Morgunblaðið - 09.06.1935, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.06.1935, Blaðsíða 2
MO..GUNBLAÐIÐ Sunnudaginn 9. júní 1935, 2 JSmsá Útgef.: H.f. Árvakur, Eeykjavik. Rltstjðrar: Jðn KJartansson, Valtýr Stefánsson. Ritstjðrn og afgreiSsla: Austurstrætl 8. — Símt 1600. Auglýsingastjðri: E. Hafberg. Auglýsingaskrif stof a: Austurstræti 17. — Siml 8700. Heimasímar: Jðn Kjartansson, ttr. 3742. Valtýr Stefánsson, nr. 4220. Árni Óla, nr. 3045. E. Hafberg, nr. 3770. Áskriftagjald: I'nnanlands kr. 2.00 á mánubl. Utanlands kr. 3.00 á mánuBi. I lausasölu: 10 aura eintakliS. 20 aura meb I.esbðk. S a moingsrofin. Bjarni Asgeirsson alþm. skrif ar um samningsrof Tímamanna í dagblað þeirra í gær. Viður- kennir Bjarni svo sem vænta mátti, að frásögn mín, er birt- ist nýlega hjer í blaðinu, sje rjett, hann hafi snúið sjer til mín og leitað samkomulags um það að engar tillögur um á- greiningsefnin skyldu bornar upp og hafi ekki staðið á mjer að gera það samkomulag. Þá skýringu gefur Bjarni á samningsrofunum, að miðstjórn Tímamanna hafi láðst að skýra umboðsmanni flokksins á fund inum í Hveragerði frá efni sátt málans, en sýnilegt sje að hið sama hafi hent miðstjórn Sjálf stæðisflokksins, og hafi um- boðsinaður flokksins á þessum fundi ekki vitað um samkomu- lagið. Sje þá jafnt á komið, „og það þarf hvorugur öðrum að lá, Ól. Thors eða Framsókn- armenn'1, bætir Bjarni við. Við þessu hefi jeg ekki ann- að að segja en það, að samn- ingurinn milli Bjarna og mín, ákvað að sá aðili sem boðaði til fundarins skyldi sjá um að engar ágreiningstillögur yrðu upp bornar. Tímamenn boðuðu fundinn í Hveragerði og tóku því á sig þessa skyldu að því er þann fund snerti. Það var því þeirra skylda en ekki mín eða okkar Sjálfstæð- ismanna að gera nauðsynlegar ráðstafanir þessu til trygging- ar, og úr því þeir brugðust þeirri skyldu áttu þeir að biðja afsökunar, en hvorki miklast af skömmunum, eins og ritstjóri Tímans, nje vera með vífi- lengjur eins og Bjarni Ásgeirs- son. Bjarni Ásgeirsson getur talið til skuldar hjá stjórninni fyrir að hafa komið henni undan vantrausti á 7 fundum af 9 þar eystra. Jeg aftur á móti á þá hönk upp í bakið á Bjarna, að úr því honum tókst ekki að sjá um að samningurinn yrði hald- inn, þá láti hann þá sem svikin frömdu eina um að verja þau. Ólafur Thors. Umgengninni umhverfis Leifs- styttuna á Skólavörðuhæð er mjög ábótavant. Br þar oft hafður í frammi sá óþrifnaður, að engu tali tekur. Hefir bæjarráð nú far- ið fram á það við lögreglustjóra, að hann láti líta sjerstaklega eft- ir Leifsstyttunni og umgengni við hana. Það væri ekki vansalaust, ef gera þyrfti mannhelda girðingu umhverfis styttuna, svo umgengni þar yrði ekki bænum til minkun- taual heimtaBi að hafa frjálsar hendur í fjármálunum. 4 Og þingið gaf sf|évn hans traust, með mihlum meiri- bluia. Fjárflóttioxi heldur áfratn. Oifurlegur tekjuhalli á rík- isbúskapnum. París 8. júní F.B. Laval gekk fyrir fulltrúadeild- ina í gær og flutti þar stefnu- skrárræðu sína. Fór hann fram á, að deildin veitti ríkisstjórninni heimild til þess að gera hverjar þær ráð- stafanir, sem henni kynni að þykja óhjákvæmilegar, vegna f jár-: hagsástandsins og gjaldeyrismál- anna, þar til í haust. Þessi fyrirspurn til deildarinnar var í rauninni spurning um það, hvort deildin ætlaði að votta hinni nýju stjórn Lavas traust sitt eða ekki. Yar biiist við því fastlega í gærkvöldi, að