Morgunblaðið - 22.08.1934, Blaðsíða 2
2
•:& ; M0 RGUN BLAÐIÐ
a
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Ritatj&rar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson.
Ritstjórn og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sfmi 1600.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Sími 3700.
HeimasímaT:
Jðn Kjartansson nr. 3742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
Árni Óla nr. 3045.
E. Hafberg nr. 3770.
Áskrfftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuði.
Utanlands kr. 2.50 á mánuði
í lausasölu 10 aura eintakið.
20 aura með Lesbók.
Alþýðublaðið í bobba
Alþýðublaðið er komið í óþægi-
lega klípu í atvinnubótamálinu.
Þegar Haraldur Guðmundsson
atvinnumálaráðherra „hinna vinn-
andi stjetta“ ætlaði á dögunum
að svíkjast um að greiða lögskipað
an styrk til atvinnubóta í Reyk.ja-
vík, fanst Alþýðublaðinu þetta
ágætt og* lofaði röggsemi ráð-
berrans.
Þegar bæjarráðið vildi auka til
muna atvinnubætur í bænum og
fór á fund atvinnumálaráðherra
og spurðist fyrir um, hvort ríkið
myndi styrkja þá aukning í sama
hlutfallj (að þriðjungi) og ráð er
fyrir gert í fjárlögum, svaraði
ráðherrann því, að meira fje væri
ekki á fjárhagsáætlun og gæti
hann því engin loforð gefið. Al-
þýðublaðinu líkaði svar ráðherr-
ans prýðisvel, og' það enda þótt
afleiðingin yrði alger stöðvun
allrar atvinnubótavinnu.
Nú hafa hinsvegar flokksbræður
Alþýðublaðsins í bæjarráði Reyk.ja
víkur, sagt sitt álit skýrt og
ákveðið um þetta framferði Har-
alds Guðmundssonar. Þeir hafa
samþykt einróma, með Sjálfstæð-
ismönnum, tillögu um stórfelda
aukning atvinnubótavinnunnar,
en bundið framlag bæjarsjóðs því
skilyrði, að ríkið styrki atvinnu
þæturnar að einum þriðja og að-
stoði við lántöku, eins og ráð er
fyrir gert í fjárlögum. Bæjarráðs-
menn sósíalista eiga þakkir skilið
fyrir það, að taka þannig á mál-
inu, því með því sýha þeir at-
vlnnumálaráðherra, að þeir ætla
ekki að þola að traðkað verði á
rjetti Reykjavíkur.
Alþýðublaðið í gær hefir sýni-
lega ekki áttað sig á þessari rögg-
semd fulltrúa sósíalista í bæjar-
ráði, því í einni grein eru þeir
lofaðir fyrir dugnaðinn, en í ann-
ari grein er Haraldur Guðmunds-
son íefaður fyrir svikin, sem hann
aetlaði að fremja á Reykvíkingum!
Aumingja Alþýðublaðið, ætlaði
að þjóna Haraldi í lengstu lög,
jafnvel þótt traðkað væri á rjetti
verkalýðsins. En það varaði sig
ekki á því, að til voru menn í AI-
þýðuflokknum, sem sögðu: Hingað
— en ekki lengía!
Arne Jebsen, forstjóri við járn-
vöruverslunina A.s. Wallendahl og
Sön í Bergen, kom hingað á mánu-
daginn með Lyru. Er það ein af
stærstu járnvöruverslunum á Norð
urlöndum. Forstjórinn ætlar að
vera hjer um kyrt í 3 vikur.
Hann hefir aðsetur á Hótel ísland.
50 ára er í dag Brynjólfur Gísla-
son, Bergstaðastræti 53.
Botnía er væntanleg hingað
snemma í dag.
Rannsóknarför í Drangey.
Grettiskofi fundinn.
Munnmæli um kofann staðfest
við rannsókn þessa.
Á laugardaginn var fór Matthías Þórð-
arson þjóðminjavörður. og Guðni Jónsson
magister út í Drangey, ásamt nokkrum kunn-
ugum Skagf irðingum og Árna Öla blaðamanni
til þess að rannsaka, hvort vegsummerki stað-
festa munnmælin um kofa Grettis í eynni.
Grófu þeir upp, þar sem munnmæli
herma, að Grettir hafi búið um sig, en þar voru
engin vegsummerki sýnileg á yfirborði.
Fundu þeir þar í jörðu leifar mannabú-
staða, margar gólfskánir, en sú neðsta, sem
var 1,8 metra í jörð, var langtum mest, og bar
vott um, að þar hefðu menn dvaldið lang-
dvölum. Þar mun því vera fundið gólfið í
kofa Grettis.
Með hinni nýju Fornritaút-
gátu hefir áhugi manna aukist
fyrir rannsóknum þeim öllum
er á einhvern hátt snerta forn-
sögur vorar.
Næsta ár kemur Grettissa^a
út. Útgáfuna annast Guðni Jóns
son magister.
Munnmæli í sambandi
við Drangeyjarvistina.
