Morgunblaðið - 06.01.1935, Blaðsíða 3
Sunnudaginn 6. jan.1935.
MORGUNBI/AÐIÐ
3
m
Bæjarstjórnar-
kosningin á fsafiiti.
Sjálf stæðis menn
fengu 4 fulltrúa
kosna, sósíalistar
5, en kommúnist-
ar engan.
Bæjarstjórnarkosningin á Isa-
firði liófst á hádegi í gær og var
lokið kl. 7i/2-
Á kjörskrá voru 1436, en 1289
greiddu atkvæði, eða tæpl. 90%.
Yið bæjarstjórnarkosninguna í
fyrra greiddu rúmlega 91% at-
kvæði af þeim, er á kjörskrá voru.
Talning atkvæða hófst þegar að
kosningu lokinni. Úrslitin urðu
þessi:
Sjálfstæðismenn hlutu 503 at-
kvæði og fengu 4 fulltrúa kosna,
sósíalistar hlutu 669 atkv. og 5
fulltrúa, kommúnistar hlutu 93
atkvæði og komu engum að.
Við bæjarstjórnarkosninguna í
l'yrra fengu Sjálfstæðismenn 498
atkvæði og 4 fulltrúa, sósíalistar
563 atkv. og 4 fulltrúa og komm-
únistar 117 og einn fulltrúa.
Hafa því kommúnistar nú farið
yfir á lista sósíalista og er það
ekki óeðlilegt, þar sem rauða fylk-
ingin öll — bæði á Alþingi og ann
ars staðar — virðist stýra eftir
leiðarmerkjum kommúnista.
Fá nú rauðliðar aftur að taka
tii óspiltra málanna með niður-
rifsstarf sitt á ísafirði. Verður og
vafalaust ekki langt að híða þess,
að þeim takist að leggja alt í
rústir þar, sem þeir voru á góðum
vegi með að gera þégar þeir skildu
við síðast.
Sjómanna-
verkfallið.
Sáttasem jari hef-
ir rengið maiið i
hendur.
Bkkert gerðist í kaupdeilunni á
togurum í gær.
Bngar viðræður áttu sjer stað
milli útgerðarmanna og sjómanna,
enda munu þessir aðiljar hafa Ht-
ið svo á, að þeir hefði ekki meira
saman að tala.
Sáttasemjari hefir nú fengið
málið í hendur og hefir þegar
kynt sjer málið. í gær átti hann
tal við formenn Sjómannafjelags-
ins og Fjelags ísl. hotnvörpuskipa-
eigejida, en annað gerðist ekki þá.
Ef verkfall þetta hefði ekki
skollið á, myndi allur togaraflot-
inn nú í þann veginn farinn út.
En í þess stað fjölgar nú bráðlega
skipunum í höfninni, því að
skipin stöðvast jafnóðum og þau
koma inn.
Emsk blöð
ger upptæk
■ Þýskalandi.
London, 5. jan. FÚ.
The Daily Telegraph, News
Chronicle og Manchester Gu-
ardian voru öll gerð upptæk
þegar þau komu til Berlín í
morgun.
Ástæðan var talin sú að þessi
blöð hefðu sagt óvinsamlega
frá fundinum í Kroll óperuhúsi.
Elösuoði í 5uínaðal
k Bo rg a rf j a rða rsýsl u.
Kviknar í fjósi um nótt, fimm kýr
brenna til bana og einn hrútur. Sjötta
kýrin skaðbrend. —
Akranesi, 5. jan. FÚ.
í fyrrinótt kom upp eldur í
fjósi í Tungu í Svínadal. Bónd-
inn, Árni Helgason, hafði farið
út í fjósið klukkan 8 um kvöld-
ið, og ekki orðið þess var að
neitt væri með öðrum hætti en
venjulega. En þegar hann kom
út í fjósið klukkan 7 í gær-
morgun, var fjósið mikið brunn-
ið innan, fimm kýr dauðar, og
einn lambhrútur. Ungur kálfur
lá frammi við fjósdyr, og helt
Árni fyrst að hann væri dauður,
en er kálfurinn hafði verið um
stund úti undir beru lofti rakn-'
aði hann við.
Bóndinn sagðist ekki hafa!
farið með neinn eld, þegar hann ;
fór í fjósið kvöldið áður. Hann
hafði þá haft með sjer Ijósker,
og- kveikt á því áður en hann
fór í fjósið.
Allir innviðir í fjósinu reynd-
ust brunnir, og alt tróð. Sú kýr,
sem inst stóð í fjósinu, var mik-
ið brend, eyru og framfætur
brunnir af henni. Hinar kýrnar
voru með brunaskellum.
