Morgunblaðið - 13.08.1933, Side 3
MORGUNFLAÐIÐ
3
$RorgtttiWaf>i$
®t*•*.: H.f. Ámknr, SiTkhTlk,
Oltatjöru’: Jön KJnrtnnmaa.
Valtýr BUtánnoa
Kitstjörn ot afarralBala:
▲uaturatrntl I. — Mal l»»l.
4.«alJ»lnr»atJörl: B. Kafbars.
Aaarltalnaaakrlfatofa:
Auaturatrastl 17. — Watl ITM
Kalataalmar:
Jön Kjartanaaon nr. 1741.
ValtÝr StefAnaaon nr. 4111.
B. Hafberc nr. 1770.
Aakrlftafflald:
Innanlanda kr. 1.00 * aáaill,
Ctanlanda kr. 1.10 A alatllf
< lauaaaölu 10 anra alntaklO.
10 anra ae* LnMk
Sjálfstæðisflokkurinn
krefst ákveðins svars
um aukaþing.
I gær afhenti Miðstjórn Sjálf-
•stæðisflokksins formanni Pram-
"SÓknarflokksins, Trygga Þórhalls-
syni, sem forsætisráðherrann hafði
tilnefnt til að standa fyrir svör-
'tim fyrir sína hönd þá dagana,
•sem hann er fjarverandi, eftir-
farandi brjef:
dVíiðstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Reykjavík, 12. ágúst 1933.
Ut af brjefi vðar, herra forsæt-
'isráðherra, dags. 8. þ. m., vill Mið-
--stjórn Sjálfstæðisflokksins taka
’þetta fram:
Alitsgjörð herra liæstarjettar-
-dómara, Einars Arnórssonar, um
rgildistöku stj órnarskrárbreytinga,
sjáum vjer eigi ástæðu til að ræða.
Vjer höfum aldrei látið neitt álit
-i ljósi um þá hlið málsins, enda
■skiftir hún engn máli, þar eð
væutanlegt aukaþing að sjálfsögðu
■gæti breytt lögum nr. 11 frá 1877,
*og það er algjörlega tvímælalaust
að slík breyting næði þá til gildis-
töku stjórnarskrárfrumvarps þess
<er síðasta Alþingi samþykti.
Vjer mótmælum því, að sumar-
þing og haustkosningar brjóti í
bág við það samkomulag er gjÖrt
var á síðasta Alþingi um af-
•greiðslu stjórnarskrármálsins og
•staðhæfum. að á þetta hafi alls
•ekki verið minst í þeim samniijg-
Tum. —
Dráttur sá sem orðinn er á því
.að uppfylla óskir vorar um að
kveðja saman aukaþing, og and-
-staða hinna þingflokkanna gegn
haustkosningum, veldur því, að
enda þótt þing verði bráðlega
kvatt saman, mun sjálfsagt von-
lítið um, að það afgreiði stjórn-
arskrána svo tímanlega að kosn-
íngar geti farið fram fyrsta vetr-
.ardag, en Bjálfstæðisflokkurinn er
.andvígur kosningum sjðar á árinu,
þar eð með þeim er teflt í tvísýnu
nm kjörsókn til sveita.
En hvað sem þessu líður, þá
höldum vjer fast við þá höfuð-
kröfu, að aukaþing verði kvatt
saman til þess að samþykkja stjórn
.arskrána og setja kosningalög,
enda teljum vjer það ótvíræða
skyldu gagnvart hinum nýju kjós-
•endum og þeim flokkum, sem öðl-
ast rjettarbætur með stjórnar-
skrárbreytmgunni.
Væntum vjer að þjer svarið oss
• skjótt og skýlaust um það, hvort
o’ hvenær þjer eruð reiðubúinn
Aukaþing —
Haustkosningar.
Nokkrum dögum eftir að kosn-
ingarúrslitin voru kunn orðin, á-
kvað Sjálfstæðisflokkurinn að bera
fram þá kröfú, að aukaþing yrði
kvatt saman sem fyrst til þess að
samþykkja stjórnarskrána og
setja ný kosningalög, en að þvi
búnu vrði boðað til nýrra kosn
inga fyrsta vetrardag. Þetta tjáði
flokkurinn forsætisráðherra með
brjefi dags. 26. jiilí.
Eins og menn sjá er hjer
rauninni um tvær ltröfur að ræða.