Ýms munnmæli eru til í sam-
bandi við Drangeyjarvistr Grett-
is. Talað hefir verið um rúst af
kofa hans þar.
Aldrei hafði fornfræðingur í
Drangey komið til rannsókna.
Óeðlilegt var að rannsaka ekki
hvers menn kynnu að verða þar
vísari. Rjett var að gera það
áður en Grettissaga væri gefin
út að nýju.
Því ákvað Morgunblaðið að
fá hina færustu menn til að fara
til Drangeyjar til rannsóknar.
Matthías Þórðarson þjóð-
minjavörður var fús til þeirrar
farar og Guðni Jónsson.
Fyrir nokkru fór Ámi Óla
til Sauðárkróks til að undirbúa
Drangeyjarför, fá kunnugustu
menn þar til fararinnar, bát og
annan útbúnað.
Á laugardagsmorgun síðast-
liðinn komu þeir Matthías og
Guðni þangað. Veður var gott
þann dag, og því biðu þeir ekki
af sjer tækifæri, en fóru strax
út í eyna.
í fylgd með þeim fóru feðg-
ar þrír Sigurður Sveinsson frá
Hólakoti á Reykjaströnd, og
synir hans Bjarni og Sigmund-
ur.
Sigurður hefir í 50 ár verið
sigamaður í Drangey. — Synir
hans hafa nú undanfarin ár
haft Drangey á leigu. Allir eru
þeir því þaulkunnugir þar.
Guðni Jónsson segir
fró.
f fyrrakvöld kom Guðni Jóns-
son magister til bæjarins. En
þeir Matthías Þórðarson og
Árni Óla urðu eftir nyrðra.
Frásögn Guðna er í stuttu
máli þessi:
Þeir komu um kl. 3 út í eyna
og voru þar til kvölds á laug-
ardag.
Ferðalagið gekk að öllu leyti
vel.
í eynni eru tvö tóftarbrot.
En svo skýrði Sigurður frá, að
munnmæli segðu, að hvorugt
þeirra væri Grettiskofi, heldur
hafi Grettir gert kofa sinn eða
byrgi sunnan undir lágum kletti
í eynni.
Þar voru engin vegsummerki
á yfirborði, er bentu til að þar
hafi verið hleðsla.
En er þeir tóku að grafa
þarna niður, fundu þeir hverja
gólfskánina á fætur annari, er
sýndu, að þarna hefði verið
kofi.
Allar voru þessar gólfskánir
mjög þunnar. Sýndi það, að
þarna hefir ekki verið lengi
hafst við í einu. Munu þetta
leifar frá fuglamönnum.
En eh þeir höfðu grafið í 1,8
metra dýpt, komu þeir nið-
ur á þykka gólfskán, er bar vott
um, að þar hefir mannaferð ver
ið um langan tíma. Var þar mik
ið af beinaösku.
Benda allar líkur til þess, að
þarna hafi þeir fundið gólfið í
kofa Grettis.
Svo há er klettasnösin yfir
þá gólfhæð, að mjög hefir verið
handhægt að refta af klettinum
að norðan og suður yfir kofann.
Þareð gólf þetta er svó djúpt
í jörð, gátu þeir ekki í þetta
sinn grafið upp allan kofann.
En þó ekki hafi verið meira
gert að þessu sinni, hefir feng-
ist mikilsverð bending um, að
munnmæli hafi rjett fyrir sjer.
Grettir og fjelagar hans hafi
einmitt haft aðsetur undir kletti
þessum.
Guðni Jónsson magister rit-
ar grein í næstu Lesbók um ferð
þessa og athuganir þeirra fje-
laga.
Tillöfgur
um tilhögun á fiskiveiðum
Englendinga.
London 21. ág. FB.
Útgerðarnefndm leggur m. a.
til, að allir þeir, sem síldveiði
stunda, verði að sækja um leyfi
til þess frá síldarútvegsráðínu.
Enn fremur verða síldarselj-
endur að fá leyfi frá ráðinu, og
þeir, sem hafa atvinnu af að
verka síld og reykja. Þá vill
nefndin að ákvarðanir verði
settar um hve mörg skip skuli
stunda veiðar, bæði hverskonar
veiðar þau skuli stunda og á
hvaða tímum árs, alt undir yf-
irumsjón og að fengu leyfi ráðs-
ins.
f þriðja lagi ber nefndin fram
tillögur um hagkvæmari tilhög-
un á fiskveiðunum yfir höfuð
m. a. að lögð verði meiri stund
á fiskveiðar að vetrinum, m. a.
til þess að koma í veg fyrir inn-
flutning fiskjar frá Noregi að
öllu eða nokkru leyti.
f fjórða lagi leggur nefndin
til, að stofnuð verði útflutnings
deild, sem hafi með höndum út-
flutning síltfar og sölu á erlend-
um markaði. (UP).
Fiskimálanefndin hefir ákveðið
að leggja til, að stofnað verði átta
manna síldarútvegsráð, sem hafi
eftirlit með allri síldarútgerð á
Brétlandi. (UP).
Bandaríkjamenn nálgast
Þjóðabandalagið.
