Morgunblaðið - 18.02.1934, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Br^j<^3CHö&x)(?\)(7A!)Gr\)(5rv)^'S)(sn!)c!H!) (jnD (r\) cna Cr\!) ér\)(7vör\)(!rv)(?\)CnbBr\)6n!)(T^&ér\)ín!)^a
SkiDsem
mætast ð ndttu.
Nokkur eintök af þess-
ari vinsælu bók hafa
komið utan af landi og
fást i bókaverslunum.
Daear koma!
Dagatol
í bókarformi og á spjaldi, með ýmist bundnu eða í óbundnu máli,
sjerskilið fyrir hvern dag og getið fæðingardaga merkismanna og helstu
viðburða, fást í öllum bókaverslunum bæjarins.
Notið tækliærlð
áðnr en upplagið
er selt.
aus1ur5Ír.l4— s!mi 3880
Fyrstu nýungarnar í hnöppum, spennum,
beltum, beltaefnum og clips eru komnar.
c|unnlauc| loríem
Httlsku matarstellin
fallegu úr ekta postulíni höfum við nú í heilum steilum fyr-
ir 2—24 manns, eða öll einstök stykki stök eftir vild. Einnig
te-, kaffi- og ávaxtastell sömu tegundar, sama lága verðið.
K. Einarsson & Björnsson
Bankastræti 11.
Litið gnfuskip
sem fer frá Noregi til Reýkjavíkur um næstu mánaðamót,
vantar farm. Getur tekið ca. 125 smálestir af þungavöru.
Ódýrt farmgjald.
Upplýsingar í dag og á morgun í síma 2563.
□agbók.
Veðrið (láugardagskv. kl. 5) :
Djúp lægð yfir Grænlandshafi
á hreyfingu norðaustur. Veldur
hún allhvassri S-átt með regni
og 2—3 st. hita vestanlands. Á
Austurl. er hægviðri með 0—3
st. hita. Með morgninum mun
vindur ganga í Suðvestrið hjer á
landi.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Allhvass SV. Skúraveður.
Skipafrjettir: „Gullfoss“ fer
vestur og norður í kvöld kl. 8.
„Goðafoss' fór til Hull og Ham-
borgar í gærkveldi kl. 8. „Brú-
arfoss“ er í Kaupmannahöfn.
„Dettifoss“ er á leið til Vest-
mannaeyja frá Hull. „Lagar-
foss“ var á Djúpavogi í fyrra-
dag. „Selfoss“ kom fi^, útlönd-
um í gærkvöldi.
Útvarpið í dag: 10.00 Ensku-
kensla. 10.40 Veðurfregnir. 14.00
Messa í Fríkirkjunni (sr. Benjamín
Kristjánsson). 15.00 Miðdegisút-
varp. 15.30 Erindi: Hið ráðandi
kyn (Ragnar E. Kvaran). 18.45
Barnatími (síra Friðrik Hallgríms-
son). 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Til-
kynningar. — Tónleikar. 19.30 Tón
leikar (Lúðrasveit Reykjavíkur).
19.55 Aug'lýsingar. 20.00 Klukku-
sláttur. Frjettir. 20.30 Erindi: Frá
Indlandi, II. (frvi Kristín Matthías-
son). 21.10 Grammófóntónleikar:
Beethoven: Symphonia nr. 9. Dans-
lög til kl. 24 (frá Hótel Borg eft-
ir kl. 22.30).
Útvarpið á morgun (mánud.):
10.00 Veðurfregnir. 12.15 Hádegis-
útvarp. 15.00 Veðurfregnir. 19.00
Tónleikar. 19.10 Veðurfregnir. 19.20
Tilkynningar. Tónleikar. 19.30 Er-
indi Iðnsambandsins. Timbur til
húsagerðar, III. (Þorlákur Ófeigs-
son). 19.55 Auglýsingar. 20.00
Klukkusláttur. Frjettir.. 20.30 Er-
indi: Frá útlöndum (Vilhj. Þ. Gísla
son). 21.00 Tónleikar: a) Alþýðu-
lög (Utvarpshljómsveitin). b) Ein-
söngur (Elísabet Einarsdóttir). c)
Grammófónn: Liszt: Sonata í H-
moll (Horowitz).
