Morgunblaðið - 12.10.1935, Síða 4

Morgunblaðið - 12.10.1935, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ Laugardaginn 12. okt. 1935. .. .....................f—-mriiiiii r IÐMRÐUR VERSLUN SKJLINCmR Heimsverslun með smjörogosta Svo heitir ritgerð, er birtist í hinu |>ýska tímariti Berichte iiber Land'wirtschaft. Þar er skýrt frá framleiðsln ýmsra landa á smjöri og ostum, svo og hver lönd kaupi aðallega þessar vörur og hvernig fram- þróunin hafi verið á síðustu ár- um. Hjer skulu tilgreind nokkur atriði úr þessari ritgerð. Þau lönd, sem aðallega kaupa smjör, eru: Bretland, Þýskaland, Belgía ■ og Frakkland. Mest kaup- ir Bretland, eða um 82% af öllu smjöri, sem selt er, þá Þýskaland 11%, en hin löndin minna. Síð- án 1918 hefir innflutningur af stnjöri til Bretlands aukist um helming, og var 1933 444,5 milj. kg. í Þýskalandi og Frakklandi hefir innflutningur á smjöri minkað hin síðari árin. Hin sömu lönd kaupa osta, og það gerá Bandaríkin að auk. Mest kaupir Bretland, um 56% af o’Stunum. Þau lönd, sem aðallega flytja út smjör og osta, eru Danmörk, Nýja-Sjáland og Ástralía. Danmörk. flutti út af smjöri 1933 151,8 milj. kg. Smjörfram- leiðslan þar hefir nær tvöfaldast síðan 1913. En Nýja-Sjáland hef- ir 8-fáídað ‘hana á sama tíma. Mestan ost selja HoHand, Nýja-Sjáland og Kanada, Nýja- Sjáland hefir nær 5-faldað sína ■ostaframleiðslu síðan 1913, og selur nú % a!!ra osta á heims- markaðinum. Sinjörneyslan, í Bretlandi hef- ir mjög aukist, en smjörlíkis- notkun minkað. Á mann hefir verið notað: 1924 7,3 kg. smjör. 6,0 kg. smjörlíki. 1933 11,8 kg. smjör, 4,25 kg. smjörlíki. Hin aukna smjömotkun stafar að líkindum af því, að smjör hef- ii lækkað í verði síðan 1930 um 2'i—45%. Á hverja 1000 ha. koma 68,5 kýr í Nýja-Sjálandi, en 372 í Danmörku og 393 í Hollandi. Fyrir hverja 1000 íbúa eru á Nýja-Sjálandi 1233 kýr, í Dan- mörku 444 og í Hollandi 162. í Danmörku kaupa menn feikn öll af kjamfóðurefnum, í Nýja- Sjálandi ekkert. Mikið meira er notað af tilbúnum áhurði í Dan- mörku og Hollandi, heldur en á Nýja-Sjálandi. Þar þurfa menn ekki heldur hús fyrir nautpen- ing. Þá er nokkur samanburður á húnaði Dana og í Nýja-Sjálandi. Að meðaltali er stærð þeirra býla, sem hafa mjólkurframleiðslu í Danmörku um 15—20 ha. og þar eru um 15 kýr., í Nýja-Sjálandi er stærð býlanna um 250 ha. og kúatalan á býli um 40. í Nýja-Sjálandi hefir notkun mjaltavjela mjög aukist og nú eru 72% af kúnum mjólkaðar með mjaltavjelum, og er talið að hin aukna mjólkurframleiðsla sje mikið mjaltavjelunum að þakka, því áður var mjög erfitt að fá nægilega margt fólk til mjalt- anna. Ostur og smjör hefir fallið mjög í verði hin síðari árin. Þannig er ný-sjálenskt smjör nú selt-fyrir 24—28% af því verði, sem það var í 1928, og ostar fyr- ir 30% af því verði, sem fjekkst fyrir þá 1928, þetta hvorttveggja miðað við gullgengi. Þrátt fyrir hin ágætu skilyrði til nautpeningsræktar á Nýja- Sjálandi, er sagt að bændur þar eigi mjög í bökkum að berjast vegna hins mikla verðfalls. Sem sakir standa virðast litlar jlíltur til, að framleiðsla mjólkur- afurða verði aukin að nokkrum | mun á næstunni. Til aðal mark- aðsiandanna berst meira af vör- um þessum en þörf er fyrir, og framleiðendur kvarta sáran yfir hinu lága verði, sem vart sje hægt að framleiða vörurnar fyrir I að skaðlausu. S. S. Matvælaframleiðslan þarf að aukast í heiminum. Vegna viðskiftahaftanna hafa þjóðimar neyðst til að taka upp óhagnýta og óeðlilega framleiðsluháttu. Vöru- verð hefir hækkað, vörugæðm minkað og kaupgeta almenn- ings rýrnað. Sterk alda rís gegn þessum faraldri, se'm lam- ar alt viðskiftalíf heimsins. Menn hafa vanist þeirri hugsun á seinni árum, að allsstaðar í heiminum sje ofmikil framleiðsla