Hin fyrri, og aðalkrafan, er sú,
að sam]pykt stjórnarskrárinnar og
setning nýrra kosningalaga verði
ekki látin bíða næsta fjárlaga-
þings, heldur verði aukáþing kvatt
saman til þess að afgreiða þessi
mál. Hin krafan er, að aukaþing-
ið verði kvatt tafarlaust saman og
siðan boðað til haustkosninga.
Aðalkrafan styðst við þau rök,
að bæði hinir nýju kjósendur og
þeir stjórnmálaflokkar, sem öðl-
ast rjettarbætur með nýju stjóm-
nrskránni, eiga skýlausa kröfu á
því, að hvorki fjárlög nje nein
öjmur þýðingarmikil löggjöf verði
afgreidd, fyr en Alþingi er orðin
rjett mjmd af þjóðarviljanum, eins
og liann fær notið sín samkvæmt
nýju stjórnarskránni, þ. e. a. s.
eftir að stjórnarskráin er gengin
í gildi og nýjar kosningar hafa
frarn farið.
Hin ltrafan, að þessu verði taf-
arlaust komið í framkvæmd. er
eðlileg afleiðing af aðalkröfunni,
og styðst auk annars við það, að
engin festa kemst á störf þings
nje stjórnar, fyr en að afstöðn-
um kosningum.
Sjálfstæðismenn gerðu ekki ráð
fyrir því, að andstöðuflokkarnir
mundu snúast gegn aðalkröfunni.
En svo fastheldnir eru afturhalds-
mennirnir í allar leifar ranglætis
í þessu mikla lýðræðismáli, að
Framsóknarflokkurinn reis óskift-
ur gegn þessari kröfu. Málum er
nú sámt sem áður svo komið, að
telja verður líldegt að hún hafist
fram, og þykir því eigi ástæða til
að fjölyrða um þá lilið málsins.
Að því er snertir kröfuna um
skjóta framkvæmd rjettlætisins,
er það að segja, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefir aldrei gengið þess
dulinn, að vonlaust var að hafa
f"am haustkösningar, ef báðir and-
stöðuflokkarnir reyndust andvígir
því. Það þótti nú fyrirfram senni-
lcgt, að Framsóknarflokkurinn
mundi berjast gegn því. Sá flokk-
ur er í öngum sínum eftir hrunið
við kosningarnar, gerir sjer tál-
vonir um að geta stöðvað flóttann,
til að ltveðja aukaþing saman.
TJndir svari yðar er það komið,
hvort vjer sjáum oss fært að styðja
stjórn yðar, og þá með hverjum
skilvrðum.
Virðingarfylst.
F. h. Miðstjórnar Sjálfstæðis-
flokksins.
Ólafur Thors,
varaformaður.
Til forsætisráðherra
Ásgeirs Ásgeirssonar.
ef kosningar dragast, og er því
andvígur liaustkosningum.
En um jafnaðarmenn gegnir alt
öðru máli. Það er að vísu vitað,
að þeir fylgja alt af Framsókn,
þegar þeir þora það fyrir kjós
encTum sínum, en aídrei Sjálfstæð-
ismönnum, nema þegar þeir þora
ekki annað. Og það er líka vitað
að sumir þeirra telja sjer víst fall
við næstu kosningar, og vilja því
fresta því sem lengst, sem fram á
sð koma. En samt sem áður þótti
líklegt, að Sjálfstæðismenn gætu
kmið þá til fylgis við kosningar
fyrsta vetrardag, í stað þess að
fresta kosningum til næsta sum
ars. Jafnaðarmenn hafa nefnilega
í mörg ár krafist þess, að allar
kosningar sjeu látnar fram fara
einmitt þennan dag ársins, en mót-
niælt vor- og sumarkosningu. —
Þeir hafa ennfremur látist bera
fyrir brjósti þær rjettarbætur,
sem stjórnarskrárbreytingin færir,
annarsvegar þeirra eigin flokki og
Sjálfstæðisflokknuni, og hinsvegar
æskulýð landsins. Og loks hafa
jafnaðarmenn látist vera í and-
stöðu við stjórn Asgeirs Ásgeirs-
sonar.
.s’S’
Að seinka kosningunum til næsta
sumars, er sama og afsala þeim
kosningardeginum, *sem jafnaðar-
menn helst kjósa sjer, og ganga
inn á að fresta framkvæmd á rjett-
arbótum stjórnarskrárinnar og
lýsa trausti á samsteypustjórninni,
)ví að það varð a. m. k. að telja
íklegt, að stjórnin sæti lengur
með því að fresta kosninguin.
