Morgunblaðið - 08.07.1934, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
7
VcrUakliH:
Kaffistell 6 manna með
kökudisk, ekta postulín 10,00
.Kaffistell sama 12 manna 16,00
Matarstell rósótt 6 manna 17,00
Eggjabikarar postulín 0,15
Desertdlskar postulín 0,40
Matskeiðar ryðfrítt stál 0,75
Matgafflar ryðfrítt stál 0,75
Teskeiðar ryðfrítt stál 0,25
Borðhnífar ryðfríir 0,75
Vatnsglös þykk 0,25
'Tan nburstar í hulstri 0,50
Sjálfblekungar og skrúfblý-
antar, settið 1,26
alt nýkomið.
LkmilMt
Bankastræti 11.
JJv
HOTEL ROSENKRANTS
BERGEN, NORGE.
Er í miðjum bænum
við Þýskubryggju.
Herbergi með heitu
og köldu vatni, síma
og baði.
Sanngjarnt verð.
WINDOLENE
er óviðjafnanlegt fægiefni á
gler og spegla.
Þar sem þjer sjáið ryklausa
og táhreina búðarglugga,
er það oftastnær að þakka
Windolene.
Húsmóðirin í hverju húsi þarf
að nota Windolene, svo að
gluggar, speglar og annað
haldist hreint og fagUrt.
Vinnuföt.
smekkbuxur, jakkar, sam-
festingar og drengjabuxur,
allar stærðir.
MiKluter
Sími 3894.
Vantar efni! Skaðann skil,
skort á vali nægu,
eirpípurnar eru til,
aftur, þessar frægu.
■Nýverið voru styrktarsjóð sjúk-
linga í Kópavogi gefnar 25 krón-
ur frá N. N. Þakka innilega gjöf-
ina. E. S.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
Frá Hallgrímsnefnd Hvamms-
hrepps í Dölum ágóði af skemtun
230 kr., frá Kvenfjelagi Hvamms-
lirepps í Mýrdal 100 kr., áheit frá
Ingu 2 kr. Kærar þakkir. Ól. B.
Björnsson.
Sigurjón Ólafsson myndhöggv-
ari hefir þessa daga nokkrar högg-
myndir til sýnis í glugga Málar-
ans í Bankastræti.
Laust embætti. Hjeraðslæknis-
embættið í Hólshjeraði er auglýst
laust til umsóknar og er umsókn-
arfrestur til 1. sept.
Lausn frá embætti. Síra Hálf-
dáni Guðjónssyni vígslubiskupi og
prófasti hefir, samkvæmt eigin
ósk, verið veitt lausn frá prest-;
skap frá 1. júlí að telja.
Sæmundur Bjarnhjeðinsson yf-
irlæknir við holdsveikraspítalann
í Laugarnesi, hefir samkvæmt eig-
in ósk fengið Tausn frá embætti
frá 31. ágúst n. k. að telja.
Leiðrjetting. í lista urn sam-
skot til jarðskjálftafólksins hefir
misprentast frú E. J. Olgeirsson
50 kr., átti að vera frú E. J. O.
Ljósmyndastofur bæjarins verða
lokaðar framvegis á sunnudögum,
samkvæmt bæjarstjórnarsamþykt.
G-istíhúsið Kárastaði í Þing-
vallasveit hefir Jón Jónsson veit-
ingamaður tekið á leigu í sumar
og verður þar tekið á móti gest-
um til lengri og skemri dvalar.
Bifreiðaskoðunin. Á morgun á
að koma með til skoðunar bif-
reiðar og bifhjól RE 201—250.
Reliance, skemtiferðaskip, kom
hingað í fyrrinótt og fór aftur í
gærkvöldi. Á því voru um 400 far
þegar.
Pólska skemtiferðaskipið er
væntanlegt á morgun og dvelur
hjer tvo daga.
Ræðaraskírteini. Samkvæmt til-
skipun 20. nóv. 1922 um eftirlit
með skipum og' bátum og öryggi
þeirra, hefir atvinnu- og sam-
göngumálaráðuneytið gefið út aug
lýsingu um það, að sá, sem óski
eftir að öðlast ræðaraskírteini,
skuli sanna fyrir skipaskoðunar-
stjóra að hann hafi nægilega þekk
ingu og leikni í öllu, er lýtur að
því, að setja bjargbáta skips út-
b.vrðis, kunni að róa og stjórna
bát, og að hann ennfremur sje
fær um að skilja skipanir, er að
yinnu við bjargbáta lýtur og svara
þeim. Hann skal vera fullra 18
ára að aldri og hafa stundað sjó-
mensku að minsta kosti í 12 mán-
U<ú. Ræðaravottorð eru g'efin út
af skipaskoðunarstjóra, endur-
gjaldslaust.
