Morgunblaðið - 21.06.1934, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
rv
agbók.
Veðrið. (miðvikudag kl. 17):
Víðast bjartviðri og hæg N-átt
hjer á landi, þó eru ennþá skúrir
um miðbik Suðurlands. Hiti er 4
st. á NA-landi, en annars 8—10
st. víðast hvar.
Veðurútlit í Rvík í dag: N-
kaldi. Ljettskýjað.
í kvöld er samkoma í K. P. U.
M. kl. 8y2. KórsöngUr, einsöngur
(Á.sta Jósefsdóttir) og erindi. Að-
gangur er ein króna.
Pjórir enskir stúdentar frá há-
skólanum í Cambridge komu hing-
að með Goðafossi og fóru með
lionum norður til Siglufjarðar. Þar
fá þeir sjer vjelbát til þess að
flytja sig til Grímseyjar og ætla
að dveljast þar 2—3 vikur til
Esja fer hjeðan annað kvöld kl.
8 austur um land til Siglufjarðar,
snýr þar við og kemur sömu leið
til baka.
114 símastaurar brotnuðu í
Skeiðarárhlaupinu, sem ikom á
undan eldgosinu í Vatnajökli.
Hreppsnefndarkosning hefir far-
ið fram í Reyðarfirði. Voru kosn-
ir 3 menn og fengu Sjálfstæðis-
menn tvo kosna, þá Odd Bjarna-
son og Edvald Sigurjónsson, >n
Pramsókn fekk þriðja manninn.
— Hreppsnefndarkosningar um
alt land nú að undanförnu sýna
vaxandi fylgi Sjálfstæðisflokks-
ins og' spá góðu um úrslit kosning-
anna á sunnudaginn kemur.
Börnin, sem hafa sótt um sum-
ardvöl á barnaheimilinu Egilsstað-
ir, komi í kvöld kl. 8, í miðbæjar-
skólann. til skoðunar.
í auglýsingu hjer í blaðinu í
gær um fastar ferðir til Gullfoss,
frá verslun Guðjóns Jónssonar,
Hverfisgötu 50, var tekið fram,
að þær væru á þriðjudögum og
laugardögum, en þær verða á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum kl. 11 árdegis. Einn-
ig á laugardag'seftirmiðdögum og
til baka síðdegis á sunnudögum.
Eru það mjög hentugar ferðir
fyrir skrifstofu og verslunarfólk.
Gisting og veitingar fást í tjald-
búðum þar.
Ungbamavemd Líknar, Báru-
g'ötu 2, (gengið inn frá Garðastr.,
1. dyr t. v.). Læknirinn viðstadd-
ur fimtud., föstud. og þriðjud.
kl. 3—4 nema 1. þriðjud. í hverj-
um mánuði, en þá er tekið á móti
barnshafandi konum á sama tíma.
Allsherjarmótið.
Úrslit í gærkvöldi.
Stangarstökk.
1. Karl Vilmundarson Á. 2
m. 75 cm.
2. Georg L. Sveinsson K. R.
2 m. 57 cm.
3. Gísli Sigurðsson Á. 2 m.
45 cm.
10 km. kappganga.
1. Haukur Einarsson K. R.
55 mín. 28 sek.
2. Oddgeir Sveinsson K. R. 61
mín. 28 sek.
3. Magnús Guðbjörnsson K.
R. 64 mín. 13.4 sek.
4. Sveinn Einarsson.
ea* lisfi
S|áflf§læði§manna.
■ði í'' „ííoysíji? v.tv.t-áí"1-
þess að rannsaka fuglalíf og jarð-
arg'róður á eynni. Poringi farar-
innar heitir David Keith. — Þeir
skruppu til Þingvalla núna í vik-
unni og þótti sá staður stórfurðu-
| legur frá jarðfræðis-sjónarmiði,
því að enginn þeirra hafði sjeð
hraun fyr á ævi sinni.
Sjómannakveðja. Farnir til
Englands. Vellíðan allra. Kærar
kveðjur til vina og vandamanna.
Skipshöfnin á Ver.
Framboðsfundur verður hald-
inn að Bjarnastöðum á Álftanesi á
morgun kl. 3 e. h.
Eimskip. Gullfoss var væntan-
legur frá Kaupmannahöfn í gær-
kvöld. Goðafoss fór vestur og
norður í gærkvöld kl. 8. Brúar-
„foss fór frá Vestmannaeyjum í
gærmorgun á leið til Leith. Detti-
foss kom til Hamborgar í gær-
morgun. Lagarfoss var á Akur-
eyri í g'ær. Selfoss er í Reykja-
vík.
