Morgunblaðið - 23.02.1935, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.02.1935, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Laugardginn 23. febr. 1935. Ötgreí.: H.f. Árvakur, Reykjavtk. Rltstjórar: J6n Kjartansson, Valtýr Stefánssoa. Rltstjðrn og afgretCsla: Austurstræti 8. — Slmi 1600. Auglýslngastjðri: E. Hafberg. Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 17. — Sfmi S700. Heimastmar: J6n Kjartansson, nr. 3742. Xaltýr Stefánsson, nr. 4220. rni Óla w ilÉSa. H. Hafberg, nr. 3TT0. ÁskriftaoJald: Innanlands kr. 2.00 á raánuSl. Utanlands kr. 2.60 á mánuSl. t lausasdlu: 10 aura eintaklS. 20 aura raeS læsbök. Furðuleg deila. Undanfarið hefir staðið yfir deila í blöðunum um það, hvort mjólkurneyslan í bænum hafi aukist eða minkað, síðan Sam- salan tók til starfa. Það eru stjórnarblöðin, sem halda því fram, að mjólkurneyslan hafi aukist. Þessi deila er harla furðuleg. Lítum stundarkorn á það, hvað það er, sem á að hafa orðið til þess, að auka mjólk- urneysluna í bænum, eins og stjórnarblöðin halda fram. Forráðamenn mjólkurmálsins eru pólitískir vikapiltar Jónas- ar frá Hriflu og fjandmenn Reykjavíkur. Kaupendur mjólkurinnar, konur og karlar eru daglega svívirtir í blöðum stjórnarinnar og í útvarpinu. Öll afgreiðsla m.jólkurinnar hefir verið í hinu megnasta ólagi, síðan Samsalan tók til starfa. Neytendum í þúsundatali er meinað að fá þá mjólk, sem þeir helst kjósa og hafa keypt að undanförnu (Korpúlfsstaða- mjólkin). Kaupendum mjólkurinnar er ætlað að styrkja fjárhagslega pólitíska starfsemi sósíalista, með því að brauðgerðarhúsi sósíalista er veitt sjerleyfi til brauðasölu í búðum Samsölunn- ar. Kaupgeta almennings er yfir- leitt rýr um þetta leyti árs og atvinnuieysið í bænum meira nú en nokkurn tíma áður . Kaupendur geta ekki fengið mjólkurdropa, nema gegn stað- greiðslu, hvað sem á liggur. Ógerilsneydd mjólk er ófá- anleg nema gegn „læknisávís- un“, sem sennilega kostar 3—4 krónur. Ef þetta, er nú hefir verið talið, er til þess fallið að auka sölu vörunnar, þá er ekki orðið vandasamt að koma út vöru. Nei; staðreyndimar tala sínu máli hjer. Mjólkumeyslan í bænum hefir þegar minkað stórlega og það án þess, að um nokkur samtök hafi verið að ræða meðal neytendá. En mjólkursölunefnd og rík- isstjórnin halda áfram að ber.ja höfðinu við steininn. Þessir fáráðlingar bjóða neyt endum út í mjólkurstríð — sennilega einnig til þess að auka mjólkurneysluna í bæn- um!! Dronning Alexandrine kom frá útlöndum í gær. Fer vestur og norður í kvöld. 5ystur fremja sjálfsmorð með þuí að fleygja sjer út úr flugujel Óstceðan sú, að elskhugar þeirra höfðu farist uið flugslys. KAUPMANNAHÖFN I GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. En.sku flugmennirnir, sem ætl- uðu tU Singapore, urðu sem kunn- ugt er teptir um hríð í Neapel vegna Iireyfilbilunar. Meðan þeir dvöldust þar komust tveir þeirra í náin kynni við Jane og Elisabeth, dætur ameríska aðal- konsúlsins þar og munu hafa trú- lofast þeim. Flugmennirnir fóru frá Neapel á föstudaginn var, en skömmu síðar kom fregnin um það að þeir hefðu farist á Sikiley. Þær systurnar urðu svo harmi lostnar við þessa fregn, að þær vp.ru ekki mönnum sinnandi og á laugardaginn var það tekið til bragðs að