Morgunblaðið - 06.10.1935, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.10.1935, Blaðsíða 3
Sunnudaginn 6. okt. 1935. 4. Taxtinn fyrir her- skip, sem fara um Suez- skurð verði þrefaldaður og borgun út í bönd verði lieimtuð! Talíð er, að fyrsta atriðið neyði ítali til að hætta við stríðið innan þriggja mánaða, vegna skorts á innfluttum vör- um. Ef þriðja atriðinu verður beitt, verður niðurstaðan sú sama og ef ákveðið væri að loka höfnum Italíu. Taka Austurríki, Ung- verjaland og Pólland ekki þátt í refsi- aðgerSum? Alment er búist við, að Austurríki, Ungverja land og Pólland muni neita að taka þátt í refsi aðgerðunum! 'Páll. Skeyti ítala og Abyss- iníukeisara tll Þjóða- bandalagsins. London, 5. okt. FÚ. Abyssiníukeisari hefir sent Þjóðabandalaginu skeyti, þar sem hann krefst þess að 2. málsgr. 16. gr. \erði beitt gegn ítölum. Málsgreinin er á þessa leið: ,,Þegar svo ber við, að eitthvert ríki, sem er með- limur Þjóðabandalagsins grípur til vopna og rýfur7 frið, skal Þjóðabandalags- ráðinu vera skylt að mæla með því við stjórnir hinna annara ríkja, að þær beiti þeim hernaðaraðgerðum, hvort heldur er á landi eða lofti eða sjó, sem nauðsyn- legar mega þykja, til þess að vernda Þjóðabandalags sáttmálann“. Suwich, utanríkismálafull- trúi Itala, sendi í dag svo- hljóðandi símskeyti til Genf: „Hjer með veitist mjer sá heiður að tilkynna yður, að fregnir þær frá Abyssiníu, sem herma að ítalskar flug- vjelar hafi kastað sprengj- um á bygð svæði og þar á meðal Rauðakross sjúkrahús- ið í Adua, eru með öllu til- hæfulausar. Það sem skeði var í stuttu máli það, að nokkrar flug- vjelar sem voru á njósnar- flugi, urðu fyrir mikilli skot- hríð og köstuðu fáeinum sprengikúlum niður yfir her- sveitir Abyssiníu. , Þess verður að geta, að í Adua var ekkert Rauðakross sjúkrahús.“ Búast Egyptar við stríði? London, 5. okt. FÚ. Yfirstjórn breska hers- ins í Egyptalandi átti í dag ráðstefnu við her- málaráðherra Egypta- lands. Á sama tíma fór aðalfulltrúi Breta í Egyptalandi, Sir Miles Lampson, í heimsókn til Fuads konungs. Fyrir nokkrum dögum bauðst sendisvéitarskrifstofa Egypta í Addis Abeba til þess að sjá Egyptum, sem þar byggju, fyrir farmiðum og skotsilfri ef þeir vildu komast úr landi. Safe't er að fáir Egyptar hafi notað sjer þetta boð og opinberlega er því mótmælt, að Egyptum hafi ver- ið boðið að hverfa úr landi. Ifalir skjéfa á fárnbrautiim á Abyssiniu! EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. . KAUPMANNAH ÖFN í GÆRADAG KL ll/2. ítalir hafa kastað sprengjum á járnbrautina, sem liggur milli Djibouti og Addis Abeba. — Ókuhnugt um árangur. Norðurher Ahyssiníumanna hóf ákafa gagnsókn, eftir að Adigrat var fallin í hendur ítölum. Reyna þeir af hreysti mikilli að komast inii á milli ítalska hersins í Ahyssiníu og aðalbækistöðvar ítala í Eritreu. Norðurher Itala virðist vera á undanhaldi. Laval birti ávarp til frönsku þjóðarinnar í gærkvöldi, og hvatti hana til að gleyma sundrunginni innanlands og bera fult traust til þeirrar stjórnar, sem nú fari með mál- efni hennar. Ávarp Lavals hafði mikil á- hrif og þykir það bera með sjer, að Frakkar sje ákveðnir í að standa með Bretum að refsi- aðgerðum. Grikkland hefir kvatt til vopna þrjá árganga af gríska hernum. Mussolini hefir boðið Þjóða- bandalaginu að hætta stríðinu, ef það taki skilmálum ítala. Páll. Nýr skólastfóri við Gagnfrœðaskóla / Akureyrar, AKUREYRII GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. í stað Sigfúsar Halldórs, rit- stjóra, sem fluttur er alfarinn til Reykjavíkur mun Þorsteinn M. Jónsson