Morgunblaðið - 27.08.1933, Side 3

Morgunblaðið - 27.08.1933, Side 3
MORGUNFLAÐIÐ JRorgttnWaM^ Útgref.: H.f. Árvakur, Reykjavtk. Ritatjðrar: Jðn KJartanaaon. Valtýr Stefánaaon. RitstJðrn ogr afgreiOela: Austurstræti 8. — Siral 1600. Auglýslngastjðrl: E. Hafberg. AuKlýslneaakrlf stof a: Austurstræti 17. — Siml 3700. Helmaslraar: Jön Kjartansson nr. 3742. Valtýr Stefánsson nr. 4220. Árni Óla nr. 3045. E. Hafberg nr. 3770. ÁakriftagrJald: Innanlanda kr. 1.00 & mánutll. Utanlands kr. S.50 A raánuOL I lausasölu 10 aura elntaklO. 20 aura með Leabök. Tímamót. íslenska þjóðin stendur nú á merkileg'um tímamótum, stjórn- málalega. ■ Rjettarbætur stj órnarskrárinnar verða lögfestar á aukaþinginu á komanda hausti. Með þeim ger- hreytist viðhorf stjórnmálanna. Á þessum tímamótum er sjer- staklega ánægjulegt fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að líta yfir farinn veg og sjá hvernig þjóðin hefir' fyigt sjer um stefnumál flokksins, þrátt fyrir harðsmma andstöðu stjettaflokkanna til beggja handa. Stjórnarskrármálið er mál Sjálf- stæðisflokksins fyrst og fr^mst. — Ungu kjósendúrnir mega þakka honum, að mi, er skamt að bíða: þess að þeir öðlist mannrjettindi til jafns við aðra þegna landsins. Sigrarnir í þessu máli eru ein- göngu að þakka einbeittni og festu Sjálfstæðismanna. Stjórnarskráin nýja veitir einn- ig flokkunum nokkra tryggingu fyrir því, að þeirra rjettur verði •eigi fyrir borð borinn á Alþingi. Stjórnarskráin viðurkenúir þá al- gildu lýðræðiskröfu, að flokkunum heri þingsæti í samræmi við fylgi þeirra hjá þjóðinni. Þessi rjettarbót hefir slegið ó- hug á andstöðuflokka Sjálfstæð- isflokksins. Þeir þykjast sjá fram á, að skamt verði að bíða þess að Sjálfstæðisflokkurinn fái lireinan meirihluta á Alþingi, þar sem flokknum fylgi nú þegar nál. helm- ingur allra kjósenda á landinu- Þeir óttast, að ungu kjósendurnir imuni tryggja Sjálfstæðisflokknum öruggan og varanlegan meiri- liluta hjá þjóðinni og Alþingi. Þetta liugboð audstæðinga Sjálf- stæðisflokksins hefir orðið til þess, að nú hafa þeir tengst nýjum vin- áttuböndum og hyggja á samvinnu í framtíðinni. Eina sameiginlegt á- hugamál beggja er, að sporna við •vexti Sjálfstæðisflokksins. Alt ann að er fyrir ]>eim einskisvirði. Sjálfstæðísflokkurinn mun ekki harma það að svona er komið. Honum er það ljóst, að fyr eða sið- ar hlýtur þjóðin að kenna Fram- 'sðknarflökknum að viðurkenna þann sanhleika, að hann hefir að- eins um tvent að velja: Annað hvort að játast lireinlega stjórn- málastefiru sósíalista og lifa eftir hennf í orði og verki, ellegar að ■snúast gegn henni. Þess vegna gengur Sjálfstæðis- flokkurinn ótrauður til baráttu, öruggur um fullnaðarsigur að lok- sim. Skatt, eru Þjóðverjar að hugsa um að leggja á konur þær, sem ekki eignast börn.. Haustþing - Vetrarþing. Aukaþingið í haust. Loksins — eftir mánaðar karp fram og aftur — fekkst fullnægt þeirri liöfuðkröfu Sjálfstæðis- f'lokksins, að kveðja saman aulta- þing