Morgunblaðið - 13.08.1935, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 13.08.1935, Blaðsíða 7
Þriðjudagiim 13. ágúst 1935. MORGUNBLAÐIÐ 7 \ Dagbók. Kirkjugripum rænt, 82 þús. stpd. virði. London 12. ágúst F.Ú. Á Norður-Spáni, í bænum Pamplone, sem er skamt frá frönsku landamærunum, var í gær brotist inn í kirkju og stol- jð skrautgripum, sem taldir eru 82 ja þúsund sterlingspunda virði. Rúða úr lituðb gleri var fyrst tekin úr og síðan sorfnar í sund- ur járnstengur, sem voru þar fyrir innan. Þjófarnir hafa fundið lyklana að skrautgripa-skríni kirkjunn- ar, opnað það og hirt fjármun- ina og horfið á braut sömu leið og þeir komu. Það er álitið að alþjóðafjelagsskapur innbrots- þjófa hafi verið hjer að yerki og hefir landamærum Frakklands og Spánar verið lokað. Ingibergur Sveinsson bifreiðarstjóri styftir sfer aldur. Á laugardagskvöldið- kl. um 10%, er farþegaskipið Primula var á leið til Yestmannaeyja 3 sjómílur undan Garðsskaga, varð háseti einn á skipinu þess var, að farþegi einn hafði klifrað út fyrir borðstokkinn aftur á skip- inu. Hásetinn tók þegar til fótanna og hjóp aftur eftir skipinu, til þess að bjarga manninum. En í þeim svifum, að hásetinn kom þangað, tók maðurinn skamm- byssu, beindi hlaupinu að brjósti sjer og hleypti af. Hásetinn náði aðeins að grípa í handlegg honum, en náði ekki uægilegu taki til að lialda honum föstum, og fell hann í sjóinn. Þetta var Ingibergur Sveins- son, bifreiðarstjóri hjeðan úr bæn- um. Ljósdufli var þegar kastað fyr- ir borð og skipið stöðvað. Átta mínútum eftir að slys þetta vildi til, var björgunarbát- ur kominn á sjóinn til þess að leita að manninum. Var leitað í klukkustund, en árangurslaust. Sportdrotning Spánar. Spánverjar liafa nýlega kosið sjer sportdrotningu fyrir árið 1935 og er það hin fagra Senorita Mercedes Cago, sem þessi mynd er af. Veðrið (mánudagskv. kl. 17): Lægðarsvæði sem var yfir Græn- landi í gær, er nú að þokast hjer suðaustur yfir landið. Vindur er vestlægur sunnanlands, en norðan stæður á Norðurlandi. Hiti 10— 12 stig. Veðurútlit í Reykjavík í dag: Hæg NV eða N-átt. Úrkomulaust. íslensk leiðabók. Póst- og símamálastjórnin hefir gefið út kver með þessu heiti. í kverinu er yfirlit yfir allar skipaleiðir innanlands og til og frá útlönd- um, bifreiðaleiðir með sjerleyfum og landpóstaleiðir. Bifreiðarslys. í gærdag kl. um 6 varð bifreiðarslys á veginum hjá Lækjarhvammi. Kona, sem kom út úr strætisvagni, varð fyr- ir bíl, sem kom að austan. Kon- an meiddist lítilsháttar og var flutt á Landsspítalann. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni. Geysir. Fjöldi manns fór hjeð- an úr bænum síðastl. helgi aust- ur að Geysi. Nokkrir fóru á laug- ardag og gistu í tjöldum um nóttina. Á sunnudaginn var veð- ur hið besta og var tahð, að um tíma hafi um 400 manns verið við Geysi. Ekki gaus hverinn þó fyr en látin voru í hann 25 kg. af sápu. Var það klukkan 4 e. h. og voru margir farnir, sem voru orðnir vonlausir um að Geysir inyndi gjósa. Gosið stóð í 20 mín- útur og var afar tignarlegt og giskuðu menn á, að hæsta gosið hafi verið um 60 metra hátt. Tilkynningar til „Upplýsinga- skrár kaupsýslumanna* ‘ óskast sendar fyrir 15. þ. m. Þátttakendur sundmótsins er óskað að gefi sig fram við Þór. Magnússon, Frakkastíg 13. ' Garðyrkjusýning verður haldin hjér í bænum 29. þ. m. Sýnd verða blóm, garðávextir, garð- yrkjuáhöld, áburðarefni o. fl. Menn, sem mundu vilja styðja •sýningu þessa að einhverju leyti, t. d. þeir, sem eiga blóm eða ann- að, sem að garðrækt lýtur, eru góðfúslega beðnir að snúa sjer til Einars Helgasonar í Gróðrarstöð- inni. Til Strandarkirkju frá S. N. 11 kr., Sólveigu 5 kr., X. 10 kr., ó- nefndum 1 kr., Mb. (gamalt á- heit) 3 kr. Mannalát vestan hafs. Guðrún Jóhannsson, kona Gunnlaugs Jó- hannssonar kaupmanns í Winni- peg andaðist á sjúkrahúsi þar í borg 16. júlí s. 1. í júlímánuði andaðist