Morgunblaðið - 12.05.1935, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
1
:Sunnudaginn 12. maí 1935.
Reykj aví kurbrief.
11. mai.
Togararnir.
Flestir togararnir eru enn að
véiðum í Jökuldjúpi og- á Könt-
inm og’ þar um slóðir. Afli hefir
verið þar sæmileg'ur undanfarnar
vikur.
Togarinnn Hafsteinn fór nýlega
norður á Hala og Hornbanka í
fiskleit og hitti engan afla.
Skallagrímur fór austur á
Hvalbak. Þar fór á sömu leið. Eng
inn afli. En aftur á móti varð
-Skaliagrímur var við nokkurn
afla við Eystrahorn .
Fiskverslunin.
Þau tíðindi hafa gerst í þeim
málurn síðastliðna viku, að at-
vinnumálaráðherra liefir falið
sölusambandi íslenskra fiskfram-
leiðenda að gangast fyrir því, að
sölusambandið yrði endurreist með
frjálsum samtökum fiskframleið-
• enda eins og áður var.
Takist þau samtök að nýju er
stigið mjög stórt spor til þess að
firra yfirvofandi vandræðum í
’þeim mátum.
Vorblíðan.
Vorbatinn upp úr sumarmálum
var svo eindreginn, veðurblíðan
hefir verið svo samfeld síðan, að
tenjóa leysti mjög ört í snjóasveit-
iim og gróðri hefir farið svo fram,
að með afbrigðum er sagt vera
víðast hvar um land alt.
Úr Árness- og Rangárvallasýsl-
Um er blaðinu símað, að menn þar
um slóðir muni ekki aðra eins vor-
blíðu og nú. Þar hefir þurft að
hraða ávinnslu á túnum og er
Shenni lokið víðast hvar ef ekki
alstaðar á undirlendinu, nema
hvað eftir er að hreinsa tún, en
gróðurþeli orðinn það mikill víða,
að tími er til þess kominn.
í Fljótshlíð er fyrir nokkru
farið að beita kúm.
Af Akureyri er blaðinu símað,
að þar sje gróður sami nú og hann
var hálfum mánuði síðar í fyrra-
vor.
Jarðeplaræktin.
Síðasta þing afgreiddi lög um
það, að takmarka skuli sjerstak-
lega innflutning á jarðeplum. Sýn-
ist það vera að bera í bakkafull-
•an lækinn, að ákveða sjerstaklega
takmarkanir á innflutningi þessar
ar vörutegundar, þegar innflutn-
singur er takmarkaður á öllu,
nema hinum sjerstöku nauðsynj-
um ríkisstjórnarinnar, tóbaki og
víni.
Mjög' er og þessi ráðstöfun eða
lagafyrirmæli út í hött, meðan
.ekkert sjerstakt er gert td þess að
auka ræktun jarðepla innann-
lands. Því hvað stoðar að tak-
marka innflutning þessarar fæðu-
tegundar ef ekki er um leið sjeð
fyrir því, að nægileg innlend jarð-
epli fáist,’ og þau, sem ræktuð eru
ihjer, sjeu sæmileg að gæðum.
Hjer á landi er árleg jarðepla-
neysla á mann 53 kg. Er þetta
margfalt minna en nágrannaþjóð-
ir okkar nota. Af þessum 53 kg.
hafa 33 kg. verið innlend jarð-
■epli, en 20 kg. aðflutt.
Til þess að vit væri í að tak-
marka sjerstaklega jarðeplainn-
flutning, þyrfti framleiðslan inn-
anlands að tvöfaldast.
En hvað frjettist um ráðstafanir
•valdhafanna í því efni?
Jú. Hin liringavitlausa innflutn-
ingsnefnd takmarkar innflutning
á tilbúnum áburði, svo menn þeir,
sem - vilja auka jarðeplaræktina
eru í vandræðum vegna áburðar-
skorts.
Er hjer ein mynd af „skipulagi
atvinnuveganna“ „á vísindalegum
grundvelli" sem rauðliðar hafa
gumað mest af.
Misheppnuð tilraun.
Mjög liafa bændur orðið von-
sviknir enn sem komið er með
árangur af blöndun ísl. fjár með
karaltúlfje. Hrútar af því kyni
komu ihingað einir 13. Af þeim
eru 3—4 dauðir.