deildin myndi votta 'stjórninni traust sitt með því, að veita lienni liina umbeðnu beimild í fjármálunum. Fáir höfðu búist við, að það yrði með jafnmiklum atkvæðamun og raun varð á, því að 364 greiddu atkvæði með því að veita stjórn- inni umbeðna heimild, en að eins 160 á móti. Laval minti þulgmenn á, að enn heldi gullflóttinn áfram og það dygði ekki að sitja auðum hönd- um, það vrði að, grípa til víðtækra ráðstafana til þess að koina í veg fyrir frekari gullflótta og auk þess yrði að finna Jeið til þess að jafna tekjuhalla fjárlaganna, en hann væri nú 10 miljarðar franka. (United Press). Ráðuneyti Stanley Baldwin. Talsvcrð manna- skíftí frá ráðtmeytí Mac Donalds. London, 8. júní. FÚ. Mr. Ramsay MacDonald hef- ir nú sagt af sjer forsætisráð- herrastörfum, og konungur tek ið við lausnarbeiðni hans, en Mr. Stanley Baldwin er orðinn forsætisráðherra og hefir gert ýmsar breytingar á stjórninni um leið. MacDonald situr þó áfram í stjórninni, eins og gert var ráð fyrir, og er ráðsforseti eins og Baldwin var áður, og sonur hans, Malcolm MacDonald er orðinn nýlendumálaráðherra, en hann hefir áður verið að- stoðarráðherra þeirra mála. Aðrar helstu breytingar á stjórninni eru þær, að Sir John Simon er nú innanríkisráð- herra, en lætur af utanríkis- ráðherraembættinu, en við því tekur Sir. Samuel H<?are, áður Indlandsráðherra, en Indlands- ráðherra er nú Zetland lávarð- ur. Sir Cunliffe-Lister, sem var nýlendumálaráðherra, er nú flugmálaráðherra, í stað Lond- onderry lávarðar ,sem verður innsiglisvörður. Hailsham lá- varður, sem var hermálaráð- herra, er orðinn dómsmálaráð- herra og forseti lávarðadeild- ar, en hermálaráðherra í hans stað er Halifax láVarður, fyrr- um varakonungur í Indlandi, og síðast mentamálaráðherra, en Oliver Stanley gegnir nú því embætti, en hann hefir áð- ur verið aðstoðarráðherra inn- anríkismála og síðast verka- máláráðherra. : ' - f Þá verður Anthony Eden nú ráðherra í stjórninni, en án stjórnardeildar, og fer eftir sem áður, aðallega með mál þau, sem varða Þjóðabandalag ið, og verður fulltrúi Englands þar. Hinir ráðherrarnir eru: Ne- ville Chamberlain fjármálaráð- herra, eins og áður, og einnig er Thomas ráðherra Samveld- islandanna, Runciman verslun- arráðherra, Eyres-Monsell flota málaráðherra, Sir Kingsley Wood heilbrigðismálaráðherra, Elliot búnaðarráðherra, E. Brown verkamálaráðherra ,og Sir Godfrey Collins Skotlands- ráðherra. Landsþing kvenna. Landsþing kvenna, hið þriðja, er háð hefir verið, hefst á þriðjudaginn kl. 2 í Kaupþings salnum. Forseti Kvenfjelaga- sanbands íslands frú Ragnhild- ur Pjetursdóttir, setur fundinn og gefur skýrslur sambandsins. Þessi mál verða rædd á þinginu: Hjúkrunarmál. Starfs- menn Kvenfjelagasambandsins. Fræðslulög. Húsmæðrafræðsla. Heimilisiðnaður. Framtíð Kven fjelagasambandsins. Fundir verða haldnir dag- lega alla daga vikunnar, þang- að til á laugardag, en þá verð- ur þinginu slitið. Aliar konur eru . velkomnar á fundina. 