Farþegar með e.s. ,,Brúarfoss“
frá útlöndum í fyrradag voru 72
að tölu, þar á meðal: Ólafur S.
Björnsson, Hafliði Helgason, Björn
Br. Björnsson, Sveinn Gunnars-
son, ungfrú Anna Stephensen,
ungfrú Fanny Sveinsdóttir, frú
Guðrún Nielsen, Axel Kaaber, Sig-
urður Arnalds og frú, Hjörtur
Hjartarson, Rafn Jónsson, Gunn-
ar Björnsson, Bjarni Knudsen, frú
Valgerður Helgadóttir, ungfrú
Brynhildur Pálsson, frú Kristín
Jónsdóttir, Guðni Guðjónsson,
Guðmundur Þorláksson, Gestur
Ólafsson, Þórður Jónsson, Gunn-
laugur Loftsson og 51 útlending-
Landsfundur kvenna. Kl. 8y2 í
kvöld verður flutt erindi um eld.>
neyti og notkun þess og síðan hef j
ast umræður um það mál.
Á morgun, sem er síðasti fundar-
dagur, verður rætt um samvinnu-
mál og kl. 5—7 um ýms óútkljáð
mál. Á þriðjudag fara svo full-
tniar þeir er landsfundinn hafa
setið til Þingvalla.
Nýir bankaseðlar. Landsbank-
inn er nú að gefa út nýa seðla,
5 kr„ 10 kr„ 50 kr. og 100 kr.
Verða 10 kr. seðlarnir settir í
umferð núna eftir helgina, en hin
ir seðlarnir koma í umferð þegar
þörf gerist. Eru seðlar þessir að
mörgu leyti fegurri og vandaðri
heldur en hinir gömlu seðTar og
þess gætt, að litur segi til, svo
engin hætta sje á að ein tegund
verði tekin fyrir aðra í misgTip-
um.
Pálmi Hannesson rektor liefir
verið skipaður í útvarpsráð sam-
kvæmt tilnefningu útvarpsnot-
enda. Þá er vitvarpsráð fullskipað
og eru hinir fulltrúarnir: Guð-
jón Guðjónsson, Helgi Hjörvar,
Bjarni Benediktsson og síra
Friðrik Hallgrímsson.
Lík Kristjáns Kristjánssonar
skjalavarðar verður flutt með
Suðurlandi til Borgarness á þriðju
daginn. Kveðjuathöfn fer fram í
dómkirkjunni á morgun kl. 6
síðd.
Heimatrúboð leikmanna Vatns-
stíg 3. Samkomur í dag: Bæna-
samkoma kl. 10 árd. Almenn sam-
koma kl. 8 síðd. Allir velkomnir.
Dánarfregn. Þorbjörg Friðriks-
dóttir, kona Stefáns Bergssonar
hreppstjóra, en móðir Bernharðs
Stefánssonar alþingismanns, and-
aðist 4. þ. m. að Þverá í Öxna-
dal eftir langa vanheilsu.
Dragnótaveiðar í Vestmannaeyj-
um. Bátar þeir, sem stunda drag-
nótaveiðar í Vestmannaeyjum,
hafa aflað sæmilega að undan-
förnu. Fiskurinn er seldur ýmist
tll Englands eða Reykjavíkur.
Úlfljótsvatn. í fyrradag fór
fram uppboð á Úlfljótsvatni.
Hæstbjóðandi var Reýkjavíkur-
bær. bauð 85 þús. kr. Uppboðs-
haldari ákvað viku frest til að at-
huga hvort, taka ætti tilboðinu.
Fyrirlestur Oscar Olsson hátempi
ars, sem hann flytur í Norræna
fjelaginu verður ekki f'vr en á
þriðjudaginn kemur kl. 8þú í
Kaup]nngsaTnum.
Mæðrastyrksnefndin hefir upp-
lýsing'askrifstofu sína opna á
mánudags og fimtudagskvöldum
kl. 8—10 í Þingholtsstræti 18,
niðri.
Næturvörður verður í nótt í
Tngólfs Apóteki og Laugavegs
Apóteki.
Hjálparstöð Líknar fyrir berkla-
veika, Bárugötu 2 (gengið ism frá
Garðastræti, 3. dyr t. v.). Læknir-
inn viðstaddur mánud. og mið-
vikud. kl. 3—4 og föstud. kl. 5—
6.
