Morgunblaðið - 13.10.1933, Síða 6

Morgunblaðið - 13.10.1933, Síða 6
6 IffOKGTTNBT Af)TÐ er, að gerður sje, við skattaálög- ur, skarpur greinarmunur á há- tekjum og há-launum. Þetta er þó vissulega sitt hvað. Á tímum, sem ógætilegir skattar á hátekjur geta reynst hreinasti voði, getur verið sjálfsagt að leggja mikla skatta á há-iaun. — Það er engin hætta á, að þeir skattar setji neinar hættuelagar stiflur í atvinnulífið. Þeir stuðJa þvert 'á móti að því, að þjóðinni sparist, fjármagn til nytsamra og atvinnubætandi fram- kvæmda, að ógleymdum þeim hag- stæðu áhrifum, sem þeir- hafa á gjaldeyrismál ríkisins. — -Jeg liefi sjerstaka ást$ðu ti] að ætla, að það sje ekki tóm tilviljun, að þessi aðgreining hátekna og h'álauna kemur hvergi fram í hinum „nýja ski]ningi“, sem B- J. segir að nú sje tekinn að ríkja í þessum mál- um. Leiðtogum Framsóknar er á- reiðanlega eklcert kappsmál, að skattur á hálaun sje tekinn sjer og hækkaður til stórra muna. Við það liefi jeg orðið var. við fleira en eitt tækifæri. Hvort, þetta kunni að einhverju leyti að stafa af því, að allmargir þessara manna eru einmitt í hóp þeirra hæst-launuðu, skal látið ósagt. Það er að minsta kosti ekki alveg óhugsandi- — Jeg vil að endingu talca und- ir þá ósk E. J., að nýr skilhingur meðal almennings á stjórnimála- viðhorfum og þörfum þjóðarinnar, eigi eftir að setja svip sinn á næstu Alþingiskosningar. En jeg vona jafnframt, að sá skilningur verði meðal annars fólginn í því, að nú ríði meira á að fá á þing þá menn, sem reynslan hefir sýnt, að hægt er að treysta til varfærinna og viturlegra framkvæmda. held- ur en hina, sem vitað er um, að eru fvrst og fremst menn mikilla orða. .3- október 1933. ‘þMinningarorð. Ólafur Magnússon bóndi í Duf- þekju, sem verður borinn til graf- ar að Stórólfshvoli á moigun, var fæddur í Dalsseli 30. október<1848. Foreldrar hans voru Magnús bóndi Þóroddsson og kona lians Guð- ríður Ólafsdóttir, er bjuggu um langt skeið fyrirmyndarbúi í Dalv seli í Eyjafjallahreppi. Olafur ó]st. þar upp hjá foreldrum sínum, og þegar hann hafði fengið aldur og þroska, þótti hann frábær starfs- maður að hverju sem hann gekk, og að verkhygni og liagsýni þótti hann bera langt af jafnöldrum sínum, svo að það var þá oft sagt um hann, að hann væri frábært búmannsefni; enda sýndi liann það ljóslega, er hann byrjaði sjálfur búskap- Óla’fur giftist vorið 1883 eftirlifandi konu sinni Höllu Þor- steinsdóttur frá Steinmóðarbæ, mestu myndar og mannkosta konu sem reyndist manni sínum sam- hent í dugnaði og allri búsýslu. Þau settu bú í Stóra-Dal undir Eyjafjöllum, og bjuggu þar í sjö ár og efnuðust prýðilega, því að þau vorú samtaka í því að gera garðinn frægan, enda minnast margir gestrisni þeirra og glað- lyndis er böfðu af þeim náin kynni. Vorið 1890 fluttu þau bú- ferlum að hálflendunni Dufþekju í Ilvolhreppi, og bar þar brátt á framtakssemi og umbótastarfsemi iijá hinum nýkomna bónda í sveit- ina. Meðal annara umbóta má nefna, að hann færði út túnið og flutti vörslugarða þess all- mjög um set, því að honum var !»að fyllilega Ijóst, að erfitt yrði að lialda við rniklum vörslugörð- um, ef stunguna þyrfti að sækja langt að, það var hagsýni og bú- 'nyggni er þá jafnan