Morgunblaðið - 10.11.1934, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ
6
Hjólreiðaslys
í Bankastræti.
7 ára gömul telpa verð-
ur undir reiðhjóli og
meiðist mikið á höfði.
1 gæt' voru stödd hjer í bænum
hjón úr Hafnarfirði með 7 ára
•ain’g kjördóttur sína. CJm kl. 3
voru þau á gangi niður Banka-
stræti að norðanverðu. Br þau
voru á rnóts við náðhúsin ætlaði
konan yfir götuna í þeim tilgaogi
að fara með telpuna á kvennanáð-
húsið. Konan leiddi telpuna við
tinstri hlið sjer. En er þær voru
komnar hólfa vegu út á götuna,
kcm hjólreiðamaður á miklum
hvaða beint á telpuna. Fell hún
við áreksturinn á götuna og fekk
hún stórt sár á höfuðið. Hún var
ílutt á Landakotsspítala og er á-
litið að hún hafi meiðst mikið.
Hjólreiðamaðurinn fell líka á göt-
una, við áreksturinn, en stóð þó
upp aftur og' flýtti sjer burt
áður en lögreglan kom á staðinn.
Lögreglan biður þá, sem þarna
voru viðstaddir að koma til viðtals
á lögreglustöðina sem fyrst, ef
vera kynni að þeir gætu gefið
einhverjar upplýsingar í málinu.
Það er í rauninni mesta lán, að
slys skuli ekki vera, tíðari í Banka-
stræti. eins og hjólreiðamenn
li.jóla oft gáleysislega niður
brekkuna.
§amningar
milli bifreiðastöðva og
bifreiðastjóra.
Undanfarna daga hafa stað-
ið yfir samningar milli bifreiða-
stöðva hjer í bænum og bif-
reiðastjóra um launakjör og
önnur vinnuskilyrði.
Var fundur haldinn um málið
í gærkvöldi og náðist þar sam-
komulag um kjör bifreiðastjóra.
Lágmarkskaup þeirra samkv.
samningnum skal vera kr. 250
3 mánuði ársins, 275 kr. aðra 3
mán. og 300 kr. sex mánuði.
Vinnutítni þeirra sje ekki
lengri en 12 klst. á dag, en má
þó vera lþo klst. lengur o'g
skuli þann tíma greitt sjerstakt
kaup ,kr. 1.50 pr. klst.
Frídaga fái bifreiðastjórar
tvo virka daga í mánuði með
fullu kaupi, en auk þess 8 daga
frí, þeir sem vinna hjá sama
atvinnurekanda alt árið.
Byrjunarlaun bílstjóra sje
200 kr. á mán. 1. mánuðinn, en
hækki í 250 næstu tvo mánuði.
Þess skal getið, að allmargir
bifreiðastjórar hafa nú talsvert
hærra kaup en hjer er ákveðið.
Sviss
sýnir varkárni
í fjármálum.
Berlin, 9. nóv. FÚ.
í fjárlagafrumvarpi sviss-
nesku stjómarinnar fyrir 1935
er gert ráð fyrir tekjuhalla sem
nemur 2*4 miljón franka. —
Tekjuhallinn orsakast af því, að
stjómin gerir ráð fyrir stórkost-
legri rýrnun á tolltekjum og
stimpilgjöldum.
SöngskemtiiKi
fi Nýja Bfió.
Hreinn Pálsson hjelt söng-
skemtun í Nýja Bíó í fyrra-
kvöld fyrir troðfullu húsi. —
Hreinn Pálsson er ekki lærður
söngvari, enda stundar hann
sönginn sem aukastarf, en ó-
hætt mun að fullyrða, að éng-
inn íslenskur söngvari eigi um
þessar mundir meiri vinsældum
að fagna.
