Morgunblaðið - 26.09.1933, Síða 5
Þriðjudaginn 26. september 1933
5
„Úrslii".
Fyrir nokkrum dögum rak jeg
augun í forystugrein í 40. tbl.
..Tímans“ þ. á, undir fyrirsögninni
„Urslit“, sem vakti sjerlega at-
liygli mína. Greinarhöf. er hjer
að leitast við að gera grein fyrir
því, hvernig standi á kosningaó-
sigri Framsóknarflokksins við síð-
ustu Alþingiskosningar. Röksemda
leiðslan er í höfuðatriðum þessi:
..Kosningaósigur Framsóbnar er
áfellisdómur á „íhaldsmenn“. —
llialdsmennii'nir komust yfirleitt
að vegna þess að margir Fram-
sóknarmenn sátu lieima vegna óá-
nægju með samstarfstilraunina við
íhaldið undanfarið. Fyrir að hafa
gert þessa samstarfstilraun við
íhaldið hefir Framsóknarflokkur-
ii'.n fengið lægri atkvæðatölu en
áður. Bn þetta er aftur á móti
fyllilega vottur þess, að kjósendur
Framsóknarflokksins sliilja það að
ílialdið er höfuðandstæðingur
flokksins. Vitanlega gátu menn
sýnt þann skilning með öðru en
að sitja heim og margir hafa gert
það“.
Það þarf ekki uein sjerstök
gáfualjós til að sjá að þessi rök-
seindafærsla er talsvert gölluð. Að
kjósendur taki alt í einu upp á því
við kosningar, að sýna ýmigust sinn
á andstæðingaflokki með því að
kjósa fulltrúa hans eða með því að
láta vera að kjósa sína eigin full-
trúa. Ja, það væri að minsta kosti
mjög nýstárlegt þjóðráð, sem. ef
það yrði alment tekið upp, myiidi
að sjálfsögðu breyta allnxjög bar-
dagaaðferðum í stjórnmálum. •—
Og það væri í rauninni alveg frá
munalega kynlegt ef fylgismenn
Framsóknar hefðu tekið upp þetta
fágæta hernaðarbragð, eins og á
stóð einmitt við síðustu kosnignar,
til þess að klekkja á Sjálfstæðinu,
Iíins og kunnugt er stafar undan-
farið 1 samstarf Framsóknar og
Sjálfstæðis eingöngu af því að
Framsókn hafði aldrei náð meiri
hluta í báðum deildum þingsins.
Þeim af flokksmönnum Framsókn-
ar, sem álitu þetta samstarf flokk-
anna ófarnaðarefni, og treystu
forráðamönnum flokksins til að
í'ara einum með völd, hlaut því
að vera alveg sjerstaklega um-
hugað um það. að Framsókn næði
við síðustu kosningar alveg hrein-
um meiri hluta í báðum deildum.
— En því markmiði varð síst
at' öllu náð með því að sit.ja
heima við kosningarnar, eða með
því að kjósa Sjálfstæðið. — Það
ei' sem snöggvast br'egði fyrir
skilningsneista á þessu. hjá áminst
um greinarhöf.. er liann segir:
..Vitanlega gátu inenn sýnt þann
skilning („að íhaldið er höfuð-
andstæðingur flokksins og vel-
ferðarmála alls almennings“) með
öðru en að sitja heima og margir
hafa gert það“. —
— Þó það!
Með því að jeg tel nokkru máli
skifta, að almenningur sje ekki
með blekkingum leiddur frá rjett-
«m skilningi á þeim efnum, sem
hjer er um að ræða, vil jeg leyfa
mjer að gera nokkra grein fyrii'
þeim raunverulegu á.stæðum til
kosningaósigurs Framsóknarflokks
ins við síðustu kosningar. •— Er
mje'r þeim mun auðveldara og ljúf-
ara að gera þetta sem svo stendur
á, að jeg er einn þeirra manna,
sem liafa talist til floltksins und-
anfarin ár, en eru nú liættir að
veita honum fylgi-
Tvent er nauðsynlegt stjórn-
málamönnum til að vinna og halda
fylgi almennings. Er annað það að
letra á skjöld sinn lieillavænlega
stefnuskrá, en hitt, og öllu þýð-
ingarmeira, að fylgja stefnu-
skránni. Fögur loforð og fyrir-
ferðarmiklar áætlanir geta að vísu
gefið byr í seglin um stundarsakir.
En sá byr dvínar skjótt, er reynsl-
an liefir sýnt, að áætlanirnar voru
ekki lialdnar og hin fögru fyrir-
heit ekki annað en orðin tóm.
