Morgunblaðið - 06.11.1935, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudaginn 6. nóv. 1935,
Ctget.: H.f. Ár/akur. Keykjavlli
Rltstjórar: J6n K'jartansson,
Vallýr Stefánsson.
Ritstjórn og afgrelösla:
Ansturstrœtl 8. — Sírai 1600
Á* <lýsingastjóri: B. Hafberg.
Auglýsingaskrlfstofa:
Au turstræti 17. — Síml 8700.
Heimastmar:
'!... .vjartansson, nr. 3742.
yaltýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni óla, nr. 3»45.
E. Hafberg, nr. ÍJ770.
Áskriftagjald: kr. 3.0u á mánutU.
í lausasölu: 10 aura elntakiO.
20 aurf me6 LesbÖk
150000
Þegar Alþingi 1934 samþykti
lög um sölu mjólkur og rjóma,
töldu Sjálfstæðismenn ótryggi-
lega gengið frá stjórn Mjólkur-
samsölunnar. En að öðru leyti
voru lögin þannig úr garði gerð
að gildi þeirra valt á fram-
kvæmdinni.
Er komið var fram á þing-
tímann í vor sem leið, var kom-
ið í ljós að framkvæmd laganna
fór mjög illa úr hendi, en það
stafaði fyrst og fremst af því,
að meirihluti mjólkursölunefnd-
ar ljet pólitíska hagsmuni sitja
í fyrirrúmi fyrir hagsmunum
bænda, sem nefndinni bar að
gæta.
'Sjálfst'æðismenn báru því
fram bneytingu við lögin, sem
áskjldi framleiðendum einum
allan unjráðarjett þessara mála.
En» Eramsóknarmenn reyndust
,svq auðsveipir herrum sínum,
spsíalis^im, að þeir hindruðu
framgang málsins.
1 vór tókst svo að koma á,
utan þings, fyrir frum-
kvæði og atþeina Ólafs Thors
og Eyjólfs Jóhannssonar, sam-
komulagi um að Mjólkurbanda-
lagi Suðurlands yrði falin stjórn
Samsölunnar. Og skipaði síðan
landbúnaðarráðherra, samkv.
tillögum þess, þá Eyjólf Jó-
hannsson og Egil Thorarensen
til þess að stjórna Samsölunni.
Hin stórfelda umbótatillaga,
sem nú liggur fyrir, er beinn
ávöxtur af starfi Eyjólfs Jó-
hannssonar í stjórn Mjólkur-
samsölunnar.
Það er augljóst mál, að Al-
þýðuflokkurinn hefir tilhneig-
ingu til að beita sjer gegn þess-
um umbótum bændum til
handa. Hitt verður að telja ör-
ugt, að Framsóknarflokkurinn
sýni ekki þá óskammfeilni, að
halda áfram að gefa 2% eyris
af hverjum mjólkurlítra úr
-vasa bænda í flokkssjóð Al-
þýðuflokksins og til annara
pólitískra þarfa, eða um 150
þús. kr. á ári.
Þetta er fyrsti stórviðburður-
inn síðan samsalan tók til
starfa,, fyrsta skýlausa sönnun
fyrir þeirri ránsferð, sem hafin
var á hendur bændum síðastlið-
ið ár og jafnframt árangur þess,
að hæfur maður tók forystuna.
Sönnunin er góð og gild, 150
þús. kr. á ári, sem tekin hefir
verið af bændum og nú á að fá
þeim aftur. Takist það, eru að
nýju skapaðir þeir möguleikar
fyrir farsælum árangri af mjólk
ursamsölunni, sem bændur hafa
einblínt á, og Sjálfstæðisflokk-
urinn barist fyrir.
Lansn f mjólkurmálinn!
Dreifingarkostnað mjólkurinnar er hægt
að lækka úr 6 auruin, eins og hann er
nú I Samsölunni ð 3*1* eyri á liira.
Mjólkurf jelag Reykjavíkur býðst til að flytja | að taka að sér skrifstofuhald Samsölunnar fyrir
mjólkina út um bæinn í mjólkurbúðirnar, frá | 1/3 eyri á lítra.
mjólkurstöð, fyrir 1 eyri á lítra. J Bakarameistarafjelag Reykjavíkur býðst til að
Mjólkurf jelag Reykjavíkur býðst ennfremur til 1 selja alla mjólkina fyrir 2 aura á lítra.
