Morgunblaðið - 21.06.1934, Side 3

Morgunblaðið - 21.06.1934, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 Heimsókn norska drengjakórsins „Stjernegutterne“. ,,Lyra“ legg-ur á stað frá Bergen í dag. Með henni kem- nr Johannes Berg-Hansen með drengjakór sinn. „Stjernegutt- erne“, sem ætla að hafa söng- skemtanir í Færeyjum og hjer í Reykjavík meðan ,.Lyra“ stendur við. I kórnum eru 52 drengir (so- pran og alt raddir) og 12 full- orðnir. Af þeim fullorðnu má nefna óperusöngvarana E. Aas og Carl Steen, pianoleikaranp Ebbe Evensen, fiðluleikaraiin Arvid Fladmoe og svo kórstjór-| ann og fararstjórann Joh. Berg- Hansen. Af drengjunum má ?sjerstaklega nefna einn, Björn FrÖshaug. Hann er aðeins 12 ára að aldri, en syngur einsön^ með afbrigða fagurri barnsrödd — Hann hefir lært í vetur ajð' syngja hjá frú Lulle Haanshus í Ósló. Og yfirleitt hafa allir drengirnir í kómum varið Öll- um frístundum sínum í vetur til þess að æfa söng, í staðinn fyrir að leika sjer. Hinn 5. júní hjelt kórinn söng skemtun í Ósló og fara öll blöð- in lofsamlegum orðum um hana og segja að það sje Norégi sæmd að senda slíkan kór tjl frændþjóðanna. Það er einstakur viðburðpr í sönglífi voru að fá slíka h^jrp- -i ~'lJ ( ijn á- iij •f b Joh. Berg-Hansen. !sókn sem þeSsá. Við höfum aldrei fyr átt kost á því að hlusta á 'vel æfðan og stóran drengjakór. En vel æfðar og samstiltar drengjaraddir þykja hinar fegurstu í söng. Ekki kémur kórinn hingað til þess að græða fje á ferðinni, heldur er förin farin sem sum- arfrí og mun kosta miklu meira heldur en það sem inn kemur á 'hamsöngvunum. ™ Eins og áður er getið, heldur kórinn hjer tvo samsöngva, hinn fyrri í Gamla Bíó 26. júní og þann seinni í Fríkirkjunni 27. júní. I Gamla Bíó syngur kórinn meðal annars ,,Ó, guð vors lands“, ,,Gamle Norig“ og ,,An der schönen blauen Don- au“.Á kirkjuhljómleiknum verð ur fyrst orgelleikur, svo kór- söngur. Þá syngur Berg-Hansen sjálfur einsöng: aríu úr ,,Gute Nacht“ eftir Bach og arioso (Dank sei dir Gott“) eftir Hán- del. Svo syngja drengirnir. Þá kemur fiðlusóló og seinast syngja drengirnir enn. Frú Katrín Viðar sjer um móttöku flokksins hjer og söng- skemtanirnar. Johannes Berg-Hansen söng- stjóri er barytonsöngvari og söng fyrst opinberlega í Osló 1904. Árið eftir var hann ein- söngvari í för norska stúdenta- söngfjelagsins til Ameríku. — Síðan hefir hann sungið víðs- vegar í Noregi og erlendis. — Síðan 1924 hefir hann verið söngstjóri ýmissa kóra, og er nafnkendast „Guldbergs Aka- demiske Kor.“ Það er vonandi að íslend- ingar taki þessum gestum vor- um vel, sjerstaklega söngmenn- imir, og minnist þess nú hvern- ig Norðmenn báru þá á höndum sjer, þegar þeir fóru til Noregs hjerna um árið, til þess að syngja þar. —— Kappfieikui* milli skipverja á breska orustu- skipinu „NeIson“ og úrvalsliðs íslenskra knattspyrnumanna úr Fram, K. R. og Val. Annað kvöld kl. 8)4 verður háður knattspyrnukappleikur á Iþróttavellinum milli skipverja á breska orustuskipinu ,Nelson‘ og