senda þær til Lundúna til þess að vita hvort þær gleymdu ekki sorgum sínum og hrestust við ferðalagið. í fyrradag pöntuðu þær svo öll sex sætin í farþegaflugvjel frá Lundúnum til París, og komu til flugvallarins í Lundúnum í gær- morgun. Var þeim sýnilega mjög órótt í skapi, og sögðu þær, að vinir sínir, sem hefðu ætlað að verða samferða, hefði ekki getað • komio því við. Borguðu þær svo fyrir öl| sætin í flugvjelinni. Á leiðinni báðu þær flugmanninn að loka hurðinni milli stýrisklefans og fafþegaklefans og draga tjöld fyrir gluggana. Flugvjelin helt áfram, en þegar hún var komin yfir Ermarsund tók (flugmaðurinn eftir því að dyrnar i á farþegftkjefanum voru opnar og systurnar horfnar. Sneri hann þá þegar við. Var nú hafin leit að stúlkunum og\ fundust lík þeirra á akri nokkrum í Essex-h jeraði ; og hjeldust þær í hendur. 1 Systumar ,'voru itvíburar og höfðu alla ævi verið óaðskiljanleg- I ! ! ar. | 1 farþegaklefanum í flugv.jelinni jfanst tóm whiskyflaska. Hafa þær tæmt hana áður en ])ær steyptu sjer iit. í dauðann. Móður þeirra varð svo mikið um frjettina um afdrif þeirra, að hún fekk aðkenningu af slagi 'og er nú undif læknishéndi, en aðal konsúllinn, faðir þeirra, er farinn ti] Lundúna. Páll. Bretar spyrja Hitler á hvaða grundvelli hann vilji ræða Lundúnasamþyktina. London 22. febr. FÚ Breska stjórnin hefir spurt Hitler um hvað þær umræður sem hann hefir stungið upp á út af Lundúnasamþyktinni eigi að hans áliti að snúast.Stjórnin lætur þess getið, að í þýsku orðsendingunni sje að eins vikið að nokkrum hluta í til- lögunum, sem sje að loftvarnar sambandinu, en enska stjómin telur rjettast að umræðurnar Hcettulegur Kommúnisti tekinn hönöum. KAUPMANNAHÖFN í GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. Frá Hamborg er símað að kom- múnistinn, Schulze haíi að lokum verið handtekinn. Hann er ákærð- — \ ui' fyrir föðnrlandssvik og fyrir að vera samsekur um 15 inorð. Hann hefir verið kallaour „hinn rauði konungur. Hamborgar" og allír kommúnistar hlýddu honum í hiindni. Honum verður nú stefnt fyrir þjóðardómstól. Páll. Karlakórinn Ernir, Hafnarfirði, -yngur í Góðtemplarahúsinu í Hafnarfiriði kl. gy2 í kvöld. næðu til allra tillagnanna, sem sje, einnig til ákvæðanna um öryggi og afvopnun. Ýmislegt þykir benda til þess, að Hitler muni vilja víkka umræðugrund- völlinn. Ekkert hefir enn þá verið ákveðið urn heimsókn Sir John Simon til Berlínar og Moskva, en það er talið að hann muni takast í'erð á hendur til meg- inlandsins líkt og hann gerði í fyrra. Seliuschnigg komínn til París. Ætlar til Englands. París 22. febr. FB Schusnigg, kanslari Austur- ríkis og Waldenegg, utanríkis- málaráðherra Austurríkis, komu til Parísar í dag, og tóku þeir Flandin forsætisráðherra og Laval utanríkismálaráðherra á móti þeim. Var mikill mann- fjöldí saman kominn á stöð- inni og höfðu kommúnistar og sosíalistar fjöiment þar. Hafði því lögreglan sterkan vörð þar og voru fjölda margir menn úr fyrnefndum flokkum hand- teknir. Austurrísku ráðherrarnir verða tvo daga í París, en halda því næst áfram ferð sinni til London, til viðtals við bresku stjórnina. Þar verður m. a. rætt um afstöðu Austurríkis til samkomulags þess, sem 2619 húsmæður í Eeykjavík senda Alþingi áskorun i