Morgunblaðið - 08.07.1934, Síða 6
6
gBBBBBgw^^P^WR gWgPiyiiiaggL'Mmiinii B«gggi^«B»..
Tll Langarvafens
og Þipasfarlundar,
alla daga kl. 10 árdegis. — Lækkuð fargjöld.
Bifreiðastöð íslands.
Sími 1540.
Nýjar bækur:
Jonas Lie: Davíð skygni: Þýðing eftir 6uðm. Kamban_
Verð: heft 3.80, ib. 5.50.
Páll ísólfsson: Þrjú píanóstykki kr. 3.00.
Tónar I. Safn af lögum fyrir harmóníum. Eftir ís-
lenska og erlenda höf. Páll ísólfsson bjó til prentun-
ar. Verð kr. 5.50. — Pást hjá bóksölum.
BttaTsrslnn St|L ByHHUissaan
og Bókabúð Austurbæjar BSE, Laugaveg 34
Frú Helga Torfason.
Fædd 11. okt. 1859. — Dáin 30. júní 1934.
Þú höfðingskona, hvíldin nú er fengin.
Hamingjunnar naustu á margan hátt.
Æfibrautin er að fullu gengin,
en alt mun geymast, bæði stórt og smátt.
Þitt var starfið stórt og mikið meira
en meðalkona gæti af hendi leyst.
v Þú gleðst nú við þann sigursöng að heyra,
að sálu þinni er friðarþorgin reist.
Þú ráðholl varst og rausn þú barst í sinni
og rjettlæti þú unnir hverja stund,
og frjáls þú varst í gráti og gleði þinni.
og gladdir ávalt smælingjanna lund.
Þú glaðværa. og góða eiginkona,
gáskalaus, en afar Viljáðterk.
Þú reyndist líf og dáðin dætra og sona.
Drottins varstu sannnefnt snildarverk.
Þjer var gefið þrek og andans kraftur,
þolinmæði og ísiensk hetjulund.
Þína vini þú munt finna aftur
og þökk meðtaka við þann endurfund.
Farin, horfin. Hvar er skjóls að leita?
Hnípinn starir eiginmaður þinn,
en þú ert nær með hugarviljann heita,
að hjúkra, græða og þerra tár af kinn.
Við fylgjum þjer að hinsta hvílurúmi,
en hvérfleikinn og samveran þar dvín.
Þó líkaminn þar liggi í hreti og húmi,
er helgum geislum vafin sálin þín.
Þ. J.
sjera Friðrik Hallgrímsson end-
urkosinn.
Því næst gerði próf. Ás-
mundur Guðmundsson ítarlega
grein fyrir störfum þarnaheim-
ilisnefndar og lagði fram reikn-
inga heimilissjóðsins.
Kl. 81/2 flutti sjera Sigurð-
ur Pálsson frá Hraungerði fróð-
legt erindi í dómkirkjunni:
Kirkjulíf í Uppsölum.
Föstudagsmorgun kl. 9
hófst fundur með bænagerð
(sjera Hálfdán Helgason
flutti).
Biskup gaf yfirlit yfir messu-
gerðir og altarisgöngur á liðnu
ári og spunnust af því allmikl-
ar umræður, aðallega lútandi
að samstarfi presta og leik-
manna í söfnuðunum og starfi
einstakra leikmanna (t. d.
Pjeturs Sigurðssonar, sem róm-
að var af mörgum). Var að
lokum samþykt tillaga þess
efnis, að ríkisstjórnin og al-
þingi veittu alt að 5000 kr.,
sem Kirkjuráð úthlutaði ti
styrktar leikmönnum, og starfa
að trú- og siðgæðismálum í
landinu. — Þá flutti biskup
erindi um hina nýju helgisiða-
bók og afstöðu presta og safn-
aða til hennar. Urðu talsverðar
umræður í sambandi við það
mál og stóðu til hádegis.
Kl. 41/2 flutti Guðm. próf.
Einarsson á Mosfelli fróðlegt
erindi um utanferð sína á að-
alfund danskra líknarstarfs-
fjelaga. Að því loknu las
biskup upp frumvarp til reglu-
gerðar um kirkjugarða í 29
greinum, sem hann vænti, að
bráðlega yrði prentað. — Loks
reifaði próf. S. P. Sivertsen
tillögur launamálanefndar
Prestafjelagsins, er bygðar
voru á tillögum einstakra
presta og prestanefnda, sem
nefndinni hafði borist. Urðu
miklar umræður um það mál,
og lauk þeim með kosningu
nýrrar nefndar, en í hana voru
kosnir: prestarnir Guðm. Ein-
arsson, Björn Magnússon, Guð-
brandur Björnsson, Sveinbjörn
Högnason og Garðar Þor-
steinsson.
Kl. 8I/2 flutti sjera Benja-
mín Kristjánsson erindi í dóm-
kirkjunni: Kirkjan og vorir
tímar.
Laugardagsmorgun kl. 9
hófst fundur með bænagjörð
(sjera Guðm. Einarsson flutti).
