Morgunblaðið - 05.11.1933, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.11.1933, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 Gjafasjóður Hannesar Hafliðasonar 50 þús. króna dánargjöf, til styrkíar fá- tækum reykvískum börnum- Undir stjórn Oddfellowstúkunnar Ingólfur nr. 1. Sennilega mun fávim Reykvík- ingum um það kunnugt, á kvern liátt einn itinn athafnamesti og best virti samborgari þeirra skilcli við þá og emkum börn þeirra, ulin og óborin, að öðru leyti en ’því, a® hann andaðist eftir stutta legu á Landsspítalanum 21. janúar 1931, 75 ára að aldri. Maður sá, er jeg á hjer við, var hinn gamli •og góði skipstjóri Hann.es Hafliða- son (f. 19. júlí 1855). Rúmu ári áður en hann andaðist, stofnaði hann sjóð nokkurn, er nefnist „Barnavinasjóður Hannesar Haf- liðasonar", að upphæð 50 — fim- tíu — þúsund krónur ,,til styrkt- ar fátækum og veikluðum börn- um“. f gjafabrjefinu og hinni konunglegu sliipulagsskriá sjóðs- ins, er áskilið, að stjórn Oddfell- •owstúkunnar Ingólfur nr. 1, skuli jafnan hafa álla umsjá með sjóðn- um og stjórna honum. Höfuðstól sjóðsins má aldréi •skerða; en þegar hann er orðinn 100 þús. kr., og þeirri uppliæð nær sjóðurinn með 6% ársvöxt- um að 10 árum liðnum eða árið 1943, iná verja hálfum vöxtunum „til styrktar fátækum og veikluð- um börnum til dvalar á barna- heimili Oddfellowa við Silunga- poll“, en léggist sú starfsemi nið- um .samfleytt 5 ára skeið skal stjórn sjóðsins ráðstafa honum og þeim hluta vaxtanna sem verja má, í sama skyni sem áður segir, börnum til hjálpar, á þann hátt, sem stjórn sjóðsins þykir bost við eiga, en ávalt í samræmi við ákvæði hinnar konunglegu skipu- lagsskrá hans. Þegar sjóðurinn er orðinn 1 — ■ein — miljón krónur, — en það veirður hann með þeim vöxtum sem ákvæði skipulagsskrárinnar mælir fyrir um að þá verði, sem ■sje að 90 árum liðnum ©ða árið '2022 — má velrja % hlutum vaxt- anna á sama hátt og áður segir; vextina má ekki skerða frekar upp frá því, heldur leggjast þeir' við höfuðstólinn. Til þéss að fyirirbyggja allan misskilning, skal það tekið fram, áð sjóðstofnun þessi er ekki að neinu leyti gjöf til Qddfellowfje- lagsins nje heldur neins af meðlim- nm þess, heldur aðeins undir stjórn stjórnarmeðlima stúkunnar Ingólf- ur nr. 1, eins og áður er sagt. Hannes Hafliðason var meðlimur þeirrar stúku um fullra 30 ára •slteið og vissi, að henni mátti hann trúa fyrir því, að hinn síðasti vilji hans í þessu efni, stæði óhaggað- ur um aldur og æfi, hvernig svo sem færi og alt umveltist með skip un annara mála og stjórna í landinu. Hann taldi það eitt meðal liinna bestu og göfugustu verk- efna, sem Oddfellowreglan hefir af stað hrundið og beitt sjer fyrir' — en þau eru mörg, — að stofna •og starfrækja, án nokkurrar íhlut- unar annara en fjelagsmanna ■sjálfra, sumardvalaheimilið við Sil ungapoll, fyrir fátæk og veikluð börn, og hann hafði sjeð, hversu hlessunarríkan árangur sú starf- semi hafði þegar haft fyrir fjölda slíkra barna. Hann áleit, að á góð- um aðbúnaði og uppeldi barna þjóðarinnar bygðist að miklu leyti framtíð hennar. Þetta vildi hann styrkja svo að um munaði og hann gerði það líka. En svo var honum ekki sama um, hvernig færi með þessa mikilsverðu sjóðstofnun sína í framtíðinni og því fól hann um- sjá hennar og stjórn alla, hinni margreyndu stúku sinni, eða stjórn hennar á hverjum tíma sem er. •— Vjer, samfjelagar og isamverka- menn Hannesar Hafliðasonaæ og þá ekki síst þeir, er lengst höfð- um með honum starfað í Odd- fellowf.jelaginu, höfðum svo oft og iðulega sjeð og reynt hyggindi og góðgirni þessa mæta manns, að oss kom það eigi á óvart, þótt hann skildi svo við bæjarfjelag