Fáir munu neita, að stefnuskrá
Framsóknarflokksins sje næsta á-
sjáleg: Barátta fyrir efnahagslegu
og andlegu sjálfsrtæðj bændanna,
barátta gegn ógætilegri meðferð á
opinberu fje, barátta fyrir velsæmi
í rjettarfarsmálum, baráttu gfgn
bitlingum og annarskonar áleitni
síngjarnra einstaklinga við al-
menningsfje o. s. frv. — Hvílíkur
blindingur mætti sá maður vera
sem gæti annað en lokið lofsorði á
svona stefnuskrá. Og livílíkir þjóð-
níðingar þeir, sem sneri baki við
þeim mönnum, er í alvöru berðust
fyrir slíltri stefnuskrá.
Foringjar Framsóknarflokksins
hafa nú um samfe.lt sex ára skeið
haft svo að segja ótakmarkað
tækifæri til að gera stefnuskrá
flokksins að veruleika. Það voru
kjósendurnir, sem höfðu gefið
þeim þetta tækifæri og í þessu
skýni. — Og það er áreiðanlegt
að fjöldi Jieirra kjósenda stóð
ekki á sama um það hvort stefnu-
skránni ýrði fylgt eða ekki. —
Það var því ekki nema eðlilegt,
þótt þeir skynsamari meðal fylgj-
enda flokksins, í stað þess að ganga
i bugsunarleysi upp að kjörborð-
inu nú í sumar, dokuðu lítið eit.t
við og legðu fyrir sig eftirfarandi
spumingar:
IlVer ei’ hann nú orðinn árang'-
urinn af sex ára stjórn þessara
foringja okkar og hvað líður hin-
um fögru fyrirheitum V
Hefii- íslenskum bændum miðað
drjúgum í áttina tíl efnahagslegs
sjálfstæðis?
Iíefir meðferÖ á opinberu fje,
þetta árabil, verið venju fremur
gætileg'?
Hefir velsæmið i rjettarfarsmél-
uiium verið í allra ákjósanlegasta
lagíf
'Hefjr óbeit á bitlingum sjerstak-
lega einkent valdaferil þessará
leiðtoga ?
— Myndu það ekki vera hin
dapurlegu svör við þessum og
fleiri samskonar spurningum, sem
urðu þess valdandi, við síðustu'
kosningar, að svo margir garnlir
Fi'amsóknarmenn kusu Sjálfstæðið
eða sátu heima?
Biðlund hefir löngum verið talin
meðal eðliskosta og það mjög að
makleikum. En það er eins um
liana og fleira, sem ])ó er í sjálfu
sjer gott og blessað, að nokkurt
hóf verður löngum affarasælast. A
þetta einkum við í þeim efnum.
sem hjer er um að ræða. Fátt get-
ur orðið skaðlegra gengi þjóðfje-
lagsins en biðlund borgaranna,
þegar hún nær svo langt, að stjórn
artaumarnir geti hvert kjörtíma-
bilið á fætur öðru legið í höndurn
manna, sem vegna vankunnáttu,
eða skorts á ábyrgðartilfinningu,
liafa brugðist mjög áþreifanlega
þeim trúnaði, sem þeim var sýnd-
ur. —
ísleudingar eru mjög þolinmóðir
að eðlisfari, enda hefir æði oft
verið reynt á þolrif þeirra. Það er
sýnilegt að ýmsir stjórnmálaleið-
togar þeirra bæði fyr og síðar,
liafa vitað um þennan eiginleika
og treyst á liann. Því miður hefii'
]iað traust alt of sjaldan brugðist.
Þó er það nú komið á daginn, að
forráðamenn Framsóknarflokksins
liafa horið ofurtrú til kjósenda
sinna í þessu tilliti. — fslenskir
bændui' eru yfirleitt gáfaðir menn,
og þótt biðlund þeirra hafi oft
reynst í frekara lagí, kunna þeir
vel að gera greinarmun á tómum
oi'ðum og orðum, sem eru efnd.
