Morgunblaðið - 21.06.1935, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.06.1935, Blaðsíða 8
8 MORG UNBLAÐIÐ Föstudaginn 21. júní 1935. ................ ’iiniuiiM ....j Allir Reykvíkingar lesa auglýsingar Morgunblaðsins. <r Jáiupsúujuu: SZCkytMtvrujcut Kaupum gamlan kopar. Vald. Ferðaskrifstofa íslands, Aust Poulsen, Kíapparstíg 29. Sími urstræti 20, sími 2939, hefir af- greiðslu fyrir flest sumarhótel- Hangikjöt, nýreykt. Nordals- in gefur ókeypis upplýsing- íshús. Sími 3007. ar um ferðalög um alt land. 'Sfff íuiis ‘uo^ uí8uqwfX'nSalSuP *inui93t ‘iqoqjB}m;jg ujj rpuiq jXx\[ •BJiay: í5.ihui So n3nfq ‘jnsiM §f j* ga nI S| gf| f| gfi M g ^oCqnqnp S!sokl I»0 il |I5V®i** ii» S ö II ■ •^ofqn^soq giSunq Siuuio ‘^ofq B^soq g'uqus ‘^J^Cpo ‘qio;s i ^ofq -n^soq ‘jjnq i ^ofqn^soq gnj^qis ‘ — -uuneuisg»pnuuns j Lundi fæst í Nordalsíshúsi.1 Athugið! Hattar og fleira nýkomið. Karlmannahattabúðin, Hafnarstræti 18. Hattaviðgerð- ir, handunnar, sama stað. flytur auglýsingar yðar og tilkynningar til flestra blaðlesenda um alt land, í sveit og við sjó - utan Reykjavíkur. ........................ } »•••••••••••••••••••••••• j Gestur á lióteli: Hvað á þetta Blaðið kemur Út VÍkulega að þýða, þjer komið með einn svartan og einn brúnan skó? Hótelþjónn: Það er skrítið,! þetta er í annað skifti í dag, sem ! það kemur fyrir. Stórlúða, smálúða, steinbítur og reyktur fiskur. Fiskbúðin, Brekkustíg 8. Sími 1689. Veggmyndir og rammar í íjölbreyttu úrvali á Freyju- götu 11. Erfðafestuland til SÖlu. — Upplýsingar í síma 4445. Postulínskaffistell með heild söluverði á Laufásveg 44. Ekkert blað er lesið jafn víða í SVEITUM lands- ins og Bor^arljarðar freðkjðt er best. Hiitblðln Herðubreið. ; Hafnarstræti 18. Sími 1575. f Saarfljótinu br.eytt. Þjóðverjar ætla sjer að gera miklar endur- bætur í Saar. Meðal annars er nú unnið að því að breyta farvegi ^ Saarfljótsins þannig, að það verði I skipgengt. | Konungurinn í bíó. Nýlega fór jGustav Svíakonungnr í fyrsta skifti á ævinni í kvikmyndahús. Astæðan fyrir að konungurinn ý'ór í bíó var sú, að hann langaði jtil að sjá brúðkatipshátíðahöldin á kvikmynd. iMinning Mark Twains 30. nóv- ember í haust ero 100 ár liðin síð- an hinn frægi ameríski skoprita- höfundur Mark Twain fæddist. í tilefni af því er nú vérið að und- irbiia stórkostleg hátíðaliöld, sem haldin verða í fæðingarríki hans, Missouri. Blindur hundur skorinn upp. Um daginn var hundur af Aire- dal-Terrier kyni skorinn upp við angnveiki, á hundaspítala í Lond- on. Hundurinn hrestist brátt og fekk fulla sjón aftur. Hann sýn- ir nú þakklæti sitt með því að heimsækja spítalann daglega. Fimmfeurarnir eru orðnir auð- ugir. — Dionne-fimmfeurarnir í Kanada áttu eins árs afmæli 1. júní. Á þessu eina ári hafa þeir grætt 700 þús. krónnr með því að borða ýmislegar fæðutegundir. Verslnnarfyrirtæki hafa sjeð sjer hag í að auglýsa hve vel þeir þrifist af þessu eða hinu, sem þau selja. Reykjavík — Altmreyrl Akureyri — Reykjaiík Alla Mánudaga, Miðvikudaga og Föstudaga. Frá Akureyri sömu daga. Afgreiðsla á Akureyri er á Bifreiðastöð Oddeyrar. Blfreiðasiöð Sfeindérs^ Sími 1580. V œn tanlegl. APPELSÍNUR, 240, 300 og 390 stk. KARTÖFLUR. Eggert Kristjdnsson & Co. Siml 1400. í 8NORVNNI. 30. Maðurinn varð hamstola á svip, þegar hann skildi að hjer var alvara á ferðum. — Ætlið þið að setja mig í fangelsi?, æpti hann. — Við höfum ekki annars úrskosti, góði mað- ur. Við verðum að vita hver stóð fyrir þessu. Og hver veit, — jeg lofa samt engu — nema við tökum mjúkum höndum á yðar yfirsjón, ef þjer játið afdráttarlaust, og leynið engu. Leynilögreglumennirnir gengu hljóðlega að honum og tóku stöðu sitt hvorum megin við hann. — Nú skal jeg segja yður nokkuð nýtt, sagði Pank. Jeg veit hverjum þjer selduð leikhúsið og fyrir hvern þjer bygðuð þenna ógeðslega stað.