Þá flutti sjera Friðrik J. Rafn-
ar erindi: Baráttan um barns-
sálina. Gaf það erindi tilefni
til fjörugra umræðna, sem
jafnframt beindust að kirkju-
legri starfsemi útvarpsins og
áhrifum. Biskup gaf skýrslu
um þá starfsemi útvarpsins
bygða á ítarlegri greinargerð
sjera Friðriks Hallgrímssonar.
Var umræðum ekki lokið fyr-
ir hádegi og því frestað að
gera ályktanir þar að lútandi
til síðdegisfundar.
Kl. é1/^ flutti sjera Friðrik
Friðriksson erindi í tilefni af
hundrað ára minningu Ch. H.
Spurgeons. Því næst var aft-
ur horfið að umræðunum um
kirkjulega starfsemi útvarps-
ins. Samþykt var svohljóðandi
tillaga sjera Björns Magnús-
sonar: „Prestastefnan
þeirri áskorun til útvarpsráðs,
að fluttar verði í útvarpi sjer-
stakar útvarpsguðsþjónustur,
er að formi til sjeu miðaðar
við flutning í útvarpi, sem sam-
þykt sje af Kirkjuráði, og á
þeim tíma, er rekist sem minst
á venjulegan guðsþjónhstu-
tíma. Einnig sje þátttaka presta
í guðsþjónustum þessum
skipulögð fyrirfram fyrir hvert
misseri, þannig að prestar um
land alt eigi hlutdeild í þeim
og sje prestum af fje útvarps-
ins greiddur ferðakostnaður,
sem af því leiði, enda taki þeir
að öðru leyti enga borgun fyr-
ir“. Þá kom fram viðbótar-
tillaga frá sjera Jakob Jóns-
syni svohljóðandi: „Ennfremur
óskar prestastefnan, að út-
varpsstjórnin láti gera tilraun-
ir til að útvarpa guðsþjónust-
um frá nokkrum kirkjum úti
um land, ef kleift geti talist
kostnaðar vegna“. Frá sjera
Magnúsi Guðmundssyni (Ól-
afsvík) komu fram tvær til-
1 gur: 1. „Prestastefnan bein-
ir þeirri áskorun til útvarps-
ráðs, að útvarpa ekki mikils-
varðandi erindum varðandi al-
menning á venjulegum guðs-
þjónustutíma í sveitum“. 2.
„Prestastefna íslands þakkar
Reykjavíkurprestum fyrir út-
varpsguðsþjónustur þær, er
þeir hafa flutt“. Allar þessar
tillögur voru samþyktar með
samhljóða atkvæðum.
Þá var nefnd kosin til þess
að , athuga til næstu presta-
stefnu framkomnar tillögúr
Gísia sýslum. Sveinssonar um
kirkjuhús ríkisins og kirkju-
byggingar og hlutu þar kosn-
ingu prófastarnir Eiríkur Al-
bertsson, Guðbrandur Björns-
son, Sigurgeir Sigurðsson, Jós-
ef Jónsson og sjera Sigurjón
Guðjónsson.
Að lokum minti biskup
presta á, að frá 14. okt. f. á.
ættu allar kirkjur og prest-
setur landsins að vátryggjast í
Brunabótafjelagi Islands.
Var þá lokið dagskrá presta-
stefnunnar og prestastefnunni
slitið með bænaflutningi og
sálmi. —
Um kvöldið kl. 9. komu all-
flestir fundarmanna saman til
kaffidrykkju á heimili biskups.
Belgisk hersýning
Berlín 7. júlí. F. Ú.
Fyrsta og önnur herdeild
belgiska riddaraliðsins höfðu
hersýningu fyrir Leopold kon-
ung í gær. Hið nýja hjólreiða-
lið belgiska hersins tók einnig
þátt í sýningunni. Viðstaddir
voru hermálafulltrúar frá Eng-
landi, Svíþjóð og Þýskalandi,
og er þetta í fyrsta sinn í yfir
20 ár, sem þýskur fulltrúi er
viðstaddur belgiska hersýn-
ingu.
Konsúlar. Tómas Tómasson
framkvæmdastjóri hefir verið við
urkendur eistneskur konsúll í
Reykjavík. Dr. Giinter Timmer-
mann frá Hamborg hefir verið
þýskur konsúli í
M£RGUN,BLAÐIÐ
Kappreiðar.
í dag efnir „Fákur“ í
annað skifti til kappreiða
við Elliðaár. Sú skemtun þyk-
ir þeim best, sem hafa borið
gæfu til þess að hafa komið á
kappreiðarnar við Elliðaár. —.
1 þetta sinn mun enginn
vonsvikinn verða, sem þangað
kemur. Oft hafa gæðingar
„gripið niður“ við Elliðaár og
hlaupið, — en þó munu að
þessu sinni sjást meiri tilþrif
um kosti og hlaup heldur en
nokkru sinni áður.