Það er nú fullvíst, að ekkert af
tessu út af fyrir sig vilja jafnað-
armenn, en á því þótti samt ekki
mikið byggjandi. —r Hinu treystu
Sjálfstæðismenn, að jafnaðarmenn
þyrðu ekki að gerast berir að því
að brjóta öll sín boðorð.
Þetta er nú samt, orðið, og það
sem veldur, er eingöngu það, að
þeir sjá það, sém allir sjá, að
bændur eru á hröðum flótta frá
niðurrifsmanninum mikla, Jónasi
frá Hriflu, en jafnaðarmenn lang-
ar til að reyna að stöðva þann
flótta með -Jónasi.
Jafnaðarmenn hafa að vísu ekki
ojnnberlega lýst sig í andstöðu við
haustkosningar. Þeir völdu þann
kostinn, sem þeim var líkastur, að
leika tveim skjöldum, en gæta
jess, að Sjálfstæðismenn næðu eigi
taki' á þeim til fylgis við haust-
kosningar.
Fyrst drógu þeir í lengstu lög
að láta uppi álit sitt, og birtu.ekki
yfirlýsingu sína fyr en 1. ág., eða
6 dögum síðar en Sjálfstæðismenn.
Eru þó jafnaðarmenn aðeins 5 á
þingi, en Sjálfstæðismenn 20. Og
svo þegar þessi yfirlýsing loksins
kemur, þá er þess vandlega, gætt
að krefjast ekki sumarþings og
ekki haustkosninga, heldur er ein-
göngu farið fram á aukaþing. Al-
)ýðublaðið er svo samtímis látið
benda á, að hægt sje að halda
aukaþing án haustkosninga. Það
er svo ekki fyr en 9. ágúst, að Al-
býðusambandsstjómin þorir að
færa sig clálítið upp á skaftið. Þá
s( gist hún halda fast við kröfunal
nm aukaþing ,,en mótmælir því, >
að dregið verði fram á vetur að
kalla aukaþingið saman“. Þetta
er ákaflega hjákátlegt, og satt að
segja furðulegt, að flokkurinn
skuli láta hafa sig til slíks skrípa-
leiks, og þá ekki heldur velja
þann kostinn, að koma til dyr-
anna eins og hann er klæddur.
Það er hvort eð er alveg óhugs-
andi, að nokkrum skynbærum
manni skjótist yfir sannleikann.
Það er svo áberandi, að í yfirlýs-
ingu Alþýðusambandsstjómarinn-
ar 1. ágúst, meðan enn var tími
til stefnu, þá er sumarþing og
haustkosning ekki nefnt á nafn. Og
9. ágúst, þegar líkurnar fyrir
haustkosningum eru að minka, þá
er álitið óhætt að ganga dálítið
lengra. Þess er þó enn vandlega
gætt, að ánetjast ekki hjá Sjálf-
stæðismönnum á haustkosninguna,
og því er sumarþing enn ekki
nefnt, heldur er vetrarþingi mót-
mælt.
Næsta sporið er svo stigið nú,
þegar alveg er að verða vonlaust
um haustkosningar, og þá er loks
nefnt sumarþing, en þó ekki af
þeim, sem völdin hafa, sambands-
stjórninni, heldur er Alþýðublað-
ið, sem daglega er látið skifta um
skoðun í málinu, látið nefna þetta
hættulega orð.
Þegar þessum svikráðum jafn-
aðarmanna er bætt við opna and-
stöðu Framsóknar, þá er vitan-
lcga vonlaust um haustkosningar,
því að jafnvel þótt knýja mætti
fram sumarþing, er auðvitað ekk-
ert hægara fyrir þennan þing-
meirililuta en að tefja þingið svo
að ekki verði liægt að láta kjósa'
fyrsta vetrardag, en vetrarkosn-
ingar getur Sjálfstæðisflokkurinn
ekki gengið inn á, þar eð með
þeim gæti verið teflt í tvísýnu um
kjörsókn til sveita víða á landinu.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir eigi
fengið uppfyltar allar sínar óskir
í þessu máli. En höfuðkröfu sína,
aukaþingskrctuna, kný :• ílqkkur-
iii-! •. æ'i’.'mb ga fram.
