Morgunblaðið - 29.05.1935, Síða 7

Morgunblaðið - 29.05.1935, Síða 7
MORGUNBLAÐIB 7 Miðvikudaginn 29. maí 1935 lón Gest§son. Jón Gestsson dáinn. — Þessi ■sorgarfregn barsi vinum hans <cg kunningjurn árla dags hins :23. þ. m., og þá sem fyr vakn- aði spurningin hver fær skilið hið bitra vopn — dauðann, sem hjer í þessu tilfelli hefir á svip srundu hrifið á brott ungan mann í blóma lífsins, einkason umhyggjusamrar móður og hugljúfan hverjum, sem hann þektu. Jón var fæddur í Reykja- vík 2. ágúst 1904 og varð því aðeins 30. ára gamall. Hann var sonur hjónanna Ingibjarg- ar Andrjesdóttur og Gests Jónssonar, söðlasmiðs. Föður Sipn misti Jón þegar á fyrsta ári og ólst því upp hjá móður sinni og móðurafa, en síðar giftist móðir hans hinum ágæt- asta manni Helga Jónssyni skó smið, og upp frá því naut hann handleiðslu þeirra allra, sem voru honum svo mjög kær. Jón lagði snemma stund á trjesmíðar og nam hann þá iðn hjá Sigurði Halldórssyni, bygg- ingameistara, og vann jafnan í h'ans þjónustu, og Guðmund- ar bróður hans. Nokkru áður en Jón hafði lokið trjesmíða- námi sínu varð hann fyrir á- falii og náð aldrei sömu heilsu eftir það. Kom sjer þá vel fyrir hann sú mikla vinátta, sem hann átti ætíð að fagna hjá þeim bræðrunum, Sigurði og Guðmundi, sem reyndust hon- um ávalt sem bestu vinir. Jón átti mörg áhugamál. — Einkum hneigðist hugur hans að þjóðfjelagsmálum, og var hann jafnan í hópi hinna á- hugasömustu yngri manna um þau. Ósjerhlífni hans, hrein- skilni og drengskapur, komu mjög skýrt í ljós í tillögum hans um þessi máli og starfi hans fyrir þeirri, enda naut hann hins fylsta trausts fje- lága sinna í þessum efnum. ■— Hann átti sæti í stjórn fjel. Heimdallur þegar hann ljest ■og hafði hann lagt fram mikla krafta til eflingar fjelagsskap- rar ungra Sjálfstæðismanna, «nda verður hans ekki síst saknað af þeim, þó harmurinn sje eflaust sárastur móður hans, st.júpföður og öldruðum afa, og þeim vinum hans, sem nánust kynni höfðu af honum. En það mun þó huggun þeirra á slíkri raunastund, að í hug- um þeirra fjölmörgu, sem þektu hann og störfuðu með honum, býr björt og fögur rnjmd af góðum og göfugum dreng, og munu bænir þeirra fjrlgja honum yfir í landið ók«nna. ** Þriggja ára drengur bjargar jaínöldru sinni frá drukknum. Snemma í apríl kom fyrir at- vik í Fagurhlíð í Landbroti, Skaftafellssýslu, sem vel er þess vert, að því sje haldið á lofti. Hjónin í Fagurhlíð, Þórarinn Auðunsson og Elín Sveinsdóttir, eiga son 3 ára gamlan, Svein að nafni, og er hann yngstur barna þeirra. Svo hagar til við bæinn í Fagur- hlíð að lækur, sem notaður er til rafveitu fyrir heimilið, rennur í 1 m. djúpum skurði fast að hús- inu, því vjelar rafstöðvarinnar eru í kjallara hússins. Skurður- inn er opinn og venjulega fullur af vatni og er í honum töluverður straumur, göngubrú Uggur yfir skurðinn, og er girðing að honum öðru megin. Lítil stúlka, Rannveig Eiríks- dóttir, frá næsta bæ, jafnaldra Sveins, var að leika sjer með börnunum í Fagurhlíð, og áttu eldri börnin að gæta yngri barn- anna, en þau munu hafa vikið sjer frá og ékki gætt þeirra sem skyldi. Þegar Rannveig litla ætlar að ganga yfir brúna fell hún í skurð- inn, án þess að nokkur yrði þess var nema Sveinn litli, sem stóð á bakkanum. Barst Rannveig litla með straumnum að bakkanum, þar sem drengurinn stóð, og fór hann þegar að reyna að ná til hennar og náði í höfuðið á1 henni og tókst að draga hana upp úr, áður en hún barst þangað, sem straumurinn var meiri. Það þótti Sveini litla sárast að hann skyldi þurfa að taka í höfuðið á leik- systur sinni og grjet hann