Röddin er glæsileg og mjúk,
og beitir hann henni æfinlega
af meðfæddri smekkvísi. Við-
kvæmnin er mest áberandi í
söng hans, en aftur á móti
mætti bera meira á ljettleika og
skapi. Öll framkoma hans á
söngpallinum er og mjög að-
laðandi, og gerir það sitt til að
hann nær tökum á áheyrendum.
Á songskránni voru lög eftir
íslenska og erlenda höfunda, og
má sjerstaklega nefna Tonerne,
eftir Sjöberg, Folkvisa og
Mustalainen eftir Merikanto,
Ingalill eftir Lejdström og lag
Björgvins Guðmundssonar, ,,Þó
að margt hafi breyst“, sem öll
voru prýðilega sungin.
Páil ísólfsson annaðist undir-
leikinn.
Vikar.
Matreiðslukennsla.
Eftir nokkra daga verður byr.j-
að 4 námskeiðum í matreiðslu fyr-
ir stúlkur og konur hjer í bæn-
um. ’
Kensluna annast æfðir kennar-
ar, Guðrún Jensdóttir og Ólöf
Jónsdóttir, sem báðar hafa tekið
ágæt próf í útlendum kennara-
skólum, en hafa auk þess mikla
æfingu í ma’treiðslukenslu hjer á
landi, bæði í kaupstöðum og í
sveitum.
Námskeið þessi verða höfð svo
hagnýt og fjörbreytt, sem kostur
er á. S.jerstaklega munu kennar-
arnir láta sjer ant um að kenna
að mátbúa ýmisleg't úr matjurt-
um.
i -Jeg er þess fullviss að nám-
Iskeiðin verða góð og gagnleg og
leyfi nljer að mæla hið hesta með
þeim.
Halldóra, Bjarnadóttir.
Styðjið gott starf.
Dýraverndunarfjelag íslands
hefir á undanförnum árum unn-
ið svo fagurt og þarft verk, sem
mönnum ber vel að meta. Það
hefir barist fyrir því, að dýrun-
um væri veitt líkn og hjálp.
Mönnum ætti að vera það ljóst,
að eins og barist er fyrir mann-
rjettindum, eins er það sjálf-
sögð skylda að berjast fyrir
rjettindum dýranna. Þau eiga
kröfu til þess að þeim sje hjálp-
að. Dýraverndunarfjelagið hef-
ir á ýmsan hátt veitt dýrunum
hjálp. Það hafa verið haldnir
fundir, ritaðar blaða- og tíma-
ritagreinar, fróðlegu blaði hafa
fjöldamargir kynst og getað þar
sjeð hvernig er barist fyrir bætt
um kjörum dýranna.
Á liðnum árum hafa mjög
margar skepnur hlotið skjól í
húsi Ðýravemdunarfjelagsins í
Tungu, og geta margir borið
því vitni, að þar hefir verið
starfað til hjálpar hinum mál-
lausu skepnum, en um leið mik-
ill greiði verið gerður mönnun-
um.
En til þess að hægt sje að
rSekja starf þetta samkvæmt
hugsjón fjelagsins þarf að leita
stuðnings góðra manna, Er því
ákveðið, að Dýraverndunarfje-
lagið haldi hlutaveltu 11. þ. m.
í K. R.-húsinu. Verður þar úrval
af góðum raunura og góða
skemtun þangað að sækja. Skal
það brýnt fyrir mönnum að
styrkja starf þetta með gjöfum
og sækja hlutaveltuna á sunnu-
daginn kemur. Þeim peningum,
sem til þess fara er áreiðanlega
ekki á glæ kastað.
Hjer er tækifæri til hvoru
tveggja, að njóta góðrar skemt-
unar og hepni, og styðja um leið
að eflingu hins heillaríka starfs,
sem mönnum ætti að vera ljúft
og skylt að styrkja.
Heill fylgi Dýraverndunarfje-
lagi íslands og framtíð þess.
B.
Zimsensbryggja
verður lögð niður.
