Morgunblaðið - 14.04.1935, Síða 5
5
ISunmidaginn 14. apríl 1935.
MORGUNBLAÐIÐ
jmwxzmmmaai&mHs&tete 'nn—
«ndum“ o. s. frv. Það er að segja,
þarna eru þessir menn, Eysteinn
og J. J., komnir alveg á sömu
•skoðun, s_em þeir svo freklega for
dæmdu framanaf vetri.
Betra seint en aldrei.
Mjólkurmálið.
Svo segir í brjefi Eysteins og
-J. J. til „samherjanna“, að mjólk-
urlögin „valdi stórfeldri bót á
kjörum þeirra manna, sem njóta
^verndar þeirra“.
Þessu skal ekki mótmælt. Lög
þessi, eða öllu heldur ólög, hafa
hætt kjör forstjóra mjólkursam-
sölunnar, er fær 10 þús. kr. laun,
skrifstofufólks, búðarfólks og
sendla, Egils í Sigtúnum, sr.
Sveinhjarnar Högnasonar og Al-
þýðubrauðgerðarinnar, eða Al-
þýðuflokksins. Og munu þá upp-
taldir þeir, sem „vemdarinnar“
mjóta.
Daglega herast fregnir af vand-
ræðum húsmæðra hjer í bænum,
sem eiga börn, er ekki þola sam-
sölumjólkina. Tjónið, sem hæjar-
bííar bíða af mjólkurskemdum og
mjólkursulli, verður ekki í krón-
um talið. Augljósara mun tjón
bændanna, framleiðendanna, vera,
sem lenda í erfiðleikum vegna
liinnar bjánalegu stjórnar á mjólk
airsölunni.
„Planökonomi".
í mjólkurbúi Flóamanna er
rúmgóð ostageymsla. Hillur henn-
ar voru nýlega svo til alsettar
ostum í fjórsettum röðum. Þær
eru samtals 4 km. á lengd.
Nú er komið eitthvert skarð í
birgðirnar, því nýtt „skipulags-
atriði“ er tekið upp þar eystra.
Bændur fá að nokkru leyti mjólk
sína borgaða í ostum.
Ef sama „skipulag“ ætti að
gilda í kjötsölu, fengju bændur
greitt nýtt dilkakjöt sitt á haust-
in með saltkjöti. Engin furða þótt
rauðbðar sjeu hrifnir af „skipu-
laginu“.
Það er víst þetta, sem þeir
rauðu kalla á viðhafnarmáli
„Planökonomi' ‘.
Sigurður Jónasson.
Rafvirkjar bæjarins hafa spurt
fjármálaráðherrann að því, hvort
enn sje það alvara hans, að gera
Sigurð Jónasson að forstjóra
væntanlegrar raftækjaeinkasölu,
og hinn þýska Ziegler að fulltrúa
hans.
Og Eysteinn fer undan í flæm-
ingi. Þorir ekki að segja já, vill
ekki segja nei. Stuðningsblað
hans, Alþýðublaðið, hefir heimtað,
að Sigurði yrði tafarlaust vikið
frá þessu starfi. Og blaðið hefir
sagt, að ráðning Sigurðar sje gerð
í trássi við Harald Guðmundsson
og að honum forspurðum. Fjár-
málaráðherra segir, að Haraldur
Guðmundsson hafi samþykt ráðn-
ingu Sigurðar. Haraldur segir
ekki neitt. Hann segir hvorki Al-
þýðublaðið nje Eystein ljúga. En
annaðhvort er af því tvennu.
„Samkomulag stjórnarflokk-
anna mjög gott“, segir í brjefinu
fræga, Eysteins og Jónasar. Ekki
ber á öðru!
„Fyrverandi".
Síðan sósíalistar útilokuðu Jón-
as Jónasson frá því, í fyrra sumar
að mynda stjórn, og útilokuðu
hann frá þátttöku í stjórninr.i.
hefir blað sósíalista notað mörg
tækifæri til þess að lítilsvirða
þenna „fyrverandi" stjórnmála-
leiðtoga, sem þeir kalla svo.
Hjer um daginn lielti Sigfús
Sigurhjartarson sjer yfir þennau
formann Framsóknarflokksins
með óbótaskömmum fyrir ýmis-
konar óhlutvendni.
En afsökun þá fann Sigfiis lijá
Jónasi, að árin væru að færast
yfir hann, hann hefði gleymt hug-
sjónum yngri áranna, týnt hálf-
gert sjálfum sjer í þeim sora, sem
hann hefir dreift um sig í opin-
beru lífi þjóðarinnar.