Að því biinu liggur fyrir flokltn-
um að taka ákvörðun um aðstöðu
til ríkisstjórnarinnar, hvort floklt-
urinn telur það þingræðislega af-
eiðingu af úrslitum kosninganna,
að skift verði um ríkisstjóm, t. d.
með því að Sjálfstæðisflokkurinn
freistaði að mynda stjórn, eða
hvort og þá hvaða þátttöku hann
óskar að eiga í samsteypustjórn,
því vitaskuld er það alveg eðlileg
afleiðing af sigri Sjálfstæðis-
manna, að þeir krefjist styrktrar
aðstöðu í ríkisstjórninni, ef þeir
telja sjer liag í því.
Beri flokkurinn á annað borð
fram þá kröfu, og fáist henni ekki
fullnægt, þá verður að teljast
sjálfsagt, að fulltrúi .flokksins
hverfi úr ríkisstjórninni, og sam-
vinnunni verði slitið.
Ólafur Thors.
Hæsti maður í heimi heitir van
Albert, og er Hollendingur. Hann
er 264 sentimetrar á hæð. Hann
ferðast um og sýnir sig. Mágur
lians er í fylgd með honum. Hann
er nákvæmlega 2 metrum lægri,
eða 64 sentimetrar.
Heimatrúboð leikmanna, Vatns-
stíg 3. Samkomur í dag.. Bæna-
samkoma kl. 10 árd. Almenn sam-
koma kl. 8 síðd. Allir velkomnir.
Ríkiserfinginn
á ísafirði.
ísland kom til ísafjarðar kl. 9
í gærmorgun.
Sig. Eg-gerz bæjarfógeti og sett-
ur bæjarstjóri Eiríkúr Eiríkseon
konm fram á bryggju til þess að
taka á móti ríkiserfingja. Múgur
og margmenni var á bryggjunni.
Að vörmu spori kom ríkiserfingi1
heim til bæjarfógeta ásamt fylgd-
arliði sínu.
Ríkiserfingi bauð bæjarfógeta og
frú hans og settum bæjarstjóra til
árdegisverðar vxti í skipi,
Að því búnu bauð bæjarstjórn
Tsafjarðar ríkiserfingja og gestum
bans í bílferð inn í Tunguskóg.
Veitingar þar voru: aðalbláber og
rjómi. Veður var gott, og bílferðin
hin ánægjulegasta.
Að lokinni förinni í Tunguskóg
var ríkiserfingi gestur bæjarfó-
geta, áður en hann steig á skips-
fjöl.
Island fór frá í>afirði kl. 7, á-
leiðis til Siglufjarðar.
Balbo-leiðangurinn
kominn heim.
Lissabon, 12. ágúst.
United Press. FB.
Fyrstu þrjár flugvjelarnar úr
ítalska flugvjelaflotanum lögðu af
stað hjeðan í morgun áleiðis til
Ostia í ítalíu kl. 6.10 árd. FTug-
vjel Balbos lagði fyrst af stað.
Seinasti flokkur ilotans lagði
af stað kl. 6.40 árd.
Rómaborg, 12. ág.
Balbo lenti kl. 6.35 e. h. í Ostia.
Lending flugvjelanna gekk ágæt-
lega- Feikna mannfjöldi var við-
staddur komu flugmannanna og
var þar fremstur í flokki Musso-
lini sjálfur. Faðmaði hann Balbo
að sjer af miklum ínnileik. Dundu
fagnaðarópin hvarvetna um leið
og blásið var í eimpípur allra
skipa í höfninni og skotið af fjölda
fallbvssa.
Lindberghshjónin
koma til Reykjavíkur.
r gær kl. 3,45 lögðu Lingbergbs-
hjónin af stað frá Juliaueliaab
áleiðis til Angmagsalik.
Til Angmagsalik komu þau e±t-
ir fjögra stunda flug.
Einkaskeyti bar>t Morgunblað-
inu frá Lonclon í gærkvöldi, þar
sem frá því er sagt. að Lindberghs-
hjónin muni ætla að fljúga frá
Angmagsalik hingað til Reykja-
víkur.
Hvalskurðurinn
f Úlafsfirði.
Að norðan var blaðinu símað í
gær:
Lokið er nú við að skera alla
hvalina í Olafsfirði og færa í bií
manná þessa miklu matbjörg.
Talið er, að hvalirnir hafi alls
verið rjett um 400.
Öll var torfan rekin inn á ós-
brekkusand.
En fæstir voru hvalirnir skomir
]iar, heldur voru þeir með flóði