Morgunblaðið - 22.12.1933, Page 5
Föstudaginn 22. des. 1933.
lólahusvekja til foreldra.
Foreldar:
Vitið þið hvað þið eruð að gera,
þegar þið gefið börnunum ykk-
ar ógerilsneydda nýmjólk? —
Hvað skeður, ef kýrin er sjúk
af berklum eða öðrum smitandi
sjúkdómum, sem berast í.mjólk-
inni til barnsins? Eða ef mjalta-
konan er haldin af sömu veiki,
mjólkursalinn eða einhver, sem
við mjólkina fæst?
Dið foreldrar:
Vitið þið ekki að heilbrigð mjólk
er það einasta næringarefni, er
gefur börnunum ykkar alhliða
næringu? Og vitið þið það, að
mjólkin er sú eina fæða, þar
sem börnin fá fullkominn fjör-
efnaskamt? En ríkuleg fjör-
efnaneysla gefur barninu heil-
brigði og þrótt til að standast
árásir hinna margvíslegu sjúk-
dóma.
En um leið og það er nauðsyn-
legt, að barninu sje gefin geriL
sneydd nýmjólk, þá er ekki
sama, á hvern hátt hún er geril-
sneydd. Rannsóknir síðari ára
hafa leitt í ljós, að allar eldri
gerilsneyðingaraðferðir skemma
fjörefni mjólkurinnar og
draga þannig úr áhrifum henn-
ar til að hlaða barnslíkamann
fjörefnum, sem gefur aðal-mót-
stöðuaflið til að yfirvinna berkla
og aðra hættulega sýkla, sem
herja á hinn veikbygða barns-
líkama. Sú eina aðferð, sem enn
þá er þekt til að gerilsneyða
mjólk án þess að skemma fjör-
efni hennar, er sú aðferðin, sem
bygð er á uppfinningum próf. '
Stassano. Óhrekjanlegar skýrsl-
ur frá viðurkendum erlendum
vísindastofnunum sanna, að
mjólkin heldur öllum sínum
fjörefnum.
Unglingar
og íbl'o-ö ö fóiM
Mjólkin er ekki að eins fæðu-
tegund handa ungbörnum, hún
er sú fæðutegund, sem ungir
sem gamlir eiga að neyta, og
það í ríkum mæli.
Viljð Dið heyra um eina
uppfinnmui hins tamla
ng viðurke da hugvts*
manns, idiscr.s
Þegar hann sat álútur yfir við-
fangsefnum sínum á nóttunni,
og þreytan gerði vart við sig,
drakk hann eitt glas af mjólk,
af því að hann hafði með reynslu
sinni fundið, að mjólk gaf hon-
um nýjan kraft. Hann vissi
hvað það er nauðsynlegt að sam-
an fari heilbrigð sál og hraustur
líkami.
ir ii"8ó w\* bí*«-
vn i! fnn m mWkina?
Ford drekkur sjálfur mjólk, og
frá verksmiðjum sínum hefir
hann líka góða þekkingu á
mjólkinni. Hann skrifar þannig
til dæmis:
,,Við höfum glöggar sannanir
fyrir því, að mjólk er eitt af
þeim bestu næringarefnum, sem
til eru. Hún hressir verkamenn-
ina upp, þegar þeir finna sig
þreytta. Þegar þreytan fer að
gera vart við sig, er ágætt að
drekka mjólk. Nálægt kl. 9 ár-
degis fá verkamennirnir hvöt til
að hta á klukkuna, af því að
þeir eru þreyttir og svangir.
Þeir hætta þá augnablik og fá
sjer teig af mjólk, og halda svo
áfram. — Um 4-leytið byrj-
ar þreytutímabilið, en mjólk-
in afstýrir því. I mörgum tilfell-
um tekur verkamaðurinn mjólk-
urflöskuna upp oft á dag, og
mjólk sem nærandi hressing
bregst aldrei“.
lBvrdard*mor
m'ólku-innar:
Undir þessari fyrirsögn mætti
skrifa marga dálka, og það væri
hægt að bregða upp margri
mynd, sem flestum er ókunn,
einnig mjólkurframleiðendum.