- Þjer vinnið því engum gagn — og síst yður sjálf- um — með því að neita að segja okkur nafn hans. Þjer farið aðeins heimskulega að ráði yðar. — Vitið þjer það, sagði maðurinn þverúðar- fullur. Það hefir enginn lifandi maður hugmynd um það. — Hvað um það, jeg veit það. Jeg veit líka hver bifreiðarstjórinn var, og hvar hann er nú. Og eitt get jeg sagt yður enn, húsbóndi hans, og sá, sem keypti leikhúsið af yður, er einn og sami maðurinn. — Það er ekki satt, hrópaði Edwards. — Jú, svaraði Pank rólegur og ákveðinn. — Hann heitir Edward Keynsham, og þjer verðið honum að engu liði með því að neita! Edwards hneig niður í stólinn örvinglaður og yfirbugaður. En sá, sem var mest hissa, var Matterson ofursti. — En hvernig í veröldinni vitið þjer það, stundi Edwards. — Það er sama. En játið nú fyrir ofurstanum, að það sje rjett, hjelt Pank áfram. — Þá sýnir hann yður ef til vill einhverja miskun. — Já, það er gagnslaust að neita, þar sem þjer vitið það þegar, stamaði Edwards. — Þjer hafið á rjettu að standa. Það var Edward Keyns- ham lávarður. 20. KAPÍTULI. Næsta eftirmiðdag var ráðstefna haldin í skrif- stofu Matterson ofursta í Scotland Yard. Matter- son sat að venju við skrifborð sitt, Smithers og Pank voru þar líka. Og úti í einu horninu sat hraðritari. Mr. Edwards var vísað inn. — Já, það voru nokkur atriði, sem þjer ekki vilduð svara í gær viðvíkjandi Edward Keynsham lávarði, sagði Matterson. — Þjer komist ekki að neinu illu um hann, mælti Edwards; svo ef þið viljið heyra eitthvað niðrandi um hann, er jeg ekki rjetti maðurinn til frásagnar. — Þjer vitið, að hjer er um yfirheyrslu að ræða, mælti Matterson. — Já, svaraði hinn, og gaut augunum til hrað- ritarans. — Hvernig var það, sagði Edward lávarður yð- ur aldrei, til hvers hann ljeti smíða gálgann í leikhúsi yðar? Hann hlýtur að hafa sagt yður ástæðuna. — Já, að vísu. Hann sagðist vilja fá gálgann til þess að hræða gamlan, taugaveiklaðan mann til þess að gera þarft og gott verk. — Og vissuð þjer, hver þessi taugaveiklaði maður var? — Nei, það hafði jeg enga hugmynd um. — Hafið þjer hugsað um þetta síðan? — Hvernig hefði jeg getað annað. — Nú, sagði Matterson, þegar þjer hugleidd- uð málið, datt yður þá ekki í hug, að annar mað- ur var einmitt hengdur daginn eftir þennan ,,leik“ ykkar. — Hamingjan góða! hrópaði maðurinn. — Nú, f þegar þjer segið það, man jeg eftir því. Þessíf Brandt var einmitt hengdur morguninn eftir. — Og yður datt ekki í hug að þetta gæti ver- ið skilt? — Nei, það veit almáttugur guð, sagði hann með sannfæringu, — mjer datt það ekki í hug. — Ágætt. Þá trúum við yður. En þektuð þjer Edward lávarð áður? — Já. Jeg var myndasmiður, og tók stundum myndir, þegar veislur voru á Keynsham höll. Og einu sinni tók jeg kvikmynd fyrir lávarðinn. Einn dag mætti jeg honum úti á götu, og þá spurði hann mig, hvernig mjer vegnaði. Þá sagði jeg honum, að jeg væri búinn að byggja kvikmyndatökuhús,. og hann kvaðst mundu koma og líta á það ein- hvern daginn. — Og annað vitið þjer ekki um Edward lá- varð ? — Nei. — Vitið þjer hvar hann er nú? — Nei. Matterson var hugsi um hríð svo sagði hann: — Jeg held að þjer getið ekki hjálpað okkur meir, Edwards. Híi við teljum ekkert ilt í því, sem þjer hafið gert, eftir ástæðum yðar. Þjer hafið því ekkert að óttast frá okkar hendi. En þó vildi jeg spyrja yður eins og biðja yður að hugsa yður vel um, áður en þjer svarið. Þegar Edward lávarður, fór fram á, að opið undirÁhlemmnum. skyldi vera full 25 fet, gaf hann yður þá ekki til kynna, hve langt hann ætlaði að fara með hinn ,,taugaveiklaða, gamla mann“? — Nei, það gerði hann ekki, svaraði Edwards ákveðið. Matterson sneri sjer að Smithers og spurði: — Viljið þjer spyrja Mr. Edwards einhvers„ áður en hann fer? — Nei, það held jeg ekki. — En þjer, Pank?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.