bóksali, verða sett- ur skólastjóri Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hann hefir verið formaður skólanefndar. Auk Þorsteins sótti Jóhann Frímann Iðnskóla- stjóri um starfið. Kn. MORGUNBLAÐIÐ Síldveiðin á öllni landinu. Alls hafa verið saltaðar og sjerverkaðar um 100 þús. tn., en voru rúml. 200 þús. tn. í fyrra. Síldaraflinn á öllu landinu er nú sem hjer segir, með saman- burði við árið 1934: 1935 1934 tn. tn. Vestf. og Strandir 18.802 8452 Siglufjörður og Sauðárkrókur 40.831 174.918 Eyjafj., Húsavík og Raufarhöfn 22.083 32.421 Austfirðir 969 Faxaflói 19.179 Alls 100.895 216.790 Við þetta er það að athuga, að síldaraflinn við Faxaflóa miðast við veiðina eins og hún var á föstudagskvöld, en í gær bættust við um 5000 tn- Faxaflóa-veiðin skiftist þannig á verstöðvarnar (miðað við föstu- dagskvöld) : Sandgerði .......... 2775 tn. Keflavík ........... 7757 — Hafnarfjörður .... 1482 — Reykjavík .......... 1392 — Akranes ........... 5773 — Hafnarfjörður. 1 gær komu margir bátar með síld til Hafnarfjarðar. Síldin var lönduð við tvær bryggjur, en þó urðu margir bát- ar bíða eftir löndun. Ungir sem gamlir voru fengnir til að vinna við síld. ^líkt fjör, sem vai; við höfn- ina í gær hefir ekki sjést í mörg ár í Hafnarfirði. Veður var hið besta og var sem komið væri í norðlenskt síldveiðiver um hásíld- veiðitímann. Þessi skip lögðu afla sinn á land í Hafnarfirði í gær: Arinbjörn með 65 tunnur, Gunn- björn 100, Haraldur 90, Mars 60, Helga 90, Höfrungur 70, Bangsi 50, Nanna 231, Hermóður 80, Björninn 100 og 100 saltaðar um borð í fyrradag. Höskuldur 190, Minnie 120 — og 80 saltaðar um borð — Geir goði 70, — og 90 saltaðar um borð, — Huginn 75, Málmey 86, Kolbeinn ungi 120, Alden 170, Grótta 140, Njáll 100 Atli 80 og 102 saltaðar íun borð, Geir frá Akureyri 40, Hrönn 240 — og 20 saltaðar um borð — Alls komu því til Hafnarfjarð- ar í gær 2267 tunnur nýsíld og 392 tunnnr saltaðar um borð. Mest öll síldin var gróf söltnð. Nokbrir bátar fóru aftnr út á veiðar í gær, en margir komust ekki vegna þess hve þeir höfðn mikinn afla. 900 tunnur til Akraness. Frá Akranesi rjeru flestir bát- ar í fyrrakvöld, og komu þeir að í gær. Afli var misjafn, en að jafnaði munu þeir 9 bátar, sem lönduðu í gær hafa fengið um 100 tunn- ur. Flestir voru með 80—100 tunn- ur.. Nokkrir bátar fóru aftur út í gær. En þeir stærri sem komu með mikla síld verða að bíða eftir löndun. Síldin var öll söltuð, bæði gróf- söltuð og matjes og krydduð. Keflavík. Keflavík, 5. okt. F.Ú. Þessir þátar liafa komið í dag til Keflavíkur með síld: Baldur með 9 tunnur, Freyja með 10, Stakkur með 21, Reynir 2^ Kári frá Garði 37, Bjarni Ólafsson 23, Lagarfoss .9, Ingólfur Arnarson 65, Bragi 48, Snygg frá Vest- mannaeyjum 31, Hersteinn frá Stokkseyri 45, Magnús frá Siglu- firði 29, Glaður frá Vestmanna- eyjum 45, Kári frá Akureyri 66, Öðlingur 60, Garðar frá Vest- mannaeyjum 104, Herjólfur frá Vestmannaeyjum 121, Sóley 60, Pilot 31 og Villi frá Siglufirði 55 tunnur. Meðvitundarlaus og særður maður finst á Melunum. í gærkveldi klukkan rúmlega 7 fann Sigmiíndur Sveinsson, bif- reiðarstjóri lijá Strætisvögnum, ma,nn sem lá. á veginum skamt frá Loftskeytastöðinni á Melunum. Maðurinn lá þarna í blóði sínu meðvitundarlaus. Um sama leyti bar þarna að Hall Þorléifsson með bifreið og flutti hann manninn á Lands- spítalann. Var hann töluvert meiddur á höfði og víðar. Maðurinn heitir Arni Brynjólfsson og á heima þarna skamt frá. Árni var á leið heim til sín á lijólhesti er slysið vildi til. Hjólið er mikið brotið og benda. líkur til að bifreið