Morgunblaðið - 26.03.1935, Page 7
Þriðjudaginn 26. mars 1935
MORGUNBLAÐIÐ
7
,Berkshlre‘
Nýr enskur togari
kom hingað í gær.
'í gær kom hingað nýr enskur
íogari, Berkshire, til að sækja
fiskieftirlitsmann, sem verður Páll
Sigfússon skipstjóri. Skipið er
æign sarna fjelags sem átti togar-
,ann Lincolnshire, sem strandaði í
Skerjafirðinum í vetur. Það er
heldur stærra en Lincolnshire,
«ða hátt á 5. hundrað tonn brutto.
Berkshire kemur beint frá Grims-
by og var ekkert farið að fiska
áður en það kom hingað.
Verið er nú að lúka smíði á öðr-
um togara fyrir þetta sama fjelag
>óg er Markús Geirsson farinn út
til að sækja það, en, hann vérður
fiskieftirlitsmaður á því. Það heit,
ir Warwichshire.
Berkshire fór í fyrstu veiðiför
síria um miðnætti í nótt.
QagbóÞ.
Veðrið (mánud. kl. 17): Yfir ís-
landi er alldjúp lægð, sem er orðin
hægfara og' fer minkandi. Vind-
ur er allhvass A. með snjókomu
•éða slyddu norðan lands, en syðra
<er hægyiðri og Jítilsháttar rign-
ing með 4—7 st. hita.
Veðurútlit í Rvík í dag: NV- eða
N-gola. Úrkomulaust.
Jarðarför Jóns Þorlákssonar
borgarstjóra fér fram frá dóm-
kirkjunni næstkomandi fimtudag
ug’ hefst með húskveðju á heimili
borgarstjóra kl. 1% e. h. — At-
höfninni í dómkirkjunni verður
útvarpað. 1 ■
Drotningunni að batna. Það er
ráðgert að lconnngur íslands og
Danmerkur fari heim til Kaup-
unannahafnai' frá Stokkhólmi á
föstudaginn kemur,, vegna þess
að drotningunni er nú að batna
eftir uppskurðinn, sem á henni
var gerður á dögunum.
Netaveiðar byrjuðu í gær í
Vestmannaeyjum. Lagði einn bát-
ur þar net sín. Er þetta fyr á
tíma en venjulega.
Jarðarför síra Ólafs Ólafssonar
prófasts frá Hjarðarholti fór fram
í gær að viðstöddu fjölmenni. Tnn
I kirkju báru nokkrir vinir og
®ttingjar kistuna, en síra Bjami
Jónsson helt Jíkræðuna. Ut úr
kirkju báru kistuna 8 prestar í
skrúða, þeir Sigurður P. Sivertsen
vígslubiskup, síra Árni Sigurðsson
fríkirkjuprestur, síra Einar Thor-
lacius frá Saurbæ, slra Ásgeir Ás-
geirsson Hvammi, síra Árni Þórar-
insson Staðarhrauni, síra Kristinn
Daníelsson, síra Þórður Ólafsson
frá Söndum og síra Ólfaur Sæ-
nmndsson í Hraungerði.
Torfi Hjartarson, bæjarfógeti á
ísafirði og frú hans komu hingað
fvrir helgina, Þau liafa orðið fyrir
])eirn sorg, að missa son sinn átta
mánaða gamlan. Var hann jarð-
.sunginn hjer í Reykjavík.
Landhelgisbrot. Á Jaugardags-
kvöld Ivom Ægir með þýskan tog-
ara, sem hann hafði tekið í land-
helgi hjá Eldey. Togarinn beitir
Káhrnten. Dómur var kveðinn
upp yfir skipstjóranum í gær-
morgun og var hann dæmdur til
að greiða 4300 króna sekt fyrir
ólöglegan umbúnað veiðarfæra
togarans.