Með þessu móti er hægl að fullnægja krðfum framleiðenda um
hækkaða ótborgun fyrir mjólkina, ðn bess að útsöluverð hækkl.
Fremur hljótt hefir verið
um mjólkurmálið upp á síð-
kastið.
Það hefir þó ekki mátt
skilja svo, sem þar hafi ekk-
ert verið aðhafst .
Eins og mönnum er kunnugt,
var breýtt um stjórn Mjólkur-
samsölunnar í vor.
Fyrir eindregin tilmæli fram-
leiðenda tók Eyjólfur Jóhannsson
framkvæmdarstjóri Mjólkurfje-
lagsins að sjer að annast stjórn
samsölunnar, ásamt Agli Thorar-
ensen. >
Síðan hann tók þetta að sjerj
hefir hann unnið að því að athuga
hvernig hægt væri að fá dreif-
ingarkostnaðinn lækkaðan frá því
sem hann er nú.
Framan af reyndi hann að
koma því svo fyrir, að kostnaður-
i-nn fengist lækkaður, án þess
verulegar hrevtingar yrðu gerð-
ar á sölufyrirkomulaginu, f,rá
því sem það er nú.
En er fram liðu stundir komst
hann að raun um að þetta myndi
ókleift með núverandi stjórnar-
tilhögun.
Gagngerö breyting.
En nú er málið komið á alveg
nýjan^ rekspöl.
Sí$an Mjólkursamsalan tók til
starfa, hefir dreifingarkostnaður
mjólkurinnar orðið hjer 6 aurar.
SamkvÉemt reikningi Samsölunn-
ar fyrsta ársfjórðunginn, var til-
finnanlegt tap á sölunni, enda
þótt dreifingarkostnaður væri
reiknaður 6 aura á lítra. En síð-
an hefir þetta breyst eitthvað-
Þó teija menn Iíklegt að ársút-
koma Mjólkursamsölunnar verði
sú, að hún verði ekki ofhaldin af
því að fá 6 aura fyrir sölu á
hverjum lítra.
En nú hafa Bakarameistarar
hjer í bænum gert stjórn Mjólk-
ursamsölunnar ákveðið tilboð.
Þeir bjóðast til þess að taka til
sölu alla mjólkina, sem Samsalan
fær og taka tvo aura í sölulaun
af lítra.
Ennfremur hefir Mjólkurfje-
lag Reykjavíkur gert stjórn
Samsölunnar tilboð um það, að
flytja mjólkina í mjólkurbúðir frá
mjólkurstöðinni fyrir 1 eyri á
lítra.
Og. að lokum hefir Mjólkurfje-
lag Reykjavíkur boðið Samsöl-
unni, að taka að sjer alt skrif-
stofuhald fyrir Samsöluna, og taka
fyrir það % eýris af lítra.
En þegar þessum tilboðum öll-
um verður tekið, og mjólkursal-
an verður rekin á þenna hátt hjer
í bænum, þá verður það trygt, að
dreifingarkostnaður mjólkurinn-
ar lækkar úr 6 aurum á lítra og í
31/?, eyri.
Sparnaðurinn verður
133-160 þús. kr. á ári.
Alls er reiknað með að Samsal-
an hafi 5—6 miljónir lítra af
mjólk á ári.
Með því að taka tilboðum þess-
um, og spara þannig 2% eyri í
dreifingarkostnað á lítra, spar-
ast 133—160 þús. krónur á ári
í dreifingarkostnaði.
Síðastliðið ár hafa framleiðend-
ur hjer í nágrenni Reykjavíkur
fengið greidda 26 aura fyrir
m j ól kurlítr ann.
Þeir hafa gert kröfu um að fá
útborgun á lítra hækkaða um 3
aura.
Með því að taka ofangreindum
tilboðum, sparast því nær sama
upphæð í dreifingarkostnaði, og
þarf til þess að hækka litborganir
samkvæmt kröfum framleiðenda.
Er ekki hægt að efast um, að
tilboðum þessum verði tekið, og
framleiðendur fái að njóta þess
sparnaðar í dreifingarkostnaði,
sem hjer um ræðir.