hafi ekið á manninn og skilið hann eftir hjálparlausan á götunni. Lögreglan hefir mál 'þetta til rannsóknar og er fastlega húist við að hún hafi upp á bílnum. Knattspyrnukappleik- leikurinn I dag. Noregsfararnir keppa gegn Þýskalandsförunum. Það má búast við margmenni á íþróttavellinum í dag kl. 4, því þá keppa Noregsfararnir (Val- ur) gegn Þýskalandsförunum, (Fram og K. R.). Knattsyrnu-áhugamenn bæjar- ins hafa beðið þessa kappleiks með mikilli óþreyjn, undanfarið, enda verður fróðlegt að sjá hvor sigrar. Báðir flokkarnir hafa haldið því fram að þeir hafi lært mikiS í utanferðunum í sumar. Að vísu er ekki hægt að búast við því, að það sem þeir llafa lært og sjeð, komi þegar fram, því það tekur mjög langan tíma og mikla þjálf- nn að fullkómna si,g í knattspymu. Knattspyrnu lærir engin til fulln- ustu á einu sumri. En hinu má búast við að þessir flokkar leggi áherslu á að sýna í dag drengi- legan og prúðmannlegan leik, en láti ekki kapp og harðneskju eina ráða leik sínum. Munu áhorfendur áreiðanlega meta það mikils að sjá leikið ljett og lipurt og af leikni og kunnáttu. Takist flokkunum í dag að sýna þetta, munu áhorfendur fara heim ánægðir, hvor flokknrinn sem sigr- ar. K. Þ. Leiðarvlsir ' ■ " ’i ' um Abyssinfu. Abyssinía er háfjalla- iand, með djúpum döl- um og gljúfrum. MeðaL hæð landsins yfir sjáv- armál er 6-7000 fet, en þó eru margir fjalla- tindar tvisvar siniium hærri. Stærsta borg landsine ^ er Addis Abeba, íbúar DJQ.fyOO. Grundvöllur var lagður að borginni fyrir aðeins 50 árum og' er þar að setur stjórnarinn- ar. Einustu börgir aðrar, 'sehi talist geta all-stórar eru Ifaháú íbúar 30,000 og Difédawa, íbúar 20,000. Tana-vatnið, sem Bláa-Níl, auðuppspretta Egyptalands, rennur í gegnum liggur um 300 km. frá Addis Abeba. ' Vegir eru fáir í Abyssiníu. Tveir liggja frá Addis Ábéba norður til Adua, einn austúr til Harar og er verið að iengja þann veg austur til Jigrjigá. Enn liggur einn vegur frá Har- ar til Diredawa. Kapp er lagt á að bæta vegakerfið. Járnbraut er aðeins éiri í landinu, og liggur hún frá Áddis Abeba gegnum Dire- dawa til Djibouti í frariska So- malilandi. Frakkar eiga þessa járnbraut. Þetta er einskift braut, og enda þótt hún hafi allmikla hernaðarlega þýðingu, r.; c’- "“IflTOVíí þá er þó auðvelt að. eýðílé‘ggjá: hana á ófriðartímum. Loftslag í Abyssiníu er mjs-' munandi eftir hæð landsins. — Snjór liggur í mörgum háfjalla- hjeruðunum. Á eyðimofkunum er hitinn svo mikill, að jafn- vel Abyssiníumenn þola ha,nn ekki. Regn fellur á tímábífinu frá því í júní til septemfjerloká og bólgna þá ár, og vegatroðn- ingar verða að fenjum. Annan tíma árs fellur ekkert regn, nema lítilsháttar í mars’ og apríl. - Fjölmörgum kynflokkuíri''£ég- ir saman í landinu. —- Stjórn landsins hefir Amharis kyn- flokkurinn, sem er semétiskur og telur upp undir 2.5Ó0.00Ö manns. Gallaskynflokkurinn er stærstur og er álitinn .skipaður 4 miljónum manna. í norð-aust- ur og austurhluta landsins býr hinn herskái og vilti Danakií- kynflokkur. Allir þessir fcýn- flokkar eru skipaðir vígdjörf-t um mönnum og hraustufn/' Þff' háðum sjúkdómum dfý illa vopnaðir að fráskildu keisara- liðinu, sem er skipað 15 þús. monnum. Málmauðæfi Abyssiníu háfa meir orðið til í munnmælum, en að færðar hafi verið á þær sönnur. Einn banki er í land- inu, engar ríkisskuldir og litlir skattar. Verslun er lítil og land- ið býr að mestu að eigin fram- leiðslu. Deilan við Ítalíu hófst í Wal- Wal, smáþorpi í Abyssiníu, sem ftalir höfðu lagt undir sig um stundarsakir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.