Morgunblaðið - 23.02.1934, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Sextíu þÚKiind króna
sjóþurð
hjá fjehirði Úlvegs-
banka- útibúsins í
Vestmannaeyjum.
Fyrir nokkru síðan komst
bankaútbússtjóri Útvegsbank-
ans í Vestmannaeyjum, Viggó
Björnsson, að því, að misfellur
▼oru í bókum fjehirðisins í úti-
búinu, Sigurðar Snorrasonar.
Bankastjórinn gerði banka-
stjórninni hjer aðvart, og var
Björn Steffensen endurskoðandi
aendur til Eyja, til þess að end-
arskoða hjá fjehirði.
Endurskoðuninni er lokið.
Þeir Viggó Björnsson banka-
stjóri og Bjöm, komust að þeirri
niðurstöðu, að fjehirðirinn hefir
dregið sjer tæpl. 60 þúsund
krónur af fje bankans. Hafi
hann byrjað á því árið 1924, og
öll árin síðan tekið meira og
minna af fje bankans, þó mest
nú síðustu ár.
Falsanir í bókum bankans
hefir hann framkvæmt þannig,
að samkvæmt sjóðbók virðist
meira tekið út, en raunverulega
var, en helminginn af því fje,
sem hann þannig dró sjer sljett-
aði hann út úr bókunum, með
því að gefa bankastjóranum
upp hærri vaxtaupphæðir en
raunverulega voru færðar í
inustæðureikninga sparifjár-
eigenda.
En orðrómur um það, að fje-
hirðir hafi dregið sjer fje inn-
stæðueigenda, svo þeir hafi orð-
ið fyrir skaða, er ekki rjettur.
Sig. Snorrason hefir verið
starfsmaður bankans síðan árið
1921.
Slauiskl-hneykslið.
Eliin af démurnnnm
i málinii myrlur á <lul-
arfullan liált.
Berlín 22. febr. FÚ.
Einn af rannsóknardómurunum
í Staviski-málinu hefir verið
myrtur í París á. dularfullan hátt,
®g hefir lögreglunni ekki tekist að
▼erða neins vísari um hver morðið
befir framið.
Eitt af Parísarblöðunum full-
yrðir það í morgun, að þeir sem
fiæktir eru í Staviski-málið, hafi
myndað með sjer leynisambönd í ,
j iíkingu við ,,Mafia“ bófafjelagið
! ítalska, og hafi þessi fjelag'sskap-
j ur látið myrða dómarann, sökum
(þess að ekki tókst að hræða hann
[ til auðsveipni. Blaðið kveður það
| vera opinbert, leyndarmál, að yfir-
! völdin þori ekki að taka Staviski-
málið rækilega til rannsóknár, og
sje aðalástæðan hótanir um lík-
amlegt ofbeldi af hálfu leynifje-
lagsins.
Englendingar eiga að
drekka inciri mjólk.
Ríkið tryggir bændum
lágmark§verð.
London 22. febr. FÚ.
Enska stjórnin ber nú fraih
á þingi frumvarp um mjólkuriðn-
að í Englandi, og ráðstafanir t.il
þessí að auka mjólkurneyslu, í
því skyni, að gera þenna atvinnu
▼eg tryggari en nú er.
Mælti Elliot landbúnaðarráð-
fee.rra fyrir frumvarpinu á þingi j
í dag, og skýrði frá því, að mjólk '
urframleiðsla í Englandi hefði \
mjög aukist, en neysla ekki að j
sama skapi, og væri nú yfirvof-
andi verðfall, sem orðið gæti þess-
um atvinnuvegi til óbætanlegs
tjóns, ef ekkert yrði aðgert. áður
en við bættist sá mjólkurauki, er
vænta má með vorinu. Einn liður
þessara laga er á þá leið, að
ríkið ábyrgist. bamdunum lág-
jnarksverð á mjóllt og mjólkur-
afurðum um tveggja ára bil, og
greiðist sá kostnaður af ríkisf je I
auk þess, sem ríkið leggnr til all-
ndklá fjárhæð, til þess að reka
með útbreiðslustarfsemi.