sitt og þá einkum börnin — því hann var barnavinur hinn mesti, -— að þess sæjust nokkur merki, að þar hefði vei'ið ,,maður á ferð“, þar spm hann var, og þá eigi síður hitt, að hann byggi svo um hnút- ana, að spor þau, er hann steig með sjóðstofnun þessari, skyldu eigi afmást eða eyðast, enda mun „Bamavinasjóður" hans verða ó- brotgjam bautasteinn minning- anna um hann, og nafn hans geym ast með heiðri og sóma um langan aldur, eigi einungis meðal allra Oddfellowa, heldur og hins mikla fjölda fátækra og veiklaðra barna, er njóta kunna góðs af eðallyndi hans og góðgirni í þeirra garð um ára- og aldaskeið. Þótt eigi sje langt um liðið síð- an Hannes Hafliðason stofnaði sjóð þann er að ofan greinir, hafa aðrir þegar farið að ha.ns dæmi og falið Oddfellowfjelaginu umsjá eftirlátins fjár þess, er þeir með forsjá, sparsemi og ráðvendni höfðu sparað saman og hafa þeir þannig — eins og Hannes Hafliða- son — getið sjer góðan orðstír meðal barna þessa bæjar og allra góðra Reykvíkinga. Er hjer um menn af alþýðustjett að ræðá, sem engin önnur kynni höfðu af Odd- fellowfjelaginu en þau, sem þeir höfðu fengið af árangri og starf- semi fjelagsins fyrir börnin. Verð- nr síðar að því vikið, hvernig fje þeirra hefir verið varið. Blessuð sje minning allra þess- ara. göfugu barnavina! Reykjavfk, 31. október 1933. Jón Pálsson. Auðmaður sleppur úr fangelsi. Madrid, 4. nóv. United Press. FB. Juan Mareli, spánverski auðmað- urinn, sem setið hefir í fangelsi um alllangt skeið, hefir sloppið úr fangelsinu og komist undan á flótta til Portúgal. Grein um Italska hópflugið. eftir Balbo marskálk, ÖMaTMHHS birtist i ítölskum blöðum í lok ágústmánaðar síðastl., tíu dögum eftir lxeimkomu flugmannanna. ■—- Þar farast foringja leiðangursins svo orð, m- a.: „Hefði jeg átt að segja til um, áður en lagt var af stað frá Qrbet- ello, hvað gera mætti ráð fyrir að margar af liinum 24 flugvjelum myndu komast klaklaust á leiðar- enda, hefði jeg ábýggilega ekki nefnt hærri tölu en tuttugu Utkoman hefir því orðið betri en búast mátti við. Sje jeg spurður að, hverju jeg eigi að þakka, að svo giftusamlega hefir til tekist, mun jeg svara: að ógleymdum undirbúningi og skipulagningu far arinuar sjálfrar og dugnaði áhafn- anna, er árangurinn að þakka því, hváð flugbátarnir eru vandaðir og lireyflarnir góðir. Það er skylt að viðurkenna hið ágæta starf ítölsku verksmiðjanna. Rjett er og að bæta því við, að yfirmaður liins tæknislega undirbúnings, Pezzani ofursti, hefir int af hendi þýðing- armikið starf með umsjón allri yf- ir smíði flugtækjanha. Jeg lagði fyrir hann mjög vandasöm úrlausn arefni og strangar fyrirskipanir, og framkvæmdi hann þær allar með meiri nákvæmni en jeg hef-ði sjálfur gert“. Nefnd sjerfræðinga frá flug- skólanum í Orbetello hafði eftir- lit með smíði flugtækjanna í hin- um ýmsu verksmiðjum. Nefnd þessi lagði áherslu á að vekja á- byrgðartilfinningu þeirra, sem að því unnu, og láta verkamennina finna, að þeir, hver um sig, tækju virkan þátt í undirbúningi leið- angursins. Var samin skrá yfir alla verltamennina, og við nafn hvers þeir hlutir tilgreindir, sem hann hafði smíðað annað hvort í höndunum eða vjel, sem liann stjórnaði. Við uppsetningu hreyfl- anna urðu vjelamenn þeir, sem þátt tóku í fluginu, að vera við- staddir. Kapp og áhugi starfs- fólksins, sem þetta fyrirkomulag skapaði, á.tti sinn drjúga þátt í því, að smíði hvers. einstaks hlut- ar í flugvjelunum og hreyflunum tók langt fram venjulegri verk- smiðjuframleiðslu, sem er gerð með það fvrir augum fyi'st og fremst að framleiða nógu mikið og ódýrt- í trausti þess að liafa í leiðangr- inum einungis vandaðar vjelar, lagði Balbo oft í hættur, sem reynst hefðu að líkindum óyfir- st.