Sextíu ára er í dag Jón Ólafs-
son, Laufásveg 48, sem undanfar-
in ár hefir unnið hjá Eimskipa-
-rfjelagi íslands.
Edda kom til Barcelona í gær-
kvöldi.
Heimatrúboð leikmanna, Vatns-
stíg 3. Samkoma í kvöld kl. 8.
Allir velkomnir.
K. R. í kvöld kl. 8 er samæfing
hjá B-liðinu og 2. fl. Mætið stund-
víslega.
Skip Sameinaða. ísland er vænt-
anlegt hingað að norðan í fyrra-
málið. Botnía kom til Leith í g'ær.
Per þaðan áleiðis hingað næst-
komandi laugardag. Drotningin er
í Kaupmannahöfn.
Jónas Jónsson tók það fram í
gærkvöldi, að sósíalistar og Pram-
sóknarmenn hlytu í framtíðinni að
vinna saman. Hann hefði „gert sitt
ítrasta“ til þess að koma þjóð.
inni í skilning um þetta. Honum
og fylgdarmönnum hans innan
rauðu flokkanna, mun hafa tek-
ist þessi fræðslustarfsemi alveg
viðunanlega.'
Sjálfstæðiskjósendur. Þið, sem
ætlið nú að fara í sumarfrí, eða
búist við því að vera utanbæjar
24. júní, munið að kjósa á kosn-
ingaskrifstofu lögmanns, áður en
þið farið. Skrifstofan er í Póst-
hússtræti 3 (Gömlu símastöðinni)
opin 10—12 f. h. og 1—4 og 7—8
e. h.
Útvarpið í dag': 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 15.00
Veðurfregnir. 19.00 Tónleikar.
19.10 Veðurfregnir. 19.20 Lesin
dagskrá næstu viku.
19.30 Grammófóntónleikar: Schu-
bert: Ófullgerða symphonian. 19.50
Tónleikar. Frjettir. 20.30 Erindi:
Um landskjálfta (Jóhannes Ás-
kelsson.) 21.00 Tónleikar: a) Út-
varpsliljómsveitin. b) Einsöngur
(Pjetur Jónsson). c) Danslög.
Mæðrastyrksnefndin hefir upp-
lýsing'askrifstofu sína opna á
mánudags og fimtudagskvöldum
kl. 8-—10 í Þingholtsstræti 18,
niðri.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
Afhent af frú Lilju Kristjánsdótt-
ur: Gjöf frá „gömlum hjónum“
10 kr., frá Guðrúnu Stefánsdóttur
Hafnarfirði, til minningar um for-
eldra hennar, Kristjönu Teitsdótt
ur og Stefán Bjarnason frá Hvíta-
nesi í Skilmannahreppi 100 kr„
Minningarg'jöf um látna vini: Guð
rúnu Gpðbrandsdóttur og Jón
Benediktsson síðast prest að Saur-
bæ á Hvalfjarðarströnd, frá ferm-
ingarbarni hans“ 50 kr. — Bestu
þakkir. — Ásm. Gestsson.
Fimtarþraut.
1. Karl Vilmundars. 2504,71
stig. 2. Gísli Kærnested 1966,-
425 stig. 3. Georg L. Sveinsson
1418,277 stig.
1 fimtarþrautinni er kept í
þessum íþróttagreinum, og urðu
úrslit þannig:
Langstökk: Karl Vilmundar-
son 5,91 m. Georg L. Sveinsson
5,88 m. Gísli Kærnested 5.19 m.
Spjótkast: Karl 36,42 m. Ge-
org 31,82 m. Gísli 29,17 m.
200 m. hlaup: Georg 25,4 sek
Gísli 25,5 sek. Karl 25,6 sek.
Kringlukast: Karl 33,23 m.
Gísli 23,91 m. Georg 20.47 m.
1500 m. hlaup: Gísli 4 mín.
52,3 sek. Karl 5 m. 21, 8 sek.
Georg 6 mín. 44,5 sek.
Flest stig á mótinu hlaut Karl
Vilmundarson, 36 stig, en næst-
ur varð Ingvar Ólafsson, hlaut
29 stig.
Skýrt verður nánar frá alls-
herjarmótinu hjer í blaðinu eft-
ir helgina, og þá gefið yfirlit
yfir þetta mót. K. Þ.