Sparnaðurinn við dreifingar-
kostnaðinn sem hjer kemur til
greina nemur 70—80 krónum á
ári á hvé'rja kýrnyt.
Þetta er fyrsta
uppbirtan.
Blaðið átti tal við Eyjólf Jó-
hannsson framkvæmdarstjóra í
gær.
Hann sagði m. a.:
— Þegar jeg tók að mjer að
fara í stjórn Samsölunnar í vor,
ásamt Agli Thorarensen, var mjer
það ljóst að hjer myndi verða
við ýmsa erfiðleika að etja, m. a.
af því, að hve grundvöllur sá, starfi mínu. Nú er hægt að lækka
sem stjóm Samsölunnar er bygð- dreifingarkostnaðinn svo mikið,
ur á, er losarale'gur. að véruleg bót er að, og fullnægja
En nú fyrst sje jeg árangur af kröfum bænda í 'því éfni.
Játningar Alþýðublaðs
ins i utanrfkismálum.
Það er eftirtektarvert, hvernig
Alþýðubl. hefir Skift um tón í
umræðum sínum um utanríkis-
málin. Það er alveg sýnilegt, að
ritstjóri blaðsins htefir féngið
ráðningu fyrir það frumhlaup
sitt, að taka undir rógskrif Jón-
asar frá Hriflu í sambandi við
Spánarsamningana.
Nú leggur blaðið rjettilega á-
herslu á það, hvað utanríkismál-
in sjeu mikilvæg umfram öll önn-
ur mál þjóðarinnar, hve pauðsyn-
legt sje að góð samvinna sje um
þessi mál milli allra þingflokka,
hve sú samvinna hafi gengið á-
kjósanlega að undanförnu, og
hve þýðingarmikið hlutverk utan-
ríkismálanéfnd liafi að inna í
þéssú sambandi.
En hitt virðist blaðið ekki
skilja, að einmitt með því að
leggja svona ríka áherslu á þessi
atriði, kveður það upp dóminn
yfir þeim, sem misnota aðstöðu
sína í þessum efnum til árása á
pólitíska andstæðinga, árása, sem
eru þess eðlis, að þeir sem fyrir
verða geta alls ekki svarað þeim,
vegna þess að með því yrðu þeir
að brjóta trúnað sinn við aðra
þjóð.
Sjálfstæðisflokkurinn sýndi
fram á, að slíkt framferði af
hálfu utanríkisnefndarmanns, úti-
lokaði alla nauðsynléga samvinnu
um þessi mál. Þéss vegna krafð-
ist flokkurinn þess, að utanríkis-
málaráðherrann bætti fyrir af-
glöp samherja síns. Þetta hefir
ráðherrann ekki gert. 1 stað þess
flutti blað ráðherrans sömu dylgj-
urnar, jafnvel enn ákveðnari en
áður.
Þá var sýnt fram á það, að
annaðhvort varð ráðherrann að
bæta fyrir afbrotið, éðal láta,
fram fara opinbera rjettarrann-
sókn í málinu. Hvorugu þessu
hefir ráðherrann svarað. En það
er alveg tilgangslaust fyrir
stjórnarílokkana að reyna að dylja
kjarna málsins með málsskrafi og
vaðji dag eftir dag. 011 þjóðin
hefir fylgst með í þessu máli og
krefst þess að stjórnin geri hreint
fyrir sínum dyrum.
Katla var í ísafirði í gær og
tók þar fisk fyrir Sölusamband-
ið.
Uppdráttur af ísafirði. Jón
Hróbjartsson kennari hefir gefið
ísafjarðarkaupstað stóran upp-
drátt af bænum, eins og hann er
nú. Eru þar sýnd öll mannvirki,
stór og smá.
Hávarður ísfirðingur kom til
ísafjarðar í gærmorgun með sæmi
legan afla. Fer hann bráðum á-
leiðis til Erxglands.
Smakv. einkaskeyti til Mbl. frá
ísafirði).
Framkvæmdarstjóra
síldarverksmiðja
ríkisins sagt upp
starfi.
Stjórn Sildarveríísmið j a
ríkisins ákvað á fundi í gær
að segja Jóni Gunnarssyni
upp starfi hans sem fram-
kvæmdarstjóra verksmiðj-
anna og ráða Gísla Halldórs-
son verkfræðing í hans stað.