Morgunblaðið - 16.02.1934, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 16.02.1934, Qupperneq 7
7 Hár. Befi altaf fyrirliggjandi hár við íslenskan búning. Verð við allra hæfi. Versl. Goðafoss Laugaveg 5. Sími 3436. Utsalan etendur aðeins nokkra daga enn. ---- Notið tækifærið. Skermabúðin, Laugaveg 15. ^iiiwk^^nwaHMvaiiaaMMaviwnnMnaMaana Foreldrafundur Kristilegt fjelag nngra kvenna (K.P.U.K.) gengst fyrir foreldra- fondi í kvöld kl. 8V2 í'húsi K.F. U.M. hjer í bænum. Þar á að ræða um málefnið, sem löngum veldur foreldrum mikillár ^hyggju. Mjer þykir því sennilegt að foreldrar og aðrir, sem láta eig uppeldismál nokkru skifta, fjölmenni á fundinn, til þess að heyra hvað síra Bjarni .Jónsson »egir um hið þýðingarmikla vanda Inál — uppeldismálin. Vel er að K.P.U.M.'heldur slík- an fund, og mörg'um mun þykja vænt um að síra Bjarni hefir verið fenginn til að ræða ‘málið á fyrsta og einasta foreldrafundin- um, sem haldinn hefir verið 'hjer í vetur. Pleiri ættu þeir að verða, og ef foreldrar sýna áhuga sinn með því að sækja vel fundinn í kvöld, væri mjög æskilegt að K. F. U. K. eða K. F. U. M. hjeldi fleiri fundi um sama efni. — Hvernig líkar þjer við nýju akrifstofustúlkuna 1 — Hiin er snillingur. Hún liefir ruglað öllu á skrifstofunni syo gersamlega, að hún er alveg ómiss- andi til þess að finna hvað eina sem vantar. Dagbók. Veðrið (fimtudagskvöld kl. 5): Djúp lægð yfir Grænlandi veldur hlýrri SV-átt hjer á landi og á leiðinni til Bretlandseyja. Vestan- lands er 8—9 st. hiti og rignin^, en á Austfjörðum er úrkomulaust og 1U—15 st. hiti. Kaldur loft- straumur breiðist austur eftir haf- inu fyrir sunnan Grænland og lít- ur út fyrir að hann nái hingað til lands á morgun. Veðurútlit í Kvík í dagr All- hvass SV eða V. Skúrir. Útvarpið í dag: 10.00 Veður- fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfregnir. 19.00 Tónleikar. 19.10 Veðurfregnir. 19.30 Óákveð- ið. 20.00 Klukkusláttur. Prjettir. 20.30 Kvöldvaka. Föstuguðsþjónusta í fríkirkj- unni í Hafnarfirði í kvöld kl. 8.30. Síra Jón Auðuns. Línubyssur í skipum. Af vangá var þess ekki getið í blaðinu í gær, að öll skip Eimskipaf jelagsins hafa, fengið línubvssur og eins varð- skipin. ísfisksölur. Maí seldi í Hull í gær 1586 kit (eiginafli og báta- fiskur frá tsafirði) fvrir 1943 stpd. Þá seldu Andri og Tryggvi gamli í Grimsby bátafisk úr Paxa- flóa. Andri seldi, 111 tonn, fvrir 2298 stpd., og' Tryggvi gamli, 81 tonn, fyrir 1700 stpd. Júpíter seldi í Grimsby í gær, 2800 körfur, fyr- ir 1645 stpd nettó. Rán seldi í Grimsby í gæx-, 2000 körfur, fyrir 1115 stpd. brúttó. Næsti háskólafyrirlestur Dr. Max KeiFs verður í kvöld kl. 8 og fjallar um „Jena, die Carl- Zeiss-Stadt“. Skuggamyndir sýnd- ar. Öllum heimill aðgangur. ísland fór hjeðan í gærkvöldi kl. 8 áleiðis til Kaupmannahafnar. Hjálparstöð Líknar fyrir berkla veika, Bárugötu 2 (gengið inn frá Garðastræti 3. dyr t. v.) Lækn- irinn viðstaddur á mánud. og miðvikud. kl. 3—4 og föstud. kl. 5—6. Ungbarnavernd Líknar, Báru- götu 2 (gengið inn frá Garða- stræti, 1 dyr t. v.). Læknir við- staddur fimtudaga og föstudaga kl. 3—4. Næturvörður verður í nótt í Reykjavíkur Apóteki og Lyfja- búðinni Iðunn. Betanía. Pöstuguðsþjónusturnar byrja í kvöld kl. 8J4. Tngvar Árnason talar. Allir velkomnir. Keflavíkurbátarnir hafa ekki getað róið í marga daga vegna þess að ekki hefir gefið á sjó. sí- feldur útsynningur og stórviðri úti í flóa. Hjúskapur. Gefin verða samán í hjónaband á morgun, laugard. 