á matvælum, og þó eru í heimin- um miljónir atvinnulausra manna, sem varla hafa málungi matar. — Tveir læknar hafa á vegum heil- brigðisnefndar Þjóðabandalagsins gert ítarlegar rannsóknir í þessu efni, og niðurstaða þeirra er sú, að matvælaframleiðslan í heim- inum sje miklu minni, en holl- ustuhættir þjóðanna krefjast. Síðan styrjöldinni miklu lauk hefir orðið geysiframför í ,allri tækni, og á þetta ekki síst við um matvælaframleiðsluna. — Fram- leiðslukostnaðurinn hefir minkað. Samtímis hefir markaðurinn fyrir framleiðsluaukann géngið saman, vegna þess að iðnaðarlöndin í Vestur-Evrópu, sem áður keyptu mest af framleiðslunni úr öðrxim heimsálfum, hafa nú horfið að því ráði að framleiða sjálf hveiti, sykur, kjöt, mjólkurafurðir og ávexti. Ástæðan var talin sú að ekki væri lengur markaður fyrir iðnaðarvörur í öðrum héimsálfum. Sá helmingur hnattarins, sem áð- ur hafði framleitt iðnaðarvörur handa hinum, tók nú að rækta land, sem kostnaðarsamt var að koma í rækt. Ilinn helmingurinn, sem áður hafði matvælaframleiðsl una með höndum, tók aftur á bóg- inn, að framleiða iðnaðarvörur. Hvorirtveggja urðu svo að grípa til tollverndana til að styrkja hina óhagkvæmu framleiðslu. Óeðlilegir framleiðslu- hættir. Nú er svo komið, að þau lönd, sem áður lifðu að langmestu leyti af matvælaframleiðslu, hafa reynt að bjarga sjer á iðnaðarfram- leiðslu. Iðnaðarlöndin snúa sjer aftur að landbúnaðarframleiðsl- unni. Hvorttveggja er jafn óéðli- legt og óhagkvæmt. Og nú koma til skjalanna sjerfræðingamir, sem fyr voru nefndir og segja stutt og laggott: Mestur hlutinn af íbúum jarðarinnar fær of lítið að jeta. Framleiðið meiri mat! Hvergi er tæknin því til fyrir- stöðu, að framleiðsla matvæla aukist. í Iðnaðarlöndunum í Vest- ur-Evrópu, hefir að vísu verið altof mikið á sig lagt, bæði pen- ingalega og á annan hátt, til þess að auka matvælaframleiðsluna handa sjálfum sjer. Menn hafa ekki íhugað nógu vandlega, hve hlutfallslega mjög dýr slík framleiðsla verður. Iljer er átt við það, að matvælaframleiðslan heima fyrir kemur niður á meginþorra þjóð- anna, sem sje þeim, sem áður unnu að iðnaðarframleiðslu. Þetta hafa menn ekki gert sjer ljóst, og heldur ekki hitt að méð þessu fjekk almenningur oftast matvæli, sem bæði voru dýrari og verri, en hægt var að fá úr öðrum heims- álfum. Menn hafa heldur ekki íhugað til fullnustu, að hærra verð á matvælum táknar minni eftirspurn eftir öðrum hlutum. Á hinn bóginn hafa ríkisstjórn- irnar í þeim löndum, sem fram- leiddu matvæli, ekki hugsað um það, hve mjög þjóðartekjur þeirra minkuðu við það, að svo miklu var tilkostað að koma á innanlands- iðnaði. íhlutun ríkjanna. Ur mörgum löndum koma nú mótmæli frá verslunar og sigling- arstjettunum, yfir þeim tálmun- um, sem ríkisstjómirnar leggja á viðskiftin. í landbúnaðarlöndun- um fara menn á mis við ýms þæg- indi, sem of dýrt er að framleiða í iðnaðarlöndunum, og í iðnaðar- löndunum er fjöldi fólks, sem ekki fær nægilega holt fæði, þó að á næstu grösum sje ausið út fje til að halda matvælaframleiðslunni niðri. Muni þess skamt að bíða, að allur almenningur taki undir með verslunar- og siglingarstjettinni um það, að leystir sjeu þeir viðskiftafjötrar, sem nú hindra efnalega afkomu þeirra. 25 dollarar á mánuði fyrir ekki neitt! Nýjar kreppuráð- stafanir í Kanada. 25 dollara á mánuði greiðir ríkis stjórnin í Albertafylkinu í Kan- ada, hverjum borgara fylkisins, sem hefir unnið það eitt til þeirra, að vera til og vera orðinn full- veðja. Aberhart heitir hinn nýji við- skiftafræðingur og núverandi for- sætisráðherra Albertafylkisins, sem fundið hefir upp þetta snjall- ræði til að ráða bót á kreppunni og viðskiftaörðugleikum nútímans yfirleitt. Flokkur Aberharts er kallaður „social-credit“-flokkurinn og á uppruna sinn í Englandi. Upp- hafsmaður hreyfingarinnar er Englendingurinn Major Douglas. Aberliart vann meirihluta í fylkisþinginu í Alberta í kosn- ingum, sem fram fóru fyrir skömmu. 