einkendi athafnalíf Ólafs Magnússonar. — Þegar hann hafði svo lokið slíkri útfærslu, sljettaði hann })að og gerði stóra landspildu að gras: gefnum túnauka; slíka aðferð ættu fieiri bændur að hafa, þar sem iíkt er ástatt. Hann bætti svp bújörð sína, að um eitt skeið var það talin ein af best setnu á- búðarjörðunum í þeirri sveit, og f>ótt víðar væri leitað. Olafur Magnú.sson var prýðilega greindur maður, orðheldinn og ráð vandur til orða og verka. Hann ar glaðlyndur og hversdagsprúð- ur maður, tillögugóður og ávalt leiðbeinandi ef menn jeituðu lið- 'innis hans. Hann var fáskiftinn irm hjeraðsmál, og mætti þvf segja um liann, „en bóndi kringum bæ- inn þinn, hjer besta lofið skrifað tendur, og iðnu leiguliðans hend- ur, er lijer var einn með hópinn sinn“. Ólafur var ágætur maður, bæði sem eiginmaður, faðir og einlægur vinur vina sinna. Þau hjónin eignuðust 5 mannvænleg og‘ vinnu söm börn, þau eru: Sigurður bóndi á Krossi. í Austur-Landeyjum, Þorsteinn þóndi í Efri-Vatnahjá- leigu í sömu sveit, Mag-nús bóndi í Dufþekju (sem tók við bústjórn þar, er faðir hans gerðist aldur- hniginn), Guðrún Jónína og Sig- ríður, báðar hjá Magnúsi bróður sínum. Á síðastliðinu voru höfðu þessi lioiðurshjón lifað { fimtíu ár sam- an i farsælu hjónabandi, og þeir ■sem kunnir eru heimili þeirra, Ijúka einróma lofsorði á dagfar og háttprýði eldri og yngri þar, því svo muri og hjer sem víða, að undirstaða undir gott uppelði bamanna sje ástúðleg samvinna á milli foreldra. Um Ólaf Magnússon má segja, að þar hverfi maður til moldar, er var í senn dugandi maður og góður drengur, maður sem var trúr lifsstarfi sínu, og varði vel bví pundi, sem honum var trúað fyrir; maður sem var sómi stjett- ar sinnar. sem allir þeir. er þektu báru virðingu fyrir, enda mun minning hans lengi geymast, ekki einasta í hugum ástvina lians, lieldur og meðal hjeraðsmanna þeirra, sem hafa haft eitthvað saman við liann að sælda. Þýsklr Gyðingar Seita ti! Svíþjóðar. Sænsku stjórninni berast unn- vörpum umsóknir frá þýskum Gyðingum um að mega koma til Svíþióðai', og setjast ]iar að. — Hefir stjómin venjulega gefið þriggja mánaða dvalarleyfi, ef það hefir sannast að viðkomendúr hafa orðið að flýja Þýskaland aðeins vegna þess að þeir voru af Gyð- icgaættum. En þeim, sem hafa viljað koma til Svíþjóðar til þess að stunda þar atvinnu, hefir und- antekningarlítið verið neitað um dvalarleyfi. Þjóðabandalagið sá sjer ekki fært að bæta úr hungurs- neyðinni 1 Ukraine. Á sameiginlegum fundi ráðs Þjóðabandalagsins hinn 30. sept., hóf Movvinekel forsætisráðherra Norðmanna máls á því, hvort fcandalagið mundi ekki geta gert ritthvað til þess að draga úr 'iungursneyðinni í Rússlandi, og þá sjerstaklega í Ukraine. Ut af þessu átti frjettaritari „Matins“ tal við Mowinckel, og kvaðst hann hafa talið það skyldu na að hreyfa þessu máli á fund- inum. „Fyrir mjer. er þetta sam- viskuspursmél, þar sem hjer er ekki um að ræða pólitískt atriði heliTur mannúðarverk, sem á get- ur oltið líf miljóna manna- Jeg veit það að frá lögfræðislegu og pólitísku sjónarmiði er slíkt fyr- irtæki ekkert áhlaupaverk. En hægt væri í allri vinsemd að beina þeirri fyrirspurn til stjórnarinn- ar í Moskva. hvort hún áliti það ekki