Þil milli fjóss og hlöðu var
enn óbrunnið er bóndi kom að,
og tókst að verja hlöðuna.
Ekki verður vitað upp upptök
eidsins að svo stöddu, en eldur-
inn virðist hafa komið upp í
þaki fjóssins, og er þess getið
til, að neisti muni hafa fokið úr
reykháfi hússins, sem er þar
nálægt, og komist undir járn-
plötu á fjósþakinu, því alt er
brunnið upp við þak, en minna
neðar í fjósinu.
Kosningio í Saár.
IJtifundir í dag í Saarbriicken. ,,Þeir,
sem greiða atkvæði gegn Þýskalandi
bljóta að teljast föðurlandssvikarar,
og haldast varla við í Saar eftir at-
k væða gr eiðsluna4 ‘.
Mr. Geoffrey Knox,
ríkisstjórinn í Saar. Myndin er tekin af honum í skrifstofu hans
London, 5. jan. FÚ.
Stjórnarnefndin í Saar hefir
veitt tveimur helstu flokkunum
í Saar leyfi til að halda úti-
fundi í Saarbriicken næstkom-
andi sunnúdag. Samfylking
kommúnista og sósíalista (sem
eru andvígir innlimun Saar í
Þýskaíánd) hefir fengið leyfi
til að halda fund á íþróttavell-
inum, en þýska sambandið hefir
fengið leyfi til að halda fund
á flugvellinum. Vellir þessir
eru í tveggja mílna fjarlægð
hvor frá öðrum, og verður ann-
ar fundurinn haldinn á sunnu-
dagsmorguninn, en hinn síð-
degis.
Fulltrúi Hitlers í Saarmálum
átti í gær samtal við blaðamenn,
þar sem hann sagði meðal ann-
ars, að þeir sem greiddu at-
kvæði gegn innlimun Saarhjer-
Brind hershöfðingi,
; Linn nýi yfirforingi alþjóða-
lögreglunnar í Saar.
aðsins í Þýskaland, hlytu að
teljast föðurlandssvikarar, og
að ganga yrði út frá því sem
Vinnufatnaður
og hlífðarföt.
Gúmmístígvjel W. A. C. allar stærðir og hæðir,
Trjeskóstígvjel, bæði fóðruð og án fóðurs,
Klossar, fóðraðir og- án fóðurs,
Olíustakkar f jölda tegundir,
Olíufatnaður allskonar,
Peysur, bláar f jölda teg.
Færeyskar Peysur,
Nærfatnaður, fjölda teg.,
Doppur,
Togarabuxur,
Kuldahúfur,
Sjóvetlingar,
Vinnuvetlingar, f jölda teg.
Vattteppi,
Ullarteppi,
Baðmullarteppi,
Madressur,
Hrosshárstátiljur,
Ullarsokkar, f jölda teg.,
Nankinsf atnaður,
Khakifatnaður,
Samfestingar,
Leðurbelti,
Gúmmíbelti,
Axlabönd,
Úlnliðakeðjur,
Vasahnífar,
Fiskihnífar,
Hitabrúsar,
Hálstreflar,
Kuldajakkar fóðraðir með loðskinni,
Enskar húfur, f jölda teg.
Handklæði, fjölda teg.
Strigaskyrtur,
Khakiskyrtur,
Maskínuskór,
Alt, sem einn sjómaður þarfnast
til klæðnaðar, áður en á sjóinn er farið.
sjálfsögðu, að þeir sem þannig
greiddu atkvæði, sýndu á þann
hátt fjandsemi sína gegn Þýska
landi, myndu ekki telja sjer
það samboðið að haldast við á
þýskri grund eftir atkvæða-
greiðsluna, ef hún fjelli þannig,
að Saar yrði þýskt, en á því
taldi hann engan vafa.
Hjónaefni. Nýlega opinheruðu
rnilofiwi sína ungfrú Sesselja Guð-
jónsdóttir og Bjarni Nikulásson
þifreiðarstjóri hjá Jóni Magnús-
syni kaupmanni á Stokkseyri.
Járnbrautarsamgöngur
í Þýskalandi aukast.
Berlin, 5. jan. FIT.
Samkvæmt bráðabirgðareikníngi
þýsku ríkisjárnbrautanna fyrir
síðastliðið ár, hafa tekjur járn-
brautanna það ár verið 15% hærri
en árið 1933. Tekjurnar hafa þó
bvergi nærri vaxið að sama skapi
og notlsun járnbrautanna hefir
aukistj sökum þess að fargjöld
hafa yfirleitt verið lækkuð að
miklum mun.