mjólkurmálinu. Alþingi hefir borist áskorun, undirrituð af 2619 húsmæðrum í Reykjavík — Fylgja áskoruninni tillögur þær og samþyktir, sem hús- mæður bæjarins hafa gert í mjólkurmálinu Fyrir húsmæðrunum vakir það, fyrst og fremst, að alþingismena fái rjetta skýrslu af því, sem þær hafa aðhafst í þessu máli. Áskorun húsmæðranna er svohljóðandi: Vjer undirritaðar húsmæður í Reykjavík, leyfum oss að senda hjer með til hins háa Alþingis, aðal-tillögur þær, sem samþyktar hafa verið, allflestar í einu hljóði á hús- mæðrafundum hjer í bæ undanfarið, fjölmennustu kvenna- fundum, sem haldnir hafa verið í Reykjavík. Eins og tillögurnar bera með sjer eru þær allar út af hinni ^lmennu óánægju, sem er hjer í bænum um sum at- riði í mjólkursölulögunum frá síðasta Alþingi, og fram- kvæmd þeirra laga hjer í bæ. Tillögurnar eru svo skýrar að óþarfi mun að útskýra þær frekar gagnvart hinu háa Alþingi, en þó þykir oss rjett að taka fram þessi meginatriði: 1. Mjólkursölulögin tryggja enganvegin, að kúaeigend- ur í Reykjavík, þar sem mjólkurframleiðslan er lang dýrust, fái kostnaðarverð fyrir mjólkina, þvert á móti eru miklar líkur til að þessi atvinnuvegur þeirra fari alveg í mola ef verðjöfnunargjaldið, eða kúaskattur- inn, sem þeim er ætlað að greiða, færist ekki niður að miklum mun. Hljóta allir sanngjarnir menn að sjá, að það er alvörumál allra góðra Reykvíkinga og þeirra sem unna bæjarfjelagi voru, að komið sje í veg fyrir að þessurn atvinnuvegi sje stórhnekt með ósanngjörnum kvöðum. , 2. Oss mæðrum er það fullkomið kappsmál að geta fengið góða nýmjólk (óstassaniseraða) handa börnum vorum fyrir viðunandi verð og sættum oss því ekki við nein þau ákvæði, sem fara í öfuga átt- 8. Meiri hiuti mjólkursölunefndar hefir að voru áliti sýnt pólitíska hlutdrægni, t. d. í viðskiftum við bökunarhús bæjarins, og litla samningslipurð gagnvart kröfum vor- um, en stuðningsblöð þessa meiri hluta hinsvegar ráð- ist gegn oss með stóryrðum og skömmum, og fyrir því teljum við það óhugsandi að fullur friður fáist um þessi mál, fyr en þessum meiri hluta er vísað á bug frá stjórn samsölunnar. En ósamlyndið verður seljendum engu minna tjón, en kaupendum, nema síður sje. Einnig í þessum mjólkurviðskiftum sem öðrum er að- alskilyrði þess að þau aukist og það takmark náist sem öllum ætti að vera kært, að mjólkurfrainleiðendur fái allir fult kostnaðarverð fyrir mjólkurvörur sínar, en mjólkur- verðið gæti þó lækkað, svo að efnaminsta fólkinu í Reykja- vík yrði kleift að bæta við mjólkurkaup sín, engu síður en öðrum. Reykjavík, 18. febrúar 1935. Virðingarfylst. Húsmæður í Roykjavík. Til Alþingis. Mussolini og Laval gerðu í lagsumleitanir ríkisstjórnarinn- Róm o. m. fl. (UP). ar og þingflokks vinstrimanna ...—«*.<*,»■»— við hægriflokkinn og bænd'a- fl^kkinn. I ályktuninni er það Vinstrimenn harðjega vítt, að þessar sam- __ ( komulagsumleitánir hafi farið í Noregi oánægðir. fram- Einnig er þess! krafist í Ósló 22. febr. FB. ályktuninni, að landsfundhr Fjelag vinstri manna í Oslo vinstrimanna verði kallaður hefir á fundi sínum samþykt saman hlð bráðastn til þess að með miklum meirihluta at- ræða st.iórnmálaástandið. UP. kvæða ályktun um samkomu-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.