Menn hafa kvartað undan því,
að Zimsens-bryggja væri í ólagi
og hún gæti verið hættuleg ó-
kunnugum að kvöldlagi. Brygg'j-
an væri nú mjög úr sjer gengin
og varla nothæf lengur.
Blaðið átti í gær t,al vifj Þórar-
inn Kristjánsson, hafnarstjóra út
af þessu, og gaf hann eftirfar-
andi upplýsingar :
Zimsens-bryggja hefir nu um
nokkur ár verið í ljelegu standi.
Er í ráði að leggja hana alveg
niður, enda hefir hún lítið verið
notuð af öðrum bátum en þeim,
sem legið hafa til viðgerðar þar.
Bryggjurnar fyrir neðan ver-
búðirnar eru fullgerðar og liggja
nú allir bátar þar. Hafnarstjóri
sagði ennfremur, að nú mundi
vera girt 'fyrir bryggjuna og hún
tekiri úr riotkun.
Nýtt Dreyfusmál.
Avaxtabúðin
Týsgötu 8, sími 4268
(þar sem áður var Björn Björnsson & Co).
Opnar í dag (laugardag).
Þar fæst:
Ávextir, Sælgæti, Tóbak, Nýlenduvörur, allar tegundir
og fl .Og fl.
Mikið úrval af 1. fl. vörum.
Sjerstaklega lipur afgreiðsla.
Reynið og sannfærist.
Virðingarfylst.
Stgurður Gíslason.
IVý bók! Ný bók!
Islenskar úrvalsstökur
100 bestu f^rskeytlur, sem ortar hafa verið á jslensku frá því á
seytjándu öld til voyrfi daga. Þessu ferskeytluúrvali mun verða. vel
tekið af öllum þeim,, sem unna íslenskum alþýðukveðskap. —
Fæsf hjá hóksölum.
listiiniittniirtMi
vantar í Sjúkrahús Isafjarðar nú þegar.
Upplýsingar gefur
Kristín Thoroddsen*
Landspítalanum.
Frogé o g Legrand málafærslu-
maður hans.
Við dómstólinn í Belfort hefir
að undanförnu verið landráðamál,
eitt af hinum mörgu njósnara-
málum sem nú eru á döfinni í
Frakklandí.
Aðalmaðurinn var kapteinn í
vistaliðinu, Frogé að nafni Var
hann ákærður fyrir það að hafa
látið þýska njósnara fá skipu-
lagningu herstjórnarinnar um iðn-
að og vistaforða í Belforthjeraði,
ef til ófriðar skyldi draga. Þar
yoru einnig' skýrslur nm það, hve
miklu herliði skyldi safna þar
saman við almenna herköllun.
Af mörgum var talið að Frogé
væri hafður fyrir rangri sök, og
hafi verið gert samsæri gegn hon-
um. Væri þetta alveg samskonar
mál, og Dreyfusmálið forðum.
Frogé hefir altaf haldið því fram
að hann væri saldaus, og hefir
haft ágætan málafærslumann. Þó
var hann dæmdur í 5 ára fang-
elsi og sviftur borgaralegum rjett-
indum um 10 ár.
„Bremen“
setur nýtt met.
London, 8. nóv. FÚ.
Þýska farþegaskipiö Bremen,
sem áður átti met í siglingu yfir
Atlantshafið, setti enn nýtt met
í dag. Það kom til New York
4 dögum 15 stundum og 27
mínútum eftir að það fór frá
Cherbourg í Frakklandi, og er
það 21 mínútu styttri tími en
fyrra met þess. Þetta var hundr
aðasta ferð skipsins vestur um
haf. —
—-—®r>--------—
REYKJAFOSS
WVIINDD- 04
Í&VBÍprW HKBINUTISVtofí»
JgSViMMW
Hafnarstræti 4. .. Sími 3040.
Fáum í dag:
Allskonar
grænmefi.
§pikþræddar
Bjúpur.
Verslunin
Kföt & Fiskur.
Símar 3828 og 4764.
Grænmefl
læst áralt
fi