til þess að afgreiða stjórnar- skrána og setja ný kosningalög. Forsætisráðherra hefir fallist á að aukaþing verði kvatt saman 1. nóv. næstkomandi, en nýjar kosn- ingar fari fram að vori. Af þessu leiðir, að fresta verður næsta1 reglulega Alþingi (fjárlagaþingi) þar til eftir kosningarnar. Forsætisráðherra tekur það beint fram í brjefi til flokkanna/ frá 22. þ. m-, að á aukaþinginu í haust eigi að samþykkja stjórnar- skrána, setja ný kosningalög og breyta þeim öðrum lögum, sem leiða af stjórnarskrárbreyting- unni (þingsköp o. fl.) Önnur verk- efni eiga ekbi að liggja fyrir auka- þinginu. Með þessu liefir forsætisráð- berra algerlega fallist á þá liöf- uðkröfu Sjálfstæðisflokksins, að stjórnarskrána beri að samþykkja 8 aukaþingi, svo nýjár kosningar geti farið fram áður en næsta fjár- lagaþing kemur saman. Þetta var höfuðkrafa Sjálfstæð- isflokksins frá upphafi. Og kraf- an var fram borin vegna hinna mörgu nýju kjósenda, sem stjórn- arsltráin veitir kosningarrjett. Þeirra rjettur hefði verið fyrir borð borinn, ef ekki hefði verið kosið áður en fjárlagaþing kemur saman. Svikráð sósíalista. En jafnframt því sem Sjálf- stæðisflokkurimi bar fram kröfu um afgreiðslu stjórnarskrármáls- ins á aukaþingi, bar hann einnig fram ósk um það, að aukaþinginu yrði sem mest hraðað, svo að nýj- ar. kosningar gætu farið fram á komanda hausti. Með því hefði Al- þingi fyr orðið rjettari mynd af þjóðarviljanum, því að stjórnar- skráin nýja ætlast til þess, að þingflokkar fái þingsæti í sam- ræmi við kjósendafylgi. Þessi ósk Sjálfstæðisflokksins. var því fylli- lega rjettmæt og í anda lýðræðis- ins- — En andstæðingar Sjálfstæðis- flokksins voru ekki á því að flýta fyrir rjettlætismálunum. Fram- sóknarflokkurinn snerist frá önd- verðu gegn aukaþingi. Hann vildi lengst af vera trúr ranglætinu. Þó liefði aukaþing í sumar og haustkosningar hafst í gegn ef sósíalistar hefðu verið trúir sín- um m álstað. En þeir sátu á svik- ráðum við rjettlætismálin. Þeir gerðu leynimakk við Hrifluliðið í Framsókn um nýja stjórnarmynd- un gegn því að falla frá öllum kröfum um aukaþing. Burgeisar sósíalista gleymdu skyndilega rjett lætismálunum þegar þeir fundu lvktina af kjötkötlum hins kom- anda Hrifluvalds. Ungu kjósend- urnir minnast þessa áreiðanlega við næstu kosningar. Þeir minnast þess einnig, að Sjálfstæðisflokkur- inn er eini flokkurinn sem hefir barist fyrir þeirra málstað. Fjárlagaþing aó hausti. Þar sem ákveðið ei- að nýjar kosningar fari eklci fram fyr en að vori, verður að setja lög á aukaþinginu í haust um að reglu- legt Alþingi (fjárlagaþingið) komi eigi saman fyr en síðari hluta næsta árs, eftir kosningarnar. Samkomudagur reglulegs þings er í stjórnarskránni ákveðinn 15. febrúar. Þessu má þó breyta með einföldum lögum, og þessu verður að breyta að því er snertir næsta þing. Hins vegar hefir ekkert ver- ið um það talað hvenær fjárlaga- þingið komi saman á næsta ári. Er þar um tvent að velja: sumar- þing eða