úrvalsliðs úr knattspyrnufje- lögunum hjer. Eins og áður er sagt, er Nél-i son forystuskip heimaflota Breta og knattspyrnumennirnir þar um borð eru knattspyrnu- meistarar breska flotans. Munu því margra augu mæna til íslensku keppendanna, sem eru á móti þeim, og fjöldi fólks óska þess að þeir standi sig nú ▼el og leiki vel og drengilega. Af íslendinga hálfu keppa: ui. Eirjkur Þorsteinsson, markvörð- ur; bakverðir Ólafur Þomarð-; áfson og Sigurjón Jónsson, fi’am .j^érðir Hrólfur Benediktsson, (Björgvin Schram og Jóhannes tBergsteinsson. Framherjar: Jón j^gurðsson, Hans Kragh, Þor- steinn Einarsson, Gísli Guð- mundsson og Agnar Breiðfjörð. IKÓ Samskotin { til jarðskjáltafólksins Samtals hefir safnast hjá Morgunblaðinu kr. 39.447.20. í gær bárust blaðinu kr. 748.00. Skipshöfnin á s.s. Goðafossi 415 kr., G. Helgason & Melsted h.f.: 200 kr., Inga 5 kr., Stebba 5 kr„ B. P. 100 kr„ í. M. 10 kr„ ónefnd kona 5 kr„ R, G. 3 kr„ N. N. 2 kr„ N. N. 3 kr. Þjóðverji: Heima hjá okkur í Bayern er almennilegt bergmál Það svarar ekki fyr en eftir tvær mínútur. Ameríkumaður: Tvær mínútur! Hvað er það? Þegar jeg er í sum- arbústaðnum mínum hjá Los Angeles er jeg vanur því að fara út á hverju kvöldi og kalla: Snáfaðu nú á fætur letipurkan þín! Og svo kemur bergmálið morgunin eí'tir og vekur mig. — Tlvað er að sjá þig? Hvar hefirðu verið? — Jeg var á veiðum. — Hvað vSrstu að veiða? — Urriða. — Fekstu nokkurn? — Nei. — Hvernig Veistti þá að það var urriði, sem þú varst að veiða ? Mentaskálanum var sagt upp kl. 1 e. h. í gær. í þetta sinn var skólanum sagt upp 10 dögum fyr en venja er til. Er í ráði, að svo verði framvegis, að skólinn byrji fyr, 20. sept. og endi fyr, eða um iniðjan júní. Nemendur skólans voru í vet- ur alls 201, í lærdómsdeild 123, þar af 62 í máladeild og 61 í stærð fræði- og náttúrufræðideild, og 78 í gagnfræðadeild. Ársprófi vÆ skólann luku 140 að þessu sinni. Nemendur þeir, |sem fengu 7.00 stig, eða þar yfir í árseinkun fá að set.jast próflaust í næsta bekk. Hæstu árseinkun fekk Gvlfi Gíslason IV. bekk A, 7.40 stig. En hæst árspróf tók Andrjes Ásmundsson, fekk 6.81 stig, og Guðrún Einarsdóttir 6.80 stig. Inntökupróf tóku um 100. —- 68 stóðust prófið. Þeir 25, er hæsta einkun fengu, og teknir verða í Mentaskólann, . fengu aðaleinkun- ina frá 4,33—5,10. En hinir, sem stóðust. prófið en fá ekki inn- göngu í Mentaskólann, fá inn- göngu í Gagnfræðaskóla Reykja- víkur. Gagnfræðapróf. Að þessu sinni útskrifuðust 32 gagnfræðingar, 17 með I. einkun. 15 með II. einkun. 25 niunendur náðu hærra prófinu, 5.67, st.„ sem er skilyrði þess að fá að setjast í I. bekk lærdómsdeildar. Hæstu einkun hlaut Vilhjálmur Guð- njundsson, 7.09 stig. Stúdentspróf. Undir stúdentspróp gengti 42 nemendur, 31 skólanemandi og 11 utanskóla, 37 nemendur stóð- ust prófið, en 5 utanskólanem- endur luku ekki prófi. Úr máladeild útskrifuðust 19 stúdentar, þar af 5 utanskóla, 13 fengu I. einkun og 6 II. einkun. Hæstar einkunnir hlutu Dagný Ellingsen 7.33 st., Katrín Ólafs- dóttir 7.32 st., Unnur Jónsd. 