Morgunblaðið - 06.01.1935, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.01.1935, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudaginn 6. j an. 1935. Útgef.: H.f. Árvakur, Reylcjavlk. Ritstjðrar: J6n Kjartanseon, Valtýr Stefánsson. Ritstjórn og afgreiSsla; Austurstræti 8. — Sírai 1600. Auglýsingastjðri: R. Hafberg. Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 17. — Sími 3799. Heimasímar: J6n Kjartansson, nr. 3742. yaltýr Stefánsson, nr. 4220. Árni Óla, nr. 3045. H. Hafberg, nr. 3770. Áskriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuSi. Utanlands kr. 2.50 á mánuSi. í lausasölu: 10 aura einta.kiS. 20 aura meS Lesbók. Hafa engin mjólkurlög verið í gildi frá áramótum? Stjórnin hefur trassað að fá mjólk- urlögin staðfest fyrir áramót, en bi áðabirgðalögin giltu aðeins til þess tíma. Verkfallið. Það er raunalegur vottur um algert ábyrgðarleysi þeirra sem Alþýðublaðið skrifa, með hverj- um hætti þeir rita um deilu þá er nú er í aðsigi milli togara- útgerðarmanna og forkólfa Sjó- mannaf j elagsins. Gífuryrði og fullkomin mis- þyrming staðreynda skiftast á, rjett eins og alt væri undir því komið að æsa og spana til ó- friðar, en sjálft málefnið, fram- haldandi rekstur togaranna og atvinna sjómanna væri algert aukaatriði. Morgunblaðið hefir leitað sjer upplýsinga um hversu þess um málum nú er komið, og get- ur fullyrt, að Alþbl. ber álognar sakir á útvegsmenn, er það brígslar þeim um brigðmælgi í sambandi við þetta mál. Útvegs menn hafa engu lofað sjómanna forkólfunum og því ekkert svik ið, enda er það augljóst mál, að þegar sjálf ríkisstjórnin, ,,stjórn hinna vinnandi stjetta“, þykist tilknúð að lækka stór- kostlega laun hina láglaunuðu embættismanna, þótt allir við- urkenni að fjarri fari því að skuldum hlaðnir langskóla- gengnir menn búi við lífvænleg kjör, er þess tæplega að vænta, að sá útvegur sem í mörg ár hefir verið rekinn með tapi, geti hækkað kaupgjaldið. Hjer skal engu um spáð hvað við tekur, en allir alvarlega hugsandi menn óska þess að at- vinna verkalýðsins sje ekki skert að nauðsynjalausu. Það er þung ábyrgð sem hvíl- ir á angurgöpum Alþýðublaðs- ins. Verkalýðurinn verður að hafa það hugfast að gjaldgeta útvegsins miðast við afurða- verðið, og jafnframt hitt, að sje henni ofboðið hlýtur það að bitna á verkamönnum þegar til lengdar lætur, því atvinnuleysið sem af því spinst er versti óvin- ur verkalýðsins. Þýska þftngiH Kvatt saman 30. janúar. Berlín, 5. jan. FB. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum verður ríkisþingið kvatt saman til fundar í Kroll- óperuhúsinu þ. 30. janúar, en á þeim degi brutust nazistar til valda. Einnig er fullyrt, að Hitler muni halda útvarpsræðu rjett áður en þjóðaratkvæða- gieiðslan fer fram í Saar (13. janúar) stjórnmálalegs efnis. (UP). Svo sem kunnugt er gaf stjórnin út þann 10. sept. s.l. bráðabirgðalög um meðferð og sölu mjólkur og rjóma o. fl. Þessi bráðabirgðalög voru lögð fyrir Alþingi, eins og stjórnarskráin mælir fyrir. Alþingi samþykti Iögin með nokkrum breytingum og koma hin nýju lög því í stað bráða- birgðalaganna. Um það, hvenær hin nýju lög skuli öðlast gildi, segir svo í 17. gr. þeirra: „Lög þessi öðlast gildi 1. jan- úar 1935, en til þess tíma skulu vera í gildi bráðabirgðalög um sama efni, frá 10. sept. 1934“. - Hjer er ekki um að villast, að hin nýju lög áttu að öðlast gildí 1. janúar. Heldur verður ekki um það deilt, að bráðabirgða- lögin skyldu aðeins gilda „til þess tíma“, þ. e. til 1. janúar. Þeirra gildi er fastskorðað við 1. janúar. Þetta ákvæði um gildi bráða- birgðalaganna til 1. janúar var sett til þess, að fullvíst yrði að lögin næðu saman — þannig að nýju lögin frá þinginu tækju við strax og bráðabirgðalögin væru úr gildi fallin. En stjórnin trassar að staðfesta lögin. Nú vita það sjálfsagt allir, að það eitt að Alþingi samþykki lög er ekki nægilegt til þess, að