Skinn af lömbum undan hrút-
um þessum hafa selst fyrir sára-
lítið verð, að því er einn af starfs-
mönnum Búnaðarfjelagsins hefir
tjáð blaðinu — þetta fyrir 2—3
krónur stykkið. Og sumt af skinn-
unum frá því í fyrra, liggur enn.
óselt.
Að einhverju leyti kann þessi
ljelegi árangur að stafa af því, að
meðferð skinnanna hefir ekki ver-
ið rjett.
Flugleiðin um
ísland.
Aldrei liafa menn búist við því,
að erlend flugfjelög myndu hugsa
til þess að koma flugferðum á .til
íslands, með það fyrir augum að
hjer yrði endastöð. Menn hafa
litið svo á, að ísland fengi aldrei
flugsamband við önnur lönd, nema
sem áfangastaður á flugleiðinni
milli heimsálfanna.
En þetta víkur dálítið öðru-
vísi við, samkvæmt frásögn Björns
Ólafssonar stórkaupmanns, er birt
ist hjer í blaðinu um daginn. En
liið kgl. hollenska flugfjelag hef-
ir falið honum að atliuga ýms skil-
yrði til flugferða hingað .
Þetta öfluga flugfjelag hefir í
hyggju að koma flugferðum á
hing-að, en ekki léngra a. m. k.
fyrst um sinn. Og á að nota flug-
vjelar sem setjast á land. Það eitt
fyrir sig sýnir, hve örugt flugið
er nú talið, ef nota á vjelar, sem
alls ekki geta sest á hafið.
En til þess að nokkrar veruleg-
ar tekjur geti orðið af slíkum loft-
ferðum í samanburði við kostnað,
hljóta þeir, sem gera út slíkar
vjelar, að ætla sjer að fá hingað
skemtiferðafólk þessa leið. Eru
menn þá farnir að skoða flugvjel-
ar örugg farartæki, þegar fólki
er ætlað að eyða sumarfríi sínu á
þann hátt að fara sjer til skemt-
unar í lofti frá meginlandi Evrópu
til íslands.
4 ára áætlunin.
Menn blaða í hinni svonefndu
„4 ára áætlun“ Alþýðuflokksins,
er út var gefin fyrir kosningamar
í fyrra vor, þar sem, m. a. að
loforð sósíalista til kjósenda eru
sundurliðuð í 36 liðum.
í 6. lið er svo komist að orði,
að koma skuli á „samvinnu milli
sveitabænda og verkafólks í kaup-
stöðum, um skipulagningu á sölu
landbúnaðarafurða innanlands,
með því markmiði að auka neyslu
þessara afurða í landinu?
Fyrsta spor í þessari „sam-
vinnu“ „til að auka neysluna“
hefir svo orðið það, að mjólkur-
salan hjer í bænum er sett í brauð
búðir sósíalista, stórkostlega
dregið úr mjólkurneyslunni með
allskonar fantabrögðum, en Al-
þýðuflokknum greiddur ágóði af
útsölu þeirrar* mjólkur sem selst,
með sjerrjettindum þeim, er brauð
sölubúðir sósíalista hafa fengið.
Þannig hafa sósíalistar í þessu
efni rækt „samvinnuna“ við bænd-
ur. Haft fje af framleiðendum
með* sjerrjettindabraski sínnu, og
gera með aðstoð nokkurra of-
stopafullra Framsóknarmanna,
mjólkursöluna þannig úr garði,
að mjólkurneyslan minkar stór-
kostlega.
Egill í Sigtúnum.
Framkoma hans í mjólkurmál-
inu er orðin býsna gruggug.
Hermann Jónasson sýndi lit á
efndum loforða sinna með því,að
fallast á, að sett yrði ný nefnd
þriggja mannna, er taki að sjer
mjólkursöluna. Áttu búin austan-
fjalls að tilnefna einn, framleið-
endur vestan héiðar að tilnefna
annan, og þeir síðan sameiginlega
að koma sjer saman um odda-
mann.
Fulltrúar allra búanna, komu
sjer saman um Magnús Kjarau
sem oddamann þessarar nefndar.
Nema Egill í Sigtúnum neitar að
greiða Magnúsi atkvæði. Hann
kveðst bera traust til Magnúsar.
Hann telur, að Magnús Kjaran sje
líklegur til þess að leysa vand-
ræði mjólkurframleiðenda, með
því að kippa mjólkursölunni í lag.
En Egill í Sigtúnum vill samt
ekki greiða Magnúsi atkvæði sitt.