Þessi styrktarákvæði eru þó
ýmsum skilyrðum bundin t. d.,
að hrepps- og bæjarfjelög kaupi
og veiti skólabörnum ókeypis
mjólk, eftir því sem þurfa þykir.
Evans-leiðangurinn
snýr við.
Osio 22. febr. FÚ.
Frá Oape Town er símað, að
leiðangur Evans vara-aðmíráls á
,,Milford“ sje snúinn við, vegna
óhagstæðs veðurs. Lagt var af
stað í leiðangurinn frá Cape
Town þ. 15. febrúar. Áformað var
að fara til Bouveteyju. — Skipið
hefir aðeins eldsneyti til þess að
komast til Simonstown.
Jarðarför Alberts konungs
var mjög viðhafnarmikil.
Kalundborg 22. febr. FÚj
Jarðarför Alberts Belgíukonungs
fór fram í dag í Briissel að við-
stöddu afarmiklu fjölmenni. —
Snemma í morgun fór fólk að
safnast hópum saman í göturnar,
sem líkfylgdin átti að fara, um,
og allir glug'gar voru fullir af
fólki. Húsin voru tjölduð svörtum
dúkum. Frá því kl. 7% í morgun
fóru sífelt miklir skarar í fylking-
um fram hjá staðnum, þar sem
kista konungs stóð, og m. a. sýndu
þannig 40 þús. uppgjafahermenn
konunginum síðasta heiður.
Alls staðar Ijet fólkið, sem beið
líkfylgdarinnar í ljós samúð sína
og sorg þegar hún fór fram hjá.
Hún lagði af stað frá konungsköll
inni kl. 10, og var yfirmaður belg-
ísku kirkjunnar og klerkar hans
í broddi fylkingar, þá ýmsar her-
deildir undir stjórn yfirhershöfð-
ingja ríkisins. Kista konungs var
sveipuð belgíska fánanum og blóm
um, og næstir á eftir henni gengu
synir konungs og opinberir full-
trúar erlendra ríkja, stjórn Belg-
íu o. fl.
í kirkjunni las kardinal erki-
biskupinn messuna með klerkum
sínum og kirkjukór. Úr kirkjunni
var kistan aftur flutt í skrúð-
göng'u til hallarinnar, þar sem
konungurinn var jarðsettur við
liliðina á kistum fyrirrennara
sinna. Athöfninni lauk með því,
að skotið var 21 fallbyssuskoti.
Leopold tekur við ríkjum.
Kalundborg 22. febr. FU.
Leopold krónprins heldur há-
I tíðleg'a innreið sína í Brussel á
; föstudag kl. 12, og tekur þá ríki,
sem konungur Belgíu, og vinnur
| eið að stjórnarskránni. (Áthöfn-
^ inni verður útvarpað).
Óðalsþingið fellir jafnrjetti
kvenna.
Hungurgöngur á leið
til London.
Osló 22. febr. FÚ.
Norska lögþingið ræddi í dag
frumvarp það, Sem kom frá óðals-
þinginu um það, að veita konum
jafnan embættisrjett og körlum.
Að lokum var frumvarpið felt með
19 atkvæðum á móti 18. Með því
voru jafnaðarmenn og nokkurir
hægrimenn.
Sáttatilraunir í Danmörku.
Kalundborg 22. febr. FÚ.
Sátt.atilraunir standa enn yfir
í vinnudeilunum í Danmörku. I
dag var aðiljum afhent nýtt samn-
ing'suppkast, og verður enn hald-
inn fundur hjá sáttasemjara á
morgun.
—---------------
Yopnabirgðir finnast í Vín.
Kalundborg 22. febr. Fú.
Lögreglan í Yín hefir nú fundið
miklar vopnabirgðir þar í borg-
inni, og eignar þær fjelagsskap.
jafnaðarmanna. Yopnin hafa ver-
ið gerð upptæk, og er nú verið að
rannsgka málið.