haustþing. Sennilega verða þeir fleiri sem aðhyllast haustþing fremur en sumarþing. En þar sem nú rekur að því, að breyta verður um samkomudag reglulegs þings, er þá úr vegi að athuga hvort ekki væri rjett að breyta til — ekki aðeins fyrir þetta eina þing — heldur til frarn- búðarj Oft hafa raddir heyrst um það, að ólieppilegt sje að láta fjárlaga- þing koma saman í ársbyi'jun. Hitt mundi heppilegra, að Alþingi kæmi saman seinni hluta árs. — Þessar raddir eiga fylsta rjett á að vera heju’ðar. Fjármálin eru að jafnaði lang- stærstu og veigamestu málin, sem r eglulegt Alþingi fær til meðferð- ar. Hvert reglulegt þing afgreiðir fjárlög fyrir næsta ár. Það liggur í augum uppi, að miklir og margvíslegir erfiðleikar eru á því fyrir ríkisstjórnina, að semja fjárlög fullu ári áðnr en þau eiga að koma til framkvæmda. En svona verður þetta að vera nú. Fjárlög eru venjulega samin í okt, eða nóvembermánuði og lögð fyrir þingið í febrúar- Og þó að þingið hafi nokkuð betri aðstöðu en stjórnin sem samdi fjárlögin — því að venjulega situr þingið fram í apríl — maímánuð, þá hefir venjan orðið sú, að grundvöllur sá, sem stjórnin sjálf hefir lagt ræður mestu um það, livaða af- greiðslu fjárlögin fá að lokum. Illa undirbúin fjárlög fá sjaldan mikla bót á Alþingi. Ef reglulegt Alþingi kæmi hins vegar saman seinnihluta árs — segjum 1. október — þá horfðí mál þetta alt öðru vísi við. Ríkis- stjórnin hefði þá á takteinum á- byggilegt yfirlit yfir ríkisbúskap- inn á árinu, og því miklu auðveld- ara að gera áætlanir fyrir kom- anda ár. Vildu ekki stjórnmálaflokkarnir athuga í bróðerni hvort ekki væri rjett að breyta nú til og flytja samkomudag reglulegs þings fram á haustið? Slík breyting yrði á- reiðanlega til góðs. Og nú er ein- mitt' ágætt tækifæri til að gera þessa breytingu, þar sem flytja verður næsta reglulegt þing. G-emlur. Gamall bóndi í nánd við Madras, sem er 100 ára að aldri, er, eftir því sem hann sjálf- ur segir, nýfarinn að taka tennur í þriðja sinn. Kossaflens. C. Engelbreth lækn- ir, er skrifað hefir bók um herkla veilci, lieldur því fram, að veikin útbreiðist mikið vegna þess, að fólk er með sífelt kossaflens. Haustvörurnar koma nú með hverri ferð. Nú síðast fengum við: T* Vetrarkápur - Kápuefni - Astrakan í mörg- um litum — Kjólaefni ullar og silki — Flauel f]. litir — Nærfatasilki marg. gerðir — Peysu- fatasvuntuefni, og mikið úrval af ýmsum Bómullarvörum svo sem: Nærfata- og Náttfataefnum — Morgunkjóla- efnum — Sirtsum — Ljereftum — Tvistauum — Handklæðum og Handklæðadregluim — Gardínutauum, fjölbr. úrval, og fjöldamörg- um öðrum vörum. Flug Lindbergh’s. Þau hjónin flugu í gær til Hafnar.