1 kosningaræðu lýsti Aberhart viðskiftaástandinu á þá leið, að það væri svipaðast þyí, að fjöldi fólks biði á eimlestastöð, fyrir framan lest, sem gæti flutt það alt, en þó fengi enginn ílutning vegna þess að engir farmiðar væri til. Farmiðarnir eru áðurnefndar 100 krónur (25 dollarar), sem öll- um konum og körlum verða greiddar mánaðarlega. Atvinnuleysinu kveðst hann ekki geta útrýmt, af því að vjel- arnar spari mannsaflið og fáeinir geti framleitt fyrir alla. En ægi- legustu afleiðingum þess, skortin- um, ætli hann að vinna bug á. Til þess að afla fjárins til út- borgunar á 25 dollurunum, verða lagðir á nýjir skattar, veltuskatt- ar í landinu. Skattarnir verða lagðir á 'mismuninn á framleiðslu og útsöluverði allra vörutegunda, á öllum stigum framleiðslunnar. Skattarnir verða t. d. lagðir á korn bóndans, þegar hann selur það malaranum, á mjölið þegar malarinn selur ba!ka,ranum o!g brauðið þegar bakarinn selur það viðskiftamönnum sínum. „Rjettlátt“ verð eiga sjerfræð- ingar að ákveða á lífsnauðsynjar, en þó skal þess gætt að framleið- endur og kaupmenn fái hver sæmilegan gróða fyrir snúð sinn. Fyrirtæki Aberharts er ekki enn komið í gang. Örðugleikar verða margir á vegi hans, áður en hann getur byrjað á útborg- ununum. Þess er m. a. getið í frjettum frá Alberta að fjármagnið flýji úr bönkum Albertafylkis." Fjár- stjórnin þykir ekki örugg. Ennfremur hefir Aberhart farið fram á að fá geysistórt lán frá kanadisku sambandsstjórninni. — Skuldir Albertafylkis eru nú þeg- ar miklar, en hætt er við að þær verði meiri, þegar hin mikla út- borgunarstarfsemi hefst. Strfðið og flutníngsgjöldin. Þegar er sýnt þótti að til ófrið- ar mundi draga milli ítala og Abyssiníumanna fór að- verða vart nokkurrar hækkunar á flutn- ingsgjöldum. Síðan styrjöldin hófst hafa flutningsgjöld liækkað með degi hverjum. Mikil eftir- spurn er eftir skipum í tímaleigu, en framboðið miklu minna en verið hefir undanfarið. Eru skipa- eigendur ófúsir að gera ráðstafan- ir fram í tímann, eins og oú standa sakir, og kröfur um flutn- ingsgjöld orðnar mjög háar. Þessi hækkun á opnum fragt- markaði gerir allsstaðar vart við sig, og erum við þegar farnir a'ð kenna á henni. Sem dæmi má nefna að fyrir mánuði var flutn- ingsgjald á kolum frá Englandí til ísafjarðar 9 sh. á tonn. Alveg nýlega hefir skip verið leigt til Isafjarðar fyrir 12 sh. á tonn. Og í dag væri tæpast hægt að fá skip fyrir minna en 14 sh. á tonn. Meðal þess, sém veldur hækk- unum á skipaleigum, er stríðs- vátryggingin. Hún hefir marg- faldast. Kemur þetta afar hart niður á iillum siglingum. Má í þessu sambandi minna á þá fregn, sem nýlega birtist hjer í blaðinu, að Norðmenn hafa komið á hjá sjer innanlands samtryggingu um stríðsliættu og ráðgera sam- vinnu við aðrar Norðurlanda- þjóðir í þessum efnum. Talið er að ítalir munu hafa lagt tundurdufl á siglingaleiðum í austurhluta Miðjarðarhafs og við strendur sxnar. Hefir þetta orðið til þess að Englendingar eru teknir að senda flutningaskip suð- ur fyrir Afríku í" staðinn fyrir urn Suez. Þá hefir kolaverð hækkað í Englandi að verulegum mun og hefir alt þetta áhrif til hækkunar á flutningsgjöldum. Hvað viðvíkur flutningsgjöld- um hjeðan, verðúr að áætla, eftir því, sem næst verður komist, að flutningsgjöld til Suðurlanda hafi þegar hækkað um ca. 25%. Bftðfið u Hár. Hefi altaf fyrirliggjax/di hár vi5 íslenskan búuing. Verð við allra hæfi. Versl. Goðafost. Laugaveg 5. Sími 3436.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.