lengi yfir því. Það telja þeir, sem sáu staðinn þar sem telpan datt í skurðinn, að óhugsandi befði verið, að híin hefði komist hjálparlaust upp úr honum, og hefði því hlotið að drukkna þarna, ef Sveinn litli hefði ekki náð t,i] hennar. Merki- legt má það heita að svo ungur drengur skyldi gera sjer grein fyrir hættunni og hafa til þess afl og áræði að draga telpuna upp úr skurðinum, og er þetta því hið mesta þrekvirki. , Þess má að lokum geta að Sveinn Utli er hinn mesti efnis- drengur. O. J. R. Dagbók. Veðrið í gær: Á SV-landi er vindur allhvass SA, en veöur yfir- leitt þurt og bjart. 1 öðrum lands- lilutnm er vindstaða breytileg og víðast hægviðri. Hiti 10—16 st. á Suðurlandi °g í innsveitum nyrðra. Við NA-ströndina er hiti ekki' tfeiha 6 st. og sunisstaðar þokuslæðingur. Veðurútlit í Rvík í dag: Breyti- leg át,t og hægviðri. Sennilega úr- komulaust. Messur á uppstigningardag: í dómkirkjunni kl. 11, síra Frið rik Hallgrímsson; kl. 5 síra Bjarni Jónssóri. *'■ I fríkirkjunni í Reykjavík, kl. 2 (síra Arni Sigurðsson). í Fríkirkjunni í Hafnarfirði, kl. 2. Ferming, síra Jón Auðuns. Hjónaband. SíðastHðinn laugar- dag voru gefin saman í hjónaband af síra Fr. Hallgrímssyni, Guð- finna Þorleifsdóttir og Halldór Guðmundsson. Heimili þeirra er á Leifsgötu 6. Hjónaband. Sunnudaginn 26. þ. m. voru gefiri saman í hjónaband að Útskálakirkju í Garði, af síra Eiríki Þorsteinssyni, Hlín Jóns- dóttir og Gustav Berg Jónásson rafvirki, bæði frá Akureyri. — Heimili brúðhjónanna verður fyrst um sinn á Skothúsveg 7, hjer í bænum. Kvennadeild S. V. F. í. biður fjelagskonur, sem eiga eftir að gera skil fyrir happdrættismiðum, að skila því, sem óselt er af mið- um á skrifstofu Slysavarnafjelags- ins í Hafnarstræti í dag. Afaráríð- andi að öllum óseldum miðum sje skilað. Bjarni Björnsson hinn alkunni gamanleikari, ætlar að skemta Reykvíkingum á föstudagskvöldið í Iðnó. Skemtunin hefst kl. 9,. Seg- ir Bjarni að hann ætli þar að halda þingmálafund og fara með spreng- hlægilegar vísur um menn og mál- efni. Hjálpræðisherinn. Síðasta hjálp- ræðisherssamkoma ársþingsins verður í kvöld, kl. 8-*4. Ofursti og fríi Möklebust stjórna og um 20 foringjar aðstoða. Kömið og heyrið! Allir velkomnir. Eimskip. Gullfoss fór vestur og norður í gærkvöldi kl. 8. Goðafoss fór frá Hull í gær á leið til Vest- mannaeyja. Dettifoss fer til Hull og Hamborgar í kvöld, Brúarfoss er í Kaupmannahöfn. Lagarfoss er á leið til Leith frá Kaupmanna- höfn. Selfoss er á leið til Ant- werpen frá Grimsby. Farþegar með Gullfoss, vestur og norður frá Rvík í gærkveldi: Halldóra Bjarnadóttir, Mr. H. M. Holt, Kristín Ingvai-sdóttir, Ingv- ar Guðjónsson, Valgerður Stefáns- dóttir, Snæbjörn Bjarnason, Mál- fríður Bjarriadóttir, Ingibjörg Björnsson, Guðrún Björnsdóttir, Jóhanna Knudsen, Gunnar Proppé, P. Substad, Þórður Helgason, Ósk- ar Bjartmar, Pálmi Þorsteinsson, Guðni Stígsson, Friðrik Bjamason, Mr. E. T. Wrathall, Hallgr. Tulinius, stórkaupm., Sig. Fann- dal, Jón Fannberg, Torfi Hjartar- son, Óskar Einarsson læknir o. m. fl. Suðurland fór td Borgarness í gærmorgun. Kópur kom af veiðum í gær. Skipið veiðir fvrir bæjarmarkað- inn. Kolaskip kom í gærmorgun til Kol & Salt. Súðin kom í gærmorgun. Lyra kom í fyrrakvöld frá Berg en. Fer aftur annað kvöld. Ríkharður Jónsson myndhöggv- ari hafði skorið umgerðina um málverk það, eftir Ásgrím Jóns- son, sem Alþingi gaf í tilefni af 500 ára afmæli Ríkisþingsins sænska. Syndir annara. Síðasta sýning verður á uppstigningardag. Mjög lækkað verð aðgöngumiða. Inflúensan er tabn um garð gengin á Siglufirði. Kíkhósti