Morgunblaðið - 23.12.1933, Qupperneq 5
Afllir gera kfarakaiup
Fimtugs afmæli.
Þorlákur Sigurðsson, stór-
kaupmaður í Newcastle er fim-
tugur í dag. Hann hefir dvalið
erlendis frá því á unglingsár-
um, en er þó mörgum löndum
sínum kunnur, og flestum að
góðu einu.
Þorlákur er af góðu bergi
brotinn. Faðir hans var Sigurð-
ur Jónsson, einn hinna alkunnu
Gautlandabræðra. Var hann
verslunarstjóri Gránufjelagsins
á Vestdalseyri við Seyðisfjörð,
Þorlákur Sigurðsson.
og fæddist Þorlákur þar. Sig-
urður ljest árið 1896, maður á
besta aldri.
Móðir Þorláks er enn á lífi,
Hildur Þorláksdóttir, prests á
Skútustöðum, Jónssonar, prests
i Reykjahlíð. Dvelur frú Hildur
nú hjá fósturdóttur sinni, Sól-
veigu, systur Hallgiíms Bene-
diktssonar stórkaupmanns, og
manni hennar, Hansen símrit-
ara. Eru þau nú búsett í Kaup-
mannahöfn.
Þorlákur var um tíma við
verslunarstörf á Seyðisfirði, en
snemma árs 1902 rjeðist hann
til Louis Zöllners, konsúls í
Newcastle, og hefir verið þar
samfleytt síðan. Er hann fyrir
löngu orðinn meðeigandi í fyr-
irtækinu.
Firmað Louis Zöllner var um
langt skeið voldugasta verslun-
arhús, sem viðskifti rak 'hjer
við land. Alt frá því er kaup-
fjelögin hófu starfsemi sína og
þar til er Samband íslenskra
samvinnufjelaga var stofnað,
fór meginið af viðskiftum fje-
lagánna um hendur Louis
Zöllners, bæði kaup á erlendum
vörum og sala afurðanna. —
Töldu kaupfjélagsmenn sjer
það hið mesta happ, að hafa
fengið Zöllner fyrir umboðs-
mann, og hlaut hann þann vitn
isburð þeirra eftir 40 ára við-
kynningu, að hann hefði ann-
ast viðskiftin með föðurlegri
umhyggju.
Þorlákur Sigurðsson hefir
lengst af verið eini Islending-
arinn, sem starfað hefir á skrif
stofu þessa fyrirtækis. — Og
þeir eru orðnir margir landar
hans, sem leitað hafa til hans
þessa þrjá áratugi, sem hann
hefir starfað þarna, bæði um
viðskifti og annað. Hefir það
verið fyrirtækinu hinn mesti
hagur, að hafa mann þaulkunn
ugan högum og háttum hjer
heima fyrir, og engu síður ís-
lenskum viðskiftamönnum, að
geta snúið sjer til slíks manns.
Þorlákur Sigurðsson hefir
verið vakinn og sofinn í starfi
sínu. Á skrifstofuna kemur
hann fyrstur og fer síðastur.
Óvenjuleg vandvirkni og sam-
viskusemi einbenna öll störf
hans. Hann er glöggur og gæt-
inn kaupsýslumaður, berst lítið
á, fastur fyrir og orðheldinn.
Hann hefir því unnið traust
þeirra, sem átt hafa skifti við
hann. Hann er alvörumaður og
hversdagslega heldur fáskift-
inn, en hrókur alls fagnaðar, ef
vo ber undir.
Þorlákur fór utan 18 ára
gamall og hefir aldrei síðan
dvalið langdvölum hjer á
Iandi. — En hann hefir alt-
af fylgst með því sem hjer
gerist, og haft ákveðnar skoð-
anir um innnanlandsmál Is-
lendinga. — Þeir, sem kynnast
honum, verða þess fljótt varir.
að þar er rammur Islendingur.
Þótt hann hafi dvalið fullan
mannsaldur meðal útlendinga.
hefir hann haldið við móður-
máli sínu, svo að einsdæmi mun
vera. Þegar hann talar íslensku.
kemur ekki fyrir, að hann
,,sletti“ útlendu orði.