Opinbert fræðsluerindi um ósýni-
lega heima. flytur Þorlákur Ó-
feigsson í Húsi Guðspekifjelagsins
kl. 8!/2 í kvöld.
Endurvirðing til brunabóta. Fyr
ir hálfum mánuði flutti Mbl.
áskorun til húseig'enda í bænum,
frá stjórn Fasteignaeigendafjelags-
ins, um að láta endurmeta til
brunabóta ef þeir álitu virðingu
á húsum sínum of háa. Yfir 100
húseigendur hafa þegar beðið um
endurmat.
Annað fræðslukvöld verður í Frí-
kirkjunni í kvöld kl. 8y2. Það hefir
verið ákveðið, að halda fimm slík
fræðslukvöld á vet-rinum, með
breyttum efnisskrám. Hið fyrsta
var 21. janúar. Hin þrjú verða síð-
ar auglýst. Eru ræðumenn ákveðn-
ir þessir: Síra Ární Sigurðsson,
Einar H. Kvaran rithöfundur, sira
Knútur Arngrímsson og Þorsteinn
Jónsson, stud. theo!.. Auk erind-
anna verður einnig söngur, orgel-
leikur og fiðlusóló.
Leikfjelag Reykjavíkur ljek
Galdra-Loft í gærkvöldi í útvarp-
inu. Var hlutverkaskipan hin sama
og þegar leikurinn var sýndur hjer
í haust, nema hvað Kristján Þorgeir
Jakobsson, sem er nýr leikandi hjá
Leikfjelaginu, en áður góðkunnur
stúdentaleikari, ljek nú hlutverk
blinda ölmusumannsins, en dóttur-
dóttur hans ljek Edda Kvaran
dóttir frú Soffíu Guðlaugsdóttui'.
„Maður og kona“. Sjónleikurinn
„Maður og kona“ verður sýndur
í kvöld. Er það 22. sýningin á leikn
um. Næsta leik: „Við, sem vinnum
eldhússtörfin" hefir Leikfjelagið
æft af kappi nú um hríð. Þræðir
leikurinn söguviðburðina í skáld-
sögunni mun nákvæmar en gert er
í kvikmyndinni, sem hlotið hefir
feikna vinsældir hjá almenningi.
Meyjaskemman. Aðsókn ér mjög
mikil að Meyjaskemmunni og er
alt uppselt á sýninguna annað
kvöld. Sýning verður næst á mið-
vikudagskvöld.
Samsæti verður Gunnari Ólafs-
syni konsúl haldið í Vestmanna-
eyjum í kvöld, í tilefni af 70 ára
afmæli hans. Tekur fjöldi fólks þátt
í samsætinu.
Jarðarför Pjeturs Þorgrímsson-
ar fór fram í gær að viðstöddu
miklu fjölmenni. Tuttugu strætis-
vagna-bílstjórar gengu á undan
kistunni tíl kirkju og þaðan upp í
kirkjugarð. Síra Bjarni Jónsson
flutti bæn í heimahúsum og ræðu í
kirkjunni.
Jón A. Pjetursson hinn ný-
kjörni bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins og bæjarráðsmaður
var í gærkveldi í svo slæmu á-
standi, er hann kom frá vinnu
að lögreglumenn urðu að taka
hann að sjer, til þess að hamla
því, að hann færi sjer og öðrum
að voða. Lögregluvarðstofan
hafði engar frjettir af þessu að
segja blaðinu í gærkveldi. En
mikið má vera, ef slíkt getur
haldist óátalið, sem framferði
þessa starfsmanns bæjarins.
Unglingar eru beðnir að selja
merki Hallveigarstaðar og koma
til viðtals á barnalestofuna í
Aðalstrsfeti 11, kl. 10—12 eða
1—6, í dag eða á morgun. Sölu-
laun.