Flokksmenn Jónasar, sem rám-
ar í hve Sigfús hefir rjett fyrir
sjer, skutu á fundi, boðuðu J. J.
þangað, og brýndu fyrir honum
að halda ekki feti lengra út í rit-
deilu við Sigfiis Sigurhjartarson.
Og Jónas hlýddi.
Hann er því kominn niður í 3.
valdatröppuna innan stjórnarsam-
! steypunnar. Sósíalistabroddarnii;
eru sem kunnugt er í þeirri efstu.
Því þeir skipa Framsóknarflokltn-
um fyrir verkum. Og nú taka eig-
in flokksmenn J. J. fram fyrir
hendur honum, og þrýsta hohum
niður fyrir sig.
Ileimagangar í stjórnarherbúð-
unum halda sumir, að J. J. sje á
hraðri leið niður stigann.
Samvinnufyrirtæki
eða einokunarhola.
Jónas Jónsson alþingismað-
ur ritar greinarkorn í Nýjia Dag
blaðið í gær undir fyrirsögn-
inni „Gömul eða ný mjólkur-
stöð“.
Þeim sem áður hafa verið í
vtafa, af hverju mjólkursamsal
an var í upphafi og er enn í
dag rekin á grundvelli einok-
unar en ekki samvinnu, mega
hjer eftir vera ljósar orsakirn-
ar.
J. J. virðist ætla að sýna
frám á í grein sinni, hver nauð-
syn það sje fyrir mjólkursram-
söluna að eiga sína eigin geril-
sneyðingarstöð.
Við sunnlenskir samvinnu-
menn, sem börðumst fyrir því
að komra upp samsölu á mjólk,
vorum ákveðnir í að reka slíkt
fyrirtæki á samvinnugrundvelli.
Og grundvöllurinn var sá í fá-
um orðum, að öll mjólk og allar
mjólkurafurðir fr’á þeim mjólk-
urbúum er stæðu að slíku sam-
vinnufyrirtæki yrði seld gegn
um eina sölumiðstöð fyrir sam-
eiginlegan reikning rallra aðilja.
Við óskuðum lögverndunar
meðal annars um s'ameiginlegan
verðjöfnunarsjóð; í þann sjóð
skyldi greiða sanngjrarnt gjald
af allri þe'rri mjólk er seld væri
í Reykjavík og Hafmarfirði. —
Skyldi sjóðurinn notast til verð-
uppbótar á mjólkurafurðum
er gæfu m'nna verð en nýmjólk
in, og var svo til ætlast að fjær-
liggjandi mjólkurbúin drægju
sig burtu af markaðnum með
síma neyslumjólkursölu en
fengju svo í staðinn uppbætur
úr nefndum sjóði. Með þessu
átti að vinnast, að lækka dreif-
ingarkostnaðinn, þar sem mjólk
ursalan yrði rekin í gegnum
e'n>a sölumiðstöð í staðinn fyrir
margar áður og á þann hátt
hægt að framkvæma margar
sparnaðarráðstafanir. Á þennan
hátt átti líka að spara flutnings
kostnað á nýmjólkinni yfir
Hellisheiði, nema þegar hana
vantaði á Reykjavíkur- og
Hafnarfjarðarrptarkaðinn, en
flytja heldur mjólkurvörur. —
Þetta átti að spara mikinn
flutningskpstnað, þiar sem vitan
lega mjólkurafurðirnar eru
margfalt fyrirferðarminni og
því ódýrari í flutningi en
mjólkin.
Þá var það og tilgangur okk-
ar, að koma á skipulagðri af-
urðavinslu í mjólkurbúunum,
þ. e. að búin skiftu með sjer
verkum, eitt þeirna gerilsneyddi
sölumjólkina, annað framleiddi
osta og smjör, þr'ðja framleiddi
skyr, rjóma o. s. frv. Á þennan
hátt hugðum við rað framkvæma
tvent: Að spara mikinn vinnu-
kraft á búunum við að fram-
leiða eina eða tvær vörutegund-
ir í stað mrargra áður, og ekki
síður hitt, að fá „standardiser-
aða“ framleiðslu, svo að kaup-
tandinn þyrfti ekki að eiga á
hæ£tu að fá eina tegund skyrs
í dag og aðra á morgun, svo
maður taki dæmi frá öngþveit-
inu í dag, sem er að eyðileggjra
sölu á þessari vöru.
Engum okkar kom nokkurn
tíma til hugar, að þörf yrði á
fyrir væntanlegt samvinnufyr-
irtæki, tað eiga mjólkurbú ein-
hvers eins aðiljans, og má það
firnum sæta, að maður, sem
hefir komið nálægt samvinnu-
fjelagsskap, skuli láta sjer
detba slíkt í hug. Enda er til-
gangurinn sjáanlega sá e'nn, að
gera M. R. að hjáleigu frá hin-
um mjólkurbúunum.