í Winni- peg Sigurjón Snædal, 84 ára að aldri. Ilelga Sigvaldadóttir Eggðrts- sonar andaðist 17.júlí s.l Hún var' ekkja Guðjóns heit. Eggertsson- ar. Þau hjón fluttu vestur um haf 1897. Áður en þau fluttu af fslandi, bjuggu þau í Akurholti í Eyjahreppi í Borgarfjarðarsýslu. Hinn 6. júlí ljest í Keewatin, Ont., frú Þórunn Ingibjörg Jóns- dóttir, 73 ára að aldri. Hún var gift Jóni Pálssyni. Þau hjón fluttu vestur um haf 1887, og 3 árum síðar settust þau að í Kee- watin. Móðir Þórunnar var Sal- björg Jónsdóttir Ögmunds.sonar frá Bægisá. Jón faðir hennar Guð- mundsson bjó að Kveingrjóti í Dalasýslu. Hjónaband. Hinn 26. júlí s. 1. voru gefin saman í hjónaband í Kaupmannaliöfn leikkonan Eli Lehmann og Sanniel Thorsteins- son Íæltnir. Heimili hjónanna er í Flakkeberg, en j>ar hefir Sam- úel stundað lækningar síðan árið 1922. Trocadero-höll, sem stendur skamt frá Eiffel- turninum í París, á nú að rífa niður til þess að rýma fyrir byggingum á heimssýningunni, sem lialda á í París 1937. Valdimar Jónsson afgreiðslu- maður við Olíuverslun íslands, á fimtugsafmæli í dag. Reykjanesskólinn. Verið er að bjrggja útihús til afnota fyrir skólann, að stærð 15x9' m., ein hæð. Er það smíðastofa, geymsl- ur og peningshús. Ennfremur fara fram rækilegar endurbætur á heimavistinni. Síðar í sumar verður sími lagður til skólans. Myndasýningin. Á sunnudag- inn komu riiml. 300 manns á sýn- inguna. Dánarfregn. í gær ljest á sjúkrahúsinu á Siglufirði Þor- varður GLslason frá Papey, skip- stjóri á varðbátnum „Ingimundi gamla“, eftir stutta legu. B-liðsmótið. í kvöld kl. 8 keppa Frarn og K. R. Gestur á Laugarvatni bað um daginn um ost ofan á brauð með morgunkaffinu. Hann hafði feng- ið erlent ávaxtamauk. Ost var ekki liægt að fá, því keypt hafði verið svo mikið af maukinu, sem koma þurfti í lóg. Ilvað er að frjetta úr ostahillum Flóabús- ins? Lyra kom til Bergen kl. 10 í gærmorgun. Útvarpið: Þriðjudagur 13. ágúst. 10,00 Veðurfregnir. 12.10 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19.10 Veðurfregnir. 19,20 Tónleilcar: Vínarlög (plöt- ur). 20,00 Klukkusláttur. 20,00 Upplestur: Úr íslenskri sjó- mannsæfi, I (Guðm. G. Hagalín rithöf.). 20,30 Frjettir. Ný bók. Jón Ófeigsson: Þýsk-íslensk orðabók, 944 bls. í stóru broti. Verð í ljereftsbandi kr. 25.00, í skinnb. kr. 29.00. Fæst hjá bóksölum - ' v * ' 11 Sv Bókaverslnn Sigfúsar Eymundiionar og Bókabúð Austurbæjar, B. S. E., Laugaveg 84. Fyrirliggfandi: Laukur, Melónur, . .Rúsínur 2 teg., Gráfíkjur, Kúrennur, Bláber. Eggert Kristjdnsson & Co. Sími 1400. Valkendorfsg. 30, Köbenhavn. Begyndere og Viderek©Bane. Translatör- Disponent- Korrespondent- Bogholder-Eksamen. Translatorskolen Xil Akureyrar: Alla Mánudaga, Miðvikudaga og Föstudaga. Frá Akureyri AUa Mánudaga, Miðvikudaga og Föstudaga. Afgreiðsla á Akureyri er á Bifreiðastöð Oddeyrar. * JBifceiÖasf íití fgteindórs. Sími 1580. Til Hnrgnrff. Búðardals Tfaldaness og Stdrholts eru fastar bílferðir alla mánu- daga og fimtudaga. — Þaðan alla þriðjud. og föstudaga. SI a 15 a rjf'ié11 i - Bifreiðastöðin Hekla Simi 1515. Sími 1515. Langsund. Franskur sundmaður, . Ghotté- au að nafni, ætlar bráðlega að þreyta 40 sjómílna sund hjá Kali- forníu. Hjer á myndinni sjest hann á æfingu og er að liressa sig á mjólkursopa. 21,00 Tónleilrar: a) Einsörigth" (María Markan); b) íslensk lög (plötur); c) Danslög. Ódýrt. Herra vasaúr á 10.00 Herra armbandsúr á 25.00 Dömu armbandsúr á 18.00 Vekjaraklukkur á 6.50 Gasolíuvjelar á 7.50 Rafmagnsperur á 0.65 Dömu handtöskur, leður frá 6.25 Barnatöskur, leður, frá 3.50 Kúluspil frá 6.50 Berjafötur, barna 0.65 Skóflur, barna 0.60 Bollapör, óbrothætt 1.50 Diskar, óbrothættir 1.35 lEtaHiigni Bankastræti 11. EGGERT CLAESSEN hæstarjettarmálaflutningsmaðnr. Skrifstofa: Oddfellowhúsið, Vonarstræti 10. (Inngangur um austurdyr). /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.