17. febr., í Vestmannaeyjum ung- frú Ásdís Jesdóttir stúdent, dóttir síra Jes Gíslasonar, og' Þorsteinn Einarsson stxxdent. Paðir brxxðar- innar gaf sarnan. Ungu lxjónin eiga heimili á Hól x Vestmanna- eyjurn. Meðal farþega með íslandi til útlanda í gær voru: Ungfrxx S. Jóliaunesson, Gísli Jónsson, Guido Bernhöft, Ásgeir Stefánsson, Sig- urður Steindórsson, Anna Stein- dórsdóttir, Friðrik Þorsteinsson. Einar Ó. Kristjánsson, Einar 01- geirsson. A. Albertsen. Farþeg’ar með Gullfoss frá út- löndum voru m. a.: Björn Arn- órsson kaupm, og frxx, Magnús Brynjólfsson kaxxpm., Páll E. Óla- son bankastjóri og dótfir, Arent Claessen konsxxll og frxx. Eimskip. Gullfoss er í Reykja- vík. Goðafoss fór til Keflavíkur í gærmorgun og kom þaðan aftur. MORGUNBLAÐIÐ Brúarfoss kom til Kaupmanna- hafnar í gær. Dettifoss fór frá Hull kl. 6 í gær. Lagarfoss kom til Vestnxannaeyja í gærmorgUn og fór þaðan kl. 2. Selfoss er á leið til Vestmannaeyja frá Leith. Smjör í smjörlíki. Fvrii’skipað liefir verið í Noregi að hnoða 9% af smjöri sanian við smjörlíki frá degimxm í gær, og 14% frá 15. nxars. n.k. Er þetta g'ert til þess, að bændur fái nógan markað fyrir smjör sitt. Guðrún Jónatansdóttir Þorsteins sonar aixdaðist á miðvikudaginn 14. þ. nx. á Landsspítalanum, eftir langa og þunga legu. Fátækralæknir. Á bæiarstjórn- arfundi í gærkvöldi var Árni Pjet- ursson kosinn fátækralæknir með 8 atkv. Prxx Kristín Ólafsdóttir fekk 4 atkv. 3 seðlar voru auðir. Bókari Rafmagnsveitunnar. Á bæjarstjórnarfundi í gær var Jó- hann G. Möller settur bókari Raf- magnsveitunnar. Hann fekk 8 at- kvæði. Jörgen Hansen fekk 1 atkv. og Karl Lárusson 1 atkv. 5 seðlar auðir. Stefán Jóh. Stefánsson bar fram tillögu um það, að fresta því. að setja eða skipa nokkurn nxann í þetta starf. En tillaga sú var feld. Nokkrar umræður urðu xxnx málið. Heimdallur. Aðalfundur í kvöld kl. 8^/2 í Varðarhxxsinu. Dansskóli Ásu Hanson hefir grímudansleik fvrir alla nem.. sem hafa notið kenslu hjá Hansons- systrunum 8 undanfarna vetxxr. á morgun x K. R.-hxxsinxx, kl. 5 fyrir börn og gesti, kl. 10 til 4 fyrir fullorðna og gesti. Allar nánari upplýsingar í síma 3159, eins og axxglýst var lijer í blaðinu í gær. Atliugið : Gengið inn Vonai’strætis- meg'in. hæði fyrir börn og full- orðna. —• Á barnagrímixdansleikn- um verða mismxxnandi leikar, bæði fyrir drengi og stxxlkur. Sjerstak- lega er til skemtunarinnar vandað. Guðspekifjelagið. í kvöld eng- inn fundxxr. Skemtifundur laugar- dagskvöld kl. v8%. Minst verður Olcotts offursta og Giordano Bruno. það er þeirra dánardagur — og C. W. Leadbeater, það er fæðingarda.gur hans. — Kaffi. „Fráhvarf“ í Framsókn. Mælt er að Norður-Þingeyingar hafi sett Birni Kristjáixssyni þann kost, að hann vrði annað hvort að hætta við þingmensku, eða leggja nijiur stöðu sína sem kaupfjelagsstjóri á Kópaskeri. Tók hann þann kost- inn að hætta við að bjóða sig fram. Ætla Framsóknarmenn að láta fara franx prófkosning milli Gísla Guðmundssonar ritstjóra og Pjetui's Sigurgeirssonar á Odd- stöðum á Sljettu. Bílslys varð seint í fyrrakvöld í Lækjargötu fram undan gang- stígnunx, sem liggur xxpp með Barnaskólanum. Varð maður þar fvrir bifreiðinni RE 135 (bifreiðar- stjóri Jón Jxilíxxs Jónsson), og var hann fluttur meðvitundarlaus suð- ur í Landspítala. Leið honum þol- anlega í gær. Málið er í rannsókn. Innbrotsmenn. Fyrir nokkru voru tveir grunsamlegir menn teknir í portinu á bak við bxxð Hegla Hafbergs á Laugavegi. Voru þeir settir í gæsluvarðhald, og hafa setið