Haukadalsá í Dölum geta menn
fengið ieyfi til stangarveiði.
Sportvöruhúsið.
Bankastræti 11.
Flug ítlanna liefir frestast
vegna þess að mikill ís er hjá
Labrador og þykir ekki ætlandi á
örugga lendingu þar. Fjölgað hefir
verið leguduflum inni á Kleppsvík.
Skrifstofa Sjálfstæðismanna í
Hafnarfirði er í húsi Ólafs Þórð-
arsonar við Linnetstíg. Sími 9Ö22.
Karlakór iðnaðarmanna. Fundur
í kvöld (miðvikudag 21. júní) kl.
8þ2 í Iðnskólanum.
„Fram“ til Akureyrar. Snemma
í gær (þriðjudag) lagði 14 manna
flokkur úr ,,Fram“ af stað til
Akureyrar. í flokknum eru 10
menn úr fyrsta og 4 úr öðrum
flokki. Fararstjóri er formaður
fjelagsins Ólafur K. Þorvarðsson.
Ætlar flokkurinn að keppa í
knattspyrnu við ,K. A.‘ og ,Þór‘
á Akureyri.
tJtvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00
Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir.
20.15 Tilkynningar. Tónleikar.
20.30 Erindi: Frá útlöndum. (Síra
Sig. Einarsson). 21.00 Frjettir.
21.30 ÚtvarpstríÓið.
Embættisprófi í læknisfræði hafa
nýlega lokið Björgvin Finnsson,
Haraldur Sigurðsson, Ingólfur
Gíslason, Jóhann Þorkelsson, Jón
Geirsson, Jón Sigurðsson og Ó-
feigur J. Ófeigsson.
Bragi kom at' veiðum í gær-
morgun með 56 tunnur lifrar og
hættir nú. Eru þá allir íslensku
togararnir hættir saltfiskveiðum.
Innbrot var framið í Mjólkur-
samlagið á Akureyri aðfaranótt 7.
júní. Litlu var hægt að stela, en
munir skemdir í skrifstofunni. —
Grunur fjell á búrmann á skipinu
„Lagarfoss" og bar hann ekki á
móti því, að hann væri valdur að
verkinu, en þóttist ekkert muna
vegna ölvunar. (Eftir ,,Degi“).
Leiðrjetting, I eftirmælum í blað
inu í gær stóð í fyrirsögn júní i
stað júlí og í næstneðstu línu á
fyrsta dálki Sámsstaðagerði í stað
inn fyrir Sómastaðagerði.
Sjóhetja. Sænsk kenslukona,
Cederblom að nafni, lagði út á
djúpið á tryllubát um daginn.
Ilún var komin til Shetlandseyja
er síðast frjettist.
Sjúklingar í Hressingarhælinu í
Kópavogi og Heilsuhælinu á Víf-
ilsstöðum hafa beðið blaðið að
flytja Bjarna Bjömssyni kærar
bakkir fyrir heimsóknina 19. júní
og skemtunina.
Seinni sláttur byrjaður, Til
marks um hina ágætu grassprettu
'v hað að f.Tmir nokkrum dögum
var slegin há á túninu á Keldum í
Mosfellssveit. Fyrri sláttur fór
fram fyrst í júní.
Bjami Björnsson endurtekur
skemtun sína í kvöld í Iðnó.
Aðrar kappreiðar ársins fara
fram á Skeiðvellinum sunnudag-
inn 2. júlí,
Farþegar með Gullfossi vestur
og norður voru meðal annars Guð-
munda Guðmundsdóttir, Isafirði,
Aðalbjörg Jakobsdóttir og Jakob-
ína Jakobsdóttir til Akureyrar,
síra Frikrik Friðriksson og fjöl-
skvlda til Akureyrar, Egill Jóns-
son læknir, C. Björnæs, Ríkey
Guðmundsdóttir, Daníel Ólafsson,
C. Behrens og margir aðrir.
Farþegar með Dettifossi að vest-
an og norðan voru m. a.: Björn
Jónsson, Jón Bergsson, Axel Ket-
ilsson, Karl Magnússon og frú,
Elías Pálsson og frú, María Hester-
vig, Salóme Pálmadóttir, Þórunn
Þorsteinsdóttir, Selja Guðmunds-
dóttir, Eggert Claessen, Þórarinn
Jónsson, Aðalsteinn Jónsson, Her-
dís Sigurjónsdóttir, Steinv. Jóns-
dóttir, Sigurður Sigurðsson og
frú, Gertrud Muhe, Arnl. Sveins-
dóttir, Helga Hallgríms, Guðm.
frá Mosdal, Tngibj. Jóhannesdóttir,
Aðalli. Albertsdóttir, Kristín Ein-
arsdóttir.
íslandsglíman verður háð á 1-
þróttavellinnm á föstudaginn kem-
ur. Þar keppa þeir Lárus Saló-
monsson glímukóngur, Sigurður
Tliorarensen fyrverandi glímu-
kóngur, Þorsteinn Einarsson glímu
snillingur Islands, Ágúst Kristjáns
son. Georg Þorsteinsson, Hinrik
Þórðarson og Leo Sveinsson.
Mercur kom hingað í fyrradag
í stað Lyru. Fer hjeðan aftur
annað kvöld.
Langvarandi þurkar hafa gengið
í Noregi, en samkvæmt skeyti frá
Osló hefir nú brugðið til úrkomu
á suðurlandinu, en norðanlands
haldast þurkar og hitar. 1 Har-
stad var 27 stiga hiti á sunnudag-
inn. Búist er við miklu uppskeru-
tjóni, ef þurkarnir halda áfram.