7.09 st„ og Nanna Ólaí'sdóttii-' (utan- skóla) 6.87 st. Úr stærðfræði- og náttúrufræði- deild útskrifuðust 18 stpdentar, þar af 1 utanskóla, 8 með I. eink- un, 9 með II. einkun og 1 með HI. einkun. Þar hlaut hæsta einkun Friðjón Sigurðsson 7.09 st. og. Ól- afur Sigiirðson 6.91 st. Hjer fara á- eftir nöfn stúdent- anna: I. Máladeild: A. Skólanemendur: Dagný Ellingsen, Elín Davíðsdóttir, Katrín Ólafsdóttir, Kjartan Guðmundsson, Kristján Jóhannesson Lárus Pálsson, Magnús Geirsson, Páll R. Leví, Páll Þorgeirsson, Thor Guomundsson, Unnur Jónsdóttir, Vagn Jónsson, Þorsteinn Sveinsson, G. Þórarinn Guðnason. * B. Utanskólanemendur: Bjarnþór Þórðarson, Helgi Bergsson, Nanna Ólafsdóttir, Óttar Proppé, Sigrún Briem. II. Stærðfræði- og náttúrufræði- deild: Eiríkur Briem, Friðjón Sigurðson, Friðrik A. D. Hjálmarsson, Gunnar Böðvarsson, Hermann Einarsson, Hermann Þórarinsson, Hörður Jónsson, Tngi H. Bjarnason, Jón Björnsson, Matthías Hreiðarsson. Oddur Ólafsson, Ólafur Siggeirsson, Olafur Sigurðsson, Pjetur Kristinsson, Sigurður Guðmundsson, Sigurður Ingimundarson, Zophónías Pálsson. B. Utanskóla: Kaj H. J. Jessen. Verðlaun voru veitt nokkrum nemendum fyrir iðhi, ástundun og siðprýði. Þessir nemendur hlutu verðlaun: Vilhjálmur A. GifðmúndSson, Guðrún Túlinius, Sigurður Jó- hahnsson, Margrjet Thoroddsen, Pjetur Thorsteinsson, Magnús Már Lárusson og Sveinn Pálsson (fyr- ir góða kunnáttu í náttúrufræði). Þá hlaut 1 stúdent, Sigurður Guðmundsson, að verðlaunum gull penna og 200 kr. úr Gullpennasjóði fyrir „HreppSdóttirin heiman að“. Að lobinni skólauppsögn voru stúdentar, gagnfræðingar og kenn arar gestir rektors um st.und eins og' venja er til. t Vottorð. Út. af skrifum Alþýðublaðsins undanfarið, hefir Jóhann P. Jóns- son skipherra á Óðni beðið Morg- unblaðið að birta eftirfarandi vot.torð: Að gefnu tilefni vottast hjer- með, að hr. skipherra Jóhann P. Jónsson er með öllu skuldlaus við skipaútgerð ríkisins. Reykjavík, 20. júní 1934. Pálmi Loftsson. Að gefnu tilefni vottum við undirritaðir skipverjar á varð- skipinu Óðinn. að skipherrann Jó- hann P. Jónsson, er algerlega skuldlaus við okkur. Varðskipinu Óðinn, 20. júní 1934. Þ. Björnssonl. stýrim. G. Bjarnason II. stýrim. Har. Björnsson III. stýrim. Lýður Guðmundsson loftskeytam. Sigurður Guðbjartsson bryti. Steindór Guðmundsson matsv. Arnar Jónsson vikadr. Magnús Björnsson háseti. Pjetur Jónasson háseti. Þ. M. Pjetursson háseti. Guðm. Kr. SigUrðsson háseti. Magnús H. Bjarnason óvaningur. Ól. Björnsson óvaningur. Eyjólfur Hafstein, viðvaningur. Guðbj. Guðbjartsson I. vjelstóri. Ferdinand Eyfell II. vjelstjóri. Ásgeir Árnason III. vjelstjóri. Magnús Helgason I. kyndari. Sverrir Jónsson kvndari. Sigurður Egilsson kyndari. Þorgils Bjarnason kyndari. Óskar Jónsson kafari. Jón Jónsson háseti. Til Strandarkirkju: frá G. S. M. K. (tvö gömul áheit) 42 kr., Ónefndur 5 kr„ H. B. 50 kr., E. T. 5 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.