Af gömlum kostagripum
skulu hjer nefndir t. d.: Fluga,
sem er nú tvítug, og prýddi
völlinn með snillitökum sínum
í fyrsta sinn árið 1922, Þokki,
sem oft hefir getið sjer góð-
an orðstír hin síðari ár, að ó-
gleymdum gæðingum Jóns B.:
Glugga og Grænlendingi. Þá
má ekki gleyma Eld, rauð-
stjörnótta gæðingnum, sem
Jón Guðnason ríður, og verð-
laun hlaut í fyrra að mak-
leikum. — En allir þessir
góðkunnu gæðingar munu þó
þurfa á öllu að halda, þegar
Goði Björns Vigfússonar, nýr
af nálinni, þylur völlinn. —
Þetta er nú að segja um
vekringana. —
En sagan er aðeins hálf.
Hlaupagarparnir eru ótaldir,
og skal hjer af mörgum fáa
nefna.
Stökkið er tvennskonar eins
og áður: 300 og 350 metrar.
Á 300 metrunum mega aðeins
keppa þeir hestar, sem engin:
verðlaun hafa áður hlotið (á
300—350 metra spr;ettfæri).
Þessvegna koma nú fram á
völlinn nokkrir óþektir hlaupa-
gammar, sem óhætt er að gera
sjer háar vonir um. —
Skulu hjer aðeins fáir nefnd
ir, svo sem: Frændurnir Tvist-
ur og Svipur (6 og 7 v.),
hlaupfráir og ganggóðir með
afbrigðum, Púlli, undarlega
tilþrifasnjall. Þá má ekki
gleyma Gram Daníels, sem
flestir Reykvíkingar hafa sjeð,
en hefir ekki kept á vellinum
fyr en nú.
Þá kemur lengra sprettfær-
ið. Þar koma til greina ýmsir
af þeim hlaupagörpum, sem
hafa sjer unnið frækilegan
orðstír í hlaupinu næsta á
undan (300 m. sprettfærinu).
Upp í þetta hlaup færast Fálki
og Logi, og ef til vill fleiri. En
í þessu hlaupi keppa þeir
hestar, sem eiga mestan skjót-
leik af hestum þessa lands.
Allir Reykvíkingar og Hafn-
firðingar þekkja Reyk og Há-
legg, mósóttu hlaupagikkina
hans Ólafs Þórarinssonar, en
móti þeim keppir Reykur, Jóns
Guðnasonar, 15 v. gamall, og
er þektur af öllum, sem fylgst
hafa með þeim hestum, sem
fremstir hafa orðið á Skeið-
vellinum við Elliðaár.
Einar Sæm.
Betanía. Samkoma í kvöld kl.
8y2. Síra Bjarni Jónsson dóm-
kirkjuprestur taiar. Allir vel-
i komnir.
Qagbófc.
Veðrið (laugardag kl. 17):
Grunn lægð út af Langanesi vekí-
ur NV- og N-átt hjer á landi.
Norðaniands er sumst. þokusúld
og yfirleitt þykkviðri með 10—-
14 st. hita, en bjartviðri er á SA-
landí og liiti 10—17 st. Suðvestan
lands er skýjað en úrkomulaust
og 12 st. hiti. Ný lægð er að
skams.
Veðurútlit í Rvík í dag: Hæg-
viðri. Úrkomulaust og sennil.
ljettskýjað.
Messa í fríkirkjunni í Hafnar-
firði í dag kl. 2, síra Óskar Þor-
láksson frá Presthakka prjedikar.
Útvarpið í dag: 10.40 Veður-
fregnir. 11.00 Messa í Dómkirkj-
unni. 15.00 Miðdegisútvarp: a)
Tónleikar frá Hótel Borg. b)
Grammófóntónleikar. 18.45 Barna-
tími ’ (Þuríður Sigurðardóttír).
19.10 Veðurfregnir. 19.25 Grammú
fónn: Lög úr óperunni „Madamo
ITntterfly“ eftir Puccini. 19.501
Tónleikar. 20.00 Klukkusláttur.
Frjettir. 20.30 Erindi: Norræn
samvinna (Guðbrandur Jónsson).
21.00 Grammófóntónleikar: Tsehai
kowsky: Symphonia No. 4. Dans-
lög til kl. 24.
* Útvarpið á morg'un: 10.00 Veð-
urfregnir. 12.15 Hádegisútvarp.
ýjrammófóntónleikar. 19.50 Tón-
leikar. 20.00 Klukkusláttur. Frjett
ir. 20.30 Frá útlöndum: Mælska
og mælgi (Vilhj. Þ. Gíslason).
21.00 Tónleikar: a) Alþýðulög (Út
varpshljómsveitin). b) Einsöngur
(Pjetur A. Jónsson). e) Grammó-
fónn: Syrpur úr gömlum dans-
lögum. ,
Edda er farin frá Port Talbot
áleiðis til Reykjavíkur.
Jón Krabbe fulltrúi íslands í
utanríkisráðuneyti Dana er *ý-
kominn hingað í heimsókn.
j viðnrkendur
beinir, Reykjavík .
nálgast suðvestan af hafi og lítur
út fyrir SA- eða A-átt innan
15.00 Veðurfregnir. 19.00 Tónleik-
ar. 19.10 Veðurfregnir. 19.25