ger- ir allmikið vart við sig og er mikil aðsókn að læknum bæjarins. Kík- hóstabóluefni er uppgengið í bráð- ina en er væntanlegt með Gull- fossi. (FÚ.). , Karlakór Reykjavíkur heldur þriðja samsöng sinn eftir heim- komuna á morgun, kl. 2V2 í Gamla Bíó. Pantaðir aðgöngumiðar eiga að sækjast fyrir kl. 7 í kvöld. Skuldaskrá hafa kaupsýslumenn ákveðið að gefa út á næstunni. Verða færð í þá skrá nöfn allra imienduvOrHversloo í fullum gangi á mjög góðum stað, er til sölu nú þegar. Tilboð merkt „4000“ sendist A. S. í fyrir 31. maí. 1-2 herbergl með húsgognum, ásamt aðgang að eldhúsi, óskast nú þegar, innarlega við Laugaveginn eða nálægt Rauðarárstígnum, fyrir barnlaus hjón. — Viss greiðsla. Upplýsingar í síma 3720 og 2720. Akureyri - Reykjavík Reykjavík - Akureyri Alla leið til Akureyrar sendum við næstkomandi föstudag. Þar næst Mánudag, Miðvikudag og Föstudag, en fjölgum ferðum straks er vegir batna. Þjóðfrægir bifreiðastjórar á þjóðfrægum bifreiðum. Blfreiðastöð Sfeindórs. Sími 1580. Tilkynniinig. Ákveðið hefir verið að gefa út skrá yfir skuldir viðskiftamanna hinna ýmsu verslana hjer í bænum, svo sem við matvöruverslanir, álnavöruverslanir, brauðabúðir og önnur verslunarfyrirtæki, sem falln- ar eru í gjalddaga, og einnig þær skuldir er hefir verið samið um en ekki fejngist greiddar. Eru því þeir, sem skulda áður nefndum verslunarfyrirtækjum, ámintir um, að greiða skuldir sínar eða semja um greiðslu þeirra fyrir 5. júní næstkomandi, því að öðrum kosti mega þeir búast við að nafn þeirra, verði teldð upp í vanskilaskrána og fá lánsynjanir hjá þeim verslunum sem skrána hafa í höndum, einkum ef skuldin er gömul og skuldastaðir fleiri en einn hjá sama manni. F. h. Upplýsingaskrár kaupsýslumanna. Skrásetjari, viðskiftavina, sem ekki hafa greitt skuldir sínar, sem fallnar eru í gjalddaga. Ef menn hafa ekki greitt eða samið um skuldir sínar fyrir 5. júní næstk. verða nöfn þeirra færð inn í skrána, sem síð- an verður í höndum kaupmanna. Skemtiferð K. R. til Akraness. Margir hafa þegar keypt sjer miða og er fyrirsjáanlegt að fjöldi fólks tekur þátt í förinni. Er því viss- ara fyrir þá, sem ætla sjer að verða með að tryggja sjer miða helst snemma í dag. íþróttafjelag kvenna efnir til gönguferðar að Kleyfarvatni á uppstigningardag. Lagt verður af stað frá Lækjartorgi kl. 8 f. h. og farið í bílum að Kaldárseli. Mæðradagsnefndin biður Morg- unblaðið að flytja kærar þakkir öllum þeim, sem aðstoðuðu við mæðradaginn og sjerstaklega börn unum sem seldu merkin, pg þeim, sem fundu hvöt hjá sjer til að kaupa merkin. Útvarpið: Miðvikudagur 29. maí. 10,00 Veðurfregnir,. 12.10 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,00 Tónleikar. * 19.10 Veðurfregnir. 19,20 Erindi: Plönturi trjáa (Há- ' kon Bjarnasön skógræktarstj.). 20,00 Klukkusláttur. Frjettir. Ráðningarstofa Reykj avíkurbæ j ar Lækjartorgi 1 (1. lofti). Símí 4966 Karlmannadeildin opin frá kl. 10—12 og 1—2. Kvennadeildin opin frá kl. 2—5 e. K. Vinnuveitendum og atvinnuumsækj- endum er veitt öll aðstoð við ráðn»- ingu án endurgjalds. Tll inlonls: Þegar þjer þurfið að kaupa ný- reykt sauðakjöt, spaðsaltað dilkakjöt og 1. flokks frosið dilkakjöt þá hringið í undir- ritaða verslun. Verslon Sveíns Jóhannssonar, B«rgstaðMtr»ti 16. Stmi SOfÍ. Hilmar Thors löfffræðingur. Hafnarstræti 22. Sími 3001. Skrifstofutími: 10-12 og 2-5. 20,30 Erindi: Frá útlöndum (Vil- hjálmur Þ. Gíslason). 21,00 Tónleikar: . a) Fiðlu-sóló (Þórarinn Guðmundsson); b) Schubert: Dauðinn og stúlkan, tvennskonar túlkun (plötur).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.