Þorlákur kvæntist árið 1910
og er kona hans ensk. Þau eiga
ekki börn.
Á fimtugsafmælinu, sjálfa
Þorláksmessu, munu vinir og
kunningjar vissulega minnast
Þorláks Sigurðssonar.
Arni Jónsson.
Jakastíflur í Rín
valda stórflóðum.
Berlín 21. des. F. Ú.
ísalög hafa verið mikil á ánni
Rín ,og hefir nú átt sjer stað
ísabrot rjett fyrir ofan Lorelei-
ldettinn, og er nærliggjandi þorp-
um hætta búin. Við bæinn Lorch
hefir' ísinn hlaðist upp og stíflað
framgang fljótsins, og steig
vatnið þar um 6 metra á tveim-
ur klukkustundum. Þeir, sem við
ána búa, eru nú farnir að flytja
úr húsum sínum og forða eignum
sínum. Nokkrir ísbrjótar hafa
reynt að vinna bug á ísnum, en
þeir sitja nú allir fastir, og hafði
dráttarbátur verið fenginn til
þess að losa þá, en lítið orðið á-
gengt, þegar síðast frjettist.
sem á skömmum tíma lieflr breytt iifliti
- ■ ■ hinna þúsnnd húsmæðra. •.
Þær biðja [ávalt - u in það besta.
Pakkar á eína krónu fást i ölíum matvörubúðtm;.
Það er þeila sfikknlaði
Coöex 5inaiticu5
á leiðinni til London.
London 22. des. F. Ú.
Biblíuhandritið Codes Sinaiti-;
cus er nú komið á leið til London
frá Rússlandi, og fer sjerstak-
ur sendiboði með það, og mun
hann koma til London á aðfanga-
dag jóla. Handritið verður sýnt
í breska safninu annað hvort á
miðvikudag eða fimtudag. Nú
er skýrt svo frá að samningarn-
ir um kaupin á handritinu hafi
staðið yfir í undanfarin 3 ár.
Handritið er 348. síður, hver
síða er 15 sinnum 13 þuml. ensk-
ir, og 4 dálkar á hverri síðu.
Gamla testamentið er á 200 síð-
um, en inn í það vantar 40 síð-
ur, en þær eru til í Leipzig. Nýja
testamentið er á 148 síðum, og
í það vantar ekki neitt.
Hasiið ekll oeningia
í siöinn.
Kaupið SHEAFFER’S lindarpenna með skriflegri lífs-
tíðarábyrgð til jólagjafa.
Þeir hafa alla bestu kosti annara lindarpenna, — en
auk þess .marga fleiri. Komið — skoðið, meðan úrvalið er
sem mest.
Túliaksbúðin I ifmsinn.
Sími 3651.
Beisínsöliir vorar
Skipulagðar njósnir í
Frakklandi.
Normandie 22. des. F. Ú. I
Mikla athygli hefir það vakið
í Frakklandi, að 10 me’nn hafa
verið teknir fastir og eru grun-
aðir um njósnir. I>eir eru taldir
vera meðlimir í skipulögðum
njósnarafjelagsskap margra
landa, sem starfa víðsvegar um
Evrópu. Frönsku stjórninni varð
ljóst í mars síðastliðnum, að
njósnarar höfðu verið að verki,
er það varð Ijóst að mikilsverð-
um leyniskjölum í flotamálaráðu-
neytinu hafði verið stolið, og síð-
an hefir sleitulaust verið leitað
að njósnurunum.
verða opnar 11111 hátíðls-
dagana eins og lifer segir
AÐFANGADAG opið frá kl. 7—11 f. h. og 3—5 e. h.
‘JÓLADAG lokað allan daginn.
ANNAN JÓLADAG opið frá kl. 9—11 f. h. og 3—6 e. h.
GAMLÁRSDAG opið frá kl. 7—11 f. h. og 3—5 e. h.
NÝÁRSDAG opið frá kl. 9—11 f. h. og 3—6 e. h.
Hið ísl. Steinoliiihlutaffelag.
Olíuverslun Islands b.f.
II.f. .SIIIiLI- á íslandi.
• •