Morgunblaðið - 05.11.1933, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.11.1933, Blaðsíða 6
M0 R GUNBLAÐIÐ Viðskifli lí»IeH£'4Íkll, 3óh *i»a t>. lósefsson a þm, segir frá ennd ekastörfum sínum í Þýska andi. Eins og kunnugt er, fór Jó- hann Þ. Jósefsson til Þýska- lands í sumar í þeim erindum, að hafa þar viðræður við stjóm- arvöldin, fyrir hönd ísl. stjórn- arinnar um viðskifti Þjóðverja og íslendinga. Hann kom heim úr þessari ferð sinni daginn fyr- ir þingsetningu. I gær hafði Morgunblaðið tal af honum og spurði hann frj etta af ferð hans og erindagerðum. — Á þessu stigi málsins, segi jeg fátt eitt, sagði Jóhann. Málaleitanir þær, sem jeg tók upp við þýsku stjórnina, standa yfir enn, og er því ekkert hægt að láta uppi um þær opinber- lega. Innflutningsleyfið frá 1931. Fisk má selja fyrir 700.000 mörk á ári. Forsaga málsins er í fám orðum þessi, segir Jóhann: Það var ekki nema stöku sinnum hjer á árum áður, sem togarar seldu afla sinn í Þýskalandi, þangað til árið 1931. Þá fór Þýskalandssalan mjög í vöxt. En seint á árinu gerðu Þjóð- verjar þær ráðstafanir, að út- lendir togarar, sem seldu afla sinn í Þýskalandi, gátu ekki fengið andvirði aflans greitt ut úr landinu. Þá fór jeg til Þýska- lands til samninga um málið, og fekk því framgengt, að ísl. togarar mættu selja fisk í Þýska landi fyrir 700.000 mörk á ári, gegn því að andvirði aflans yrði notað til þess að kaupa þýskar framleiðsluvörur. Árið 1932 seldu ísl. togarar fisk til Þýskaiands fyrir ríflega þessa upphæð. Voru á því ári seldir 44 togarafarmar í Þýska- iandi, er námu, að því er Fiski- fjelagið segir um 4 14 milj. kg. af fiski. Samkomulag var í upphaíi gert um það, að ísl. togararnir kæmu ekki of margir í einu, svo mikill landburður af fiski lækk- aði verðiö. En í fyrra mun hafa verið hætt við alt eftirlit með slíku. Olli það óánægju meðal þýskra útgerðarmanna. Innflutníngstollur á fiski útilok- ar íslersskan togarafisk. En snemma á þessu ári var lagður innflutningstollur í Þýskalandi á fisk úr erl. skip- um, sem nemur 10 mörkum á 100 kg. Sakir þess hve fiskur sá er ódýr, sem ísl. togarar selja í Þýskalandi, varð þessi þungatollur sama og innflutn- ingsbann á ísl. togarafisk. Er þessi tollaálagning með öðrum hætti en í Englandi. Þar er toll- urinn verðtollur. Aftur á móti geta t. d. Dan- ir og Norðmenn selt fisk til Þýskalands eftir sem áður, sak-j ir þess hve fiskur sá, sem þeirj selja er verðmætur. Hann get-j ur borið toll þenna. Var aðalerindi mitt til Þýska- lands að leitast við að fá nokkra rjettingu þessar mála, svo við gætum notfært okkur innflutn- ingsleyfi það, sem við höfum. En í því sambandi kemur það mjög til greina, að verslun okk- ar við Þjóðverja hefir breyst mjög hin síðari ár. Fram til ársins 1932 keyptum við mikið meira af Þjóðverjum, en þeir seldu okkur. En samkv þýskum skýrslum fyrir árið 1932 hefir þessi aðstaða breyst. Mun hátt gengi á ríkismarki valda nokkru um, og svo hitt, að útflutningur okkar á síld og síldarafurðum til Þýskalands fer vaxandi. Síldarsalan til Póllands. Meðan Jóhann var í Þýska- landi fekk ísl. stjórnin hann til þess að fara til Danzig, og sitja þar fund síldarkaupmanna. Vegna þess hve þeir kvörtuðu yf- ir erfiðleikum við að fá nauð- synlegar tollaívilnanir hjá Pól- ,verjum fyrir ísl. síld, fór hann í sömu ferð til Varsjá til athug- unar og ef unt væri til fyrir- greiðslu þessara hluta. Pólsk tollaákvæði gilda líka fyrir Danzig. Tollurinn á síld er 30 zloty á turmu, en fæst með sjer- stöku leyfi, og að settum vissum skilyrðum færður niður í 10 zloty. Nú'nýlega,mun vera ráðin stór