London, 21. ágúst. FB.
Bandaríkin hafa í dag ákveðið
að talca þátt í alþjóðaverkamála-
skrifstofunni í Genf. Jafnframt
hafa þau lýst því yfir, að þetta
hafi það þó á engan hátt í för
með sjer, að Bandaríkin taki á
sjg nokkrar skyldur gagnvart.
Þjóðabandalaginu, eða skifti sjer
af störfum þess, enda ætli þau
ekki að ganga að sáttmála þess.
Alþjóðaverkamálaskrifstofan
bauð Bandaríkjunum þátttöku í
júní s. 1.
Verðjöfnunarsjóðnr
fiskútflytjenda
staðfestur með bráða-
birgðalögum.
í gær komu út bráðabirgða-
lög í Lögbirtingi, undirrituð 20.
ágúst, sem nefnd eru „viðauki
við bráðabirgðalög frá 25. maí
1934 um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til íhlutunar um sölu
og útflutning á saltfiski“.
í 1. gr. þessara laga segir
að sje ákvæðum 1. gr. til
bráðabirgðalaga beitt, ,,þá skal
við útflutning fiskjarins greiða
sjóðgjald, er nemi kr. 5,00 á
skippund til jafnaðar af öllum
verkuðum fiski nema af upsa,
keilu og úrgangsfiski (nr. 3 og
4), en af þeim fiski greiðist
kr. 2.00 á skipp-und. Af óverk-
uðum fiski, þar með talinn þveg
inn og pressaður fiskur, nemi
sjóðgjaldið kr. 20.00 á smál.’st
nema af upsa, keilu og úrgangs
fiski greiðist kr. 5.00 á smá-
Iest.“
Enn fremur segir í lögunum
um hvernig nota skuli þenna
verðjöfnunarsjóð, að tekjum
hans „skal varið eftir því sem
með þarf, til þess að efla,
tryggja og auka fiskmarkaði,
til verðjöfnunar, og til annara
nauðsynja í þágu saltfiskversl-
unar landsmanna á þann hátt,
er ríkisstjómin ákveður.“
Ennfremur: „Nú verður af-
gangur af tekjum sjóðsins, eftir
að þeim hefir verið varið sam-
kvæmt 2. gr., og skal þá skifta
því fje, sem ónotað er, milli salt
fiskútflytjenda í rjettu hlutfalli
við greiðslur þeirra í sjóðinn.“
Vegna Spánarsamn-
inganna.
Blaðið átti í gær tal við einn
nefndarmanna úr Fisksölunefnd
inni, og spurði hann hvernig í
þessu máli lægi.
Hann skýrði svo frá:
Verðjöfnunarsjóður þessi er
stofnaður vegna samninganna
við Spán, og voru bráðabirgða-
lög um hann undirbúin, áður en
fyrverandi stjórn fór frá, sam-
kvæmt ' tilmælum samninga-
•
nefndarinnar er samdi við Spán
verja.
Þegar búast mátti við, að
fisksalan til Spánar teptist að
einhverju leyti, og fiskur yrði
hjer afgangs, sem senda þyrfti
á óvissa markaði, og viðbúið að
fyrir hann fengist lágt verð,
þótti rjett, að verðjöfnunarsjóð-
ur væri, sem jafnaði upp verð-
ið á þeim fiski, sem lægst verð
fengist fyrir.
Gjald þetta í verðjöfnunar-
sjóð, sem getið er um í bráða-
birgðalögunum, 5 kr. af skip-
pundi hefir verið greitt af öll-
um fiski, sem út hefir verið
fluttur af þessa árs afla.
En með lögunum er gjaldið
lækkað af hinum rýrari fisk-
tegundum.
Fari svo, að sæmilegt verð
fáist fyrir allan aflann í ár, þá
verður gjaldið sem runnið hefir
í verðjöfnunarsjóðinn endur-
greitt fiskútflytjendum.
Gjaldið hefir verið greitt af
öllum fiski, sem út hefir verið
fluttur, hvort hann hefir verið
eign manna innan Fisksölusam-
lagsins eða annara, því þeir sem
ekki eru í samlaginu hafa ekki
fengið útflutningsleyfi, nema
ieir greiddu þetta gjald í sjóð-
inn.
V atna j ö kul sf ararnir
þýsku.
21. ág. FÚ.
Þessa dagana eru á ferð á
Vatnajökli þrír þýskir menn,
dr. Ernst Hermann, sem var þar
í leiðangri í síðastliðnum mán-
uði, og tveir menn aðrir, og
ætla þeir að ná til eidstöðvanna
ef þess er kostur. Þeir voru
fluttir frá Kálfafelli fyrra
iriðjudag upp að jöklinum. —
Höfðu þeir meðferðis tjöld,
sleða, matvæli og aðrar nauð-
synjar á þrem klyfjahestum, og
bjuggust við að hafa á jöklin-
um hálfs mánaðar dvöl eða
meira. Lögðu þeir svo íyrir að
peirra yrði vitjað upp að jökl-
inum, ef þeir yrðu ekki komnir
til bygða 28. þ. m.