Eimskip. Gullfoss fer vestur og
norður í kvöld. Goðafoss kom til
Hull kl. 8 í gærmorgun, fer þaðan
væntanlega í kvöld. Dettifoss fór
til Hull óg Hamborgar í gærkvöldi
kl. 10. Brúarfoss er í Kaupmanna-
höfn. Lagarfoss fór í gærkvöldi kl.
um Vestmannaeyjar til Aust-
fjarða og Kaupmannahafnar. Sel-
foss er á leið til útlanda frá Vest-
mannaeyjum.
Bólusetning gegn barnaveiki
fer fram þessa viku á hverj-
um degi kl. 5—7 í rann-
sóknarstofu Háskólans fyrir þau
börn, sem ekki eru í barnaskólun-
um.
Hjónaefni. Trúlofun sína hafa
opinberað ungfrú Þórunn Einars-
dóttir Marargötu 3 og hr. Runólf-
ur Þorgeirsson Lokastíg 24.
Aðalfundur Knattspyrnuf jel.
Fram, verður haldinn n. k. sunnu-
dag kl. 2 e. h. í Kaupþingsalnum.
Færeysku kolin. Eins og skýrt
var frá í blaðinu í sunnudagjnn,
eru færeysku kolin ekki talin hæf
tij útflutnings. En í kolanámunni
hjá Þverá vinna nú um 20 menn,
og öll skipin þar táka innlend kol
og eins káupa íbúarnir ekki önn
ur húsakol. Verðið á kolunum
hefir verið 25 krónur smálestin af
jtórum kolum, og 17 kr. smál. af
smáum kolum heimflutt.
Alumkiium-hrífurnar. Notkun
þeirra breiðist út með hverju ári,
og fara vinsældir þeirra vaxandi,
að því er Sveinbjörn Jónsson bygg
ingameistari á Akureyri hefir sagt
blaðinu. Síðastliðið sumar gerði
hann tilraunir með smíði á orf-
um úr sama efni er líkuðu ágæt-
leya. Aluminium-orf lroma á mark
aðinn að sumri.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
Aheit frá N. N. 5 kr., frá Jakob
Gunnlögsson & Co. A/S Bakka-
firði 10 kr. Kærar þakkir. Ól. B.
Björnsson.
Fiskur, sem veiðist nú í ver
stöðvunum hjer syðra er talinn
vera miklu stærri og feitari held-
ur en fisltur, sem veiðst hefir þár
á undanförnirm vertíðum.
Færeyjakvöld var lialdið fyrir
nokkru í Kaupmannahöfn að til-
hjutun kjósendaf jelags íhálds-
manna þar. Meðal ræðumanmi
voru þeir Halfdan Hendriksen
formaður fjelagsins, Poul Nicla-
sen ritstjóri frá Þórshöfn í Fær-
eyjum og J. Christmas Möller
þjóðþingmaður, Síðan var Færeyja
kvikmyndin sýnd ög dans stiginn
á eftir.
Frá Elliheinúlinu. Síðastliðinn
sunnudag kom kapt. Frederiksen
með söngflokk á ElliheimiHð og
ljek og söng fyrir gamla fólltið-
Blaðið hefir verið beðið að færa
þeim þakkir fyrir komuna.
BarnaheimiHð Vorblómið, sem
hefir verið í franska spítalanum
síðan hús þess brann, verður nú í
dag að fara þaðan og flytjast upp
að barnahælinu við Silungapolh
Er þetta gert vegna inflúensufar-
aldursins í bænum, því að læknar
telja þess fulla þörf að hafa
franska spítalann handa sjúkling-
um. Á meðari börnin Aærða hjá
Silungapolli eru aðstandendur
þeirra beðnir að smia sjer til 'fr.ú
Rósu Þórarinsdóttur, skrifstofu
Jes Zijnsen, kl. 2—4 um alt sem
börnunum A-iðkemur.
í dag yerður merkiskonan Krist-
ín Eii-íksdóttir, Klapparstíg 25,
áttræð. Hjer í bænum hefir liún
dvalist um langt skeið. og aflað
sjer hjer sem annars staðar {
mennra vinsælda. Munu því mar
ir, sem Kristínu þekkja, senda
henni hugheilar árnaðaróskir.