bót á þessum vandræðum fyrir miiligöngu danskra og ísl. stjórn- arvalda og má fagna því þar eð markaður er mikill í Póllandi ekki síður en í Þýskalandi fyrir ísl. ,,matjes“-síld. í þetta sinn, sagði Jóhann, ætla jeg ekki að rekja það mál hjer. En jeg vil þegar geta þess, að síldarkaupmenn kvörtuðu yfir skemdum í ísl. síldinni í ár, og sögðu þær vera meiri en áður. Þakklátir voru þeir fyrir þá ráðstöfun, að banna útflutning á afvatnaðri saltsíld, sem „matjes“-síld. En sýnilegt er, að geya þarf ráð- staíanir til þess að vanda verk- un síldarinnar betur. Annars furðar mig ekki á því, þó hægt sé að koma ísl. síld inn á markaðinn þar, þegar bor- ið er saman verð það, sem er á samkepnisvörunni, skosku síld- inni. Síld er þar seld í dollur- um. Kostaði íslenska síldin, er eg var þar, 8 dollara tunnan, en skosk síld, sem eg fann ekki mikinn mun á og ísl. síldinni kostaði samtímis 19 Yi °S 20 VO dollar tunnan. Vinarþel til íslendinga. Að endingu segir Jóhann. Það dylst engum Islending, er til Þýskalands kemur um þess ar mundir, að þar ríkir velvilji og vinarhugur í garð íslendinga. Á undanförnum árum hafa Þjóðverjar á margan hátt sýnt 1080-61 íslensku þjóðinni velvild. Nægir í því efni, að minna á, hve marg ir þýskir fræðimenn hafa lagt stund á, að kynna sjer ísland og íslensk fræði, og hve mikla stund ýmsir mætir menn Þjóð- verja hafa lagt á, að kynna ís- land um heiminn. Á síðustu tímum hefir vakn- að ennþá meiri áhugi meðal Þjóðverja, en nokkuru sinni áð- ur, á því, að kynnast íslensk- um fornbókmenntum og ísl. sögu. Er sjerstök ástæða fyrir okk- ur íslendinga, að fagna þeim vinarhug, er við þar mætum. Reykjavíkurbrjef. 5. nóvember. -útsalan Skagaströnd. Norðlenskur skipstjóri skrifar blaðinu: Stung-ið hefir verið upp á þyí, að setja upp síldarbræðslu í Reykjafirði 4 Ströndum. En siá staður er, að mínu áliti ekki vel valinn til þess. Reykjafjörður er ekki góð höfn að taka í dimmviðri. Og þegar inn er komið, þá er þar ekkert sem skip þarfnast eftir endaða veiðiför. Ef á annað borð byggja á síld- arbræðslu við ITúnaflóa vildi jeg stinga upp á, að hafa hana í Höfða kaupstað í sambandi við fyrirhug- uð hafnarvirki þar. Höfðakaupstaður' er tvímæla- laust besti staðurinn við Húna- flóa. Þar er skjól á NA- og A-átt. Staðurinn nálægt bestu síldarmið- unum í Húnaflóa. Síldarsalan- Ingvar Guðjónsson útgerðar- maður hefir skýrt danska blaðinu „Politiken" frá því, að hann telji það vera mjög mikilsvirði ís- lehskri síldarútgeið, ef í Kaup- mannahöfn væri hentug geymslu- hús fyrir ísl. „matjes“-síld, þar væri hægt að geyma í kælihúsi einar 50 þiis. tunnur síldar. Yrði þarna þá einskonar sölumiðstöð fyrir þessa útflutningsvöru okkar, síldin yrðj send frá Höfn til Pól- lands, Þýskalands, Ameríku og hvar það nú væri sem markaður yrði fyrir hana. Er svo að heyra á því sem blaðið hefir eftir Ingvari að Gautaborgarmenn hugsi sjer, að greiða götu íslenskum síld- arútgerðarmönnum, með því að koma upp hentugum geymslustöð- um þar fyrir íslenska „matjes“- síld. Fná Gdynia er blaðiuu skrifað, að talsvert af síld þeirri, sem send var hjeðan til Póllands í ár, sje skemd vara, vegna þess að síld- in hafi eklci fengið rjetta meðferð. Má búast við því, að skerpa þurfi eftirlit með því, að þessi útflutn- insvara fái rjetta verkun og meðferð. Leifur vestra- Frá Minneapolis er blaðinu skrifað: Sú staðreynd er nú loksins að komast inn i höfxtðið á fólki hjer, að Leifm liepni hafi áreiðanlega fyrstur fundið Ameríku. Þrjú rík- in, Minnesota, Wiseonsin og Suð- ur-Dakota hafa tileinkað Leifi hepna einskonar afmælisdag.. — Gerði Wisconsin það víst af skömmum sínum að setja Leifs- daginn 11. okt., eða daginn fyrir Columbusardaginn, en Minne- sota valdi 9. okt. og S.