6amla símitöðin verðnr lögreglnitöð. ByrjaH er á að breyta bú»< inu að innan. Lögreglan hjer í bænum hefir jafnan haft lítil og of ijeleg húsakynni og hefir það valdið ýmsum erfiðleikum í starfi hennar. Undanfarið hefir lögreglan verið til húsa í skrifstofubygg- ingu ríkisins í Arnarhváli, en þau húsakynni hafa, eins og önnur, verið henni ónóg. Þess vegna hefir nú verið ákveðið að iáta lögregluna hafa gömlu símstöðina í Pósthússtræti til umráða og er nú verið að breyta húsinu að innan og gera það sem haganlegast og þægi- iegast fyrir lögregluna. Varðstofan, almenn skrifstofa og salur fyrir lögregluþjóna. Þessi herbergi verða öil á fyrstu hæð hússins. Varðstofan í suðurendanum, fyrstu dyr til hægri þegar kom ið er inn í ganginn. Þar inn af verður salur fyrir lögreglu- þjóna, þar sem þeir geta geymt föt sín og aðra muni. Verða settir upp 50 tölusettir skápar fyrir föt þeirra, og hefir hver lögregiuþjónn sinn eiginn skáp. Verður þetta til mikils hægð- arauka og ólíkt þægilegra en nú á sjer stað. í suðurenda hússin, á sömu hæð, verður hin almenna skrif- stofa lögreglustjóra, sem Baldur Steingrímsson veitir forstöðu. Þar fer fram afhend- ing vegabrjefa, lögskráning og annað þess háttar. Einkaskrifstofur. Á annari hæð verða einka- skrifstofur. — þögreglustjóri verður í þeim tveim herbergj- um, sem gjaldeyrisnefndin hef ir haft. Næstu tvö herbergi þar fyrir innan verða skrifstofur fulltrúa lögreglustjóra í lög- reglumálum. í herbergjunum sem vita að götunni norðanvert í húsinu verða tvö herbergi fyrir full- trúa lögreglustjóra í sakamál- um og tvö herbergi fyrir yfir- iögregluþjóninn. Á sömu hæð verða einnig herbergi rannsóknarlögreglunn ar og biðherbergi. Myndasafn og fingra faradeild. Á efstu hæðinni, þar sem gamla bæjarmiðstöðin var, verður einnig aðsetur rannsókn arlögreglunnar. Verður eitt herbergi sjer- staklega ætlað fyrir ,,arkiv“, myndasafn af glæpamönnum og fingrafarasafn. Og vinnuher- bergi fyrir rannsóknarlögregl- una, þar sem hún getur í næði unnið úr gögnum þeim, sem henni berast í hendur. Varðhaldsklefar. í kjallaranum verða útbúin 3 herbergi með það fyrir aug- um að hægt verði að geyma þar menn yfir eina nótt. Hefir það oft valdið óþægindum, að þurfa að vekja upp fanga- vörðinn að nóttu til ef þurft hefir að setja drukkinn mann ,,inn“ eða koma húsviltum mönnum undir þak. í kjailaranum verða einnig geymsluherbergi fyrir ýmis- konar muni, sem lögreglan hef ir í vörsium sínum. Geymsla ökutækja. Oft kemur það fyrir að lög- reglan þarf að geyma bíla og önnur ökutæki um nokkurn tíma. Hefir hún haft til þess lítið rúm. í ráði er nú að rífa skúrana, sem eru í portinu fyr- ir austan húsið. Verður þar síð an geymd ökutæki þau, sem lögreglan hefir tekið á götunni eða af drukknum mönnum. Húsameistari ríkisins hef ir gert teikningar að breyting- unni, en Björn Rögnvaldsson húsameisari hefir tekið að sjer að framkvæma verkið. Morgunblaðið átti tal við Erling Pálsson yfirlögreglu- þjón í gær um þessa breytihgu. Sagði hann að hún myndi verða til afar mikilla bóta fyrir alt starf lögreglunnar og bæta mjög úr þeim erfiðleikum sem lögreglan hefir átt við að stríða vegna húsnæðisvandræða. Sagði hann ennfremur að mest væri um vert fyrir lög- regiuna að geta verið út af fyrir sig. 85 ára I gær varð Salvör Guðmunds dóttir 85 ára. Hún er fædd í Kópavogi, en hefir dvalið lengst af hjer í bænum, og munu margir eldri Reykvíking ar kannast við þessa mefku dugnaðarkonu. Maður hennar, Jón Teitsson, er dáinn fyrir mörgum árum. Fjögur börn eignuðust þau hjón. Þrjú þeirra eru á l’ífi, Arndís, Jóna og Páll. Elsti son- ur hennar, Guðmundur Jónsson verkstjóri, ljest 1929. Salvör hefir unnið mikið um æfina og er því orðin þreytt og farin að heilsu. Þó hefir hún fótavist og fylgist með almenn- um málum. ar. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.