inni síðan. í fyrradag játxxðu þeir það að lokum, að þeir hefði ætlað sjer að brjótast inn í bxxðina, og axxk þess játaði annar jxeirra það á sfig, að liann hefði brotist inn á Reykjavíltur Bar á nýársnótt og stolið þar vindlum, vindlingum og um 30 kr. í pen- ingum. Innflutningsleyfi. í Bretlandi. I gær sendi breska iðnsambandið stjórninni álitsskjal um iðnmálin og er þar farið fram á það m. a. að stjórninni verði fengið ótak- markað leyfi til þess að setja öðr- um þjóðurn innflutningsskilyrði. Segist sambandið ekki vera með auknum viðskiftahöftum, en vilja jafna verslunina við viðskiftalönd Breta. eftir því hversu mikið hvert þeirra skiftir við Bretland. Til Hallgrímskirkju í Saurbæ. Prá Hallgi’ímsnefnd Staðarfells- sóknar.. samskot, 150 krónur. — Kærar þakkir fvrir þessa mynd- arlegu sendingu. Ól. B. Björnsson. Frá í. S. í. Þessi knattspymu- mót verða háð hjer í sumar: Vor- nxót 3ja aldursflokks hefst 21. maí. Vormót 2. aldursflokks hefst 27. maí. Knattspyrnumót íslands hefst 6. júní. B.-liðsmótið hefst 31. jxilí. Knattspvrnumót Rvíkur hefst 14. ágxxst. Haustmót 2. aldursflokks hefst 23. ágxxst og Haxxstmót 3. aldursflokks hefst, 26. ágxxst. (í. S. I. — FB.). Drengjaglíma Ánnanns. Á ösku- daginn glímdu drengir um Sigur- jónsskjöldinn í Tðnó. Hlutskarp- astur varð Guðni Kristjánsson, hlaut hann 7+1 vinning, og vann þar með skjöldinn. Næstur var Kristján Guðmundsson með 7 vinn inga. Sigurjón Hallbjörnsson og Guðbrandxxr Bjarnason höfðu 5 vinninga hvor. 1. verðlaun fyrir fegurðarglímu hlaut Sigurjón Hall björnsson, 2. Kristján Guðmunds- son og 3. Guðni Kristjánsson. Um Sigurjónsskjöldinn er glímt í febr. ár hvert, og' mega keppendxxrnir vera alt að 60 kg. að þyngd. Atvinnubótavinnan. Umræður stóðu fram á nótt í bæjarstjórn- inni xxm atvinnubótavinnuna, og tillögu frá sósíalistunum að gera ráðstafanir til þess að bægja ut- anbæjarmönnum frá vinnu hjer í bænxxm. En fram til þessa hafa forkólfar verkalýðsfjelag'anna ver- ið því andvígir, að útiloka. að- komumenn frá vinnu hjer, og hafa borið fram þær ástæður. að slíkar ráðstáfanir gætu orðið til þess, að aðrir kaupstaðir færu inn á sömu braut, og útilokuðu Reykvíkinga frá vinnu hjá sjer, þegar þeir kæmu þangað í atvinnuleit. Hljóðviti. Hjer er nxynd af einum af hin- um nxiklu hljóðvitum, sem reistir hafa verið hingað og þangað með- fram Ermarsundi til þess að leið- beina flugmönnum. — Fiðlan er það hljóðfærþ sem kemst næst mannsröddinni. — Nei. því hefði jeg aldrei trxi- að, sagði hún. Jeg helt að það væri grammófónninn. Ðankabvggsmjðl. Bankabygg, Bygggrjón, Bækigrjón, Mannagrjón. Semulegrjón, fást í Kelly bilagúmmí. Allar stærðír. Semjíð við Sigurþór, VeJtusundi 1, sími 3341. Verkfæri, skrár og lamir. Niðursett verð. Laugaveg 25. Odýrt hveiti, Alexandra, í 50 kg. sekkjum á 13.35. í smápokum, mjög ódýrt. Enn- fremur íslenskt hændasmjör, ísl. og útlend egg; ódýrast í Versl. Biörnlnn. I miðdagsmatiui: Ófrosið dilkakjöt, saltkjðt, hangikjöt. Reykt þjúgu, miðdags- pylsur, kjötfars, nýlagað daglega. Það besta, að allra dómi, sem reynt hafa. Verslun Sveins Júhannssonar. BergstaCastræti 15. Bími 2091. C e 1 t e x dömubindi er búið til úr dún- mjxxku efni. Það er nú nær ein- göngu notað. Eftir notkun má kasta því í vatnssalerni. Pakki með 6 stykkjum kostar 95 aura. Höfum einnig til ýmsar aðrar teg- undir af dömubindum. Líka á jeg ljóragler, lítið ópassandi, sem að maður sendi mjer, sunnan úr Þýskalandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.