Ungbarnavernd Líknar, Báru-
g'ötu 2, (gengið inn frá Garðastr.,
1. dyr t. v.)- Læknirinn viðstadd-
ur fimtud., föstud. og þriðjud.
kl. 3—4 nema 1. þriðjud. í hverj-
um mánuði, en þá er tekið á móti
barnshafandi konum á sama tíma.
Sigfús Einarsson
tónskáíd.
í samsæti því, er Landskórnum.
var haldið, að Hótel Borg, síðastl.
sunnudag, sat maður einn utar-
lega á bekk, yfirlætislaus og
göfugmannlegur, en sem var lítill
gaumur gefinn, og' ekkert minni
flutt. Sá maður var Sigfús Einars-
son tónskáld. ,
Jeg er ekki fær um
að lýsa öllu því mikla og fjöl-
breytta starfi, sem Sig'fús Eínars-
son hefir frá því fyrsta lagt fram
til eflingar sönglífi í , landinu, eða
meta þau mörgu tónverk er hann
hefir samið, og auðgað með ís-
lenskar tónmentir. En jeg veit að
framtíðin mun gera það,. og gera
það best.
Eigi mun sá söngflokkur, eða
söngvari til á landinu. að liann
hafi ekki haft á sinni söngskrá,
eitt eða fleiri af lögum Sigfúsar
Ein^rssonar. Og' út um höf, og
breiðar byggðir þessa lands, hafa
mörg af lögum Sigfúsar hljómað
frá alþýðuvörum um tugi ára, og
munu gera það, að minsta kosti
sum þeirra, meðan tónar fá hljóm-
að frá íslensku brjósti.
En svo er háttað með okkur
íslendinga, að slíkir menn, sem
Sigfús Einarsson tónskáld, sem
auðga þjóð sína að ódauðlegum
verðmætum, mega oft búa við
skilningsleysi, samúðarleysi, og
jafnvel allsleysi, meðan ausið er
fje á báða bóga í pólitíska lodd-
ara, sem ekkert gefa þjóð sinni,
nema illa unnin verk, og svikin
loforð. Samband íslenskra karla-
kóra á meðal annars að hafa það
á stefnuskrá sinni, að tónskáld-
um þjóðarinnar, þeim er það
eig'a skilið, sje sýndur sómi og
viðurkenning af þingi og þjóð og
verk þeirra flutt, jafnóðum og
þau verða til, og með því geti
vaxið og þroskast saman, tón-
skáld þjóðarinnar. og söngkraftar.
K. Ó.
Skógareldar
i Saxlandi.
Berlín 7. júlí. F. Ú.
Skógareldar hafa geisað í
Saxlandi tvo síðustu dagana,
en nú hefir slökkviliði og hfer-
liði tekist að mestu leyti að
vinna bug á eldinum. Eldur-
inn náði yfir svæði sem er 8—
10 kílómetra á hvorn veg, og er
talið, að um 70,000 tenings-
metrar af trjáviði hafi brunnið.
Ósköp ertu á.hyggjufullur í
dag.
—Já, jeg er að bíða eftir því
að verða bróðir.
ppSiflKRKj
Erum kaupendur að
200—300 eggjum dag-
lega.
Sfúlka
óskast til að innheimta reikn-
inga. — Upplýsingar á skrifstof-
unni.
“Brnarfoss"
fer annað kvöld í hraðferð
vestur og norður. — Auka-
höfn: Þingeyri.
Farseðlar óskast sóttir
fyrir hádegi á morgun.
Umboðsmaðtír.
Stórt kaffifirma óskar eftir
duglegum umboðsmanni til að
selja kaffi í heildsölu í Reykjavík.
Umsóknir merktar „Snarest 9291“
sendist A. S. í.
Islensk egg.
Kleín
Baldursgötu 14. Sími 3073.
Pað parf
enginn að hafa
slæmar hendur þó
hann vinni við
fiskþvott, hrein-
g'erningar o. þ. u.
1. ef Rósól-glyce-
rine er notað eftir
að hafa þvegið vel
og þurkað hendur
sínar.
Það varðveitir hörundsfegurð
handleggja og handa.
Þetta þekkja þeir sem reynt
hafa,.
H.f. Efnagerð Reykiavfkur
Kem. tekn. verksmiðja.
Siikisikku
Ijósir litir.
Sumarkjólaefni.
Blússur.
Peysur.
Pils.
Sumarkjólar á börn og
fuHorðna.
Hanskar.
Töskur.
Slæður
o. m. fl.
VtrsL llk.
Laujaveg 52. — Sími 4485.