_________________
Uppreisn í Argentínu.
Kalundborg 22. febr. FÚ.
Uppreisnir og óeirðir urðu í
dag í Argent.ínu og fjellu 16
manns. St.jórnarherinn vann þó
bug á uppreisninni og' í kvöld er
alt sagt rólegt, í landinu.
------eí^i-------
Landráðstarfsemi
kommúnista.
London 22. febr. FÚ.
: lnnanríkisráðherrann breski var
spurður þess á þingi í dag, hvaða
ráðstafanir stjórnin muridi gera,
til þess að koma í veg fyrir hung-
urgöngur þær, sem nú eru á leið
til London. Hann svaraði á þá
t ...
, leið, að hann teldi hvorki hyggi-
j legt, eða rjettmætt að hindra slík-
j ar göngur, að svo miklu leyti,
sem ekki væri brotnar reg'lur um
j frið og ró á almannafæri.
I
Símasamböndin aukast um
heiminn.
Kalundborg 22. febr. FÚ.-
í heiminum eru nú í notkun
34 miljónir síma og er talsíma-
sambandið milli landanna sífelt
að aukast og víkka. Frá Englandi
er nú hægt að t.ala t.il Kanada.
Bandaríkja, Suður-Ameríku, Ind-
lands, Ástralíu, Nýja Sjálands og
Suður-Afríku. auk ]iess sem síma
samband er við flest, Evrópulönd.
I lofti
er nýjasta unglingabókin. —
Hún er skrifuð af dr. Alex-
ander Jóhannessyni, rektor
Háskóla íslands, og er æfin-
týraleg lýsing á sögu loft-
ferðanna hjer á landi, og'
helstu þáttnm í sögu flug-
listarinnar.
í bókinni er fjöldi fallegra
mynda.
Kostar í góðu bandi
kr. 6.00.
Berlín 22. febr. FU.
Ríkisrjetturinn í Leipzig feldi í
gær dóm yfir fimm kommúnist-
um, þ. á, m. einum fyrverandi
þingmanni, sem var gefið að sök
undirbúningur undir landráða-
starfsemi. Voru hinir ákærðu
dæmdir í fangelsisrefsingu frá 1%
—21/2 árs. FÚ.
Sænskur prins í giftingar-
hug.
Kalundborg 22. febr. FU.
Það vekur nú mikla athygli og
umtal í Svíþjóð, að Sigvard prins
ætlar að ganga að eiga þýska
stúlku af borgaralegum ættum. —
Konungsættin hefir gert ýmsar til-
raunir til þess að hindra hjóna-
bandið, en prinsinn sit.ur við sinn
keip, og ætlar að giftast stúlk-
unni, og setjast að í Stokkhólmi
í vor.
Málaferli.
í Ungverjalandi hafa 2 menn í
átta ár átt í málaferlum út, af
einum einasta hundi, sem báðir
vilja hafa eignarrjettinn á. Málið
hefir kostað báða þúsundir króna.
En það besta er að hundurinn er
dauður fyrir sjö árum.
Merkílegt
þjóðsagnasafn:
,Gríma‘ heitir safn af íslensk-
um þjóðsögum, sem Þorst. M.
Jónsson á Akureyri hefir gef-
ið út undanfarin ár og mun
ge-fa út áfram. Oddur Björns-
son. prentmeistari, hefir safn-
að söguiium, en Jónas Rafnar
heknir búið þæi- undir prent’-
un.:
Alls eru koniin út 9 hefti og
kostar hvert hefti 2 kr. (nema
5. lieft.i, með efnisyfirliti yfir
I. bindi kostar kr. 2.50). Von
er á 10. hefti bráðlega og er
þá lokið TT. bindi. Samtals
verða þessi 2 bindi um 800
bls.
Þeir sem unna þjóðsögum- og
sögulegum fróðleik, ættu að
eignast „Orímn“ frá upphafi.
ipinm^á
KartOllur
frá Hornafirði komu
með Esju.