Kunnugur.
Óþægindi eru af því, að krakk-
ar hópast inn á pósthús, þar sem
pósthólfin eru. Á veggnum út við
dyrnar er sjálfvirkur sími. og
leika krakkar sjer að því að
hringja í honum hingað og þang-
að út um bæinn og tefja þannig
fyrir fólki. Þyrfti sem fyrst að
gera ráðstafanir til að krakkar
sjeu ekki þarna, mönnum til ó-
þæginda.
Bretadrotning hefir tilkynt að
um mánaðamótin apríl maí muni
hún ferðast til Danmerkur til þess
að óska þeim brúðhjónunum Frið-
rik krónprins og Ingrid prinsessu
til hamingju. (F.Ú.).
Mikill afli í Húsavík. Frá Húsa-
vík er símað í gær að þar hafi
aflast á einn bát 1200 pund fisks,
grunt. á Saltvík á Skjálfanda. —
Ilrognkelsaveiði hefir verið tals-
verð í Húsavík og við Tjörnes að
undanförnu.
Mentasjkóli Akúreyrar hefir tvö
undanfarin kvöld haldið kvöld-
skemtanir í samkomuhúsinu tú
ágóða fyrir skíðaskálasjóð skól-
ans, sem reisa á í Hlíðarfjalli í
Lög.mannshHð. (F.Ú.).
Sýslufundur Skagfirðinga liófst
í gær á Sauðárlcróki. Eins og vant
er streymir fólk í bæinn þegar
slíkur fundur er haldinn.
Nýir kaupendur að Morgun-
blaðinu fá blaðið ókeypis til
næstkomandi mánaðamóta.
Rangæinga- og Skaftfellingamót
verður haldið' að Hótel Borg næst-
komandi laugardag.
Söngfólk það, sem sótt hefir um
upptöku í hið nýstofnaða bland-
aða kór, undir stjórn Sigfúsar
Einarssonar, er beðið að mæta
Mentaskólanum kl. 8V2 í kvöld,
stundvíslega.
Góður afli. Nokkrir Reykjavík-
urtogarar komu inn um helgina
með ágætan afla eftir stutta úti-
vist. Á sunnudagskvöld kom Gýll
ir inn með 86 föt lifrar eftir að
eins 4 daga útivist og er það
feikna mikill afli á þeim tímá
Skallagrímur kom með 77 föt eft%.
6W sólarhring.s útivist. Hann var
að veiðum á Selvogsgrunni.' Sindri
kom með 73 föt lifrar- Max
Pemberton með 103 og Tryggvi
gamli með 63 föt lifrar,
Farþegar með e-s: Dettifossi til
Hull -,Qg..Hamborgar í gæij Jó-
hanna- Guðmuu(Isd4Ítir, Ástlúídur
G uðihjxgdsdoíÆirÚ^ Björn,, Gíslason
og frú/ Mr. P.. Kennedy. Mr
Thoinas AYoJfe, dr. Gunnlaugur
Claessen, Mr. Hároíd H. Lvon, Mr
John II. Frail, Helga Ba_rtels, Dóra
Pjeturs, Árni Zimsen, 14 franskii
sjóménn af skipinu sem strandað
á Meðallandi.
Happdrætti Háskólans. Endur
nýjun til 2. flokks er bvrjuð og
er endurnýjunarfrestur til 3. apríl
Frá Siglufirði er símað í gær
að þar liafi verið gæftalaust und
anfarna daga og aflatregt þega
seinast gaf á sjó. Mikil snjókoma
hefir verið þar undanfarná daga
og liríð var þar í gær.
Útvarpið:
Þriðjudagur 26. mars.
10,00 l'eðurfregnir.
12.10 Hádegisútvarp.
12,45 Enskukensla.