Ef rjett væri hjá J. J., að
það sje ekki hægt að reka
mjólkursamsöluna án þess rað
hún eigi sína ger lsneyð ngar-
stöð, þá ætti hann að gánga
skrefi lengra ef hann vill verta
sjálfum sjer samkvæmur. Mjólk
ursamsalan hefir á boðstólum
fleiri vörur en mjólkina ,og það
er engu minni ástæða fyrir sam
sölunta, að tryggja sjer með-
ferð þe'rrar vöru, á jeg þar við
skyr, rjóma, smjör og ost, ætti
hann þá frekar að beita sjer
fyrir því, að samsalan ætti öll
mjólkurbúin, því í því væri
snefill af rökrjettri hugsun.
Mætti það takast á þeim grund
velli, að mynda eitt allsherjtar-
samvinnufjelag á verðjöfnun-
axsvæði Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðtar.
Jeg tek það fram að þetta er
ekki mín tillaga, en jeg vil að-
eins góðfúslega bendra „mann-
inum“ á, að ef mjólkursamsal-
an á að fara inn á þá braut
sem bent er á, er það ekki hægt
á annan hátt.
i Má spyrja J. J. að einni
011 litlu börnin
|? -f;; 'jr ^
þurfa að fá svolitla sumargjöf.
Hjá okkur er úrvalið mest af barnasumargjöfum.
K. Einarsson & Rjörnsson.
Bankastrœti 11.
Runólfur Runólfsson bóndi í Norðtungu andaðist að heimili
sínu 13. þ. m.
Aðstandendur.
Jarðarför sonar og stjúpsonar okkar, Hermanns Steingríms-
sonar, hefst með bæn á heimili okkar, Freyjugötu 38, þriðjudag-
inn 16. þ. m., kl. 1 e. h.
Pálína Scheving. Gunnlaugur Bárðarson.
Jarðarför elsku litlu dóttur okkar, Maríu, er andaðist 5. þ.
m., fér fram þriðjudaginn 16. þ. m. og hefst með bæn frá Austur-
götu 32 í Hafnarfirði, kl. IV2 síðd.
Hafnarfirði 14. apríl 1935.
Hanna Jóhannsdóttir. Jónas Guðmundsson.
i
Jarðarför móður og tengdamóður okkar, ekjkjunnar
Hólmfríðar Þórðardóttur, er ákveðin mánudaginn 15. apríl
og hefst með húskveðju frá heimili dóttur hennar, Austurgötu
47 í Hafnarfirði, kl. 12Vz síðd.
Þorbjörg Guðnadóttir, Valgerður Guðnadóttir, Jens Davíðsson,
María Guðnadóttir, Guðbergur Jóhannsson, Kristín Einarsdóttir,
Jón Guðnason.
Jarðarför mannsins míns, Árna Eiríkssonar, fer fram þriðju-
daginn 16. þ. m. og hefst kl. 3Vá síðd. að Óðinsgötu 30 A.
Fyrir hönd mína 0g annara aðstandenda.
Hólmfríður Guðjónsdóttir.
Hjartanlegt þakldæti færum við öllum þeim mörgu, er sýnt
hafa okkur vináttu og samúð við andlát og jarðarför, Sumarliða
Bjömssonar.
Kona, börn 6g tengdabörn...
Maðurinn minn, Magnús Haraldsson frá Hrafnkelsstöðum,
verður jarðaöur að Hruna, miðvikudaginn þann 17. þ, m.
Kveðjuathöfn fer fram á heimili okkar, Lokastíg 4, þriðju-
daginn þann 16. þ. m. 0g hefst kl. öVz síðdegis.
Halla Guðmundsdóttir.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að fósturmóðir mín,
Halldóra Guðbjartsdóttir, andaðist á heimili sínu, Framnesvegi 13
þann 13. þ. m.
Guðbjartur Ólafsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
Höllu litlu dóttur okkar.
Guðrún Gísladóttir, Sigurður Einarsson,
Hverfisgötu 37.
Jarðarför föður míns, Jóns Jónssonar, frá Norð-
firði, fyrrum síldarmatsmanns, er andaðist, 4. þ. m.,
fer fram frá Dómkirkjunni, mánudaginn 15. þ. m.,
og hefst með húskveðju á heimili mínu, Vesturgötu
22, kl. V/z síðdegis.
Fyrir hönd systkina.
Jóhanna Jacobsen.