þau hafi fult lagagildi, þann- ig að þeim verði beitt gagnvart þegnum landsins. Til þess þurfa lögin að vera staðfest af kon- ungi, en um það segir svo í 22. gr. stjórnarskrárinnar: „Staðfesting konungs þarf til þess, að nokkur samþykt Al- þingis fái lagagildi". Lögin um meðferð og sölu mjólkur og rjóma o. fl. voru samþykt á Alþingi 19. desem- ber. En þau voru ekki send út til staðfestingar fyr en með Goðafossi, er fór frá Reykjavík 26. desember. I Þegar stjórnin sendi lögin út til staðfestingar, var henni það vel kunnugt, að ómögulegt var að fá þau staðfest fyrir áramót, | svo hjer er ekki um neitt ó- i viljaverk að ræða af hennar hálfu. Stjórnin gerði ráð fyrir, að lögin yrðu staðfest 2. jan. í fyrsta lagi og reiknaði hún þá með því, að skipið yrði ekki fyr- ir neinum töfum. Nú fór Goðafoss sem kunn- ugt er til Austurlands og seink-1 aði það ferð hans. Morgunblaðið spurðist fyrir um það í stjórnarráðinu í gær, hvort búið væri að staðfesta: mjólkurlögin, en fekk það svar, að það væri ekki — ekkert skeyti um það komið þá. En þá var 5. janúar. Stjórnin álítur að bráðabirgðalögin gildi uns hin hafa verið staðfest. Eins og fyr var frá skýrt, var stjórnin þess fullviss, þegar hún sendi mjólkurlögin út til stað- festingar, að ekki yrði hægt að fá þau staðfest fyrir áramót. En stjórnin leit svo á, að þetta sakaði ekki, því bráða- birgðalögin myndu halda sínu fulla gildi, uns nýju lögin yrðu staðfest. Þessi skoðun stjórnarinnar getur ekki. staðist, vegna þess að bráðabirgðalögunum er sett ákveðið tímatakmark í hinum nýju lögum. Þar segir skýrum orðum (sbr. 17. gr.), að bráða- birgðalögin gildi „til þess tíma“ sem nýju lögin áttu að öðlast gildi, en það er 1. janúar. Fram hjá þessu skýlausa á- kvæði verður ekki komist. Þess vegna er ómögulegt að líta öðru vísi á en að bráðabirgða- lögin frá 10. sept. hafi fallið úr gildi 1. janúar 1935. Hvenær svo nýju lögin, sem Alþingi samþykti fá fult laga- gildi, fer eingöngu eftir því, hvenær þau öðlast staðfestingu konungs. Afleiðing trassaskaparins. Sje því nú þannig varið — sem Morgunblaðið telur ekki minsta vafa á — að bráða- birgðalögin frá 10. sept. hafi faliið úr gildi frá áramótum, en nýju lögin ekki staðfest fyr en nokkrum dögum eftir áramót, verður afleiðingin sú, að engin mjólkurlög bafa gilt hjer frá áramótum og til þess tíma að nýju lögin verða staðfest. En hver yrði svo afleiðing þessa? Sú, að allar framkvæmd ir mjólkurlaganna þessa daga yrðu markleysa ein, því að þær fiamkvæmdir hafa ekki átt stoð í lögum. Þetta gæti sjerstaklega haft þýðingu að því er snertir verð- jöfnunargjaldið, sem krafið hefir verið þessa daga. Ef dómstólarnir litu svo á, að engin mjólkurlög hafi verið í gildi hjer frá áramótum og til þess tíma er nýju lögin öðlast staðfestingu, yrði afleiðingin sú, að endurgreiða yrði alt verð jöfnunargjald, sem krafið var þessa daga. Og einmitt vegna þess, að á- kvæði mjólkurlaganna (frá þinginu) um tímatakmark Nýársræða forsætisráðherra og málefni Háskölans. í ávarpi sínu til þjóðarinnar á nýársdag varði forsætisráð- herrann, Hermann Jónasson, all löngum kafla í það, að sýna fram á, hve brýn þörf væri á því, að gera hina „æðri ment- un“, háskólamentunina, hjer á landi fjölbreyttari en hún er nú. Mjer þótti mjög vænt um þessi ummæli, vegna þess meðal annars, að þetta er málefni, sem engum getur verið l.iósara en háskólakennurunum. Að einni deild undanskilinni eru embættadeildirnar yfirfullar, og þessi eina deild, guðfræðideild- in, er ekki fjölsóttari en raun er á, beinlínis vegna þess, að þeir, sem þangað sækja, fá síð- ar svo óskapleg kjör við að búa, að flestum hrýs hugur við. — Hefir mál þetta verið oft og mikið rætt meðal háskólakenn- aranna og hafa hvað eftir ann- að komið fram tillögur til að- gerðar í þessu efni. Jeg var að doka við að skrifa þessi orð, þar til ræða forsæt- isráðherra væri komin út í dag- blaði