íganlegar fyrir venjulega flug- báta. Vfir Alpafjöllin hulin skýj- nm flaug hann í 4000—4500 metra hæð, og var þó hver flugbátur yfir 10 tonn að þyngd að öllum farangri meðtöldum. Erfiðasti á- fanginn þótti honum vera frá ís- landi til Labrador (2400 ltm.) vegna þoku. Þokan var þeim ann- ars víða þrándur í götu. Yfirleitt telur Balbo flugið liafa verið all- erfitt mestan liluta leiðarinnar, en virðist kenna það mest óvanalega óliagstæðri tíð um norðanvert At- lantshaf og í Ameríkn. Loks seg- ist hann síðar munu skrifa ýtar- lega um möguleikana fyrir flug- samgöngum yfir Atlantshaf og lýsa skoðun sinni á því máli. Nýkomið: Þakjárn nr. 24 og 20 allar lengdir, Sími: 1—2—3—4. Súðin kemiu* upp til austurlandsins, frá Noregi, um 9. þ. m., og fer norður um land til Reykjavíkur með viðkomu á þessum höfc um: Hornafirði, Djúpavogi, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Eskifirðy NorSfirði, Seyðisfirði, Þórshöfn, Kópaskeri, Húsavík, Akureyri, Siglu- firði, Sauðárlirók, Blönduós, Hvammstanga, Hólmavík, ísafirði, Flat-' eyri, Þingeyri, Patreksfirði, Flatey, Stykkishólmi, Sandi og <»afsvík. Skipaútgerð ríkisins Mýðt kenslufæki. Hljóðmyndir, hjálpartæki við móðurmálskenslu með skýringum og leiðarvísi, eftir ísak Jónsson. Myndirnar eru 31 (handlitaðar) og eiga að sýna í stðrum dráttum hvernig liinum sjáanlegu talfærum er beitt. þegar sögð eru aðalhljóð íslenskunnar. — Nauðsynleg kenslutæki fyrir allp. sem kenna hljóðaðferð. Fæst hjá bóksölum! FIest e og BEST fáið þjer með því að nota BLAAKILDEMÖLLE HÆNSNAFÓÐUR .. Heildsölubirgðir: H. ÖLAFSSON & BERNHOFT. Hcj :WWI- > Bókalregn, Guðsríki. Sjö erindi eftir Björn B. Jónsson dr. theol. Reylcjavík 1933. — Presta- fjelag íslands gaf úfe Erindi þessi voru flutt í Fyrstu lúthersku kirkju í Winnipeg vet- urinn 1931, og voru það tilmæli áheyrenda, að þau væru birt á prenti. Höfundur erindunna kom hjer i sumar í kynnisför til ís- lands, ásamt frú sinni og sat aðal fund Prestafjelags fslands. Þótti Prestafjelaginu vel hlýða að minn- ast komu hins góða gests og þeirrar hlýju kveðju sem hann flutti kirkjunni hjer heima frá Hinu evangeliska lútherska kirkju fjelagi íslendiuga í Vesturheimi, með því að gefa þessi sjö erindi út á prenti, og gefa með þvi ís- lendingum hjer heima tækifæri tii að kynnast betur þessnm merka Yestur-íslendingi. Nafn bókarinnar gefur til kynna umræðuefnið.Doktorinn tekur sjer fvrir hendur að skýra þetta megin hugtak kristinnar lifsskoðunar sem táknað er með orðinu Guðs- ríki. Hann greinir nmræðuefnið sundur í sjö kafla er liann nefnir: I. Upphaf ríkisins hjer í heimi. II. Konungvir ríkisins. III. Þegnar ríkisins. IV. Löggjöf ríkisin.s. V. Utbreiðsla ríkisins. VI, Stofnanir ríkisins. VII. Fullkomnnn ríkisins. Hjer er ekki um neitt t.o>rskilið fræðikerfi að ræða, heldur tekst hinum lærða. guðfræðingi að búa hugsanir sínar í ljettan og alþýð- legan búning. Víðsýni hans og frjáMyndi, er hann ræðir um ýms- ar þær kirkjukenningar, sem orð- ið hafa samtíðinni a® ásteitingar- steini, er eftirtektarvert, og mun mörgum íslendingi finnast þæi hugsanir talaðar út frá sínn eigiit hjarta. T. d. farast höf. þannig orð á einum stað: „Það er fásinna að álykta, að kristnir menn á allra fyrstu öldunum hafi staðið betur að vígi að skilja leyndardóma guðe. ríkis en vjer, sem nú lifum, og að þeim hafi ekki skjátlast eins og oss. Blind fornaldardýrkun er jain fáránleg í kristilegnm efnnm se.m í veraldlegnh. Enda er engiiœ hhitur fjær þeim anda, er bjó f Jesú Kristi, en dýrlinn bins forn.t. og dauða“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.