Morgunblaðið - 10.08.1935, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardaginn 10. ágúst 1935
Sftot£ttaÍlKðt&
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Ritstjórar: J6n Kjartansson,
Valtýr Stefánsson.
Ritstjðrn og afgreitSsla:
Austurstræti 8. — Simi 1600.
Auglýsingastjðri: E. Hafberg.
Auglýslngaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Slmi S700.
Helmaslmar:
Jðn Kjartansson, nr. 3742.
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
E. Hafberg, nr. 3770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 & mánuBi.
Utanlands kr. 3.00 i mánuBi.
1 lausasölu: 10 aura eintakiS.
20 aura meB Lesbðk.
Byggingarefnið.
Það er tilfinnanleg vöntun á
byggingarefni hjer í bænum. —
Menn eiga erfitt með að fullgera
hús þau sem eru í smíðum. Ekki
geta menn byrjað á að reisa ný,
því hörgull á efni er fyrirsjáan-
legur.
Er svo komið högum þjóðarinn-
ar, að hún hafi ekki lengur efni á
að byggja yfir sig?
íslendingar hafa lengi átt við
bágan húsakost að búa, lifað í
ljelegum, rökum, óhollum hreýs-
um. Þetta hefir breyst mikið,
einkum á síðustu 50 árum, eins og
menn vita, síðan framtak lands-
manna fekk að njóta sín við stór-
feldar framfarir í landinu.
En er þessi framfaraöld að fjara
út? Verður ekki hægt að lialda
áfram að byggja upp landið?
Þannig spyrja þeir, sem nú fá
þau' svör hjá innflutningsnefnd,
að byggingarvinna hjer í Reykja-
vík sje að stöðvast.
Innflutningur til landsins er
þó svipaður því sem hann var í
fyrra. Hversvegna er þessi liörg-
ull á byggingarefni. Ilefir bygg-
ingarefni verið flutt þeim mun
meira til annara staða á landinu?
Full vitneskja um það er ekki
fyrir hendi. En talið er rúmt um
byggingarefni sumstaðar á land-
inu, þar sem verslun er í höndum
kaupf jelaga.
Bygð lancLsins hefir breyst á
síðustu árum. Fólk kann ekki
við sig í sveitunum. Það flytur
til Reykjavíkur allmargt.
En þegar innflutningur á nauð-
synjavörum er „skipulagður" eft-
ir rauðri fyrirmynd, þá virðist ekki
hugsað um, hvar þjóðin vill helst
byggja yfir sig. Byggingarefni er
flutt í sveitirnar, en Reykjavík
látin sitja á hakanum.
Það er stjórn í landinu, sem
nefnir sig stjórn hinna vinnandi
stjetta. Stjórn þessi þykist vilja
stuðla að því að dregið verði úr
atvinnuleysinu hjer.
Skyldi landsstjórninni finnast
það heppileg ráðstöfun til að
minka atvinnuleysið hjer, að
stöðva að mildu leyti alla bygg-
ingavinnu ?
Skyldi verkamönnum ekki finn-
ast slíkar ráðstafanir vera kaldar
kveðjur frá stjórn hinna vinnandi
tet jetta ?
K. R. í Vestmannaeyjum. K. R.
III. flokkur kepti í gær við úr-
valslið úr knattspyrnufjelögunum
þar, Týr og Þór. Varð jafntefli
3 : 3.
Blóðugar óeirðir íToulon bældar niður
Laval auglýsir 41 bjargráðatillögu stjórnar-|
innar. Miljarð franka lagðir í opinbera vinnu.i
Grunur um, að fascista alda sje yfirvofandi í Frakklandi.
Þríveldráðastefnan
um Abysshiíu byrjar
í næstu viku.
Riddaralið heldur vörð um þinghöllina í Farís.
London, 9. ágúíí.'FÚ.
Þriggjavelda ráðstefnan
Abyssiníudeiluna hefst í París
næstkomandi fimtuda^.
Anthony Eden mun verða full-
trúi Breta og I,ayai fulltrúi
Frakka, en frá ítalíu mun barón
Aloisi mæta. Mr. Eden fer til
Parísar næstkoniandii þríðjudag.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS.
I flotaborginni Toulon í Frakklandi brutust
aftur út óeirðir í gærkvöldi. Þrjú þúsund verka-
menn, sem fylgjandi eru kommúnisma, gerðu
árás á borgina. Reyndu þeir að kveikja í íbúðar-
húsum, brutu niður götuljósker og slitu raf-
magnsþræði.