Vermlendingarnir. Nýja Bíó
sýndi í gærkveldi mynd, sem
Reykvíkingum mun þykja gam-
an að sjá. Er það „Vermlending-
arnir“, ogbyggist myndin ásam-
nefndu leikriti sænsku, sem und-
anfarin ár hefir verið sýnt í ná-
lega hverjum stærri bæ í Sví-
þjóð og Noregi og nú er verið að
sýna við mikla aðsókn á Folke-
teatret í Kaupmannahöfn. Mynd
þessi segir gömlu söguna um,
að ástin fer ekki í manngrein-
arálit, og sýnir raunir þær
sem hljótast af því, er foreldrar
taka fram fyrir hendurnar á
börnum sínum í ástamálum
Myndin sýnir þetta á látlausan
en hrífandi hátt, og tekur efnið
föstum tökum. Aðalhlutverk
myndarinnar eru leikin af Gösta
Kjellertz, Anna-Lísa Ericson.
Umhverfi myndarinnar er fag-
urt og töfrandi. Vegna þessa að
myndin verður að sendast utan,
verður hún að éins sýnd í nokk-
ur kvöld. — Á aukamynd sem
jafnframt verður sýnd kl. 9,
sjest ýmislegt frá íslensku vik-
unni í Stokkhólmi.
Höfnin. Tvö fisktökuskip
„Kannik“ og „Fantoft“; komu
hingað í gærkvöldi, til þess að
lesta fisk.
Togarinn Bragi kom frá Eng-
landi í gær.
Línubyssa var keypt handa
Valpole þegar hann var í Eng-
landi seinast, og var það því
ekki alveg rjett, sem sagt var
í blaðinu í gær, að línubyssan
hefði verið pöntuð handa skip-
inu.
ísland er á leið til Kaup-
mannahafnar, fór frá Vest-
mannaeyjum áleiðis til Thors-
havn í fyrradag.
Dronning Alexandrine fór frá
Kaupmannahöfn kl. 10 í gær-
morgun áleiðis hingað.
Drengurinn frá Sauðanesi í
Húnavatnssýslu, sá sem varð
fyrir sprengingunni um daginn,
er nú á góðum batavegL
Fjölbreyffast
úrval
af
Bnsáhöldnm
r
1
JÁRNVÖRUBEILD
Jes. Zimsen
Eigna§kifti
Sá, sem vildi láta liúseign (2 í-
búSii' auk kjallara) með stórri bak-
lóð, u-tarlega í bænum, í skii'tum.
fyrir ágæta framtíðareign, skamt
fyrir utan bæinn — leggi tilboð,
ásamt nákvæmri lýsingu á eign-
inni, þ. á m. áhvílandi lán og kjör
þeirra, í umslag, merkt „Kigna-
skifti“ inn á A. S. í. fyrir 1. mars.
Pví ekki að nota Mum-
skúriduftið, þegar það þykir
jafn vott því, sem hjer er talið
best útlent, en er um 65% ó-
dýrara, ef miðað er við ca.
500 g(r. pk. af MUM og 300 gr~
pk. af því útlenda, sem kost-
ar meira í útsölu en MUM-
skúridufts pakkinn.
Hf. Efnagerð Reykjavíkur.
Þeim f jölgar
daglega,
er versla við okkur, og er
það eðlilegt, því við höf-
um f jölbreyttast, best og
ódýrast úrval í bænum.
Húsgagnaverslunin
við Dómkirkjuna.
(Clausensbræður).
St. Æskan nr. í.
Danslelkur
í G. T.-húsinu í kvöld kl. 9. Aðeins
fyrir fullorðna fjelagá stúkunnar
og gesti þeirra.
Skemtifund heldur stúkan kl. 3
í dag fyrir alla fjelaga sína. Mörg
og góð skemtiatriði og dans. —
Bernburgs-hljómsvertin spilar. Að-
göngumiðar að kvöld-dansleiknum
verða seldir á kr. 1.50 í dag kl. 3—6.