13.10 Húsmæðrafræðsla (Ilelga
Sigurðardóttir matr.kennari).
15.00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar.
19.10 Veðurfregnir.
19,20 Þingfrjetth'.
20,00 Klukkusláttur.
Frjettir.
20,30 Erindi: Heilsuvernd un
barna, IV (Katrín Thordddse
læknir).
21.00 Beethoven-tónleikár: a) ’l ríö
í B-dúr (l'tvarpsþmveitin) ; b
Sónata appassionáta: c) Hljóm
kviða nr. 2 (plötu'r).
Vegna jarðarfarar verðnv
skrlfstofan lokuð i dag
frá kl. 12—4.
fleildverslun Garðars Gíslasonar.
Aðalfnndur
Knattspyrnufjelagsins Ftam
verður haldinn sunnud. 31. þ. m. kl.
2 e. h. 1 Kaupþingsalnum (Eimskipa-
fjelagshúsinu.
Dagskrá samkv. fjelagslögum.
Stjómin.
Sameiginlegf
Ran^ælnga* og Skaftfelllngamól
verður haldið næstkomandi laugardag, 30. þ. m. að Hótei
3org, og hefst með borðhaldi kl. 7,15 síðd. Undir borðum
tala þingmenn kjördæmanna og fleiri, ennfremur söngur
0. fl. og dans til kl. 4.
Áskriftalistar liggja frammi hjá Andrjesi Andrjes-
syni klæðskera, Kaupfjelagi Reykjavíkur, Bankastr. 2 og
á skrifst. Hótel Borg til föstudags. Þeir, sem tilkynna
látttöku sína fyrir þann tíma, ganga fyrir öðrum, meðan
húsrúm leyfir, með því að búast má við mikilli þátttöku.
Undirbúningsnefndin.
Hotuð skrifstoiohðsgðgn óskast strax
Afgreiðsla blaðsins vísar á.
Aðalfundur
Rauða kross Islands
verður í Kaupþingsalnum föstudag 26. apríl kl. 4 síðd.
Dagskrá samkvæmt fjelagslögum.
Formaður.
Bólusetning gegn liarnaveiki.
Börn úr Miðbæjarskóla og Skilding-anesskóla, sem eiga að bólu-
setjast gegn barnaveiki, komi til viðtals við mig.
Þau, sem búið er að stinga í handleggi. en ekki í öxlina, komi svo
fljótt, sem þau geta.
Þau, sem óstungin eru, komi á mánudaginn kemur (1. april), ef
skólabanni verður þá ekki af ljett, árdegisbörnin fyrir hádeg'i, síðdeg-
isbörnin kl, 2—5.
Skólastjóri Miðbæjarskólans.
í fjarveru minni erlendis,
fram í maílok, gegnir lir. læknir G. F. Petersen læknisstörfum mínum.
Gunnl. Glae§sen,
Tal barna. leitt voru litlu stúlkurnar ræðn-
Fyrir nokkru ljet barnaheim- astar.
ili eitt í Ameríku nokkra hrað-
ritara taka niður jafnóðum hvert
einasta orð, sem börnin sögðu í
þrjá daga samfleytt. Börnin voru
á aldrinum tveggja til sex ára.
Sex ára gamall snáði reyndist
lang mælskastur af öllum krökk
unum. Hann gerði 1728 athuga
Það kom í ljós, að börnin töl-
uðu nær eingöngu um sjálf sig.
Fyrst á sex ára aldri fóru þau
að tala um> anna&.
1 Telpurnar voru fjörugri og
opinskárri en drengirnir, hlýddu
með eftirtekt á ,,sögur“, sem
þær höfðú að segja hvor um
semdir þessa þrjá daga. En sáj aðra, þegar á fjögra ára aldri.
þögulasti var tveggja ára gam-
all drengur, sem opnaði munn-
inn aðeins 200 sinnum. En yfir-
En drengirnir voru aftur á móti
miklu duglegri að reka upp ó-
hljóð og hafa hávaða.