flokksins, því að aldrei er víst, þegar á er hlustað, nema eitthvað kunni að skjótast hjá. En nú virðist svo, sem ræðan eigi ekki að koma í blaðinu, ef til vill vegna þess að ekki var þar talað nógu virðulega um kommúnista og rússnesku fyrirmyndina. En jeg tók ekki eftir því, þegar jeg hlustaði á útvarþið, að ráðherrann mintist á það, að einmitt fyrir síðasta þingi lá frumvarp um atvinnudeild við háskólann. Er þar gert ráð fyrir fimtu háskóladeild, með kenn- arastólum í fiskifræði, efna- fræði og búvísindum. Að vísu er deild þessi fyrst og fremst hugsuð sem stofnun til vísindalegra rannsókna. En með því að tengja hana við há- skólann er bent á það, að þar eigi einnig, er tilefni gefst, að fara fram kensla. Þegar það kom til orða fyrir nokkrum árum, að setja rann- sóknastofu landbúnaðarins í samband við háskólann, var jeg heldur á móti því, einmitt vegna þess, að þar var ekki hugsað til að láta fara fram neina kenslu. En jafn eindregið er jeg nú á þeirri skoðun, að þessa nýju stofnun beri einmitt að gera að háskóladeild með kenslu, til þess að beina þannig einhverju af stúdentastraumnum inn á praktiskar leiðif. Þá hefir einn- ig verið talað um verslunardeild þó að ekki hafi enn verið sett í ákveðið form. bráðabirgðalaganna er skýrt og ákveðið, er ekkert eðlilegra en að einhverjir mjólkurframleið- endur fái úrskurð dómstólanna um það, hvort stjórnin hafi hjer farið rjett að. Það er því ófyrirgefanlegur trassaskapur af ríkisstjórninni (landbúnaðarráðherra), að tefla í tvrsýnu með þetta mál, því það getur haft alvarleg eftirköst. Frumvarpið um atvinnudeild var flutt af mentamálanefnd efri deildar „samkvæmt beiðni hæstv. kenslumálaráðherra“ (H. G.). Er þá eftir ræðu for- sætisráðherra trygging fyrir því að meiri hluti stjórnarinnar að minsta kosti verði meðmælt- ur slíkri löggjöf á þingi í vet- ur. Það hefir að vísu heyrst, að Jónas Jónsson sje andvígur þessu máli vegna mín og Dun- gals og annara vondra manna við háskólann. En vonandi tekst að spila einhvernveginn svo vel á milli, að ekki þurfi að hljót- ast tjón af. En annars er þetta sagt í gamni, því að Jónas Jóns- son var einmitt í mentamála- nefnd, sem málið flutti. Það væri vonandi að næsta þing bæri gæfu til að byrja lausn þessa mikla vandamáls, hvernig þjóðin á að nota krafta sínna best mentuðu manna. — Hjer er áreiðanlega rjetta leið- in: Að auka háskólann og gera hann að stórbrotnum millilið milli æðstu mentunarinnar og atvinnulífsins í landinu. í þessu sambandi má líka minnast á það, að leysa má einn vandasaman þátt þessa máls í sambandi við byggingarmál há- skólans. Ekkert væri eðlilegra en það, að láta happdrætti há- skólans leysa þessa þörf hinnar nýju stofnunar. I lögunum um happdrættið er það óeðlilega ákvæði, að 20 % af ágóða þess renni í ríkis- sjóð. Hjer væri því unt að slá tvær flugur í einu höggi, af- nema þetta ákvæði, sem er til vansæmdar (enda ekki áætlað- ar á fjárlögum þessar tekjur) og nota tekjurnar þó til þessar- ar útgjaldaþarfar ríkissjóðs, þannig, að ríkissjóður missi raunveru einskis í við breyting- una. Mál þetta hefir nú þegar fengið svo mikinn undirbúning, og vandlega íhugun, að engin ástæða er til þess að draga það lengur. Enda vinst nú tími fyr- ir stjórnina að fara yfir frum- varpið og gera á því þær smá- breytingar, sem henni þætti á- stæða til. Magnús Jónsson. Ofvftðrft i Áitralíu hamlar „Jamboree“. London, 5. jan. FÚ. í gær skall á rigning með miklu hvassviðri í Ástralíu, í hjeraðinu þar sem ská'tastefnan fer fram, og fuku mörg tjöld skátanna og þeir urðu lioldvotir. í óveðrinu ferðað- ist Baden-Powell á milli tjalda og aðstoðaði dréngina eftir því sem föng voru á. .....O—----- Tveir vjelbátar utan af landi eru komnir hingað og ætla að stunda róðra hjer á vertíðinni. Eru það þeir „Garðar“ frá Vest- mannaeyjum og „Gyllir“ frá Norð firði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.