Af því að hann vill ekki að
mjólkursalan komist í lag? Það
liggur beinast við að halda að
svo sje.
Geta bændur austanfjalls borið
traust til Egills í Sigtúnum eftir
þessa framkomu hans?
Myndi ekki vera tími til kom-
inn, fyrir þá að losa sig undan
forsjá þessa manns, sem sýnilega
er leiknari í að selja ólöglegar
vörur en afurðir bænda í hjer-
aðinu.
Varalögregla.
Það vakti nokkra eftirtekt bæj-
arbúa þ. 1. maí síðastliðinn, að
allmargir fyrverandi varalögreglu
manna, sáust á götunum. Þurftu
hvorki þeir nje bæjarlögreglan
neitt að aðliafast þenna dag, sem
kunnugt er.
En hvað kom til að varalög-
reglan var, endurvakin þenna
dag?
Fullvíst er talið, að um það
liafi komið skipun frá ríkistjórn-
inni, sem mjög hefir þó stæif sig
af því að hafa lagt varalögregl-
una niður.
Hvað hefir talið stjóniinni liug-
hvarfs í þessu máli? Er það með-
vitundin um hin sífeldu svik gef-1
inna loforða og vaxandi vand-
ræði almennings, sem komið hafa
landsstjórninni á þá skoðun, að
Ihún þurfi varalögreglu um sig —
a. m. k. á hátíðum og tillidögum
eins og 1. maí?
Magnús Torfason.
Tímamenn lýsa undrun sinni yf-
ir því, að mönnum detti í hug, að
Magnús Torfason sje í raun og
veru ekki lengur þingmaður.
En hvað segja stjórnarskrá og
kosningalög? Til þess að vera
kjörgengur sem uppbótarþing-
maður, fyrir einhvern flokk, þarf
þingmaðurinn að vera í flokkn-
um.
Þetta er ekki torskilið.
Frambjóðendur Framsóknar-
flokksins geta ekki lent í uppbót-
Snurpinót.
Þeir, sem 'hafa í hyggju að gera út á síld í sumar, en ennþá
ekki hafa fengið sjer nót, ættu sem fyrst að tala við hr. Elías Hall-
dórsson forstjóra Litunar og viðgerðarstöð veiðarfæra, Skildingar-
nesi ,og fá umsögn hans um nót sem jeg á þar í ágætu standi,
ný viðgerða og ný barkaða.
O. Ellingsen.
Bilar til sölu.
Tveir Opel vörubílar, einn Studebaker vörubíll, 2 tonn,
einn yfirbygður Fargo vörubíll, V/z tonn, og einn 5 manna
Oldmobile, allir í ágætu standi, eru til sölu nú þegar.
Jón Bjarnason bílstj. í Kveldúlfi veitir allar nánari upplýsingar
í síma 1054, og verður til viðtals á Lindargötu 22, þar sem bílarnir
verða sýndir næstu daga kl. 4—6 síðdegis.
Pirelli
bifreiða gúmmfi,
í flestum stærðum, nýkomið.
PIRELLl
er viðurkent ,sterkt og ábyggilegt bifreiðagúmmí.
Xofið Pirelli.
Vorskóli
Austnrbæjarskölans
starfar, eins og að undanförnu frá 15. maí til júní-loka.
Kent verður: Lestur, skrift og reikn., en eldri börnum
það sem þau óska sjerstaklega í öðrum námsgreinum.
Þá verður kent sund, einnig farið í smáferðir í grasa-
og steinasöfnun og kynst umhverfi bæjarins.
Skólagjald allan tímann kr. 7,50. Tekið á móti um-
sóknum daglega hjá skólastjóra Sig. Thorlacius, sími
2611. Auk þess taka á móti umsóknum: Jón Sigurðsson
yfirkennari, Bergst. 84, Bjarni Bjarnason, sími 2265 og
Gunnar M. Magnúss, Egilsgötu 32.
Tll Þlngvalla f dog.
Farg)aldið lækkað,
koslaff aðeios 3 krónnr.
Bifreiðastöð Steindórs.
arþingsæti Alþýðuflokksins. Og
utanflokkamaður eins og Ásgeir
Ásgeirsson, getur ekki fylt neitt
af 11 uppbótarþingsætum Alþing-
is.
IJm leið og Magnús Torfason
segir sig vir Bændaflokknum, þá
hefir hann eyðilagt kjörgengi sitt.
Hann getur ekki lengur verið
þingmaður. Hann verður að fara,
og varamaður hans að taka við.