ákjósanlegt að alþjóða hjálp- arnefnd kæmi til hjeraðanna, þar sem neyðin er stærst“. Parísarblöðin segja að Þjóða- bandalagið hafi ekki sjeð sjer fært að gera neitt í málinu, en bent Mowinckel á að hann skykli suúa sjer til Rauða krossins með þessa málaleitan. . Málverkasýning. Grete Linck-Sclieving og inaður hennar, Gunnlaugur Ó. Scheving, sýna í Oddfellow-húsinu (uppi). T’au liafa bæði gengið í gegnum Danska Akademiet auk þess hefir Gunnlaugur dvalið eitthvað f Osló. Þau búa nú á Seyðisfirði. Gunnlaugur sýnir 18 manna- myndir og' 12 landlagsmyndír. — Þessi sýning ber það með sjer. sem raunar áður var vitað, að hann hefir sjaldgæfa málarahæfi- leika. Það hefir verið frá byrjun eitthvað innihaldsríkt og' tilfinn- inganæmt við vfcrk hans. Þau voru til að byrja með all bundin við Akademiskan stíl, mál- uðu með helst til þunguni og stundum, sótugum litum. En nú or sem hann liafi brent af sjer alt sót og litirnir standa hreinir og d.júpir eftir. Hann virðist, að sumu leyti, vera skyldur norsku málurunum Munch og Karsten, og 'tekið sjer þá til fvrirmyndar. — ..Kona“ í bláum, violettum og svörtum litum, er heilsteypt og prýðilega máluð mynd. Það er almúgakona sem hefir lifað, reynt og sigrað, við það fengið yfir sig eðalró, með eilífðarvissuna í hverj- um drætti. Þessi mynd er mæli- kvarðinn fyrir því sem málarinn sækist eftir, sálrænt, tilfinninga- næmt, ljóðrænt. Þetta er aftur og' aftur viðfangsefni hans, en aldrei eins vel náð og einmitt í þessari mynd, nema ef vera s;kyldi í Konumynd" í gulum og grænum litum- „Veik kona“ sem liggúr í rúmi, andlitið er gljáandi af hita- sóttinni, augun stara inn í blá- svarta skuggann bak við rúmið. Þegar hann hefir verið búinn að fá andlitsfallið og augnatillitið eins og hann liefir vlljað hafa það, hefir hann látið nægja að mála rmh verfið með noklcrum krassandi litum og slitróttum línum, að vísu í’ullnægjandi, en þó ekki hæft langt frá marki. ,Kona að sauma‘ uiídir berum himni, er mjö'g vel gerð, nema ef vera skyldi að litirnir væru nokkuð sunaurrifn- ir. Gunnlaugur hefir þarna einn- ig mjög g-óðar landlagsmyndir, þar sem ,,mótívið“ er hugsað gaumgæfilega og lagt þannig á borðið að hugmyndaflugið hefir mátulegt svigrúm. Hann legst á knje fyrir náttúrunni, ekki til þess að ná því ..Monoinentala", stórslegna, en til þess að hlusta eftir andardrætti liennar, til þess að ná í grunntóninn. Sjávarmvndirnir með fiskibát- unum eru fremur Ijóðrænar ,,stemningar“, en að þær sjeu vold ugar, fremur blíð fjarða „stemn- ing“ en úthaf. Máske liggur i)arna marklínan fyrir því, sem. liann megnar. og hætta er á að hið sálræna, tiIfinninganæma verði einskonar krókaleið til að hlaupa framhjá því stórslegna og erfiða. Enn sem komið er, höfum vjer kki ástæðu til að örvænta, en hinsvegar gleðjast yfir því, sem þegar er fengið. Frú Linck-Scheving sýnír álíka margar myndir og Gunnlaugur. Hún málar í ákveðnum „dekora- tivum“ st.