Eftir að þeim hafði tekist að slökkva götu-
ljóskerin, frömdu þeir ýms ódæðisverk í myrkr-
inu.
UPPREISNARMENN
YFIRUNNIR
En alt í einu var varpað
kastljósum frá herskipunum
yfir hinar ljóslausu götur borg-
arinnar.
Kom þá í ljós, að uppreisn-
armenn höfðu klifrað upp á
húsaþök til þess að skjóta það-
an niður á göturnar.
Var nú hersveitum skip-
að gegn uppreisnarmönn-
um. Meðal hermanna
þeirra voru skotmenn frá
Senegal, sem taldir eru í
harðskeyttara lagi.
Hófst nú skothríð í borg-
inni, en vein og óhljóð heyrðust
um allar götur.
Uppreisnarmenn leituðu sjer
varnarvígja í verkamanna-
hverfi borgarinnar.
Enn eftir blóðugan götu-
bardaga urðu uppreisnar-
menn yfirunnir. Sjö fjellu
í bardaganum, en 60 særð-
ust.
í dag er víða um að litast
í Toulon, eins og þar hafi
„ verið jarðsk jálf ti. Búðar-
‘gluggar eru brotnir, götu-
ljósker sömukiðis, stein-
lagðar götur rifnar upp.
LAVAL AUGLÝSIR
KREPPURÁÐSTAF-
ANIR
í dag gaf Laval út 41 til-
kynningu um ráðstafanir er
stjórnin ætlar aí gera til
þess að reisa vi5 atvinnulíf-
ið í landinu.
Lækka á verðlag á lífsnauð-
synjum, og veita 1000 miljónir
franka til opinberra mann-
virkja til þess að draga úr at-
vinnuleysinu.
Margir draga í efa, að Laval
geti tekist að gera hvorttveggja
í senn, að lækka dýrtíðina í
landinu um leið og hann veitir
svo mikla fjárfúlgu til atvinnu-
bóta.
HVER ER UNDIR-
RÓTIN?
Því hefir verið fleygt, að
óeirðirnar í hafnarborgum
Frakklands muni vera byrjun
að útbreiddari kommúnista-
óeirðum, sem eigi að ýta undir
íascistahreyfingu í landinu.
Páll.
Óeirðunum lokið.
París, 9. ágúst. FB.
Óeirðunum í Toulon er nú að
fullu lokið og hefir ríkisstjórnin
gert ýmsar Varúðarráðstafanir til
þess að koma í veg fyrir frekari
óeirðið. Samkvæmt tilkynningu frá
innanríkismálaráðuneytipu hófs!t
vinna í dag á ný í liergagnaverk-
smiðjum ríkisins í Toulon, án þess
til nokkurra óspekta kæmi.
Tilkvnt hefir verið, að í Tou-
lon liafi 68 menn verið handteknir
meðan á óeirðunum stóð. Verða
átján þeirra ákærðir fyrir að hafa
ráðist á lögregluna.
Stálhjálmafjelögin þýsku
gerð áhrifalaus.
KAUPMANNAHÖFN I GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Leynilögreglan þýska leysti í
gær upp nokkur helstu Stálhjálma
fjelögin, og þar á meðal deild
fjelaganna í Berlín.
Ástæðan fyrir því að fjelögin
voru leyst upp er sögð sú, að Stál-
hjálmafjelögin hafi tekið; Marxist.a
inn í fjelagsskapinn.
Einnig er Stálhjálmaf jelögun-
um borið á brýn að þad háfi nnnið
á móti ríkisstjórninni.
Stálhjálmaf jelagsskáþuíinn í
Þýskalandi má nú að mestu teljast
uppleystur og áhrifalaus.
Páll.
SainQöngumálaráð-
herra Itala ferst í flug-
slysi ásamt 7 manns.
KAUPMANNAIIÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Flugvjel ítalska
málaráðherrans, Razza,
leið til Austur-Afríku, , fell til
jarðar í gær suður af Kairo í
Egiptalandi.
Átta manns, sem voru í vjelinni
fórust, þar á meðal Razza sjálfur
og Franchetti, frægur ítalskur
landkönnuður.
Páll.
ísland kom í gærmorgun frá
Kaupmannahöfn. Skipið fer í
norður.
samgongu-
sem var á kvöld kl. 6 vestur og