-Dakota þ. 7. okt. Útlit er fyrir að fleiri ríki feti í fótspor þessara, enda er Leifur nú að fá rjetta viðurkenn- ing hjer í landi. Hvort íslendingar hafi liaft haft nokkur áhrif á það, að þingið setti Leifi þenna heiðursdag, veit jeg ekki, nema ef Gunnar Björns- soi; hafi látið til sín taka í }>vi efni, en hann er áhrifamesti ís- lendingurinn hjer mn .slóðir. Blaðamenska. Alþýðublaðið fekk nýjan rit- stjóra um síðustu helgi, Finnboga Rút Valdimarsson. í ávarpi því er hann skrifaði í fyrsta blað sitt kvaðst hann ætla sjer að gera tll- raun til að bæta blaðamensku Al- þýðublaðsins. Fyrsta „tilraunin“ sem hann gerði i þá átt, var, að hann birti upplogna fregn um að Magnús Guðmundsson dómsmálaráðherra hafi gengist fyrir því að Björn Gíslason yrði náðaður af 12 mán- aða fangelsisvist. Er brjef dómsmélaráðherra var birt í Morgunblaðinu, sem sann- aði að Alþbl. hafði hjer farið með fleipur eitt, birti hínn nýi ritstjóri brjef þetta, en Ijet fjdgja því end- urtekning á sömu ósannindum og- hann hafði áður flutt. Á þriðja degi reit hinn nýi rit- stjóri forystugrein í blað sitt, þar sem hann skýrði frá, að niður- staða sín væri sú, að það sem hann hefði sagt undanfarna tvo daga, hefði verið ranghenni. Þetta var fyrsta umbótatilraun- in. — Stauning einráður. Forsætisráðherra Dana, Th. Stauning, varð 60 áfa um daginn. Eitt af Hafnarblöðunum birti langt viðtal við hann. M. a. var hann að því spurður hvaða skipun hann myndi koma á í þjóðfjelag- inu, ef hann værj einráður. Því svaraði hann m. a. þannig. Jeg myndi haga framleiðslunni þannig,, að verkamenn fengju sæmileg áhrif á framleiðslufyrir- tækin við hlið þeirra, sem fjár- magninu ráða“. Þessi forvígismaður danskra sósí alista minnist ekkert á ríkisrekst- ur, að ríkið eigi að eignast, jarð- irnar eða öll völdin eigi að vera í höndum „öreiganna“. Hjáleigan og höfuðbólið. Þegar Framsóknarmenn á und- anförnum árum hafa verið á það mintir hvernig til Framsóknar- flokksins var stofnað, að gerður var maður út af örkinni frá sósí- alistum, til þess að leiða bændur landsins til fylgis við sósíalista, þá hafa Framsóknarmenn við ekk- í Hliiíui er byriuð Þúsund grammófónplöt- ur seljast fyrir gjafverð Allar plöturnar eru nýjar. Komið 0g fáið verðskrá yfir útsöluplöturnar. Monle - Harlo Monte-Karlo spil 2.00. Rullettu-spil 3.50. Kúluspil frá 5.50. Hringjaspil 4.50. Domino-spil stór 3,00. Ludo-spi] (Metta) 2.25. Ilalma-spil 3.00. Whist-spil frá 0.50. Lombre-spil á 1.75. Kabal-spil á 1.50. I Bankastræti 11. n „Dettifoss" fer hjeðan mánudagskvöld 6. þ. m. kl. 11 síðd. til Vestur- o.sf Norðurlands. Flutningur verður að tilkynnast fyrir hádegi á mánudag. Vörur til Akureyrar og Siglufjarðar sendast með Gullfoss. ert viljað kannast, og borið. þa® blákalt fram, að ekkert samband væri eða gæti verið milli þeirra og sósíalista. Nú „tala verkin“ öðru visi. Nú hefir þingflokkur Framsóknar, að einum manni undanskyldum ko.sið formann Alþýðuflokksins, Jón Baldvinsson, sem þingleiðtoga sinn, kosið hann forseta Sameinaðs þings. Verður elcki kosinn greini- legri auglýsing en þessi, eða opin- berun á því, hvílíkur undirlægju- háttur Framsóknarmanna er gagn vart sósíalistum. Er ekki sýnilegt annað, en Fram sóknarmenn telji sig þreytta á hjáleigubúskapnum, og telji sjer best borgið með því, að leggja nú flokk sinn niður, og hverfa til sambýlis við sósíalista á höfuðbóli þeirra Alþýðuflokknum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.