íl. Þar eru andlitsmynd- :r, sem sýna að hún hefir augun opin fyrir því svipmikla og djarfa. Eir.nig eru nokkrar smámyndir, sem benda á að hún hefir. næma tilfinningu fyrir litum. Bestar eru , Stilleben með kött“ ; „Kona með kíkir“ ; „Gata í Kaupmannahöfn" ; og „Hafnarmynd“. Það ei- eitt- livað rfkt og faílegt í þessum myndum, en ekki altaf nógu af- gerandi. Yfirleitt jafn logi, en þess gætt, að ekki logi upp úr. Sýningin í heild er mjög svo athyglisverð. Orri. Doktorspróf í Þýskafandi. Með fyrirsögninni „Nýr íslensk- iii' doktor“ birtist g'rein í Morg- unblaðinu 28. f. m. Þar er skýrt frá því að íslendingur hafi nýlega lokið doktorsprófi í efna- fræði við tekniska háskólann í Dre.sden. Greinarhöfundur virðist þekkja lítil til skóla í Þýskalandi, eða að minsta kosti fara vel með þá þekkingu sína, þar sem hann segir: „Verður að greina skýrt á milli þessara teknisku liáskóla annars- vegar, þar sem doktorsprófin eru !ík því, sem gerist við Norður- landaháskólana. og annara þýskra háskóla (Universitáten), þar sem doktorsprðfin eru í rauninni eklti annað en Jokapróf háskólanna og iiægt er að ljúka ritgerðunum á tiltölulega stuttum tíma“. — Hjer er hallað mjög á hlut iiáskólanna („Universitáten" sem eru algerlega hliðstæðar stofnanir við feknisku háskólana. Leiðir slíkt af sjálfu sjer, þar sem stúdentspróf er inntökuskilyrði við livorutveggja stofnanirnar og námstími álíka. langur. Sumar námsgreinar, þ. á. m. efnafræði, er hægt að nema á báðum skólunum og mup slíkt nám ekki taka minni tíma við Celtex dömubindi er búið til úr dún- mjúku efni. Það er nú nær ein- göngu notað. Eftir notkun má kasta því í vatnssalerni. Baklti með 6 stykkjum kostar 95 aura. Laugavegs Apótek. Ný verðlækkun. Melis 28 aura % kg- Strásykur 23 aura % kg. Kaffipakkinn 95 aura. Rúsínur 80 aura l/z kg. Óbrent kaffi 1.20 !/> kg. Eldspýtnr bnnktið 20 aura. 1/1 fl. Saft 95 aura. Bóndósin 95 aura. tslenskar rófur í pokum á 5.75- 1 kjötdeildinni nýtt dilkakjöt « og allskonar grænmeti. Verslun Sveins iQhannssonar. Rergstaðast.ræti 15. Sími 2091. háskóla en við tekniskan Iiáskóla, eða vera haft í minni metum. -— Hitt' er að vísu rjett, að það er heldur sjaldgæft, að menn taki doktorspTÓf við tekniskan háskóla, nema þá í þeim greiimm, sem kendar eru við háskólana líka, t- d. efnafræði, náttúrufræði o. s. frv. Stafar þetta af því, að þær greinar, sem eingöngu eru kendar við tekniska háskóla, taka Iengri tima en hinar, og er því algengt að menn verji 1—2 árum eftir skyl'duprðf í hinum fyrnefpdu greinum til að taka doktorspróf. Doktorspróf í efnafræði í Þýskalandi er því hversdagslegur hlutm og stafar }>að annað livort af misskilningi greinarhöfundar, eða Töng'un hans til að gera úr hófi fram mikið úr hinum nýja doktor, sem er alls hróss mak- legur, að hann víkur sannleik- anuffi svo mjög við í þessu efni. Að hinu hefir hann sennilega ekki gætt, að hann g-erði hinum unga, efnilega og' yfirlætislausa vísindamanni lítiun greiða með því að gorta. svo mjög fyrir hans hönd, því að hinn nýi doktor hefir víst tæplega kært sig um að lítið væri gert úr kollegum hans og skólahræðrum. Dr. X. Yerslunarjöfnuður Breta. London, 12. okt. United Press. FB Innflutningur í september nam 57.772.000 stpd., en í ágúst 56.754.- 000 stpd. 1 septembermán. í fyrra i var innflutningurinn 54.272.000 jstpd. Útflutningur í sept. að með- töldum endurútflutningi 35.630.000 stpd., en í ágúst 35.297.000 og í september í fyrra 29.131.000.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.