A ferðalagi mínu um landið í
sumar, átti jeg viðræður um stjórn
inál við fjökla manna, sem á und-
anförnum árum liafa talist til
FramsóknarfIokksins. Hjá flestum
þeirra var viðkvæðið hið sama:
Þeir bæru ekki íengur traust til
leiðtoga flokksins, sökum þess
fyrst og freinst, liversu gálauslega
þeir hefðu farið með fje almenn-
ings. Þeim var það fyllilega ljóst,
að hjá svo fátækri ])jóð sem vjer
erum, geýa virkilegar framfarir
því aðeins átt sjer stað að liin tak-
mörkuðu fjárföng sjeu notuð weð
ráðdeild og fyrirhyggju. — Eitt
vakti þó sjer í lagi athygli mína,
en það var að ekki allfáir þessara
manlia höfðu gert sjer virkilega
ljósa grein fyrir ]ieim óviðkunnan-
lega mismun, sem hefir smám
saman verið að skapast, umrætt
valdatímabil, á. efnalegri afkomu
bændástjettarinnar , og ríkisins
annars vegar en liins vegar all-
nargra leiðtoga þeirra flokka, sem
fóru með völdin. — Það var sýni-
legt, að þessi samanburður á efna-
hagsreikningunuin hafði snortið
menn heldur óþægilega. — f því
sambandi varð mönnum meðal ann
ars tíðrætt um það, að kynlegt
væri. ef það væru hagsmunir
bænda, sem krefðust þess áð Land-
búnaðarbankanum væri stjórnað
af þremur bankastjórum, úr því
að ekki væri meira að gera í bank-
anum en svo, að lionum nægðu að
öðru leyti þrír starfsmenn. — 011-
Um kom saman um það, að minsta
kosti, að hvergi annars staðar í
veröldinui myndi vera hægt að
finna jafu-mikla st.jórn á jafn-Iitl-
um banka-
Jeg geri ráð fvrir að ýmsir
þessara bænda. sem jeg átti tal við
í sumar um þessi efni, hafi ekki
veitt Framsókn atkvæði sín við
síðustu kosningar. - Þó svo hafi
verið, er áreiðanlegt að það stafar
ekki af því, að þeir ætli sjer að
bregðast þeim hugsjónum, sem
voru endur fyrir löngu skráðar i
stefnu.sk rá Frainsóknarflokksins.
Þeir liafa einungis snúið baki við
þeim mönnum sem var óverðugum
trúað til að framkvæma þessar
hugsjónir.
Að nokkrum mánuðum liðnum
fara kosningar til Alþingis fram
að nýju. Þær kosningar geta orðið
næsta afdrifa-ríkar fyrir efnahags-
afkomu þjóðarinnar í næstu fram-
tíð. Forsprakkar Framsóknar eru
mj sem óðast að hervæðast til
þeirrar baráttu -sem er í vændum.
Nýkomi
Laukur í pokum — ágæt teguncl.
Armelsínur 176 og 252 stk.
E p 1 i.
Stémi Í2S4.
Fornrítafjelagíð.
Egils sag£ft Sk£ftll£ft>CSírAiiftsssoiftCftr
kostar heft kr. 9.00 — í pappabandi kr. 10.00 og í skiimbandi kr
15.00, kjölur, horn og spjaldpappír fæst sjerstaklega og kostar 3.50.
BðluiTarslu Sigl. Eymondssoaaró
og Bókabúð Austurbæjar BSE Laugaveg 34.
Hvítara Ijereft
á einfaldari hátt
aðeins suða
Nú getið þjer hent eða brent þvot-
tabrettinu, það er óþarft, þjer þurfið
ekki lengur að nudda eða þvæla
ljereftinu. Radion, hið undursam-
lega nýja súrefnis þvottaduft, gerir
ljereftið hvítara á tuttugu mínútum,
en það varð áður, eftir margra tíma
erfiða vinnu. Þjer blandið Radion
með köldu vatni, látið það í þvotta-
pottinn, og fyllið eftir þörf. Leggið
svo ljereftið í og sjóðið í tuttugu
mínútur. Þjer þurfið svo aðeins
að skola þvottinn og þjer munuð
undrast árangurinn.
Súrefnis verkan Radions, þvær jafn-
vel silki, ull og litað efni, ef notað
er kalt vatn. Fáið yður Radion í
næsta þvott.
BLðNSA, — SJÓIA, — SROLA,
— það er alt
M-RAD 2 04 7 A
Þeir vita hvað er í liúfi fyrii- þá,
ef þeir bíða ósigur við þessar
kosningar. í þetta sinn munu þeir
ber.jast af meiri ákafa en nokkru
sinni fyr. — En það er hins vegar
mjög vafasamt, livort hinir lang-
þreyttú liðsmenn flokksins muni
verða mikið snortnir af þeim
ákafa. Það er ólíklegt að þeir fari
að gera sjer mikið ómak, bara til
að hindra það að nokkrar hálaun-
aðar óþarfastöður verði lagðar nið
ur. — Hitt er sennilegra, að nú
fari eins og við síðustu kosningar,
að allmargir þessara manna kjósi
aunað hvort Sjálfstæðið eða sitji
heima.
Pjetur Magnússon
frá Vallanesi.
ATH.
Með því að jeg hefi or'ðið þess
var. að menn kannast ekki við
nýbýlið Jaðar, sem jeg hefi áður
kent mig við, mun jeg eftirleiðis
kenna mig við Vallanes- P. M.
Hið viðurkenda
Barnalýsi
frá
Laugavegs Rpóteki
inniheldur í einu grammi:
2000 A bætiefnaeiningar
1000 D bætiefnaeiningar.
Nú er tíminn til þess að gefa
börnum þetta viðurkenda þorska-
lýsi.
Sjóndepra og sjónskekkja.
ókeypis rannsókn af okkar út-
lærða „Refraktionist“. Viðtals-
tími: Kl. 10—12 og 3—7.
F. A Ttaieie.
Austursti æti 20.