Skipafrjettir. Gullfoss fór vest-
ur og norður í gærkvöld. Goða-
foss fór frá Hull í gær, áleiðis til
Vesímannaeyja og Reykjavíkur.
Brúarfoss fór frá Leith í fyrradag
áleiðis til Kaupmannahafnar. Lag-
arfoss var á Vopnafirði í gær.
Dettifoss kom að vestan og norð-
an í gærmorgun. Selfoss er á leið
til Reykjavíkur.
Driac II. heitir lítil ensk snekkja
(7 smálesta) sem hingað er komin
í skemtiferð. Hún hefir hjálpar-
mótor og á henni eru þrír menn.
Þeir lögðu á stað frá Portsmoutli
hinn 15. maí og hafa því verið
rúman mánuð á leiðinni. Hjeðan
munu þeir sigla heim til Ports-
mouth aftur.
Kirkjuhljómleika með aðstoð
Páls ísólfssonar og Þórarins Guð-
mundssonar ætlar ungfrú María
Markan að halda á fimtudags-
kvöldið í fríkirkjunni. Eru þetta
fvrstu kirkjuhljómleikar ungfrú-
arinnar.
Vard, fisktökuskip, fór hjeðan í
fyrrakvöld með fiskfarm til Spán-
ar. —
Trúlofun. Nýlega hafa opinber-
að trúlofun sína Guðríður Guð-
laugsdóttir, Tryggvaskála og
Daníel Bergmann bakari í Hafn-
arfirði.
Iðnþing fslands hefst hjer í
Reykjavík 1. júlí. Eiga sæti á
binginu allir iðnráðsfulltrúar kaup
staðanna og stjérnir iðnaðarmanna
fjelaga.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir skrif
stofu í Varðarhúsinu við Kalk-
ofnsveg og er hún opin alla daga.
Þar liggur kjörskrá frammi og
þar eru gefnar allar upplýsingar
er kosningarnar varða. Sími skrif-
stofunnar er 2339.
St. Æskan nr. 1. Næstkomandi
sunnudag fer unglingast. Æskan
skemtiför í Vatnaskóg með e.s.
Magna.
— 1 ■ II III ■■.uaiiwiianarMrn ■■
Htemn™ x Oilsen 0
Heildsðlubirgðir:
Rúðnglii1
200 fðr!et í kistn
Þetta gler hefir hfotið lof allre, sem reynt hafa.
Sími eínn, tveir, þrír, f jórir.
1.1 Mercur
fer hjeðan fimtudajfinn 22.
þ. m. kl. 6 síðdteRÍs til Berff-
en, um Vestmannaeyjar og
Thorshavn. Flutningur af-
hendist fyrir kl. 6 á mið-
vikuda^. Farseðlar sækist
fyrir hádegi á fimtudag.
Níc. Biarnason & Smith.
Karlmannaföt
blá og misl.
Gott úrval,
sanngjarnt verð.
VÖRUHÚSIÐ.
ff Þakkarávarp.
Þann 10. þ. m. urðum við hjón-
in fyrir þeirri sáru sorg að missa
í greipar dauðans okkar elskuðu
dóttur aðeins 10 ára gamla, sem
dvaldi þá á heilsuhælinu á Vífils-
stöðum. Öllu starfsfólki hælisins,
hærra og lægra settu, sem á einn
eða annan hátt tóku þátt í því
með alúð og samviskusemi að ljetta
hennar þungu sjúkdómsbyrði, finn-
um við okkur skylt að þakka.
Ennfremnr viljnm við minnast
frú Ingibjargar Jónsdóttur, Óðins-
götu 4, Reykjavík, og votta henni
alúðarfylstu þakkir fyrir sína kær
leiksríku hjálpsemi og margskonar
umhyggju fyrir vellíðan okkar
elskuðu dóttur meðan hún dvaldi
á hælinu því að hún reyndist henni
sem besta móðir.
Vestmannaeyjum, 15. júní 1933.
Jónína Jónsdóttir.
Björn J. Sigurðsson.
Sænskst
fiatbranðíð
fæst altaf best í
cdÁvetyj o€> ^
Ti! Borgarfiarðar
og Borgarness
alla mánudaga oc: fimtudaga,
Nýja BifreiðastöðiK
Símar 1216 (tvær línur).
Pjallkonu-
skó-
svértan
best.
Wtff Efiugcrð Rei’.'tjj vihur.
Til Rkoreyrar
alla mánudaga, þriðjudaga, fimtu-
daga og föstudaga. Afgreiðsluna í’
Reykjavík hefir Aðalstöðin. Sínrá
1383.
Bifreiiastöð Hkureytar.
Sími 9.
i
r
Barinn steinbítsriklingur, soð-
inn og súr hvalur, smjör, eggv,
og alskonar ofanálegg.
Saga Kafnarfjarðar. Áskriftum
að Sögu Hafnarfjarðar er veitt
móttaka í verslun Guðjóns Jóns-
sonar, Hverfisgötu 50- (sími 3414)
og í Fornbókaverslun H. Helga-
sonar, Hafnarstræti 19.
Biðrnion.
Bergstaðastræti 35. Sími 400 ib
Hgæt diikasvið.
Glænýtt kjötfars og- fiskfars,
Hverg'i betra.
Versl. Hiöt & Grænmeti.
Bjaro-arstíg' 16. Sími 3464.