Morgunblaðið - 09.02.1935, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardaginn 9. febr 19?5,
Uilöi ekki uinna!
Umrenningur einn stóð fyrir
dómstólnum í London. Þegar dóm-
arinn spurði hann hvort hann vildi
vinna ef hann gæti fengið at-
vinnu, sagði hann: „Nei, nú hefi
jeg ekki unnið neitt í 5 ár, hví
skyldi jeg þá alt í einu fara að
finna upp á þvíf'
Enginn kaupandi.
Risaskipið „l’Atlantique“, sem
brann að mestu fyrir tveim ár-
um er nú til sölu í því ástandi,
sem það liggur í, í höfninni í
Cherbourg, en enginn vdl gera
boð í skipið. Getur hugsast að á-
stæðan sje sú að hafnarleigan
fylgir kaupunum, en hún eykst
um 7500 franka daglega.
Ístralía
tekur stórlán.
Hinn 14. janúar giftust þau í
Róm Beatrice dóttir Alfons fyr
verandi Spánarkonungs og Alles-
sandro Toronia fursti.
Við hjónavígsluna voru ítölsku
konungshjónin, 52 prinsar og
prinsessur, helstu aðalsmenn ítala
og 4000 spanskir konungssinnar,
sem höfðu ferðast þangað til þess
að sýna spönsku konungsættinni
hylli sína. Vakti þetta mikla
gremju hjá stjórnarliðinu á Spáni,
og ugg nokkurn, því að konung-
sinnum er að aukast fylgi þar.
Allessandro fursti er 23 ára
gamall en brúðurin 25 ára.
Þjóðverjar eru nú í óða önn
að bæta samgöngur innanlands.
Við það starf fær fjöldi at-
vinnuleysingja atvinnu. Um alt
Bayernríkið er nú t. d. verið
að gera steypta vegi fyrir bíla
og er tilætlunin að þeir ljetti
mjög af járnbrautunum. Þessir
nýju vegir eru ákaflega breiðir
og svipar til nýjustu veganna
í Ítalíu, þar sem ráð er gert
fyrir því, að engin umferðaslys
skuli koma fyrir, enda þótt fólk
geti ferðast fram og aftur á
miklu skemri tíma heldur en
með járnbrautum.
I
Gene Tunney,
fyrverandi heimsmeistari í hnefa-
leik, er nú hættur að berjast, og
ætlar að gerast stjórnmálamaður.
Hann bauð sig fram í Connecticut
við seinustu kosningar.
Ástralía hefir ákveðið að taka
nýtt lán að upphæð £ 22.384.000
með 3^/4% vöxtum og ætlar með
úví að borga up'p önnur lán, sem
éru með 5% vöxtuín. Þetta er í
níunda smn, sem Átralía breytir
lánum sínum.
Konunglegt brúðkaup.
Nýa danska konungsski pið. Danir hafa látið smíða nýtt konungsskip í staðinn fyrir
„Niels Juel“. Hið nýja skip heitir ,,Dannebrog“. Myndin er tekin af skipinu þegar það
var fullsmíðað og í þann veginn að láta úr höfn.
I Tjekkóslóvakíu hefir að undanförnu verið mikil andúð gegn Þjóðverjum. Hafa þar
verið haldnir æsingafundir margir gegn stefnuskrá þjóðernissinna og er mynd þessi tekin
í Prag eftir einn slíkan fund, hefir lögreglan skorist í leikinn og er að tvístra fólkinu.
Huey Song,
ríkisstjóri í Louisiana í Banda-
ríkjunum rjeðist nýlega með svæsn
um orðum á Þjóðabandalagið.
Hann sjest hjer í skrifstofu
sinni. .
Brúðkaup f Róm.
Samgöngnmál i Þýskalandi.
Háflug.
Innan skams ætlar spanskur
maður, Herrera að nafni, að reyna
að komast upp í háloftin með flug
belg og í opinni flugkörfu. Hjer
sjest, frumsmíðin að þessum flug-
belg og Herrera. Hann ætlar að
vera búinn líkt og kafari þegar
hann flýgur.
Rubens-minnismerki
þetta liefir verið reist í bænum
Siegen í Westphalen í Þýskalandi.
Er það þrjár konur, sem eiga að
tákna borgirnar Siegen, Köln og
Antwerpen, en hver þessara borga
heldur því' fast fram, að málarinn
hafi verið fæddur þar.
Pranklin Delano Roosevelt
sonur Roosevelts forseta. hefir
hvað eftir annað orðið fyrir bíl-
óhöppum að undanförnu og nú
seinast var hann sektaður í Con-
necticut fyrir það að hafa ekið of
hratt. Hjer sjest hann vera að
heilsa lögregluþjóninum sem stöðv
aði hann og sektaði.