Ef menn til dæmis setja orðin
gigt og mjólk hvort við annars
hlið, munu flestir án efa vera
á þeirri skoðun, að þetta sje
hvort öðru allsendis óviðkom-
andi. En það er það ekki.
Látum okkur — fyrst við höf-
um leyndardóma mjólkurinnar
að fyrirsögn — gera nokkru
nánari grein fyrir sambandinu
milli mjólkur og gigtar.
Mikið af mat þeim, sem við
borðum, hefir ekki aðeins góð
efni inni að halda. í mörgum
fæðutegundum eru m. a. hin svo
kölluðu purinefni; það eru efni,
sem líkaminn hefir enga þörf
fyrir, en geta þvert á móti haft
ýms skaðleg áhrif, ef svo mikið
er af þeim í matnum.
Þessi efni ummyndast nefni-
lega í líkamanum í þvagsýru,
og þegar hún síast út í líkam-
ann, getur það leitt til ýmissa
truflana. Gigtsjúkdóm má þann-
ig að miklu leyti rekja til þess-
ara efna. Þau eru svo að segja
jarðvegur gigtarinnar, þessa ó-
vinar heilsu og vellíðunar manns
ins.
Ef nú ýmsar fæðutegundir era
bornar saman að þessu leyti,
kemur í ljós, að mjólk, rjómi,
skyr, smjör og ostur eru alveg
laus við þessi eiturefni. Einmitt
þess vegna stuðlar mjólk einnig
að þessu leyti að því að bæta
matinn.
Orðtækið um að mjólkin vinni
á móti gigtinni, er þess vegna
ekki úr lausu lofti gripið. Það
hefir sína alveg eðlilegu skýr-
ingu.
Bvað á |eg að gefa b rnirn n ínn i fólagjðf?
Það er sjálfsagt að gleðja barnið á jólunum, með því að gefa því eitt-
hvað fallegt, sem vekur jólagleði þess. En það er ennþá nauðsynlegra, að gefa
baminu annað, og sú gjöf brotnar ekki eins og leikfangið eftir nokkra daga.
En þessi jólagjöf á að vera í því fólgin, að þú ákveðir, og lofir baminu þínu
því, að frá þessum jólum og hjeðan í frá skuli það aðeins fá stassaniseraða
nýmjóík frá Mjólkurfjelagi Reykjavíkur.
Af hverju á mjólkin að vera stassaniseruð, og af hverju á hún að vera
frá Mjólkurfjelagi Reykjavíkur, munuð þið spyrja?
Mjólkin á að vera stassaniseruð af því, að það er sú eina óbrigðula trygg-
ing fyrir því, að bamið fái þá mjólk, er veitir því fullkomið öryggi. í fyrsta
lagi gegn því, að mjólkin sje hlaðin hættulegum gerlum og geti á skemri eða
lengri tíma tekið heilsuna frá baminu, eins og mörg ógerilsneydd mjólk gerir.
Og stassaniseruð á mjólkin að vera af þeirri einföldu ástæðu, að það er viður-
kent að Stassano-aðferðin er sú eina gerilsneyðingaraðferð, sem býður neytend-
um það öryggi, að mjólkin innihaldi öll bætiefni óskert að stassaniseringunni
lokinni.
Og ástæðan til þess, að hún endilega verður að vera frá Mjólkurfjelagi
Reykjavíkur, er sú, að Mjólkurfjelag Reykjavíkur er sú einasta stofnun hjer á
landi sem hefir þessar vjelar, og því einasta stofnunin, sem getur boðið slíka
tryggingu.
— En um fram al kaupið mjólkina eingöngu á flöskum og hafið það hugfast, að við sendum hana heim
ti! hvers sem óskar, honum að kostnaðarlausu.
Við óskum ykkur öllum gleðiiegra jóla og heilbrigði og farsældar á komandi árum.
Mjólkurfjelag Reykjavíkur.
r