- Leirvík 26. ágúst, United Press. FB. ; Lindberghs hjónin lögðu af stað þjeðan áleiðis til Kaupmannahafn- ar kl. 12.55 í dag. Yfirvöldin voru viðstödd brottför þeirra og óskuðu þeim góðs gengis, en Lindhergli varð fyrir svörum og þakkaði hlýjar viðtökur þar í eyjunum. Khöfn 26. ágúst. United Press. PB. Liudbergh-hjónin lentu hjer á höfninni kl. 5.10 síðd. Áður en þau lentu flugu þau tvívegis i hring yfir höfninni og lentu skamt frá víginu við innsiglinguna. — Meðal þeirra, sem buðu þau hjón- in velkomin voru fulltrúar ríkis og borgar, sendiherra Bandaríkj- anna o. fl. Áhorfendur voru fjölda marg'ir, hæði við höfnina, og’ á öllum gangstjettum þeirra gatna,. sem ekið var um með þau hjónin, að ráðhúsinu, en þar fór hin opin- bera móttaka fram. Þar flutti borgarstjórinn ræðu- Mannfjöld- inn fyrir utan ráðhúsið hylti Lind bergli og- konu lians ákaft. Blöðin í Kaupmannahöfn eru skrautprentuð og með fjölda mynda í tilefni af komunni. Hveitiverð hækkar. London, 25- ágúst. United Press. P'B. Helstn lönd, sem flytja út hveiti og inn hafa gert með sjer sam- komulag, til þess að hækka verð- lag á hveiti og gera. það stöðugra og gera liveitiræktina arðberandi. Samkomulag þetta er gert að und- angengnm þriggja ára samkomu- iagstilraunum, sem aðallega hafa fram farið í Rómaborg, Genf og London. Er þetta í fyrsta skifti svo sögur fara af, að alþjóðasam- komulag næst um takmörknn hveitiframleiðslu og skipulagningu hveitiútflutnings. Frá Horegi. Oslo 26. ágúst. FB. Flugslys, Hræðilegt flugslys varð í dag nálægt Horten. Ein af flugvjeluni hersins hrapaði niður í nánd við flugbátastöðina. Flugmennirnir, Jon Edvardsen og Hjelmar Rö- saak, hlutu svo mikil meiðsl, að þeir Ijetust báðir skömmu eftir að þeir höfðn verið flnttir á sjúkrahús. Hinn fyrnefndi var 25 ára; liinn síðarnefndi stóð á þrít- ugu. Nefnd hefir verið skipnð til jþess að rannsaka orsakir flugslyss ins. Drengur stórþjófur. Stórþingssendill nokkur, hefir fundist sekur um að hafa stolið 25.(XK) krónum af ferðapeningum þingmanna, sem hann var sendnr eftir í fjármálaráðuneytið- Sendl- inum hefir verið vikið frá starf- inu, en forsetar þingsins kyáða, hafa ákveðið að liöfða ekki mál gegn honum, vegna heilsufars' hans. Sendillinn hefir veikst and- lega og liggur illa haldinn á sjúkrahúsi. Hjónavígsla. Ungur prestur í Ameríku gaf foreldra sína saman nýlega. Þau höfðu verið skilin í mörg ár. Presturinn hjelt vfir þeim hjartnæma vandlætingar- ræðu. Blástakkarnir írsku fara kröfugöngu í dag. Dublin, 26. ágúst. United Press. FB. O’Duffy hefir tilkynt í Fermoyr, er liann kom þar- við, að hann ætli sjer að efna til kröfugöngn í Bealnablath á sunnudaginn, þrátt'; fyiir bann ríkisstjórnarinnar. Fjármálaráðherra U. S. A. segir ekki af sjer. United Press. FB. Hyde Park, 26. ágúst. Að afloknum fundi méð Roose- velt forseta hefir Woodin fjáT- málaráðherra tilkynt, að hann ætli ekki að segja af sjer. Mrs. Roosevelt, kona Banda- ríkjaforsetans, hefir nýlega tekið að sjer ritst.jórn á tímariti einu. Upplagið er tvær miljónir. Hámark kvennahylli er það tal- ið, sem Dolfuss liinn austurríski nýtur, þareð kvenfólkið hefir mynd hans á varasmyrsla-stöngum sínum. Morgnnblaðið er 6 síður í og Lesbók. dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.