Morgunblaðið - 22.12.1933, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
LiKOrar
Hnetur.
Konfekt-Rúsínur.
Döðlur.
Fíkjur.
Kex.
Silli & Valdi.
Sheaffer’s
heimsþektu' lindarpennar, með
eða án lífstíðarábyrgðar, verða
tvímælalaust ánægjulegasta
jólagjöfin.
Kosta krónur 12.75, 17.50,
20.50, 30.50, 40.50,
49,75, 54.75, 59.75,
67.50.
Komið, skoðið meðan úrvalið
er sem mest.
"M
Töbaksbúðin í Eimskip.
Sími 3651.
Skálar
Og
Vasar
úr silfurpletti, seljast með 20%
afslætti til jóla.
Verslunin Gsðafoss,
Laugaveg 5. Sími 3436.
t
i i
Hangikjöt.
«
Svínakjöt.
Kindakjöt.
Nautakjöt.
Álegg margar teg.
Smjör. Egg.
Grænmeti Og Ávextir
allskonar.
Bjjðrn Jónsson.
fVesturgötu 27. Sími 3594.
Niðnrsoðna
09 burkaða ávexti
9
Rúsínur, Sveskjur, Konfektrús-
ínur í pökkum, Fíkjur í pökk-
um á 30 aura, Delicious epli 80
aura kg. Jonathans epli 75
aura 1/í, kg.. Jaffa Appelsínur
25 aura stk. og einnig aðrar
tegundir er best að kaupa í
Versl. Hamborg
(Nýlenduvörudeildin),
Laugaveg 45.
Sími 3332.
Ilugo Proppé
versl unarmaður
sonur þeirra Carls Proppé og
konu hans andaðist í fyrrinótt.
Hans verður nánar minst síðar.
Islenðingar.
Nokkur drög að þjóðar-
lýsingu.
Eftir Guðm. Finnbogason.
í fyrradag kom á bókamark-
aðinn bók Guðmundar Finnboga-
sonar landsbókavarða, „íslend-
ingar — nokkur drög að þjóðar-
lýsingu“. Menningarsjóður gefur
bókina út.
Vafalaust er þessi bók aðalrit
Guðm. Finnbogasonar, því enda
þótt hann sje meðal mikilvirk-
ustu rithöfunda þjóðarinnar hef-
ir hann unnið í frístundum sín-
um frá öðruih störfum alt frá
1905.
Lýsir höfundur því í inngangs-
orðum, hve erfitt hafi verið að
ákveða, hvað taka skyldi með í
slíkt rit og hverju sleppa. Hafi
hann látið sjer nægja, að taka
nokkra þætti efnisins, og dregið
út úr þeim þau atriðin, er helst
einkenna þjóðina.
Af efnisskránni er hægt að
átta sig nokkuð á því, hvernig
bókin er gerð í aðaldráttum.
Fyrst gerir höfundur grein fyr-
ir þeim sjónarmiðum, sem rá*ðið
hafi meðferð efnisins í bók þess-
ari. Þá koma þessir kaflar:
Uppruni Islendinga, Land-
námsmenn, Stjórnarskipun, Lífs-
skoðun og trú, Huliðsheimar, Is-
lenskan, Sögurnar, Kveðskapur,
Listir og íþróttir, Landið, Dýrin,
Mannlýsingin, Þjóðarlýsingar. —
Þá eru smákaflar um ýms þjóð-
areinkenni, er höf. nefnir „Frá
ýmsum hliðum“, og að endingu
Lokaþáttur.
Bókin er um 24 arkir að
stærð.
Uatn - uatnsleysi.
íbúar Skólavörðuhæðarinnar
hafa um margra ára skeið búið
við tilfinnanlegt vatnsleysi. —
Það vita allir bæjarbúar. Um
það þarf ekki að fjölyrða.
I dag var horfið að því ráði,
að loka fyrir vatnið í nokkrum
hluta bæjarins og veita því, í
þess stað, um Skólavörðuhæð-
ina, nokkra tíma. Þessa óvæntu
hugulsemi ber að þakka; hún
kom sjer áreiðanlega mjög vel,
því vatnsleysið í þessum bæjar-
hluta hefir verið með mesta
móti nú síðustu dagana.
Húsmóðir nokkur, sem í dag
var svift vatninu í þrjá tíma, en
annars ekki þekkir vatnsleysi,
ljet svo um mælt, að hún gæti
ekki skilið, hvernig íbúar Skóla
vörðuholtsins færi að, sem hefði
ekki vatn mestan hluta dags.
Þessi orð þessar sanngjörnu
konu, fá mig til þess að setja
fram eftirfarandi tillögu:
Væri ekki þjóðráð og vel ó-
maksins vert, að loka fyrir vatn
ið í hinum ýmsu hlutum bæjar-
Floteyjar.
Hjer er mynd af ameríska
verkfræðingnum Edward Arm-
strong, er fann upp hinar marg-
umtöluðu floteyjar, sem ráðgert
er að hafa á flugleiðum í At-
lantshafi. — Er hann hjer með
frumsmíði að einni slíkri flot-
eyju.
ins, þar sem nóg er af því, öðru-
hvoru framvegis, þar til varan-
leg endurbót er komin á vatns-
veituna, stuttan tíma dags í
senn, en veita því jafnframt í
Skólavörðuhæðina þann tímann.
Því er jafnan, og víst rjetti-
le^a, borið við, að vatn sje not-
að mjög svo óhóflega víðast-
hvar í bænum og sje það
stærsta orsök vatnsleysisins í
hinum hæstu hverfum bæjarins.
Mjer þætti ekki óhugsandi að
þessi vatnslokunaraðferð yrði
til þess, að ýmsir, sem nú sóa
vatninu hvað mest, hugsuðu
stundum til hinna, sem vatns-
leysið þjáir, og færu að spara.
21. desember.
Reykvíkingur.
Lisfsýning,
Magnús Á. Árpason sýnir í
Oddfellowhúsinu brjóstlíkön,
olíumálverk, teikningar o. fl.
Það eru enn sem fyr brjóst-
líkön, sem helst eru athyglis-
verð á sýningum Magnúsar. —
Hann sýnir þarna 4 brjóstlíkön
steypt í gibs. Það er í þeim öll-
um leitast við að fá líkinguna
sem best fram. Best er máske
myndin af Jóhannesi Kjarval;
í henni er mest formtilfinning
og að ýmsu leyti vel sjeðir aðal-
drættir andlitsins. Olíumálverk-
in standa langt að baki brjóst-
myndaafsteypunum. — Magnús
hefir ekki vald á litunum, strax
þegar hann vogar sjer út yfir
gráu tónana, fer alt í handa-
skolum og litirnir verða ósam-
stiltir og aumlega væmnir. —
Landslagsmyndunum er þó flest
um haldið í fremur viðkunnan-
legum, gráum litum, og eru þær
allar „stíliseraðar“ á þann hátt,
að svart strik er teiknað utan
um hvern lit, líkast því sem
þetta væru frumteikningar fyrir
vefnað. Litirmr, þunnir eins og
þeir eru, minna líka á litað tau
eða band.
Magnús Árnason fæst við
margt. Það er jafnan varhuga-
vert að dreifa kröftunum um of,
mm
Nú, §em fyr,
höfum við mikið og fjölbreytt
úrval af jólavörum og gjöfum,
svo sem vindla og aðrar tó-
baksvörur, konfektöskjur, kon-
fektrúsínur afar ódýrar, fíkjur
í pökkum, súkkulaði og aðrar
sælgætisvörur. Fallegar ódýrar
ípur og tóbaksveski o. m. fL
Austu'rstræti 17.
nema margþættir hæfileikar! J ólavörur. ”1"r
sjeu fyrir hendi, því að hætt er
þá við, að úr öllu saman verði Skinnhanskar.
hálfkák. Tauhanskar.
Orri. Ullarvetlingar
Kuldarmir fyrir dömur, herra og börn.
i Nuður-Evrópu Mikið úrval. Gott verð.
Margir menn deyja úr kulda. Úlfahjarðir ráðast inn í þorp Nytsamar jólagjafir.
og drepa menn. UfiNihiisiii
London, 21. des. F.Ú. f U Illlliðxlfa
Frá Lissabon kemur í dag sú
fregn, að allmargir menn hafi
dáið í dag vegna kulda, og að
einnig í Tyrklandi hafi kuldarn-
ir orðið mörgum mönnum að
bana, en þar hafa byljir miklir
geisað undanfarið. í Rúmeníu
hafa úlfahjarðir ætt um bygðir
og grandað mönnum í ýmsum
þorpum. Hefir fólk verið varað
við því víðsvegar í Rúmeníu að
vera seint á ferli úti.
Skipatjón.
London, 21. des. F.Ú.
Rjett fyrir utan Humbermynni
rakst enskur botnvörpungur á
sænskt gufuskip í gær 1 þoku, og
sökk gufuskipið á tveim mín.
Botnvörpungurinn fekk aðeins
bjargað 6 mönnum af skipshöfn-
inni, en á skipinu voru 13 manns.
I dag strandaði einnig við Nor-
egsströnd breski botnvörpungur-
inn Rudyard Kipling og er björg-
unarbátur þegar kominn á vett-
vang. Þoka olli báðum þessum
slysum.
Blástakkar látnir lausir
Zims
hangikjötið
er það besta, og hefir
fengið lof í marga
áratugi.
Kaupendur:
Komu í fyrra, komu í
gær, koma á morgun
líka.
Dublin, 21. des.
United Press. FB.
Hæstirjettur hefir felt þann úr
skurð, að þeir O’Duffy og John
Sullivan skuli látnir lausir, þar
eð engin lög sjeu fyrir því, að
handtaka megi menn og setja í
fangelsi fyrir að ganga klæddir
í bláar skyrtur, en fyrir það
höfðu þeir verið handteknir.
Þýsku
lampaborðin
eru komin. Tilvalin jólagjöf.
Húsgagnaverslun
Kristjáns Siggeirssonar,
Laugaveg 13.
Best er að kaupa
jólakerti og spil, lakkrís,
stjörnuljós í
Verslnniu Hamborg,
Nýlenduvörudeildin.